Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.is
Pappelina gólfmotta, 70 x 100 cm
Verð 12.500 kr.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Vinnumálastofnun áætlar að 2.500
störf verði til í ár. Það er töluvert í
sögulegu samhengi en þó talsvert
minna en síðustu ár. Stuðst er við
hagvaxtarspár við spágerðina.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir að þessi
fjölgun starfa sé
minni en fyrirsjá-
anleg fjölgun
fólks á vinnu-
markaðsaldri og
því muni atvinnu-
leysi aukast í 2,5-
2,8% á árinu.
Vegna óvissu í
ferðaþjónustu sé
þó erfitt að áætla
fjölgun starfa og
þróun atvinnu-
leysis af nákvæmni.
Gangi spáin eftir mun störfum
hafa fjölgað samfellt í átta ár á tíma-
bilinu 2012 til 2019, eða um alls
33.100. Til samanburðar urðu til
22.600 störf þensluárin 2005 til 2008.
Með yfirstandandi uppsveiflu hef-
ur því verið sett met í starfasköpun.
Talan hækkar um 1.500
Vinnumálastofnun áætlaði í upp-
hafi síðasta árs að 2.500 störf yrðu til
á árinu 2018. Nú áætlar stofnunin að
4.000 störf hafi orðið til í fyrra sem
er mikið í sögulegu samhengi.
Karl segir aðspurður að störfum
muni jafnvel fækka í ferðaþjónustu í
ár. T.d. hafi töluvert verið um upp-
sagnir tengdar WOW air undanfarið.
„Við gerum hins vegar ráð fyrir
frekari fjölgun starfa í byggingar-
iðnaði. Það eru ýmsar framkvæmdir
í gangi, á borð við byggingu nýs
Landspítala. Við höfum jafnframt
áætlað að þjónustuþörfin hjá hinu
opinbera muni aukast. Þá meðal
annars vegna öldrunar og aðhalds
síðustu ár hjá sveitarfélögunum.“
Tæknistörfum að fjölga
Karl segir greiningu Hagstofunn-
ar á staðgreiðslugögnum benda til að
síðustu misseri hafi fjöldi starfa orð-
ið til í tækniframleiðslu, sérfræði-
starfsemi og í upplýsinga- og fjar-
skiptageiranum. Því hafi störfum
fjölgað í þjónustugreinum sem krefj-
ast háskólamenntunar. Gert sé ráð
fyrir að sú þróun haldi áfram í ár.
Karl kveðst aðspurður ekki reikna
með að störfum muni fækka að ráði í
ár vegna sjálfvirknivæðingar, s.s. í
matvöruverslunum þar sem af-
greiðslukössum fer fækkandi. Sú
þróun muni þó örugglega ágerast á
næstu árum, en á móti komi að ný
störf verði einnig til samhliða örum
tæknibreytingum.
Skráð atvinnuleysi í nóvember var
2,5%. Mikil fjölgun varð á vinnu-
markaði á árinu. Árið 2017 voru að
jafnaði 199.500 manns á vinnumark-
aði en verða nálægt 204.000 2018.
Erlent vinnuafl er verulegur hluti
af þessari fjölgun á vinnumarkaði.
Samtals fluttu 5.630 fleiri erlendir
ríkisborgarar til landsins á fyrstu
níu mánuðum ársins en fluttu þá frá
landinu. Með því var árið 2018 komið
fram úr þensluárunum 2006 og 2007.
Alls bjuggu 355.620 manns á land-
inu í lok þriðja fjórðungs, borið sam-
an við 319.575 í ársbyrjun 2012.
Landsmönnum hefur því fjölgað um
36 þúsund manns í uppsveiflunni.
Met slegið í uppsveiflunni
Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði
við Háskóla Íslands, segir sennilegt
að Íslandsmet í fjölda nýrra starfa
hafi verið slegið í þessari uppsveiflu.
Meiri aðflutningur erlendra ríkis-
borgara en nokkru sinni eigi mikinn
þátt í svo mikilli fjölgun starfa.
Í síðustu uppsveiflu hafi verið um-
frameftirspurn eftir háskólamennt-
uðu fólki í fjármálageiranum. Síð-
ustu ár hafi störfum fyrst og fremst
fjölgað fyrir ófaglærða. Útlit sé fyrir
hægari fjölgun starfa næstu ár.
Mörg fyrirtæki hugi að hagræðingu.
Áfram fjölgar störfunum
Vinnumálastofnun spáir 2.500 nýjum störfum í ár Þeim fjölgar 8. árið í röð
Stofnunin áætlar að um 4.000 störf hafi orðið til í fyrra sem var umfram fyrri spá
8
6
4
2
0
-2
-4
-6
-8
-10
.000
22.600 Fjölgun starfa 2005 til 2008 33.100 Fjölgun starfa 2012 til 2019*
Breyting á fjölda starfandi milli ára
2004 til 2019* samkvæmt áætlun Vinnumálastofnunar
*Áætlaðar tölur fyrir 2018 byggðar á tölum Hagstofunnar
fyrstu 10 mán. ársins. Spá Vinnumálastofnunar fyrir 2019.
Heimild: Hagstofan og VMST.
3.400 4.000
2.500
6.900
1.900
5.600
2.800
6.000
’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18* ’19*
-600
5.100
8.200 7.700
1.600
-600
0
-11.100
Karl
Sigurðsson
Morgunblaðið/Eggert
Framkvæmdir við Geirsgötu Vinnumálastofnun spáir frekari fjölgun starfa í byggingariðnaði á þessu ári.
Fram kemur á vef Vinnumála-
stofnunar að stofnuninni bárust
þrjár tilkynningar um hópupp-
sagnir í desember 2018. Var þar 269
manns sagt upp störfum; 149 manns
í flutningum og 120 í framleiðslu.
Á árinu 2018 bárust stofnuninni
15 tilkynningar um hópuppsagnir,
þar sem 864 manns var sagt upp
störfum. Til samanburðar misstu
632 vinnuna í hópuppsögnum 2017
og 493 árið 2016.
Hópuppsagnir 2018
H
ei
m
ild
: V
in
nu
m
ál
as
to
fn
un
Flutningar, 393 (45%)
Iðnaðarframleiðsla, 266 (31%)
Fiskvinnsla, 151 (17%)
Sérfræðistarfsemi, 22 (3%)
Upplýsingar og fjarskipti, 18 (2%)
Fjármálastarfsemi, 14 (2%)
Fjöldi sem sagt var upp störfum í
hópuppsögnum eftir atvinnugreinum
Alls
864
864 lentu í
hópuppsögn
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Okkur bárust í nóvember síðast-
liðnum tilmæli frá ráðherra um að
vísa ekki aftur frá barni. Síðan þá
hefur það ekki gerst og gripum við
til ákveðinna ráðstafana til að koma
í veg fyrir slíkt,“ segir Funi Sigurðs-
son, sálfræðingur og forstöðumaður
Stuðla, meðferðarstöðvar ríkisins,
þegar hann var spurður út í efni
fréttar í Morgunblaðinu í gær.
Var þar rætt við Guðmund
Fylkisson, aðalvarðstjóra hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, um
þær fjölmörgu leitarbeiðnir sem lög-
reglu berast ár hvert vegna týndra
barna og þann mikla fjölda ung-
menna sem sendur er á meðferð-
arstöðina á Stuðlum eftir að þau
finnast. Sagðist Guðmundur meðal
annars hafa lent í því 18 sinnum að
ekki hefði verið laust pláss á neyð-
arvistun Stuðla þegar á þurfti að
halda. Ef börn geta hvorki farið á
Stuðla né heim til sín eru í raun eng-
in önnur úrræði í boði.
„Ef það er ekki laust þá fara þau
heim. Í fyrra gerðist það að stúlka
var ekki velkomin heim og ekkert
pláss var á neyðarvistun. Þá þurfti
ég að láta þessa stelpu labba út eftir
að ég var búinn að finna hana vegna
þess að það voru engin úrræði til
staðar og það var ekki hægt að
skjóta yfir hana neinu skjólshúsi,“
sagði Guðmundur Fylkisson í áður-
nefndri frétt Morgunblaðsins.
Erfitt tímabil vorið 2018
Aðspurður segir Funi ákveðið
tímabil á seinasta ári hafa verið
mjög erfitt og sóttu þá mjög mörg
ungmenni í neyðarvistun hjá Stuðl-
um. „Það var ákveðið tímabil, í mars
og apríl, sem var mjög slæmt,“ segir
hann og bætir við að neyðartilfellum
fjölgi þó ekki mjög á milli ára.
Börnum
er ekki
vísað frá
Stuðlar hafa þegar
gripið til ráðstafana
að beiðni ráðherra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðstoð Tekið er á móti öllum börn-
um sem þurfa neyðarvistun.
Tryggvi Ólafsson list-
málari lést í gær í faðmi
fjölskyldunnar eftir erf-
ið veikindi. Hann var 78
ára að aldri. Hann var
meðal þekktustu mynd-
listarmanna þjóðar-
innar.
Tryggvi var fæddur í
Neskaupstað 1. júní
1940. Foreldrar hans
voru Sigríður Bjarna-
dóttir húsmóðir og
Ólafur Magnússon bók-
ari.
Hann lauk stúdents-
prófi frá MR árið 1960 og nam síðan
við Handíða- og myndlistaskóla Ís-
lands og við Konunglegu listaaka-
demíuna í Kaupmannahöfn árin 1961
til 1966.
Tryggvi vann lengst af sem list-
málari í Danmörku.
Hann hélt fjölda einka-
sýninga þar og á Ís-
landi og tók þátt í
fjölda samsýninga víða
um Evrópu. Þá hefur
hann skreytt bygg-
ingar í Danmörku og á
Íslandi.
Hann var ásamt leik-
stjóranum H. H. Jörg-
ensen höfundur heim-
ildarkvikmyndar um
kennara sinn, danska
myndlistarmanninn S.
Hjorth Nielsen, árið
1977. Gerð hefur verið heimildar-
mynd um list Tryggva, undir heitinu
Bygging, jafnvægi, litur.
Eftirlifandi eiginkona Tryggva er
Gerður Sigurðardóttir skrifstofu-
maður. Börn þeirra eru Gígja
Tryggvadóttir, Þrándur Tryggvason
og Stígur Steinþórsson. Tryggvi gat
ekki málað eftir alvarlegt slys sem
hann lenti í á árinu 2007 og fluttu þau
hjónin eftir það heim til Íslands.
Hann bjó á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum síðustu árin.
Tryggvi hélt áfram að vinna að list
sinni og vann grafík fram á síðasta
dag. Hann var meðal annars með
tvær einkasýningar á síðasta ári.
Tryggvi fékk ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir starf sitt, var riddari af
Dannebrog og var sæmdur íslensku
fálkaorðunni. Hann hlaut verðlaun
Jóns Sigurðssonar forseta árið 2018.
Í fæðingarbæ Tryggva, Neskaup-
stað, er starfrækt safn undir hans
nafni, Myndlistarsafn Tryggva Ólafs-
sonar. Það á fjölda mynda eftir lista-
manninn og efnir reglulega til sýn-
inga á þeim.
Andlát
Tryggvi Ólafsson listmálari