Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
DaVinci
Loftljós
Ármúla 24 • S. 585 2800
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Blað var brotið í sögu banda-rískra stjórnmála ograunar í jafnréttissöguheimsins í gær þegar full-
trúadeild Bandaríkjaþings var sett í
116. sinn. Af þeim 435 þingmönnum
sem nú eiga sæti í deildinni eru 102
konur. Það eru 23,4% þingmanna,
sem er hæsta hlutfall kvenna sem
þar hefur setið. Í hópi þessara rúm-
lega hundrað kvenna eru m.a. fyrstu
konurnar á Bandaríkjaþingi sem eru
íslamstrúar, a.m.k. svo vitað sé opin-
berlega og tvær kvennanna rekja
ættir sínar til frumbyggja Ameríku.
Þrettán af þessum 102 þingkon-
um eru repúblikanar og 89 eru
demókratar. 35 þingkvennanna voru
kosnar í miðkjörtímabils-kosning-
unum svonefndu, sem á ensku kall-
ast midterm og voru í nóvember á
síðasta ári. Þar fengu demókratar
meirihluta og eru með 235 þingsæti.
Repúblikanar eru með 199 sæti og
eitt sæti er autt. Það tilheyrir repú-
blikananum Mark Harris, verið er
að rannsaka ásakanir á hendur hon-
um um kosningasvindl og tók Harris
því ekki sæti sitt í gær.
Leikskóli á Capitol-hæð
Í hópi þingmannanna eru nú
fleiri konur með ung börn en áður
hefur verið og til að bregðast við því
var opnuð gæsla fyrir börn starfs-
manna þingsins í húsnæði þingsins á
Capitol hæð í Washington DC fyrr í
vikunni. Óhætt er því að segja að
ásýnd Bandaríkjaþings hafi því
breyst nokkuð eftir úrslit síðustu
kosninga.
Meðal þeirra kvenna sem tóku
sæti á þinginu í gær eru Sharice
Davids frá Kansas og Deb Haaland
frá Nýju Mexíkó. Báðar rekja ættir
sínar til frumbyggja Ameríku og eru
fyrstu þingkonurnar sem það gera.
Davids er einnig fyrsti þingmaður-
inn frá Kansas sem er opinberlega
samkynhneigður. Þær Rashida Tla-
ib frá Michigan og Ilhan Omar frá
Minnesota eru fyrstu konurnar sem
játa íslamstrú og kosnar eru á
Bandaríkjaþing og Omar er fyrsti
Bandaríkjamaðurinn af sómölskum
ættum sem er kosinn á þingið. Hún
kom til landsins sem flóttamaður
fyrir rúmum tuttugu árum og hafði
þá dvalið um skeið með föður sínum í
flóttamannabúðum í Kenía. Hún
birti mynd á Twitter-síðu sinni fyrr í
vikunni sem sýndi þau feðginin á
flugvelli í Washington, en þangað
voru þau komin til að vera við setn-
ingu þingsins. Hún sagði þar frá því
að þau lentu þá á sama flugvelli og
þegar þau komu fyrst til landsins.
Hrekkjusvínin vinna ekki
Tlaib er fyrsta konan af palest-
ínskum uppruna sem nær kjöri í full-
trúadeildina. Hún er dóttir innflytj-
enda frá Palestínu, sú elsta í hópi 14
systkina og var fyrsta múslíma-
konan sem sat á ríkisþingi Michigan-
ríkis. Í viðtali við bandarísku sjón-
varpsstöðina CNN sagði hún að
þegar úrslit kosninganna lágu fyrir
hafi 13 ára sonur hennar sagt: „Sko
mamma. Hrekkjusvínin vinna ekki.“
„Hann var að tala um Donald
Trump,“ útskýrði Tlaib.
Það vakti talsverða athygli þeg-
ar hún spurði Trump á fundi fyrir
forsetakosningarnar 2016 hvort
hann hefði yfirhöfuð lesið stjórnar-
skrána, en henni var hent út af fund-
inum fyrir að hafa borið spurning-
una upp. „Þetta var það bandarísk-
asta sem ég hef nokkurn tímann
gert,“ sagði Tlaib um þetta atvik.
Við athöfnina í gær var hún í
hefðbundnum palestínskum klæðn-
aði sem kallast thobe og sór embætt-
iseið sinn við kóran sem var í eigu
Thomasar Jefferson, þriðja forseta
Bandaríkjanna og hún sagði það
vera til marks um það að íslamstrú
hefði verið hluti af bandarísku þjóð-
lífi um aldir. Konur af palestínskum
uppruna um víða veröld birtu í gær
myndir af sér í thobe á Twitter undir
myllumerkinu #TweetYourThobe
og samfögnuðu þannig Tlaib.
Þingið aldrei litið svona út
Alexandria Ocasio-Cortez frá
New York var kjörin á þing fyrir
Demókrataflokkinn. Hún er 29 ára
gömul og yngsta konan sem hefur
náð kjöri. Þá er Cindy Hyde-Smith
frá Mississippi fyrsta konan úr rík-
inu sem er kosin á þing og Ayanna
Pressley er fyrsta svarta konan frá
Massachusetts sem nær kjöri.
„Þingið hefur aldrei litið svona út“,
var fyrirsögn á frétt CNN í gær og
þar var leitt líkum að því að fjöl-
breyttari hópur þingmanna myndi
verða til góðs.
Nýir tímar á
Capitolhæð
Tæpur fjórðungur þingmanna í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings eru konur og hafa þær aldrei verið fleiri.
Meðal þeirra eru fyrstu múslímakonurnar á þinginu
og kona sem kom til landsins sem flóttamaður.
AFP
Capitol hæð Fulltrúadeildin er þar til húsa. Talsverðar breytingar hafa orðið á samsetningu þingmannahópsins.
Rashida Tlaib Hún sór embættiseið í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær.
Sharice Davids Hún rekur ættir
sínar til frumbyggja Ameríku.
Ilhan Omar Fyrsti Bandaríkjamað-
urinn af sómölskum ættum á þingi.
Nancy Pelosi sem er leiðtogi
demókrata í fulltrúadeildinni var í
gær svarin í embætti sem forseti
deildarinnar og er því ein valda-
mesta konan í bandarískum
stjórnmálum. Hún gegndi þessu
embætti líka árin 2007-2011 og
var fyrsta konan sem það gerði,
reyndar sú eina.
Í viðtali í Today Show, morgun-
þætti bandarísku sjónvarps-
stöðvarinnar NBC, í gærmorgun
sagði Pelosi að hún gæti ekki úti-
lokað þann möguleika að lýst yrði
yfir vantrausti á Donald Trump
Bandaríkjaforseta á þinginu. Hún
sagðist ekki ætla að hvetja til
slíkrar yfirlýsingar að svo komnu
máli, beðið yrði með ákvörðun þar
til eftir birtingu lokaskýrslu Rob-
erts Mueller, sérstaks saksóknara,
þar sem meint afskipti Rússa af
forsetakosningunum í Bandaríkj-
unum 2016 eru rannsökuð.
Pelosi sagði ennfremur að full-
trúadeildin myndi aldrei fallast á
að múrinn, sem Donald Trump
Bandaríkjaforseti hefur heitið að
láta reisa við landamæri Banda-
ríkjanna og Mexíkó, yrði reistur en
hluti bandarískra ríkisstofnana
hefur verið lokaður undanfarna
daga þar sem þær fá ekkert fjár-
magn á meðan forsetinn hefur
ekki viljað samþykkja fjárlög
þingsins. Ástæða þess er að í þeim
er ekki gert ráð fyrir byggingu
múrsins.
Sór embættiseið í gær
NANCY PELOSI ER ÞINGFORSETI Á NÝJAN LEIK
AFP
Nancy Pelosi Hún sór í gær embættiseið sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings og gengur hér sigurreif inn í salinn í þinghúsinu á Capitol-hæð.