Morgunblaðið - 03.01.2019, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Janúarmán-uður lýtursérstökum
lögmálum og er
iðulega uppgjörs-
tími við fortíð og þá
er iðulega einnig, á
grundvelli hennar, reynt að
horfa til þess ókomna og giska
á eða spá fyrir um það hvernig
það sem mestu þykir skipta
muni artast á hinu nýbyrjaða
ári. Leiðtogar þjóða, trúar-
bragða, stjórnmálahreyfinga
og aðrir þeir sem telja sig tala í
umboði fjöldans flytja þá ávörp
og birta hugleiðingar. Þá er
ekki aðeins horft um öxl eða
spáð í þá framtíð sem næst er.
Vonum og væntingum eru gerð
skil og heitið á sjálfa sig og
aðra að láta til sín taka og eftir
atvikum bæta úr því sem lakar
fór á liðnu ári en lofað var við
upphaf þess. Mánuðurinn heitir
eftir Janusi, guði upphafsins,
sem hafði tvö andlit og vissi
annað aftur og hitt fram.
Áramót og aðdragandi þeirra
setja völvur og spámenn í önd-
vegi og þau spurð um óorðna
hluti. Þau spá því af öryggi að
íslenska veðrið muni nokkrum
sinnum fara mikinn á komandi
ári, ófærð hamla umferð, Land-
spítalinn muni fyllast út úr dyr-
um með sjúklinga liggjandi á
salernum, geymslum, bílaplön-
um og nánast alls staðar nema
á skrifstofu forstjórans.
Allmörg stórslys verði og
óróleiki í stjórnmálum verði
jafnoft og veruleg átök á vinnu-
markaði. Með þessum þáttum
og nokkrum öðrum er sá sem
forspár þykir kominn með vel
yfir 70% „rétta“ um næsta ár
og er því fyrirgefið þótt honum
skjöplist um lítilræði sem
vandasamara er að sjá fyrir. Af
erlendum vettvangi er því spáð
að frægar Hollywoodstjörnur
muni skilja á árinu og Donald
Trump senda frá sér tíst sem
trylli heimsbyggðina. Það mun
gefa 100% „rétta.“
Sumar spár eru byggðar á
vísindalegum aðferðum en þær
vilja bregðast líka. Stór hluti
undirstöðunnar í þeim spám
eru framreikningar sem styðj-
ast við þekktar forsendur og
reynslu. En jafnvel það sem
öruggast þótti stenst ekki. Í
fyrra hefði þótti mega spá því
af miklu öryggi að Bretar yrðu
komnir úr ESB snemma árs
2019 enda meitlað í grjót að
gengið yrði út úr þeim selskap
ekki síðar en 29. mars það ár.
En margvísleg undirmál eru í
gangi og margt reynt til að
eyðileggja ákvörðun bresku
þjóðarinnar. Því miður koma
þau tilþrif ekki á óvart. Ýmsir
spá því eða færa fyrir því rök að
evran muni mæta vaxandi erf-
iðleikum næstu eitt til tvö árin
og meiri líkur en minni standi
til að hún horfist í
augu við endalok
sín. Þótt ekki yrði
söknuður að því er
rétt að muna að
gríðarlegir stjórn-
málalegir hags-
munir tengjast tilveru myntar-
innar, þótt að forsendur hennar
séu veikar enda grundvöllur
hennar aldrei réttilega lagður.
Víða hefur verið horft til þess
síðustu tvö ár hversu mikinn
byr ný öfl hafa fengið. Stjórn-
málaflokkar sem látið hafa und-
an síga uppnefna þá sem sækja
á sem lýðskrumara. Með fullri
virðingu fyrir öllum flokkum þá
er lýðskrumið sameiginlegt
einkenni. Allir gera þeir „leyni-
legar“ kannanir fyrir sig í að-
draganda kosninga og laga
stefnuskrárnar að þeim. Af
hverju skyldu þeir sem hafa
efasemdir um að rétt sé að færa
sífellt stærri hluta af sjálfstæði
þjóðríkisins til umboðslausra
búrókrata umsvifalaust vera
stimplaðir lýðskrumarar af hin-
um sem taka þátt í að grafa
undan því?
Sú þróun sem hin „stjórn-
málalega elíta“ hefur fordæmt
og uppnefnt var fyrirferðar-
mikil á síðasta ári. Enginn veit
með vissu hvort það verði svip-
að á þessu ári, vaxi jafnvel eða
hvort úr því dragi. Tvö dæmi
gætu þó bent til þess að þróun-
in síðustu misseri haldi áfram.
Það fyrra snýr að Macron for-
seta Frakklands sem sér sína
óvini í almenningi í endurskins-
vestum. ESB-sinnar bundu
vonir við að Macron tæki við
ESB-keflinu af Merkel, a.m.k.
þar til að öflugur þýskur kansl-
ari hefði sest í hennar stól. Trú-
verðugleiki forsetans er lask-
aður og stuðningur við hann er
hruninn niður í rétt rúm 20%.
Þótt flestir helstu fjölmiðlar
vestra helli sér hvíldarlaust yf-
ir sinn forseta, og hann auð-
veldi þeim þann leik sjálfur,
mælist Trump enn með helm-
ingi meira fylgi en forsetinn
ungi í Élyséehöllinni.
Hitt dæmið var birt í þýskum
fjölmiðlum í fyrradag og þótti
sumum váleg frétt. Í sept-
ember n.k. verður kosið í
Brandenburg í Þýskalandi sem
er 5. stærsta fylki landsins.
Fyrsta skoðanakönnun um
fylgi flokka þar hefur nú birst.
Þar hefur AfD, (flokkur stimpl-
aðra lýðskrumara) 20%, flokk-
ur krata, SPD, sem er lang-
stærstur flokka fylkisins,
mælist einnig með 20% og
CDU, stórflokkur Merkel
kanslara, með 19%. Þetta er
fyrsta könnun og níu mánuðir
til kosninga. Aðeins má því
taka hæfilegt mark á henni. En
hún bendir ekki til að þróunin í
Þýskalandi sé að breytast,
nema síður sé.
Við vitum svo lítið
um þetta að gaman
er að ræða það í
þaula}
Janúar er á
báðum áttum
S
tyrking heilsugæslunnar er eitt af
mikilvægustu stefnumálum mín-
um sem heilbrigðisráðherra og
meðal meginmarkmiða ríkis-
stjórnarinnar. Á undanförnu ári
hafa verið stigin mikilvæg skref í þá átt að
efla heilsugæsluna. Sett var á fót þróunar-
miðstöð heilsugæslunnar á landsvísu sem
mun leiða faglega þróun allrar heilsugæslu-
þjónustu í landinu. Markmið með stofnun
hennar er meðal annars að jafna aðgengi
landsmanna að þessari mikilvægu grunn-
þjónustu hvar sem fólk býr, efla gæði þjón-
ustunnar og stuðla að nýjungum. Til að ná
markmiðum um öfluga heilsugæslu sem
fyrsta viðkomustað í heilbrigðiskerfinu er
mikilvægt að leggja áherslu á forvarnir og
fræðslu til sjúklinga. Í samræmi við geð-
heilbrigðisáætlun alþingis verður geðheilbrigðisþjón-
usta efld til muna með 650 milljóna króna framlagi á
fjárlögum ársins 2019 meðal annars með því að fjölga
geðheilsuteymum og fjölga stöðugildum sálfræðinga í
heilsugæslunni. Bætt aðgengi að heilsugæslunni er
mikilvæg forsenda eflingar hennar og er nýliðun þar
mikilvægur þáttur. Í byrjun október tók ég þá
ákvörðun að fjölga sérnámsstöðum í heimilislækn-
ingum við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um
fimm. Þá hefur aðgengi að þjónustu heilsugæslunnar
verið bætt í gegnum vefsíðuna Heilsuveru en þar er
nú boðið upp á netspjall við hjúkrunar-
fræðinga heilsugæslustöðva sem leiðbeina
fólki um hvert skuli leita innan heilbrigðis-
kerfisins. Um er að ræða samstarfsverk-
efni Landlæknisembættisins og Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins með það að
markmiði að auka aðgengi fólks að heilsu-
gæslu og heilsuvernd. Verkefnið er mikil-
væg viðbót við heilbrigðisþjónustu og er til
þess fallið að draga úr álagi á heilsugæsl-
una og aðrar heilbrigðisstofnanir og veita
notendum bætta þjónustu.
Mikilvægur liður í að bæta aðgengi heil-
brigðisþjónustu er að draga úr kostnaðar-
þátttöku sjúklinga. Stórt skref var stigið í
þeim efnum nú um áramót þegar inn-
heimtu komugjalda af öryrkjum og öldr-
uðum í heilsugæslu og hjá heimilislæknum
var hætt. Þá var gjald fyrir vitjanir lækna til aldraðra
og öryrkja einnig fellt niður. Aðgengi barna að heil-
brigðisþjónustu er sömuleiðis tryggt en eftir sem áð-
ur eru ekki innheimt komugjöld hjá börnum að 18 ára
aldri.
Nýsamþykkt fjárlög 2019 endurspegla því þær
áherslur sem ríkisstjórnin hefur sett sér um eflingu
heilsugæslunnar og bætt aðgengi að heilbrigðisþjón-
ustu.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Sterkari heilsugæsla
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
með karli eða konu og gefur blóð viku
síðar, geti það gerst að sýking, sem
myndast hefur við þann atburð,
mælist ekki. „Það tekur ákveðinn
tíma frá því smitefni kemur inn í lík-
ama þar til hann myndar mótefni við
smitefninu. Þetta hefur verið kallað
gluggatímabil (e. window period) og
má segja að það sé svartipéturinn í
þessu spili,“ segir Már. „Þess vegna
skiptir miklu máli að fólk svari rétt,
því þetta er ekki óhugsandi atburður,
en þó ólíklegur,“ segir hann.
Már segir að sá möguleiki sé fyr-
ir hendi að skima nánar fyrir smiti á
hinu svonefnda „gluggatímabili“ með
kjarnsýruprófum. Slík próf kosta aft-
ur á móti a.m.k. 40-50 þúsund krónur
fyrir hverja blóðgjöf. „Það eru lang-
mestar líkur á að smit birtist í blóði í
formi erfðaefnis viðkomandi sýkils og
það er hægt að mæla með kjarnsýru-
prófi. Þá flækist málið samt því skim-
unarkostnaður er mun meiri,“ segir
hann. „Þá er í stöðunni annars vegar
að skima aðeins með slíkum prófum
hjá þeim sem falla í þennan hóp, eða
öllum blóðgjöfum, hins vegar,“ segir
Már.
„Þetta eru þau viðfangsefni sem
við stöndum frammi fyrir, þ.e. hvort
það sé verjandi að gera þetta. Sumar
þjóðir hafa komist að því að þetta sé
verjandi, en það verður að hafa í huga
að öll þau lönd sem hafa aflétt þessu
banni hafa skilyrði um að einhver tími
sé liðinn frá því viðkomandi stundaði
kynlíf. Þetta er spurningin um að
hafa ævilanga útilokun frá blóðgjöf
niður í t.d. fimm ára hreinlífi, tólf
mánaða hreinlífi, fjögurra mánaða
hreinlífi o.s.frv., allt eftir því hvað tal-
ið er skynsamlegt,“ segir hann.
Ekki spurning um keppni
Þórólfur Guðnason, sóttvarna-
læknir sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að Ísland væri eftirbátur
nágrannalanda sinna í rýmkun regln-
anna. Már segir sum lönd hafa breytt
reglum sínum og önnur ekki. „Ég
held að þetta sé ekki keppni um að
vera fremstur eða flottastur. Þetta
endurspeglar svo marga þætti, t.d.
hver tíðni sjúkdómanna er í viðkom-
andi ríki,“ segir Már og bendir á að
tíðni allra fyrrgreindra sjúkdóma hafi
verið lág hér á landi. „Þetta er staðan
hjá okkur og spurningin er hvort við
höfum nægilegar upplýsingar um far-
aldursfræði þessara sýkinga í okkar
samfélagi til að það gefi tilefni til að
endurskoða þessa ákvörðun. Þetta
snýst alltaf um öryggi blóðbirgðanna,
það er kjarninn í starfsemi blóðbank-
ans. Hann vill veita góða þjónustu og
örugga vöru.“
Már nefnir að það sé misskiln-
ingur að nokkur eigi rétt á að gefa
blóð. „Ef þú tekur einn hóp fyrir og
segir að hann megi ekki gefa blóð, þá
getur falist ákveðið óréttlæti í því.
Það er aftur á móti ekki réttur eins
eða neins að gefa blóð. Við viljum fá
blóð úr sem flestum, en við viljum að
það sé gott blóð,“ segir hann.
Mörg álitaefni tengd
reglum um blóðgjöf
Morgunblaðið/Þórður
Blóðgjöf Karlmönnum sem hafa samfarir við sama kyn er óheimilt að
gefa blóð samkvæmt núgildandi reglum og tilheyra smitáhættuhópi.
SVIÐSLJÓS
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ráðgjafarnefnd um faglegmálefni í blóðbankaþjón-ustu fundar um miðjanmánuðinn um hvort
endurskoða skuli reglur um blóðgjöf
með tilliti til karlmanna sem hafa haft
samfarir við sama kyn. Nefndin svar-
ar til heilbrigðisráðherra, en skip-
unarbréfi nefndarinnar frá því í októ-
ber sl. fylgdi erindi þess efnis að þetta
skyldi kannað. Nefndin er ráðgefandi
gagnvart ráðherranum, Landspítala
og Blóðbankanum, en fagleg ákvörð-
un um endurskoðun reglnanna liggur
hjá yfirlækni bankans að sögn Más
Kristjánssonar, formanns nefndar-
innar og yfirlæknis smitsjúkdóma-
lækninga á LSH.
Á vef Blóðbankans segir að ýms-
ar ástæður geti valdið því að vísa
verði blóðgjafa frá blóðgjöf tíma-
bundið eða varanlega og frávísanir
geti bæði verið til verndar blóð-
gjöfum og -þegum. Már segir að heil-
næmi blóðs sem tekið sé til gjafar
byggist á tvennu. Í fyrsta lagi því að
blóðgjafi gefi réttar upplýsingar um
þessi atriði. „Í öðru lagi eru fram-
kvæmd blóðpróf á öllu blóði, þrátt
fyrir að fólk svari öllum spurningum
neitandi,“ segir hann, en prófin mæla
tilteknar blóðbornar sýkingar, þ.e.
HIV, lifrarbólgu B og C auk sárasótt-
ar, eða sýfilis. Um er að ræða próf
þar sem mælt er fyrir mótefnum í
blóðinu gegn sýkingu.
Möguleiki á skimun blóðsins
Karlmenn sem hafa haft sam-
farir við sama kyn eru skilgreindur
áhættuhópur í tengslum við blóðgjöf.
„Það eru ekki bara karlar sem
stunda mök við karla sem eru
áhættuhópur […], en sá hópur er lík-
indalega séð miklu líklegri til að vera
með blóðborna sýkingu heldur en all-
ur þorri manna, allavega hefur það
verið viðtekin skoðun og gögn benda
til þess,“ segir Már og bendir á að
þetta sé þó ekki einsleitur hópur.
„Sá sem hefur átt sama maka í
þrjátíu ár og ekki stundað mök við
neinn annan er ekki í neinni áhættu á
því að smita nokkurn annan. Engu að
síður fellur hann í þennan hóp og ég
held að í þessu felist mestur pirringur
hópsins, þ.e.a.s. að allir séu settir í
þennan hóp,“ segir hann.
Að sögn Más liggur vandinn í því
að ef blóðgjafi hefur t.d. stundað mök