Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019 Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 hafðu það notalegt vottun reynsla ára ábyrgð gæði miðstöðvarofnar Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Stundum verður maður fyrir happi. Það gerðist hér í blaðinu 3. janúar sl. að mestur hugsjónamaður meðal leikmanna í stórfram- kvæmdum, jarðganga- gerð og samgöngu- bótum, Guðmundur Karl Jónsson farand- verkamaður, sendi undirrituðum tóninn. En nú henti það Guðmund Karl að rangtúlka hugsjónir þeirra mörgu sem sjá mjög mikla hagsmuni fyrir alla landsmenn með einum góðum vegi þvert yfir hálendið. Þar er Kjal- vegur frábær lausn nema ef vera skyldi vegur um Sprengisand. Ég hef aldrei talað fyrir Kjalvegi sem yrði opinn árið um kring, er þó Blá- fellshálsinn mestur farartálminn. Þessi vegur yrði lagfærður og byggður upp með töku veggjalda sem ferðamenn myndu greiða og unninn í einkaframkvæmd. Kjalveg- ur hinn nýi yrði ekki þungaflutningaleið heldur ferðamanna- vegur. Kjalvegi yrði lokað um veturnætur, það er um þær mundir sem Reynistaðar- bræður lögðu upp norður í Skagafjörð úr Hrunamannahreppi með fjárrekstur og af hlaust hörmulegt slys 1781. Kjalvegur er senni- lega jafn gamall Ís- landsbyggð, þar lá þjóðleið í gegnum aldir. Að byggja hann upp og klára veginn norður væri svona eitt „braggaverð“ í Reykjavík. Nú sjáum við, þegar dýrustu framkvæmdir Íslandssögunnar í vegagerð eru skoðaðar, Vaðlaheiðar- göng og Landeyjahöfn, þótt enginn iðrist þeirra framkvæmda í dag, hversu miklir smáaurar færu í að ljúka veginum norður um Kjöl. Ein- ungis er eftir að lagfæra 80 km leið. Sumarvegur um Kjöl myndi breyta Íslandi, sem er að verða eitt stærsta ferðamannaland heimsins miðað við mannfjölda landsins. Engin rúta og engir fólksbílar eru byggð fyrir hinn harða og ófæra Kjalveg. Betri vegur myndi gera það að verkum að allir myndu elska landið sitt enn heitar á eftir. Og njóta þess að aka leiðina milli jökla og hægt væri að dreifa enn frekar ferðamönnum eftir sól og regni. Kjalvegur endurbættur er mikilvæg samgöngubót en í leiðinni einn áhugaverðasti ferðamannaveg- ur norðan Alpafjalla. Kjalvegur kemur – umræða flýtir framkvæmdinni Eftir Guðna Ágústsson »Kjalvegur endur- bættur er mikilvæg samgöngubót en í leið- inni einn áhugaverðasti ferðamannavegur norð- an Alpafjalla. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ritar grein í Morgunblaðið 28. desember sl. „Fullveldið, stjórnar- skráin og alþjóða- starf“. Fjölnismenn, stjórnarskráin, þing- ræðisreglan og al- þjóðasamninga er allt skeytt að niðurstöðu greinarinnar sem nefnist „EES- aðild í stjórnarskrá“. Þar gengur núverandi formaður endurskoð- unarnefndar um EES-samninginn svo langt að leggja að jöfnu þing- ræðisregluna og EES-samninginn sem stjórnskipunarreglu. Dáðleysi ráðamanna Þetta er ekki í fyrsta sinn sem stjórnmálamenn sem eru hallir und- ir aðild að ESB, tengja EES- samninginn við aðra alls ólíka alþjóða- samninga, þar sem Ís- land er fullgildur og jafnrétthár aðili eins og hvert annað ríki og ræður því hvað þarf að taka upp í íslensk lög. Ráðandi stjórn- völd hafa síðasta ára- tuginn gefið æ meira eftir vaxandi kröfu ESB um upptöku laga sem sniðin eru að Evrópu, en koma Íslandi ekkert við, samanber orku- mál. Það er ljóst að stjórnvöld vilja ekki styggja miðstjórnina í Brussel, það sést best á sjálfvirkri afgreiðslu mála inni í Sameiginlegu EES- nefndinni, samþykkt þar er skuld- bindandi fyrir Ísland, þrátt fyrir stjórnmálalegan fyrirvara um sam- þykki Alþingis. Gagnrýni á málið er afgreidd með tilvísun um fyrri sam- þykkt utanríkismálanefndar. Þessa ólýðræðislegu sjálfvirku afgreiðslu ESB gerða vilja ráðamenn kalla stjórnskipunarhefð eða reglu, til að réttlæta ferlið. Með þessu eru ís- lenskir ráðamenn í raun að leiða þjóðina hægt og bítandi inn í ESB, án þess að hún fái nokkru um það ráðið. Stjórnarskrárgrýlan notuð á EES- samninginn Fv. ráðherra segir að fræðimenn í stjórnskip- unarrétti séu ósammála um hvenær alþjóða- samningar skerði full- veldisákvæði stjórnarskrárinnar, og segir að „betra sé að móta reglu sem setji þátttökunni mörk en að stofna til ágreinings sem umboðs- lausum fræðimönnum sé síðan ætl- að að leysa úr með álitsgerðum“, hann leggur til að reglan sé að „að festa aðildina að EES eina í stjórn- arskrána“. Greininni í heild er ætlað að draga fjöður yfir gagnrýni á að þróun til miðstýringar í ESB sé ver- ið að yfirfæra á Ísland í gegnum EES-samning- inn, og í stað þess að ræða og takast á við þá óheillaþróun er stjórn- arskránni kennt um að vera fyrir EES- samningnum. Það er verið að afvegaleiða og blekkja almenning með slíkri umræðu og er hættulegt sjálfstæði landsins, þegar fylgi- spekt ráðamanna við ESB er orðin slík að gera tillögu um að viðskiptasamn- ingur sé felldur inn í stjórnar- skrána, eins og hann verði þar um ókomna framtíð. Enginn ágrein- ingur er um að Ísland gerist aðili að alþjóðasamningum þar sem landið er fullgildur og jafnrétthár með- limur, öfugt við ólýðræðislega þróun EES samningsins sem krefst þess að ákvörðunarvald um innlenda hagsmuni sé í höndum erlendra stofnana og dómstóla. Að beygja stjórnar- skrána undir EES samninginn Eftir Sigurbjörn Svavarsson Sigurbjörn Svavarsson »Með þessu eru íslenskir ráðamenn í raun að leiða þjóðina hægt og bítandi inn í ESB, án þess að hún fái nokkru um það ráðið. Höfundur er formaður Frjáls lands. s.svavarsson@gmail.com Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.