Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 26

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019 ✝ Halldór Guð-mundsson fæddist 16. september 1945. Hann greindist með krabbamein haustið 2016 og lést á heimili sínu 19. desember 2018. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorkelsson, bóndi og verkamaður frá Valdastöðum í Kjós, f. 1909, d. 1969, og Guðrún Ágústa Hall- dórsdóttir, verkstjóri hjá Föt- um hf., úr Reykjavík, f. 1914, d. 1991. Systkini Halldórs eru Þor- kell G. innanhússarkitekt, f. 1934, Aðalheiður fóstra, f. 1936, og Arndís bókasafnsfræð- ingur, f. 1938. Kona Halldórs frá árinu 1994 er Anna Björnsdóttir, grafískur hönnuður, f. 1954. Synir Halldórs og Önnu Krist- insdóttur hárgreiðslumeistara, f. 1946, eru: 1) Kristinn Ágúst leikmyndagerðarmaður, f. 1967. Kona hans er Bentína Unnur Pálsdóttir bankastarfs- maður, f. 1968. 2) Arnaldur ljósmyndari, f. 1971. Kona hans er Gyða Björg Olgeirsdóttir hússins frá 2005 til vors 2017. Halldór sat í stjórnum ým- issa félagasamtaka og fyrir- tækja. Hann var einn eigenda Kaupstefnunnar Reykjavík hf., sem stóð fyrir fjölda heimilis- sýninga og alþjóðlegra vöru- sýninga á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Þá var hann helsti hvatamaður að stofnun sjónvarpsstöðvarinnar Sýnar, sem síðar rann inn í Ís- lenska útvarpsfélagið/Stöð 2. Hann var forgöngumaður um stofnun SÍA, Samtaka íslenskra auglýsingastofa, árið 1978 og var þrívegis kjörinn formaður í samtökunum, til setu í samtals sjö ár. Halldór var heiðurs- félagi í Seyðfirska alpaklúbbn- um, SF-ALP, sem í þrjá áratugi hefur skíðað saman í austur- rísku og ítölsku ölpunum. Halldór var snemma bók- hneigður og vissi fátt betra til hvíldar og skemmtunar í erli dagsins en lestur efnis um stjórnmál, efnahagsmál og bita- stæðar ævisögur. Halldór skrif- aði barna- og fullorðinsbókina Sagan af Mosa og hugprýði hans, sem kom út árið 2006 og hann og Anna kona hans unnu saman. Halldór var vinstrisinnaður fram á miðjan aldur, er hann skipti yfir á hægri væng stjórn- málanna og fylgdi eftir það Sjálfstæðisflokknum að málum. Jarðarför Halldórs fer fram frá Neskirkju í dag, 4. janúar 2019, klukkan 13. ritari, f. 1970. Barnabörn Hall- dórs eru Gunnar Kristinsson, f. 1992, Orri Arn- aldsson, f. 1998, og Daði Arnaldsson, f. 2001. Halldór gekk í Melaskóla, Haga- skóla og lauk landsprófi frá Vonarstræti. Hann stundaði nám í einn vetur í Menntaskólanum í Reykjavík. Hann lauk sveinsprófi í tré- smíði frá Iðnskólanum í Reykjavík og stundaði nám í einn vetur við Tækniskólann, til undirbúnings framhaldsnámi í arkitektúr. Árið 1967 gerðist Halldór starfsmaður Alþýðubandalags- félagsins í Reykjavík og var framkvæmdastjóri Alþýðu- bandalagsins frá stofnun þess árið 1968 til 1970, er hann gerðist starfsmaður Auglýs- ingastofunnar hf. Hann varð framkvæmdastjóri stofunnar árið 1978 fram til ársins 2005, en nafni stofunnar var síðar breytt í Hvíta húsið, á sömu kennitölu. Halldór var starf- andi stjórnarformaður Hvíta Ein af mínum elstu minningum af Dóra frænda var seint á föstu- degi í Ríkinu við Lindargötu. Þetta var á þeim tíma sem ennþá var selt áfengi yfir búðarborð í brúnum bréfpokum og stóð ég þar fimmtán ára gamall að reyna að kaupa af brúnaþungum af- greiðslumanni sem horfði nokkuð vantrúaður á glæran skegghýj- unginn sem ég hafði látið mér vaxa af þessu tilefni. Þessi dulbún- ingur virtist ekki hafa mikil áhrif á embættismanninn og sló hjartað ótt og títt í unglingsbrjóstinu þeg- ar ég með skjálfandi röddu bað hann vinsamlegast um að selja mér einn pela af brennivíni. Í gegnum hlátrasköll afgreiðslu- manna og nærstaddra heyri ég út- undan mér sagt kunnuglegri röddu: „Sæll frændi.“ Stóð þar Halldór Guðmundsson við hliðina á mér og glotti í kampinn þar sem hann keypti með heldur lítilli fyr- irhöfn, að mér fannst, eina rauð- vínsflösku með föstudagssteik- inni. Og þó Halldór hafi ekki viljað kaupa brennivín fyrir barnungan frænda sinn á þessum föstudegi, átti hann svo sannarlega ekki eftir að liggja á liði sínu þegar fram liðu stundir. Það heyrðist alltaf greinilega hvar Dóri frændi væri staddur í fjölskylduboðum því í kringum hann var jafnan hlegið hæst, enda var Halldór afburða skemmtileg- ur. Hann sýndi líka öðrum fjöl- skyldumeðlimum á öllum aldri mikinn áhuga og þótti mér það dýrmætt því ég leit mikið upp til Dóra frænda sem ég áleit vera mikinn heimsborgara og töffara. Leiðir okkar áttu síðar eftir að liggja nokkrum sinnum saman í gegnum verkefni sem ég vann fyr- ir Hvíta húsið þar sem Halldór var framkvæmdastjóri. Í kjölfarið sæki ég um vinnu hjá Halldóri, þá nýorðinn tvítugur. Hvíta húsið var ekki að leita að grafískum hönnuði á þessum tíma, en Halldór réð mig samt. Þetta var þá stærsta tæki- færi lífs míns og hef ég alltaf verið Dóra frænda þakklátur fyrir það. Þessi tími var frábær og tókst á milli okkar góð vinátta, enda var skrifstofa Dóra frænda alltaf opin til skrafs og ráðagerða og var þar jafnan mesta fjörið. En tæknin var á fleygiferð á þessum tíma og internetið nýbyrj- að að láta kræla á sér. Þannig fór að ég spurði Halldór ráða um hvort ég ætti að taka vinnu sem mér var þá boðin hjá nýju og ævintýralegu frumkvöðla- fyrirtæki. Halldór ráðlagði að ég skyldi tvímælalaust taka því, enda hefði ég í raun engu að tapa en mögulega allt að vinna. Þessa sömu mikilvægu ráðleggingu hef ég endurtekið margoft um ævina þegar ég hef sjálfur hvatt fólk til að stökkva í dýpri laugar. Halldór var mér ávallt innan handar eftir þetta og leitaði ég margsinnis til hans með ráðgjöf í sambandi við ýmis mál sem hann jafnan leysti úr af mikilli snilld. Það var ómetanlegt að eiga svona góðan frænda. En nú er Halldór ekki lengur með okkur og verður það skarð sem hann skilur eftir seint fyllt. Fyrir hönd fjölskyldu minnar og mömmu, vil ég votta Önnu, Arn- aldi, Kristni og börnum þeirra innilegustu samúð á þessum sorgartímum. Hvíl í friði, elsku frændi. Reynir Harðarson. Við systurnar minnumst Hall- dórs frænda af hlýju og með brosi í kampinn. Það ríkti engin logn- molla þegar þau hittust fjögur systkinin, Halldór, Addý, Þorkell og Alla (mamma) ásamt fjölskyld- um hjá ömmu. Við Kópavogsbúar vorum varla stignir inn fyrir dyrn- ar þegar upphófst hávær orðræða um rokið í vesturbænum. Það var þó bara upphitun fyrir storma- sama stjórnmála- og menningar- umræðu. Þrátt fyrir að meginlín- ur hefðu löngu verið dregnar og vinstrimennska okkur í „blóð bor- in“ frá ömmu og afa kreppukyn- slóðinni, þá voru þau langt í frá samhljóma systkinin. Það kom heldur betur á daginn þegar Hall- dór frændi færði sig yfir á hægri vænginn – öllum að óvörum. Þrátt fyrir lífleg skoðanaskipti, stóryrði og handapat, umvafði hlýja og húmor allar samveru- stundir með Halldóri. Aðdáunar- vert var að sjá kærleikann á milli þeirra systkina. Þykkur þráður trúnaðar og trausts fleytti þeim í gegnum lífsins ólgusjó og allar rökræðurnar. Öll fjölskylduboð byrjuðu og enduðu með þéttum faðmlögum og kossaflensi sama hversu átakamikil umræðan hafði verið. Rokið hefur verið upp í samverustundum þeirra systkina síðastliðin ár, þrátt fyrir að þau séu löngu komin af léttasta skeiði. Þau alltaf með á nótunum í þjóðlíf- inu og pólitíkinni, tilbúin að taka afstöðu og láta hana í ljósi á hrein- skiptinn máta. Halldór, sem var yngstur þeirra systkina, átti stóran þátt í að spinna þennan þétta fallega þráð og við systur fórum ekki var- hluta af því. Okkur þótti Halldór, sem er nær okkur í aldri, ótrúlega góð fyrirmynd og stórhuga. Hann var endalaust hlýr og áhugasamur um okkur krakkana, hlustaði, tók mark á skoðunum okkar og hafði á okkur óbilandi trú. Samverustundirnar með Hall- dóri voru margar. Ein okkar systra bjó sumarlangt á heimilinu og passaði synina Arnald og Kristin. Einnig er okkur minnis- stæð ferð sem þau komu með okk- ur austur á Höfn og í Skaftafell um leið og brúin yfir Skeiðarár- sand var opnuð. Það var líka Hall- dóri líkt að mæta með gjafir öllum að óvörum (eins og amma) þegar við systurnar hefðum átt að ferm- ast sem við gerðum ekki. Halldór hélt okkur ræður í útskriftarboð- um, alltaf örlátur. Halldór var líka duglegur að tryggja öryggi okkar frændsyst- kina og gat látið í sér heyra ef við vorum í eltingaleik á stigagangin- um í blokkinni eða þegar við skull- um utan í svalahandrið með mikl- um látum á 4. hæð! Þá stóð ekki á viðbrögðunum. Halldór var mætt- ur fyrstur að kanna hvort við vær- um óhult. Við vorum skömmuð á kjarnyrtu máli og háværum rómi eina mínútuna og svo kysst og föðmuð þá næstu. Öryggi fjöl- skyldunnar í fyrirrúmi. Sögur þeirra Kristins og Arn- aldar af áhyggjum og óvenjuleg- um tillögum föður síns til að tryggja öryggi afkomendanna hafa líka kætt okkur frændsyst- kinin, þó við séum ýmsu vön þegar Valdastaða „taugaveiklunin“ er annars vegar. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið Önnu í fjölskylduna. Að hitta þau saman í boðum, eða á förnum vegi lífgaði alltaf upp á til- veruna og yljaði hjartarótum. Við systurnar kveðjum okkar ástkæra Halldór frænda með sorg í hjarta, hans verður sárt saknað. Diljá, Arney. Sif og Hrund. Á lífsleiðinni verða margir á vegi okkar. Óháð því hvað leiðir okkur saman tengjumst við sum- um sterkari böndum en öðrum og afi Dóri eignaði sér stórt rými í hjartanu á mér. Það sést kannski best á því að þótt við værum óskyld kallaði ég hann ennþá afa Dóra, 37 ára gömul. Og þannig verður það alltaf. Þrennt kemur fyrst upp í hug- ann þegar ég hugsa um afa Dóra: Einstaklega hlýleg röddin, sem alltaf hafði eitthvað áhugavert að segja. Blómin á hökunni, en það kallaði ég skeggið á honum í æsku. Og svo hvernig hann talaði alltaf við mig af sömu virðingu og við fullorðið fólk, eins og honum fyndist ég hafa eitthvað merkilegt að segja. Afi Dóri kunni nefnilega að hlusta. Hann sýndi ávallt einlæg- an áhuga á því sem ég fékkst við hverju sinni, spurði krefjandi spurninga og lét mig finna að svör mín við þeim skiptu máli. Ég hefði eitthvað fram að færa. Þetta er dýrmætur eiginleiki, ekki síst í samskiptum við litla stúlku sem finnst mikið til manns koma. Þegar mest reið á í mínu lífi fann hann síðan leið til að vera til staðar og fá mig til að taka fyrstu skrefin út úr skelinni sem stórt áfall hafði rekið mig inn í. Í seinni tíð urðu samskiptin grátlega lítil en ég geymi vand- lega dýrmæt skrif sem fóru okkar á milli. Þar sagði hann mér meðal annars að mér yrðu allir vegir færir og þannig mun ég muna afa Dóra, hlýjan og hvetjandi. Áhugasvið okkar voru mjög lík og um áramótin síðustu sammælt- umst við um að hittast á árinu til að taka gott spjall um lífið og til- veruna og fjölmiðlun, sem við hrærðumst bæði í. Ég vissi ekki fyrr en seint að Dóri væri veikur og lét hversdagslegt annríki flækjast fyrir mér. Við höfðum því enn ekki hist svo helgina fyrir jól ætlaði ég að taka mér góðan tíma í að hafa samband við hann og spjalla, hefði hann kraft til þess. Ég var of sein og náði ekki að heyra í honum áður en hann fór. Þannig kvaddi hann með því að minna mig á dýrmæta lexíu, sem ég taldi mig þó kunna býsna vel fyrir; að lífið er stutt, fólkið okkar dýrmætt og það verður ekki alltaf til „á morgun“. Hann minnti mig á að nýta tímann vel og verja honum rétt. Elsku afi Dóri. Það sem ég var of sein að segja þér segi ég hér í staðinn. Mér þykir mjög vænt um þig. Takk fyrir hvað þú reyndist mér vel. Spjallið tökum við svo þegar þar að kemur. Þín Hrund Þórsdóttir. Í dag kveðjum við góðan félaga, Halldór Guðmundsson. Félagi er gott orð til að lýsa Dóra. Hann notaði það gjarnan sem ávarp og það lýsir hans karakter. Hann átti auðvelt með að tengjast fólki, gerði ekki mannamun og bar góð- an hug til fólks. Það var einmitt hans uppáhaldsorðsamband, „góður hugur“. Eftir skemmtanir á Hvíta húsinu spjölluðum við gjarnan saman og ávallt var hon- um efst í huga hvað það hefði verið „góður hugur“ í samkvæminu. Já, það var sannarlega gott í honum beinið og fólk laðaðist að honum. Hann var barngóður og nutu dætur okkar þess ávallt að hitta hann og þótti vænt um Dóra eins og öllum sem kynntust hon- um vel. Tómið við brotthvarf hans er engra meira en hans nánustu og við sendum samúðarkveðjur til Önnu, sem stóð með honum eins og klettur í veikindum hans, og til Kristins, Arnaldar og barna- barnanna. Dóri var með skemmtilegustu mönnum og naut sín vel á gleði- stundum í spjalli með vinum, hann var víðlesinn og á „talefod“ um öll málefni heimsins. Hann fæddist með hjartað vinstra megin og þótt hann skautaði yfir á hinn kantinn í pólitík þegar aldurinn færðist yfir var samhygð og réttlætiskennd hans ávallt hin sama. Þótt Dóri væri mjúkur var hann engin gufa, hann hafði sitt skap, var keppnis og hafði gaman af því að vinna lúðra og aðra sigra í viðskiptum. Þótt hann væri rólyndur lá hann ekki á skoðunum sínum og sér- staklega á þeim sem hann kallaði á stundum „enga kórdrengi“ enda gaf hann ekki mikið fyrir óheiðar- leika og spillingu. Þær eru margar góðu stundirnar sem við áttum saman í vinnu og heima á spjalli um lífsins gagn og nauðsynjar. Já, við kveðjum góðan félaga; vinnufélaga, viðskiptafélaga, sam- kvæmisfélaga, golffélaga, snóker- félaga, skíðafélaga og svo miklu, miklu meira en það, því við kveðj- um vin sem gerði líf okkar bjart- ara og betra. Takk fyrir það kæri Dóri. Sverrir, Áslaug, Hrefna og Sunneva. Fallinn er frá um aldur fram góður vinur, Halldór Guðmunds- son, Dóri í Hvíta húsinu, eftir hug- rakka viðureign við skæðan sjúk- dóm sem fáu eirir. Leiðir okkar Dóra lágu fyrst saman um miðjan níunda áratug síðustu aldar er ég gekk til sam- starfs við hann og fleiri góða menn hjá Kaupstefnunni í Reykjavík, sem sá um sýningarhald og rekst- ur skemmtigarðs í Laugardal og víðar. Hann var markaðsmaður- inn í hópnum og annaðist allt kynningarstarf af mikilli fag- mennsku og ríku innsæi. Samstarf okkar var náið á þessum árum og tókst með okkur góð vinátta sem haldið hefur vel þótt samskiptin hafi síðan orðið stopulli. Samvera með Dóra var ávallt gefandi. Hann var gæddur ríkri kímnigáfu, var víðlesinn og áhuga- svið hans breitt. Hann var frjáls- lyndur í skoðunum, hugnaðist ekki forræðishyggja og vinstri viðhorfin frá yngri árum gengin yfir. Skaphöfn Dóra sýndi sig vel í samskiptum hans við hinn illvíga sjúkdóm, honum var tekið með aðdáunarverðu æðruleysi, stóískri ró og raunsæi. Hann sagði er veik- indin bar fyrst á góma okkar í milli: „Ég hef átt gott líf, ég er sáttur.“ Með slíkri hugprýði tók hann hinum vondu tíðindum. Dóri var hamingjuríkur og samband hans og Önnu var hlaðið gagnkvæmri ást og umhyggju, það leyndi sér ekki. Missir hennar og fjölskyldunnar er mikill. Dóri féll fyrir golfíþróttinni og átti ýmislegt ógert í þeim leik er yfir lauk. Mun ég sakna þess að eiga ekki fleiri gæðastundir með honum á einhverjum golfvellinum hérna megin, en varðveiti þeim mun betur góðar minningar frá samveru okkar við golfspil, bæði á Malibu-golfvelli og hjá hans heimaklúbbi, á hinum ljúfa Nes- velli, sem við vorum sammála um að væri „sýnd veiði en ekki gefin“. Að leiðarlokum þakka ég kær- um vin fyrir allt og allt og votta Önnu og fjölskyldunni innilega samúð okkar Stínu. Dóri er „far- inn heim“, minningin lifir. Ólafur G. Gústafsson. Góður vinur er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Halldór Guð- mundsson eða Dóri, eins og hann var oftast kallaður, er horfinn á braut. Við nefndum hann líka „Dóra Guð“, sem segir sína sögu um manninn og það sem hann hafði að geyma. Fremstur meðal jafningja. Við hittum hann fyrst þegar vinkona okkar Anna hafði kynnst þessu eðalmenni og þau farin að feta stigu ástarinnar. Halldór var sjarmatröll sem bræddi hjörtu mannanna hvar sem hann fór, húmoristi fram í fingurgóma eins og þeir gerast flottastir. Greindur maður og gjöfull, drengur góður. Við söknum Dóra sem einstaks vinar og hugsum hlýtt til Önnu en vart er hægt að ímynda sér nánari hjón og félaga en þau voru. Í veik- indum Dóra nú síðustu misserin stóð Anna sem klettur við hans hlið, umvafði hann kærleika og ekki síst þá kom í ljós hversu sterkt samband þeirra var. Við sendum líka innilegar sam- úðarkveðjur til sona Halldórs, Arnaldar og Kristins, og þeirra fjölskyldna. Það er sárt en um leið gott að minnast Dóra. Blessuð sé minning hans. Steinunn og Jón Ársæll. „Allt starf í Hvíta húsinu er skapandi.“ Kjörorð auglýsinga- stofunnar sem á rætur sínar í Auglýsingastofunni hf. þar sem Halldór Guðmundsson hóf störf árið 1970 og þar sem hann var við störf allt til vors í fyrra, síðast sem starfandi stjórnarformaður. Stof- an fékk nafnið Hvíta húsið árið 1990. Stefnuyfirlýsingin var lengi letruð á vegg fyrir allra augum en er það ekki lengur. Enda óþarfi, við vitum þetta öll. Svona erum við. Og ef það gleymist í ati hvers- dagsins nægir að kalla fram mynd af Halldóri í huga sér og þá fellur allt í rétta farið aftur. Skilningur- inn á því hvað við gerum og hvers vegna. Ekki síst: að við gerum það saman. Sköpun er viðkvæmt ferli. Jarðvegurinn þarf að vera frjór, andrúmsloftið rétt. Þetta kjörást- and þarf helst að verða til án sýni- legrar áreynslu. Enginn stóð Halldóri á sporði að tryggja þess- ar aðstæður. Að gefa hverjum og einum tilfinningu fyrir eigin mik- ilvægi. Að hvetja og leiðbeina þeg- ar þess þurfti, að gleðjast sýnilega yfir vel unnu verki, snjallri lausn, góðri hugmynd. Umfram allt: að vera maður sem samstarfsfólkið brann í skinninu að gleðja með verkum sínum. Það tekur örugglega stundum á taugarnar að stýra svona sköpun- arskútu. Að vera maðurinn með rekstraráhyggjurnar meðan sam- starfsfólkið sleppir ímyndunar- aflinu lausu, og vita að það ræðst af því hvað kemur upp úr því kafi hvernig árangurinn verður í raun- heimum. Með þetta í huga verður hæfileiki Halldórs til að skapa já- kvæðan og afslappaðan drifkraft, að því er virtist án þess að taka eftir því sjálfur, enn aðdáunar- verðari. Allt starf í Hvíta húsinu er skapandi. Framlag Halldórs Guð- mundssonar var það svo sannar- lega. Hann er enn að störfum. Sem fyrirmynd, sem innblástur, sem leiðtogi, sem vinur. Við sendum Önnu, Kristni, Arnaldi og fjölskyldunni allri okk- ar dýpstu samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks Hvíta hússins, Þorgeir Tryggvason. Fyrir mörgum árum var ég markaðsstjóri hjá stóru fyrirtæki og svo heppinn að eiga í samstarfi við Hvíta húsið og eiga þátt í að efna til þeirra viðskipta. Þótt Hall- dór hafi ekki verið partur af teym- inu okkar og daglegum verkefn- um komst ég fljótt í kynni við hann sem framkvæmdastjóra stofunnar. Ég var ungur, skorti reynslu og glímdi á tímabili við erfið mál inn- an fyrirtækisins sem ég starfaði hjá. Þá fékk ég stuðning frá Dóra sem reyndist mér ómetanlegur og úr varð trúnaðar- og vináttusam- band til framtíðar. Þegar ég síðar sagði upp starfi mínu fékk ég strax símtal frá Dóra sem bauð Halldór Guðmundsson HINSTA KVEÐJA Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg; en anda sem unnast fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgrímsson) Takk fyrir yndislegu ár- in tuttugu og fimm, elsku Dóri minn. Þín Anna. Við Halldór Guðmunds- son áttum farsæla samleið um áratugi í leik og marg- víslegu starfi. Við vorum trúnaðarvinir. Hann var ráðhollur maður, réttsýnn, gefandi og gegnheill. Ég sakna hans mikið. Blessuð sé minning dáðadrengs. Páll Bragi Kristjónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.