Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, á 50ára afmæli í dag. Hann starfar á heilbrigðisvísindasviði HÍ oghjá Hjartavernd og stundar rannsóknir sem varða mannlega
heilsu eins og tengsl milli sjúkdóma og áhættuþátta.
„Ég hef nýlega verið að rannsaka áhrif D-vítamíns á heilsuna hjá
okkur, sem er ágætt að rifja upp á þessum árstíma. Ég held því fram í
rannsókninni að það sé nauðsynlegt fyrir okkur að taka inn D-víta-
mín. Við fáum svo lítið út úr sólinni hér. En það er eins og með annað
að það er allt gott í hófi og mikilvægt að fylgja viðmiðum hvað sé rétt
að taka inn mikið.“
Thor stundar íþróttir af krafti, meðal annars hlaup, gönguskíði,
sund og hjólreiðar. Hann kláraði Vasa-gönguna 2017 og varð svokall-
aður landvættur árið 2016, en þá þarf að hafa tekið þátt í þrautum í
hverjum landsfjórðungi. Thor tók þátt í Jökulsárhlaupinu fyrir norð-
an, Fossavatnsgöngu á Vestfjörðum, Urriðavatnssundi fyrir austan
og Bláalónsþrautinni þar sem er hjólað. Afrekalistinn 2018 er stuttur
því orkan fór í að flytja í nýtt hús í Vesturbænum.
Nítjánda líf- og heilbrigðisráðstefnan hófst í gær, henni lýkur í dag
og er Thor í nefnd hennar. „Ég verð því upptekinn á ráðstefnunni í
dag en svo kemur fjölskyldan saman um helgina.“
Eiginkona Thors er Arna Guðmundsdóttir lyflæknir og innkirtla-
læknir á Landspítalanum. Synir þeirra eru Erling, f. 1993, Guð-
mundur Viggó, f. 2002, og Ari Karl, f. 2005. Svo má ekki gleyma
hundinum Mosa. Hann er golden retriever og er fæddur í janúar 2010.
Líf og fjör Thor, Arna og tveir yngstu synirnir í sólinni á Havaí haustið
2017 og því enginn skortur á D-vítamíni.
Staddur á ráðstefnu
um heilbrigðisvísindi
Thor Aspelund er fimmtugur í dag
Á
rni Valdimar Kristjáns-
son fæddist 4. janúar
1959 á Akureyri og bjó
í foreldrahúsum til 17
ára aldurs en fór þá að
búa með unnustu sinni, Ragnheiði
Skúladóttur, sem seinna varð eigin-
kona hans.
Aðeins þriggja ára gamall fór
Árni fyrst í sveit að Sigríðarstöðum
í Ljósavatnsskarði og dvaldi þar öll
sumur fram yfir fermingu. Hann
fór þangað við öll tækifæri fram á
fullorðinsár og tók þátt í öllum
þeim bústörfum sem til féllu.
Eldamennskan var honum alltaf
hugleikin. Í grunnskóla sótti Árni
það stíft að komast í matreiðslu-
tíma. Á þeim tíma voru það bara
stúlkur sem fóru í matreiðslu, en
Árni hætti ekki fyrr en hann fékk
að elda með stelpunum og þá varð
Árni V. Kristjánsson matreiðslumeistari – 60 ára
Hjónin Árni og Ragnheiður eru búin að hlæja saman síðan þau voru fjórtán ára.
Í stígvélum og stutt-
buxum í Fnjóskadalnum
Við Brúnagerði Árni með Elvu og Birki á vélsleða í Fnjóskadal.
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Heiðurshjónin Jóhannes
Kjartansson og Lilja
Hjelm, Löngumýri 12b,
Selfossi, eiga 50 ára
brúðkaupsafmæli í dag.
Börn, tengdabörn og
barnabörn óska þess að
þau eigi góðan dag.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup
Guðlaug Hinriksdóttir er 95 ára í dag,
föstudaginn 4. janúar 2019. Hún held-
ur til hjá dóttur sinni á Arkarlæk
þessa dagana og verður með heitt á
könnunni í dag og á morgun.
95 ára afmæli