Morgunblaðið - 03.01.2019, Blaðsíða 35
ekki aftur snúið og hann lærði til
kokks á Hótel KEA. Hann lauk
landsprófi og síðar matreiðsluprófi
frá Hótel- og veitingaskóla Íslands.
Fjölskyldan kom sér fyrir í
Reykjavík þegar Ragnheiður fór í
Kennaraháskólann og þá keyptu
Árni og Ragnheiður Matborðið
ásamt Sigurði Eggerti Ingasyni.
Þau ráku Matborðið saman í 18 ár
þar til Árni og Ragnheiður keyptu
hinn helminginn árið 2002 og hafa
átt fyrirtækið og rekið það allar
götur síðan. Matborðið er með
veisluþjónustu og selur einnig mat
til fyrirtækja og stofnana.
Fjölskyldan ákvað að taka smá
snúning á búsetu í höfuðborginni
og flutti sig norður í Fnjóskadal og
fór að búa með mink. Þarna átti
fjölskyldan frábæran tíma og eign-
aðist góða vini. Þegar minka-
búskapnum lauk flutti fjölskyldan
aftur suður og varð Árni fram-
kvæmdastjóri Íslenskra loðdýra-
bænda og hefur hann gegnt því
starfi samhliða rekstri Matborðsins
í 19 ár.
Fyrir 10 árum eignuðust Árni og
Ragnheiður gamla bæinn í Brúna-
gerði í Fnjóskadal og hafa þar unn-
ið að endurbótum og uppbyggingu
sem senn fer að ljúka. Þar á Árni
skjól sem hann reynir að nýta eins
oft og hann getur og vindur þá ofan
af borgarstressinu og fer í stígvél-
in, stuttbuxur og tekur þátt í göng-
um þegar þær eru. Þar kippir sér
enginn upp við að sjá hann berlær-
aðan uppi á hól organdi á rollu-
skjátur.
Fjölskylda
Eiginkona Árna er Ragnheiður
Skúladóttir, f. 10.2. 1959, deildar-
stjóri og kennari. Foreldrar henn-
ar: Skúli Sigurgeirsson vefari, f.
27.6. 1929, og Sigríður Margrét Ei-
ríksdóttir saumakona, f. 11.2. 1929,
d. 4.3, 2018, en þau giftu sig 17 ára
gömul.
Börn: 1) Davíð Már, f. 28.10.
1980, matreiðslumaður og býr í
Noregi með Wenche Erlandssen
arkitekt og á hann Emelíu Nótt,
Snædísi Mjöll og Gabriel Ágúst. 2)
Eyþór Árni, f. 9.10. 1984, bílstjóri
og býr á Akureyri með Birtu Bene-
diktsdóttur og eiga þau von á barni
í febrúar. 3) Elva Margrét, f. 13.12.
1990, félags- og tómstundafræð-
ingur og flugfreyja og býr í
Reykjavík, gift Arnóri Fannari
Theodórssyni, fræðslufulltrúa hjá
Vodafone og eiga þau Ísabellu Eiri.
4) Birkir Örn, f. 4.3. 1993, háskóla-
nemi og býr í Reykjavík, unnusta
hans er Lena Stefánsdóttir
háskólanemi.
Systkini: Helga Sigríður, f. 7.12.
1957, ritari, býr í Reykjanesbæ;
Sverrir Þór, f. 29.5. 1960, bygging-
arfræðingur, býr í Reykjavik; Mar-
grét Jónína, f. 7.8. 1961, stuðnings-
fulltúi, býr í Reykjavík; Kristján
Ísak, f. 7.12. 1964, sjómaður, býr á
Akureyri; Gunnar Freyr, f. 8.1.
1967, framleiðslustjóri, býr í Dan-
mörku; Elín Íslaug, f. 15.7. 1975,
viðskiptafræðingur, býr í Reykja-
nesbæ.
Foreldrar: Hjónin Kristján Ísaks
Valdimarsson, f. á Ísafirði 3.5. 1936,
d. 26.9. 2011. Hann var stýrimaður
og svo seinna skrifstofustjóri hjá
bæjarfógeta Akureyrar, og Gréta
Halldórs, f. á Akureyri 14.3. 1935,
d. 3.3. 2012. Hún starfaði alla sína
ævi sem hjúkrunarfræðingur.
Árni Valdimar
Kristjánsson
Gréta Halldórs
hjúkrunarfræðingur
á Akureyri
Helga Valdimarsdóttir
vann við Barnaskóla Akureyrar
Jónína Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Naustum
Valdimar Halldórsson
bóndi á Naustum á Akureyri
Jóhannes Geir
Sigurgeirsson
b. á Önguls-
stöðum og fv.
alþingismaður
Helga Halldórsdóttir
húsfr. á
Öngulsstöðum í
Eyjafirði
Halldór
Sigurgeirsson bóndi
á Öngulsstöðum
Sigurgeir
Halldórsson b.
og búfræðingur
á Öngulsstöðum
Elvar Þór Valdimarsson
stýrimaður í Reykjavík
Erla Valdimarsdóttir
húsfreyja á Skagaströnd.
Rebekka Jensdóttir
húsfreyja í Hraundal og
á Fossi, síðar á Ísafirði
Ísak Guðmundur Kristjánsson
bóndi og sjómaður í Hraundal
og á Fossi í Nauteyrarhr., síðar
á ÍsafirðiÍslaug
Aðalsteinsdóttir
fv. fram-
kvæmdastjóri
Ferðaskrifstofu
Reykjavíkur
Sigríður Ísaksdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Valdimar Valdimarsson
sjómaður og verkamaður á Ísafirði
Þórunn Sveinsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Valdimar Eggertsson
sjómaður á Ísafirði
Úr frændgarði Árna Valdimars Kristjánssonar
Kristján Ísaks Valdimarsson
stýrimaður og skrifstofustjóri
á Akureyri
Afmælisbarnið Árni í Matborðinu.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
95 ára
Guðlaug Hinriksdóttir
90 ára
Bjarni S. Jónasson
Jóhann Guðmundsson
Lea Rakel Möller
85 ára
Ástvaldur Jónsson
Karen Vilhjálmsdóttir
Margrét Andersdóttir
Svanhildur Eyjólfsdóttir
80 ára
Alda Sigurrós Joensen
Erla Helgadóttir
Sverrir Björnsson
75 ára
Fanney Helgadóttir
Óskar Valgeirsson
Sigrún Jóna Sigurðardóttir
Þórhildur Vigfúsdóttir
70 ára
Baldur Jónasson
Heiður Þorsteinsdóttir
Helgi Kristínarson Gestss.
Lovísa Jónsdóttir
Messaouda Hamdi
Sigurður Jakob Jónsson
Vilhjálmur Baldvinsson
Þorbjörn Jónsson
60 ára
Björg Björnsdóttir
Björg Jónsdóttir
Gunnar Árni Vigfússon
Hallfríður Jónsdóttir
Marteinn Ólafsson
Minh Quang Vu
Ólöf Bjarnadóttir
Ragnheiður Halldórsdóttir
Sigurður Hans Jónsson
Stefán Haukur Jóhanness.
Valgerður Jónsdóttir
50 ára
Andri Kristinn Karlsson
Aralyn Q. Corpuz
Árni Þorsteinsson
Ásta Birna Ingólfsdóttir
Birna Dögg Granz
Hjalti Styrmisson
Hlynur Hreinsson
Íris B. Alfreðsd. Frederiksen
Jóhanna Steinunn Snorrad.
Líney Björk Arnardóttir
Maria Eugenia Cauhépé
María Edith Magnúsdóttir
Páll Jakob Malmberg
Þorbjörn Valur Jóhannsson
40 ára
Gunnar Agnar
Vilhjálmsson
Ingvar Hjálmarsson
Íris Huld Heiðarsdóttir
Kristbjörn Guðmundsson
Lára Dóra Valdimarsdóttir
Lukas Sedivy
Maciej Krakowiecki
Sebastian Dobrowolski
Sigitas Tamasauskas
Steinunn Margrét Gylfad.
Tomasz Grzegorz Makowski
Örvar Omrí Ólafsson
30 ára
Arnór Rafn Hrafnsson
Daniela F. Oliveira da Silvia
Eyjólfur Tómasson
Herdís Hermannsdóttir
Hjörtur Hrafn Einarsson
Hrönn Erludóttir
Ívar Orri Þorsteinsson
José F. Marinez Rivera
Jón Þorgeir
Aðalsteinsson
Kailee Yeon O’Mahony
Mariana Teles Mendonca
Sandra Sif Friðgeirsdóttir
Sigríður Inga Eysteinsdóttir
Wojciech Jacek Zmijewski
Til hamingju með daginn
40 ára Daði er uppalinn í
Mývatnssveit og býr þar.
Hann lauk BS-prófi í land-
nýtingu árið 2006 og
starfar sem héraðsfulltrúi
Landgræðslunnar.
Maki: Antra Krumina, f.
1983, starfsm. á leikskóla.
Synir: Friðrik Lange, f.
2014 og Henrik Lange, f.
2016.
Foreldrar: Friðrik Lange
Jóhannesson, f. 1951, og
Sigrún Sverrisdóttir, f.
1953.
Daði Lange
Friðriksson
40 ára Sigrún er frá
Hvammstanga, býr á
Bergsstöðum á Vatnsnesi
og er tanntæknir.
Maki: Benedikt Guðni
Benediktsson, f. 1978,
bóndi og stálvirkjasmiður.
Börn: Rakel Jana, f. 1998,
Arnheiður Diljá, f. 2003,
Ástvaldur Máni, f. 2007,
Emelía Íris, f. 2010. Fóstur-
dóttir: Natalia, f. 2010.
Foreldrar: Gunnar Smári
Helgason, f. 1957, og Sig-
ríður Jósafatsdóttir, f. 1960.
Sigrún Birna
Gunnarsdóttir
30 ára Védís er fædd í
Finnlandi en uppalin í Rvík
þar sem hún býr. Hún er
menntaður dansari, dans-
höfundur, MA í hagnýtri
menningarmiðlun og er
sjálfstætt starfandi dansari.
Maki: Ævar Þór Benedikts-
son, f. 1984, leikari og rit-
höfundur.
Sonur: Hjörtur Forni, f.
2018.
Foreldrar: Kjartan Ólafs-
son, f. 1958, og Arndís Guð-
mundsdóttir, f. 1966.
Védís
Kjartansdóttir
Marita Debess Magnussen hefur varið
doktorsritgerð sína í líf- og læknavís-
indum við læknadeild HÍ. Ritgerðin ber
heitið Sýklalyfjaónæmi hjá Strepto-
coccus pneumoniae, Streptococcus
pyogenes og Escherichia coli í Fær-
eyjum, tengsl við sýklalyfjanotkun og
samanburður við Ísland og Danmörku
(Antimicrobial resistance in Streptococ-
cus pneumoniae, Streptococcus pyoge-
nes and Escherichia coli from the Faro-
ese population, correlation with
antimicrobial use and comparison with
Iceland and Denmark). Umsjónarkenn-
ari og leiðbeinandi var Karl G. Kristins-
son, prófessor við HÍ.
Landfræðileg einangrun Færeyja ger-
ir eyjaklasann að ákjósanlegum stað fyr-
ir rannsóknir á beratíðni baktería, klóna-
samsetningu þeirra og bólusetninga-
rannsóknir. Engu að síður hafa slíkar
rannsóknir ekki verið fyrir hendi og tak-
markaður aðgangur að nauðsynlegum
gögnum hefur hamlað slíkum rann-
sóknum. Þau nýju gögn og greiningar
sem birtast í þessari ritgerð gefa mikil-
vægar upplýsingar um sýklalyfjaónæmi
hjá þremur meinvaldandi bakteríum í
mönnum í Færeyjum – streptókokkum
af flokki A (GAS), Escherichia coli og
pneumókokkum. Álykta má að tengslin
á milli sýklalyfjaó-
næmis hjá E. coli og
sýklalyfjanotkunar
réttlæti endurmat á
stefnu við val á
sýklalyfjum við
þvagfærasýkingum.
Beratíðni pneumó-
kokka í börnum á
leikskólum var lág
og sýklalyfjaónæmi sjaldgæft. Algengi
pneumókokka með minnkað næmi fyrir
penisillíni var lágt í samanburði við Ís-
land og Danmörku. Bólusetningaráætl-
unin frá 2008 virðist hafa fækkað bólu-
efnishjúpgerðum í ífarandi sýkingum og
auk þess eru vísbendingar um breyt-
ingar á algengi tiltekinna hjúpgerða
pneumókokka í berum. Tölfræðilíkan um
þróun sýklalyfjaónæmis hjá E. coli auð-
veldar okkur að gera raunhæfar spár um
þróun ónæmis samfara aukinni sölu
sýklalyfja og gæti gagnast öðrum þjóð-
um í eftirliti þeirra með sýklalyfja-
ónæmi. Með því að bera saman niður-
stöður tengdar færeysku þjóðinni við
niðurstöður nágrannalandanna Íslands
og Danmörku, hefur nú í fyrsta sinn
fengist mat á stöðu Færeyja í samhengi
við þá alheimsógn sem steðjar af fjöló-
næmum bakteríum.
Marita Debess Magnussen
Marita Debess Magnussen er fædd árið 1975. Hún hlaut MSc-gráðu frá London
School of Hygiene and Tropical Medicine, University of London. Marita er fram-
kvæmdastjóri og meðeigandi að Thetis, sjálfstæðri rannsóknastofu í Færeyjum,
Hún kennir jafnframt örverufræði við háskólann þar. Sambýlismaður Maritu er
Hjálmar Hátún og synir hennar eru Julian 12 ára og Jason 8 ára.
Doktor Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is