Morgunblaðið - 03.01.2019, Qupperneq 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019
Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is
Frábær ending
Léttvínsglös
úr hertu gleri
Þýðingu á nýrri bók Kims Leine fagnað
Kátar Þær Sveindís Þórisdóttir og Margrét H. Blöndal voru harla kátar.
Fjölmenni Margt var um manninn á viðburðinum og gestir voru greinilega
spenntir að heyra og sjá rithöfundinn kynna bók sína, þá þriðju í þríleik.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég hita upp fyrir Ófærð á sunnu-
dagskvöld með þriðju þáttaröðinni
af Paradísarheimt á RÚV. Það er
gaman að vera kominn á ríkissjón-
varpið eftir 25 ár á Stöð 2,“ segir
Jón Ársæll Þórðarson fjölmiðlamað-
ur sem í þriðju þáttaröð Paradísar-
heimtar tekur tali fólk sem bindur
ekki bagga sína sömu hnútum og
flestir aðrir í samfélaginu, syndir á
móti straumnum og hefur skoðanir
sem ekki falla í kramið hjá hinum
„venjulegu“ eins og Jón Ársæll
orðar það.
„Með þáttum mínum hef ég léð
því fólki rödd sem ekki er talað við
dagsdaglega. Öll erum við sér-
kennileg á okkar hátt og búum yfir
sögu hvert og eitt okkar.“
Jón Ársæll segist mikill aðdáandi
Halldórs Laxness og því hafi hinn
fallegi bókartitill Paradísarheimt átt
vel við þáttaröðina á RÚV þar sem
hann hafði áður notað bókarheiti
Laxness, Sjálfstætt fólk, á Stöð 2.
„Það var ekki erfitt að finna við-
mælendur í þættina og fá þá til að
opna sig inn að hjartarótum. Vanda-
málið var hins vegar að velja úr því
sem viðmælendur sögðu og endur-
segja söguna,“ segir Jón Ársæll,
sem telur það sammerkt með við-
mælendum í þættinum á sunnudag-
inn hversu frjálsleg þau eru í þeirri
list að leyfa sér að vera eins og þau
eru.
„Þó er galli á gjöf Njarðar. Al-
mennt er ekki talað við það fólk sem
ég hef verið að ljá rödd, þ.e.a.s. fólk
sem er „öðruvísi“, með geðrænan
vanda eða hefur setið í fangelsi.
Slíkt fólk er í margra augum per-
sona non grata,“ segir Jón og bætir
við að hann hafi fengið þá spurningu
þegar hann fór af stað með fanga-
þættina hvort ætlun hans væri að
gera engla úr drullusokkum.
Jón Ársæll segir að allir eigi sína
paradís sem þeir heimti stundum en
jafnframt komi það fyrir að við
séum rekin út úr okkar eigin para-
dís.
Ljósmynd/RÚV
Paradísarheimt Jón Ársæll Þórðarson fær viðmælendur til þess að segja sögu sína í þáttaröðinni Paradísarheimt.
Hann segir þau sem hann ræðir við eiga sammerkt að vera frjálsleg í þeirri list að leyfa sér að vera eins og þau eru.
„Öll erum við sérkennileg“
Ný þáttaröð Paradísarheimtar Jóns Ársæls Þórðarsonar
Ljær fólki rödd sem ekki er oft talað við í fjölmiðlum
Ljósmynd/RÚV
Áhugaverður Einn af viðmælendum
Jóns Ársæls í Paradísarheimt geng-
ur undir nafninu Óli kjaftur.