Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 41

Morgunblaðið - 03.01.2019, Síða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 2019 Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is YAXELL HNÍFAR FYRIR KRÖFUHARÐA KOKKA ICQC 2018-20 Fáum bíógestum dylst aðtalsvert offramboð er umþessar mundir á banda-rískum ofurhetjumyndum í kvikmyndahúsum. Bara á nýliðnu ári komu út að minnsta kosti átta Hollywood-stórmyndir um ofur- hetjur og ég efast ekki um að margar þeirra muni enda með að falla í gleymsku í tímans rás. Eitt það góða sem fylgir þessari ofmettun á markaðnum er þó að einstaka myndir eru farnar að koma út sem neyðast til þess að gera eitthvað öðruvísi til þess að vekja athygli áhorfenda. Myndir eru farnar að voga sér að nota sumar skrýtnustu hugmyndirnar sem hafa komið úr bandarískum of- urhetjumyndasögum. Spider-Man: Into the Spider-Verse er ein af þessum myndum. Ólíkt fyrri kvikmyndum um Köngulóarmanninn er Into the Spi- der-Verse teiknimynd, en ekki bara eins og hver önnur teiknimynd. Í stað þess að skapa raunsætt þrí- víddarrými eins og í flestum nú- tímateiknimyndum er reynt að end- urskapa teiknað útlit gamalla myndasagna. Til dæmis birtast skuggar og ljós í myndinni sem hálftóna punktar eins og maður sér gjarnan í gömlum prentum af myndasögum eða í popplistaverk- um. Hugsanablöðrur og -kassar beint af blaðsíðum myndasögunnar birtast á skjánum og falla inn í bakgrunninn. Útlitslega séð er Into the Spider-Verse ein flottasta teiknimynd síðustu ára. Sér- staklega eru lokaatriðin ótrúleg að sjá; nánast eins og maður sé geng- inn inn á popplistasýningu. En getur flott útlit réttlætt það að gera enn eina Spider-Man- myndina? Það var nú bara fyrir tveimur árum sem Spider-Man: Homecoming kom út og setti nýjan leikara í rauða búninginn. En Into the Spider-Verse er ekki bara að segja enn eina söguna um Könguló- armanninn Peter Parker eins og hinar myndirnar. Þess í stað fylgir myndin táningsdreng að nafni Mi- les Morales, sem býr í heimi þar sem Köngulóarmaðurinn er þegar orðinn fræg hetja. Fyrir tilviljun áskotnast Miles sömu ofurkraftar og Köngulóar- maðurinn en áður en hann getur kennt Miles að nota þá er Könguló- armaðurinn drepinn í bardaga við óvin sinn, Höfuðpaurinn. Rétt áður en hann deyr biður Köngulóarmað- urinn Miles að stöðva Höfuðpaur- inn og tilraunir hans til að opna hlið inn í aðrar víddir. Miles er varla byrjaður að láta reyna á krafta sína þegar hann rekst skyndilega á annan Köngulóar- mann. Um er að ræða aðra útgáfu af Peter Parker úr víddinni sem Höfuðpaurinn var að reyna að opna, og er þessi Köngulóarmaður ekki alveg sama hetjan og sá fyrri. Þeir Miles slást í för til þess að sigra Höfuðpaurinn. Hugmyndin um ólíkar útgáfur af sömu persónunum úr hliðstæðum heimum er gamalkunn í ofurhetju- sögum og vísindaskáldskap en henni hafa ekki áður verið gerð góð skil í stórmynd á hvíta tjaldinu. Í myndinni birtast brátt fleiri út- gáfur af Köngulóarmanninum úr öðrum heimum, hver skrýtnari en sú fyrri. Eitt það skemmtilegasta við þessa mismunandi Köngulóar- menn er að hver þeirra er teikn- aður í eigin stíl sem stingur vísvit- andi í stúf við útlit myndarinnar: Einn þeirra, Spider-Ham, er eins og klipptur úr gamalli Looney Tu- nes-teiknimynd en önnur þeirra, Peni Parker, lítur út eins og per- sóna úr japanskri anime-mynd. Á heildina litið er Spider-Man: Into the Spider-Verse með skemmtilegustu teiknimyndum sem komu út árið 2018 og áreiðanlega ein eftirminnilegasta ofurhetju- mynd sem hefur komið út í mörg ár. Myndin leikur sér með ýmsar skrýtnar hugmyndir sem „alvar- legri“ mynd myndi ekki koma ná- lægt en einmitt þar er styrkur hennar sem kvikmynd. Ein flottasta teiknimynd síðustu ára Styrkur „Myndin leikur sér með ýmsar skrýtnar hugmyndir sem „alvarlegri“ mynd myndi ekki koma nálægt en einmitt þar er styrkur hennar sem kvik- mynd,“ segir gagnrýnandi m.a. um Spider-Man: Into the Spider-Verse. Hér má sjá táninginn Miles, einn af nokkrum Köngulóarmönnum myndarinnar. Laugarásbíó, Smárabíó, Háskólabíó, Borgarbíó og Sambíóin Álfabakka Spider-Man: Into the Spider-Verse bbbbm Leikstjórar: Bob Persichett, Peter Ram- sey og Phil Lord. Handrit: Phil Lord og Rodney Rothman. Aðalleikarar: Sham- eik Moore, Jake Johnson og Hailee Steinfeld. Bandaríkin, 2018. 117 mín. ÞORGRÍMUR KÁRI SNÆVARR KVIKMYNDIR Frú Elísabet Jónsdóttir frá Grenj- aðarstað fæddist árið 1869 og eru því í ár liðin 150 ár frá fæðingu hennar. Elísabet var ein fyrstu kvenna hér á landi til að gefa lag út á prenti og sönglagahefti, að því er fram kemur í tilkynningu, og hafa tvö þessara laga verið opinberlega hljóðrituð og birt en flest þeirra eru aðeins til á nótum sem Árni Björns- son útsetti og bjó til prentunar eftir að hún lést árið 1945. Þessar útsetn- ingar hafa nú verið endurskoðaðar og lögin hljóðrituð af norðlenskum tónlistarkonum. Helga Kvam sér um píanóleik, Sigrún Magna um orgelleik og kórstjórn, Lára Sóley Jóhannsdóttir um fiðluleik, Ásdís Arnardóttir um sellóleik, Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir um söng og Stúlknakór Akureyrarkirkju syngur tvö lög. Lög þessi urðu aðgengileg á streymisveitunni Spotify á nýársdag en samhliða útgáfunni verður stofn- aður minningarsjóður Frú Elísabet- ar til styrktar kventónskáldum. Lögin verða einnig notuð í heimild- armyndina Frú Elísabet sem verður frumsýnd 19. júní á hátíð sem verð- ur haldin henni til heiðurs í Hofi á Akureyri, að því er fram kemur í til- kynningu frá Fanneyju. Í henni segir einnig að Elísabet hafi verið mikil kvenréttindakona og ritstýra Framtíðarinnar sem kom út á vegum kvenfélags í sveitinni henn- ar. Blaðið var handskrifað og í það skrifaði Elísabet greinar um stöðu kvenna á heimilum, kosningarétt kvenna og ýmsar heimspekilegar hugleiðingar. Í Framtíðina skrifuðu einnig kvenfélagskonur greinar um menntamál, nautgriparækt og garð- rækt og þýddu aðrar greinar úr þýsku og dönsku. Elísabet endurvakin Merkiskona Úr heimildarmyndinni um Elísabetu Jónsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.