Morgunblaðið - 11.01.2019, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.01.2019, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019 Opið virka daga 10-18 laugardaga 12-17 VERSLUN Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 feldur.is Páll Vilhjálmsson er glöggurgreinandi:    Efling stofnar nýtt svið til aðstunda pólitíska baráttu. Sól- veig Anna formaður Eflingar segist „gríðarlega stolt“ yfir framtakinu, eins og Björn Bjarnason lýsir í pistli.    Sólveig Anna ogViðar framkvæmdastjóri Eflingar eru bæði yf- irlýstir sósíalistar og félagsmenn í Sósíalistaflokki Gunnars Smára Eg- ilssonar, sem á dög- um útrásar var helsti talsmaður auðmanna, einkum Jóns Ásgeirs í Baugi.    Sósíalistaflokkur Gunnars Smáraer fjárvana en Efling á digra sjóði sem launþegar eru skyldaðir að borga í félagsgjöld af launum sín- um.    Lögum um verkalýðsfélög þarf aðbreyta þegar upp kemst að þau eru rekin í þágu stjórnmálaflokka.    Engum dettur í hug aðstjórnmálaflokkar skuli njóta sjálfvirkrar innheimtu félagsgjalda, líkt og verkalýðsfélög.    Ekki frekar en stjórnmálaflokk-ur ættu verkalýðsfélög að drottna yfir sérstökum atvinnu- greinum og félagssvæðum.    Í báðum tilvikum, stjórn-málaflokka og verkalýðsfélaga, ætti reglan að vera sú að fé- lagasamtökin á eigin forsendum afli sér stuðningsmanna.“ Gunnar Smári Egilsson Fjárhirðir fátækra STAKSTEINAR Páll Vilhjálmsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Samband íslenskra sveitarfélaga hefur ítrekað kröfu sína um hlut- deild af tekjum hins opinbera af nýtingu sameiginlegra auðlinda. Þetta kemur fram á samráðsgátt stjórnvalda í umsögn sambandsins um drög að frumvarpi til laga um gjald vegna nýtingar eldissvæða í sjó. Sambandið tekur ekki afstöðu til þess hvort tímabært sé að inn- heimta gjöld af fiskeldisfyrirtækj- um vegna eldis í sjó. Sambandið geti hins vegar tekið undir þau sjón- armið að mikilvægt sé að tryggja að gjaldtaka sé hófleg og komi ekki niður á uppbyggingu greinarinnar. Viðsnúningur frá 2012 Það sé hins vegar umhugsunar- efni að engir fjármunir renni beint til sveitarfélaganna þrátt fyrir að nefnd um stefnumörkun í auðlinda- málum ríkisins hafi skilað skýrslu 2012 og lagt til að stærstum hluta innheimts auðlindagjalds, sem lagt var til að rekstrarleyfishafar sem stunda fiskeldi í sjókvíum greiddu, yrði ráðstafað til þeirra landsvæða sem hefðu aðkomu að fiskeldi í sjókvíum. Í frumvarpsdrögunum sé horfið frá þessum tillögum og sá viðsnúningur geri sambandinu erfitt að styðja frumvarpið í óbreyttri mynd án vissu um að sveitarfélögin fái hlutdeild í gjaldinu. Bent er á að uppbygging fiskeldis hafi mikil og jákvæð áhrif á byggða- þróun, en kalli einnig á kostnaðar- samar framkvæmdir, m.a. til ný- framkvæmda og viðhalds í höfnum. Einföldun leyfisveitinga Í lokaorðum umsagnarinnar segir meðal annars: „Nauðsynlegt er að styrkja lagaumhverfi fiskeldis, m.a. með einföldun leyfisveitinga svo skapa megi fiskeldisstarfsemi hag- stæð skilyrði til uppbyggingar, enda er það vilji sveitarfélaga að efla at- vinnulíf og skapa fjölbreytt atvinnu- tækifæri um landið.“ aij@mbl.is Vilja hlutdeild af gjaldi fiskeldis  Kostnaður sveitarfélaga vegna fiskeldis Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Laxeldi Vaxandi umsvif síðustu ár. Isavia hefur fallist á ósk flugfélags- ins Ernis um að fá að framkvæma viðhald á farþegaflugvél félagsins af gerðinni Dornier 328-100 sem var kyrrsett vegna vangoldinna þjón- ustugjalda. Kyrrsetningin er enn í gildi og hefur viðhald vélarinnar engin áhrif á hana. Hörður Guðmundsson, eigandi Ernis, segist hafa fengið flugvélina til baka en hún hafði verið í skoðun þegar hún var kyrrsett. Ekki stóð til að fljúga henni strax, enda voru er- lendir flugmenn, sem eru þjálfunar- flugstjórar á vélinni, staddir erlend- is. Erlendir tæknimenn höfðu verið að þjálfa starfsfólk Ernis í meðferð vélarinnar og búið var að draga hana að flugskýli þegar hún var kyrrsett. „Það er eins og það hafi verið set- ið fyrir henni. Svona er bara lífið, það er ekkert við því að gera. Við viðurkennum að við erum í skuld en við erum ekki einir um það,“ segir Hörður en skuldin nemur 98 millj- ónum króna. Slíkt sé fljótt að safn- ast upp þegar gjöldin nema mörg hundruð þúsundum króna á degi hverjum. „Kannski er þetta víti til varnaðar öðrum, ég veit það ekki en mig grunar það. Það hefur enginn verið stoppaður nema við en ég veit að það eru margir sem skulda.“ Um 70 manns vinna hjá Erni og eru vélar átta talsins, þar af þrjár minni sem eru notaðar í sérverkefni. Á meðal þeirra er sjúkraflug til út- landa. freyr@mbl.is Mega vinna að viðhaldi Morgunblaðið/Eggert Ernir Vélin á Reykjavíkurflugvelli.  Isavia beitti hörku vegna 98 milljóna króna skuldar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.