Morgunblaðið - 11.01.2019, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
Viðræður sigldar í strand
Bandarískar ríkisstofnanir enn lokaðar Ekkert þokast í viðræðum flokkanna
Trump heimsótti landamæri Bandaríkjanna og Mexíkós Sættir ekki í sjónmáli
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
heimsótti í gær landamæri Banda-
ríkjanna og Mexíkós, degi eftir að
fundur hans með leiðtogum demó-
krata á Bandaríkjaþingi skilaði eng-
um árangri. Mun fundurinn einungis
hafa staðið í tæpan stundarfjórðung,
en tilgangur hans var að finna leiðir
til þess að binda enda á lokun banda-
rískra ríkisstofnana.
Tuttugu dagar eru liðnir síðan
fjárheimildir nokkurra ríkisstofnana
runnu út, en Trump deilir nú við
demókrata á þingi um fjármögnun
væntanlegs múrs á landamærum
Bandaríkjanna og Mexíkós, sem var
eitt helsta kosningaloforð hans.
Trump vill fá 5,6 milljarða banda-
ríkjadala til þess að láta reisa múr-
inn, en demókratar hafa boðið í
mesta lagi rúman milljarð, sem færi
þá í aukna landamæravörslu og við-
gerðir og viðhald á þeim girðingum
sem þegar eru fyrir hendi. Lokunin
að þessu sinni er sú lengsta frá árinu
1995, en um 800.000 ríkisstarfsmenn
eiga að fá útborgað í dag.
Stóð upp og sagði bless
Fundur Trumps með Nancy Pel-
osi, leiðtoga demókrata í fulltrúa-
deildinni, og Chuck Schumer, leið-
toga demókrata í öldungadeildinni,
stóð í um 14 mínútur. Trump spurði
Pelosi einfaldlega hvort demókratar
myndu fjármagna múrinn og hún
svaraði nei. Sagði Trump á sam-
félagsmiðlinum Twitter að hann
hefði þá einfaldlega staðið upp og
sagt bless, enda væri ekki um neitt
meira að ræða á fundinum. Schumer
sakaði forsetann í kjölfarið um að
hafa misst stjórn á skapi sínu þegar
hann gekk út, en Trump hafnaði
þeim ásökunum algjörlega. Repú-
blikanar á Bandaríkjaþingi hafa
flestir fylkt sér á bak við forsetann í
málinu. Kevin McCarthy, leiðtogi
repúblikana í fulltrúadeildinni, sagði
til dæmis að hegðun demókrata væri
að sínu mati skammarleg.
Fátt bendir til þess að sættir náist
á milli fylkinga á næstunni, þar sem
hvorki repúblikanar né demókratar
virðast vilja gefa eftir. Þá sýna skoð-
anakannanir að almenningur skipt-
ist í tvær svipaðar fylkingar í afstöðu
sinni til þess hvor eigi meiri sök á
lokuninni.
Ein möguleg lausn er að Trump
lýsi yfir neyðarástandi á landamær-
unum, sem myndi gefa honum heim-
ildir til þess að nota fé, sem eyrna-
merkt hefur verið til varnarmála, til
þess að reisa múrinn. Sérfræðingar
eru hins vegar ekki á einu máli um
hvort slík aðgerð væri lögleg.
AFP
Ferðalag Trump hélt til landamæra
Bandaríkjanna og Mexíkós í gær.
Lögreglan í Nor-
egi óskaði þess í
gær að ná tali af
þremur einstakl-
ingum, sem sjást
á eftirlits-
myndböndum
sem tekin voru
sama dag og
Anne-Elisabeth
Falkevik Hagen
var rænt af heim-
ili sínu. Voru myndböndin tekin upp
við fyrirtæki Toms Hagens, eigin-
manns hennar, en fyrirtækið er 3,5
kílómetra frá heimili þeirra. Mynd-
böndin sýna þrjá einstaklinga ganga
eða hjóla framhjá fyrirtækinu. Sagði
lögreglan að fólkið á myndbönd-
unum væri möguleg vitni að ein-
hverju óvenjulegu og vildi ekki úti-
loka að vinnustaður Hagens hefði
verið undir eftirliti mannræningj-
anna.
Hagen sjálfur hefur verið settur
undir lögregluvernd, en hermt hefur
verið í norskum fjölmiðlum að lausn-
argjaldskrafan nemi níu milljónum
evra, sem greiðast eigi í rafmyntinni
monero. Sérfræðingar sem norska
blaðið Verdens Gang ræddi við í gær
drógu í efa að hægt væri að verða við
þeirri kröfu og Francisco Cabanas,
einn af stofnendum myntarinnar,
tók undir það. Sagði hann að fjár-
hæðin sem beðið væri um væri of há
til þess að hægt væri að útvega hana
með skömmum fyrirvara.
Lýsa eftir
þremur
vitnum
Anne-Elisabeth
Falkevik Hagen
Erfitt að útvega
lausnargjaldið
Greg Clark, við-
skiptaráðherra
Bretlands, sagði
í gær að afleið-
ingar þess að
Bretar yfirgæfu
Evrópusam-
bandið án við-
skiptasamnings
myndu verða
„hörmulegar“.
Breska þingið ræðir nú samn-
ing þann sem Theresa May for-
sætisráðherra gerði við sam-
bandið í fyrra, en hann hefur
mælst illa fyrir í Bretlandi. Ríkis-
stjórnin beið ósigur í tveimur at-
kvæðagreiðslum í fyrradag um
umræðuna. Jeremy Corbyn, leið-
togi Verkamannaflokksins, hefur
heitið því að leggja fram van-
traust verði samningurinn sjálfur
felldur, en þingið á að greiða at-
kvæði um hann á þriðjudaginn
næstkomandi.
Varar við útgöngu
án samnings
STÓRA-BRETLAND
Greg Clark
Þessi venesúelska stúlka gægist út um tjald sitt í
flóttamannabúðum í Bogóta, höfuðborg Kólumb-
íu, en þar búa um 150 manns. Áætlað er að meira
en tvær milljónir manna hafi yfirgefið Venesúela
á síðustu þremur árum, og nýlegar spár gefa til
kynna að fjöldi flóttamanna frá landinu gæti
stokkið upp í að minnsta kosti fimm milljón
manns á þessu ári. Flestir þeirra hafa leitað yfir
landamærin til Kólumbíu og hafa stjórnvöld lýst
yfir þungum áhyggjum sínum.
Nicolas Maduro, forseti Venesúela, sór í gær
embættiseið og hóf nýtt sex ára kjörtímabil.
Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær að hún myndi
ekki viðurkenna stjórn Maduros, þar sem kosn-
ingarnar á síðasta ári hefðu verið ólöglegar.
Milljónir manna á vergangi
AFP
Maduro hefur nýtt kjörtímabil sem forseti Venesúela
Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is
Gámaleiga
Er gámur lausnin fyrir þig?
Við getum líka geymt gáminn fyrir þig
568 0100
stolpigamar.is
HAFÐU
SAMBAND
Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur
Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma