Morgunblaðið - 11.01.2019, Side 18

Morgunblaðið - 11.01.2019, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það er uggur íatvinnurek-endum. Það kom glöggt fram í Morgunblaðinu í gær þar sem rætt var við fulltrúa úr ýmsum greinum atvinnulífsins. Her- skár tónn í kjaraviðræðum er orsökin. Atvinnurekendur ótt- ast bæði áhrif mögulegra verkfalla og mikilla launa- hækkana. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, gengur svo langt að segja að verði „hér langvarandi árásir á ferðaþjónustu í heild sinni, eða á hluta hennar, gætum við horft upp á að einhver fyrir- tæki legðu hreinlega upp laupana. Staðan er bara þann- ig.“ Hvort sem það er í verslun eða ferðaþjónustu er svigrúm- ið sagt lítið. Hætt sé því við að miklum launahækkunum verði veitt beint út í verðlagið. Ef það gerist munu launa- hækkanirnar engu skila. Í raun er hættan sú að verði hækkanirnar umfram bol- magn atvinnurekenda gæti tvennt gerst. Annars vegar að fyrirtækjum yrði lokað. Hærri laun skila litlu til þeirra sem missa vinnuna. Hins vegar gætu verðhækk- anir leitt til verðbólgu um- fram hækkanir á launum þannig að í stað þess að bæta hag almennings yrði gengið á þann umtalsverða kaupmátt, sem unnist hefur á undanförnum misserum. Það yrði grátleg nið- urstaða. Vissulega er ekki víst að það komi til verk- falla. Þótt oft hafi verið ólga á vinnumarkaði á undanförnum árum hafa verkföll verið fátíð í einkageiranum á þessari öld og ekki hefur komið til alls- herjarverkfalla. Verður því að vona að sem fyrr takist að semja áður en í óefni er kom- ið. En það eitt að blikur séu á lofti hefur einnig áhrif á at- vinnulífið. Eggert Þór Krist- jánsson, forstjóri hjá Festi, sem rekur N1 og Krónuna, segir hreint út að umræðan um verkföll og launakröfur hafi haft neikvæð áhrif á verslun að undanförnu. Það ætti ekki að koma á óvart. Það er líklegt að neyt- endur haldi að sér höndum þegar blikur eru á lofti. Fyrir- tæki reyna einnig að fara sér hægt þegar óvissa blasir við. Þau ráða síður nýtt starfsfólk, slá nýjum verkefnum á frest og draga úr auglýsingum. Það á ekki að þurfa að vera lögmál að kjarasamningar byggist á störukeppni, sem lýkur ekki fyrr en komið er fram á ystu nöf. Þessi vinnu- brögð virka eins og bremsa á atvinnulífið og gera í raun að verkum að svigrúmið til samn- inga minnkar enn. Það getur varla verið ætlunin. Atvinnurekendur óttast stöðuna í kjaramálum} Uggur í atvinnulífinu Nicolas Mad-uro hóf í gær annað kjörtímabil sitt sem forseti Venesúela. Það væri synd að segja að frammistaða hans til þessa í embættinu réttlætti það að hann sæti þar áfram, en efnahagur landsins er í rústum eftir áratugalanga óstjórn sósíalista. Þannig hef- ur Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn spáð því að samdráttur verði í landinu upp á um 5% og að verðbólga geti orðið tíu milljónir prósenta. Það þykir fremur mikil verðbólga, jafn- vel í Venesúela, en í fyrra nam hún „einungis“ um 1,35 millj- ónum prósenta. Efnahagsástandið hefur skiljanlega valdið almenningi í landinu umtalsverðum bú- sifjum, en þar er iðulega skortur á matvælum, lyfjum og annarri nauðsynjavöru. Margir hafa því valið að kjósa með fótunum, þar sem kjör- seðlarnir hafa ekki dugað til, og eru rúmlega tvær milljónir manna á vergangi í nágrannaríkjum Venesúela. Því hefur raunar verið spáð að sú tala geti margfaldast á næstu ár- um og telja þeir svartsýnustu að allt að átta milljónir manna gætu flúið land í heildina á næstu tveimur til þremur ár- um. Viðbrögð Maduros við öll- um þessum búsifjum hafa ver- ið þau að kenna öðrum, eink- um Bandaríkjunum, um vandann, sem er þó að öllu leyti heimatilbúinn. Á sama tíma hefur Maduro að hætti sósíalista hert á heljartökum sínum á stjórnmálum Vene- súela með því að varpa stjórn- arandstæðingum í fangelsi og hefta þá fjölmiðla sem leyfa sér að andmæla stjórnar- háttum. Því miður bendir fátt til þess að Maduro verði hagg- að og þjáningum íbúa Vene- súela linni á næstunni. Maduro hefur nýtt kjörtímabil í óða- verðbólgu og efna- hagsöngþveiti} Venesúela á vergangi M eðal mikilvægustu verkfæra unga fólksins okkar, sem móta mun framtíð sam- félagsins, eru sam- vinnuhæfni, frumkvæði, skapandi hugsun og það að geta unnið með upplýsingar og tækni á fjölbreyttan hátt. Fjórða iðnbyltingin krefur okkur með sínum öru samfélags- og tæknibreytingum um nýja nálgun á ýmis kerfi, þar með talið menntun og starfþjálfun af öllu tagi. Í gær tók ég þátt í óvenjulegri gangsetn- ingu nýrrar verksmiðju. Sú verksmiðja er hugmynda- og uppfinningakeppni þar sem nemendur í efstu bekkjum grunnskóla raun- gera og útfæra hugmyndir sínar með aðstoð leiðbeinenda, fagfólks, fyrirtækja og hvetj- andi sjónvarpsefnis. Verkefni þetta er unnið í góðu samstarfi m.a. milli Samtaka iðnaðarins, Ný- sköpunarmiðstöðvar Íslands og Ríkisútvarpsins og framkvæmt með stuðningi mennta- og menningar- málaráðuneytisins. Markmið þessa verkefnis er að hvetja ungmenni til að veita hugmyndum sínum og hæfileikum athygli, efla nýsköpun og fjalla á marg- víslegan hátt um tækifæri sem felast í iðn- og tækni- menntun. Verksmiðjan er stafræn og til húsa á slóð- inni ungruv.is/verksmidjan. Við lærum einna best gegnum athafnir og með því að framkvæma það sem við hugsum. Sköpun er veigamikill þáttur í námi á öllum skólastigum og fjölbreytni er brýn í skólakerfinu til þess að efla og þroska einstaklinga til allra starfa og ekki síður til þess að hjálpa nemendum að finna sína fjöl – eða fjalir. Manneskjan er í mótun alla ævi og því er mikilvægt að byrja snemma að virkja hæfni eins og sköpun og frumkvæði. Verksmiðjan nýja er að mínu mati kjörin til þess. Aukin áhersla á ný- sköpun og frumkvöðlafræðslu eflir unga fólkið okkar og kynnir því ný tækifæri og námsleiðir. Það er ekki síst brýnt fyrir samfélag sem fjölga vill starfskröftum með iðn-, verk- og tæknimenntun. Eitt okkar forgangsmála nú er að fjölga nemum í slík- um greinum og gleðilegt er að uppi eru vísbendingar um að aðgerðir séu farnar að skila árangri, meðal ann- ars með aukinni ásókn í slíkt nám. Ég er bjartsýn á að grunnskólanemendur muni taka Verksmiðjunni fagn- andi og hún muni opna hug þeirra, og foreldranna, fyrir þeim möguleikum sem fólgnir eru í fjölbreyttu námsframboði hér á landi. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Verksmiðjan gangsett Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kveðið er á um að gerðverði landgræðsluáætluntil tíu ára í senn, í nýjumlögum um landgræðslu sem samþykkt voru á Alþingi undir lok nýliðins árs og tóku þá þegar gildi. Í framhaldinu á að gera svæðisáætlun fyrir hvern lands- hluta. Það er í höndum umhverfis- ráðherra að gefa út landgræðslu- áætlun til tíu ára og þarf hann að gera það á fimm ára fresti. Í henni skal kveðið á um framtíðarsýn og stefnu stjórnvalda í landgræðslu. Ráðherra mun skipa verkefnis- stjórn til að stjórna gerð land- græðsluáætlunar og verður land- græðslustjóri formaður hennar. „Þetta þýðir að búið er að formfest ýmislegt sem við höfum verið að þreifa á en ekki útfært að fullu,“ segir Árni Bragason land- græðslustjóri um áætlunina. Land- græðslan á síðan að vinna svæð- isáætlanir fyrir einstaka landshluta á grunni landsáætlunarinnar. Árni segir að það verði gert í samvinnu við sveitarstjórnir og vonast hann til þess að þær geti orðið eðlilegur liður í skipulagsgerð þeirra. Nýting skal vera sjálfbær Annar mikilvægur þáttur nýju löggjafarinnar er að kveðið er skýrt á um það að nýting lands skuli vera sjálfbær þannig að ekki sé gengið á auðlindir þess og þær endurheimt- ar eins og unnt er, og jafnframt að vistkerfum verði viðhaldið. Þá kemur spurningin: Hvað er sjálfbær landnýting? Árni viður- kennir að um það kunni að vera skiptar skoðanir. Hann segir að gert sé ráð fyrir að þetta verði skil- greint í reglugerð. „Við undirbún- ing þess verks munum við hafa samstarf við landnotendur. Við get- um byggt á samstarfsverkefni við Bændasamtök Íslands og fleiri að- ila, Grólind, sem gengur út á það að vakta landnýtingu. Samið var um það til tíu ára og er verkefnið fjár- magnað að stórum hluta í búvöru- samningi bænda og ríkisins. Má segja að sá grunntónn sé nú kom- inn inn í landgræðslulögin,“ segir Árni. Hann segir að við skilgrein- ingu á því hvað teljist sjálfbær landnýting sé hægt að líta til þess hvort gróður og jarðvegur eru í jafnvægi. „Við munum birta í vor stöðumat á því hvert er ástand helstu afréttarlanda. Vonandi gefur það grófa mynd af því hvað er sjálf- bært og hvað ekki. Við höfum einn- ig á heilmiklu að byggja í erlendum fræðiritum og reynslu annarra þjóða. Mikilvægt er að vanda þessa vinnu og setja mælikvarða þannig að óháðir aðilar geti lagt mat á vinnu okkar og niðurstöður,“ segir Árni. Leiðbeining og þvingun Í nýju lögunum eru betri leið- beiningar en í þeim eldri hvernig á að bregðast við ef landnýting er ekki sjálfbær og Landgræðslunni færð tæki til að fylgja málum eftir. Telji Landgræðslan að landnýting sé ósjálfbær skal hún leiðbeina við- komandi um gerð landgræðsluáætl- unar. Ef ekki tekst að fá landnot- anda til að bæta ráð sitt má beita þvingunarúrræðum með því að veita honum áminningu og að loknum fresti til úrbóta má ákvarða dagsektir sem geta num- ið allt að 500 þúsund krónum á dag. Sérstök lög voru um varnir gegn landbroti og hafði Landgræðslan þar mikilvægu hlutverki að gegna. Þau eru nú orðin hluti af landgræðslulög- unum. Gerð verður tíu ára landgræðsluáætlun Stjórnsýslustofnunin sem fer með daglega stjórnun land- græðslumála og annast eftirlit með því að landgræðslulög- unum sé framfylgt heitir nú Landgræðslan. Stofnunin hóf starfsemi á árinu 1907 og hét hún Sand- græðsla ríkisins í 58 ár og síð- an Landgræðsla ríkisins í 53 ár. Sú nafnbreyting var til marks um breytt verkefni. Nýju lögin eru einnig til marks um þróun. Árni Braga- son landgræðslustjóri segir að starfsemin eins og hún er nú sé skrifuð inn í lögin auk þess sem lagðar séu nýjar áherslur. Sem dæmi má nefna að Landgræðslan hefur stundað rannsóknir í mörg ár þótt ekki væri gert ráð fyrir því í gömlu lög- unum. Nýtt nafn á stofnunina LANDGRÆÐSLAN Árni Bragason Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Bakkafjara Þótt Landgræðslan sé aðallega stjórnsýslustofnun og annist eftirlit eru hún enn með tækjabúnað til að safna fræi og græða upp land.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.