Morgunblaðið - 11.01.2019, Síða 27
sat á þingi til 1995. Kristín starfaði
fyrir Félag háskólakennara (1995-
1999), starfaði hjá Reykjavíkurborg
1999-2014 sem framkvæmdastjóri
miðborgar Reykjavíkur, fram-
kvæmdastjóri skipulagssjóðs og síð-
ustu sex árin sem aðstoðarsviðs-
stjóri framkvæmda- og eignasviðs.
„Ég ætlaði mér alltaf að vera vís-
indakona en svo var það skyndi-
ákvörðun að taka sæti á Kvennalist-
anum. Þegar ég hætti á þingi var ég
búin að vera svo lengi í burtu að þá
var ekki hægt að snúa aftur í vís-
indin. Þá fór ég í viðskiptafræði og
vann við stjórnun eftir það. Mér hef-
ur alltaf fundist ég vera í skemmti-
legu starfi.“ Kristín hefur verið í
stjórn Samtaka um mergæxli frá
2013 en þá greindist hún með sjúk-
dóminn.
Helstu áhugamál Kristínar eru
golf og göngur um fjöll og firnindi.
„Ég hef gengið mest innanlands en
seinni árin hef ég einnig verið að
ganga með sex konum erlendis og
það er mjög gaman. Ég spila mikið
golf og hef farið með góðu fólki til
útlanda þegar ekki er hægt að spila
golf á Íslandi.“
Fjölskylda
Eiginmaður Kristínar er Kristján
Már Sigurjónsson, f. 18.7. 1946,
verkfræðingur. Foreldrar: Hjónin
Kristín Ketilsdóttir, f. 6.8. 2014, d.
3.2. 1985, og Sigurjón Kristjánsson,
f. 25.1. 1908, d. 11.9. 1990, bændur í
Forsæti í Flóa.
Börn: 1) Einar hagfræðingur, f.
3.6. 1969 í Reykjavík, eiginkona:
Lilja Þyri Björnsdóttir læknir. 2)
Drengur andvana, f. 3.6. 1969. 3)
Dagur sagnfræðingur, f. 22.7. 1980 í
Reykjavík, eiginkona: Guðrún Jóns-
dóttir hreyfihönnuður.
Börn Einars: Kristján Frank, f.
1998, Lilja Þórunn, f. 2007, Sóley
Kristín, f. 2007, og Birta Lovísa, f.
2010. Sonur Dags: Úlfur, f. 2014.
Systkini Kristínar: Guðrún, hús-
móðir í Kópavogi, f. 21.9. 1950,
Helga, f. 8.7. 1952, d. 8.10. 1970, Þor-
steinn húsasmíðameistari í Keflavík,
f. 23.5. 1955.
Foreldrar: Sigrid Luise Solveig
Elisabet Toft skrifstofustjóri, f.
24.12. 1924, d. 15.9. 2009, og Einar
Þorsteinsson húsa- og skipa-
smíðameistari, f. 7.11. 1919, d. 9.6.
1982. Þau bjuggu í Keflavík, en
skildu árið 1970. Stjúpfaðir: Magnús
Pálsson, formaður Verslunarmanna-
félags Austurlands, f. 28.10. 1926.
Þau Sigrid giftust árið 1974 og
bjuggu á Egilsstöðum þar sem
Magnús er enn búsettur.
Kristín Einarsdóttir
Jón Þorsteinsson
bóndi í Neðri-Hreppi
Guðrún Þorsteinsdóttir
bóndakona Neðri-Hreppi
í Skorradal
Þorsteinn Jónsson
bóndi í Efri-Hreppi
Einar Þorsteinsson
húsa- og skipasmíðameistari í Keflavík
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir
bóndakona í Efri-Hreppi í Skorradal
Guðmundur Símonarson
bóndi í Melshúsum
Margrét Símonardóttir
bóndakona í Melshúsum í Leiru
Guðrún
Einarsdóttir
húsmóðir í
Kópavogi
Sigríður
Valdimarsdóttir
verslunarstjóri
Fríhafnarinnar
Magnús
Valdimarsson
(Maggi Mix)
skemmikraftur
Þorsteinn
Einarsson
húsasmíða-
meistari í
Keflavík
Helga Lyngdal
Þorsteinsdóttir
kennari áAkureyri
Harpa Þor-
steinsdóttir
fótboltakona og
uppeldisfræðingur
Einar Ben
Þorsteinsson
hestamaður
á Egilsstöðum
Guðrún Jóhanna
Guðmundsdóttir
augnlæknir á
Akranesi
Guðmundur
Þorsteinsson fv.
bóndi í Efri-Hrepp,i
bús. áAkranesi
Anna Luise Toft
fv. aðstoðarkona
sjúkraþjálfara
í Rvík
Guðrún Indriðadóttir
hársnyrtimeistari í Rvík
Indriði Freyr Indriðason
viðskiptafræðingur í Rvík
Margrét
Kristine Toft fv.
verslunarkona á
Ólafsfirði
Ólafur Björnsson
íþróttakennari áAkureyri
Kristinn Björnsson
skíðakappi og
skíðakennari í Noregi
Irmgard Toft
fv. starfskona
í Sundhöllinni
Iðunn Leósdóttir
spænskukennari í MR
Nis Toft
kaupmaður í Åbenrå
Margret Arnesen Toft
kaupkona í Åbenrå á
Suður-Jótlandi
Hartwig Toft
kaupmaður í Reykjavík
Christine Harms Toft
húsmóðir í Reykjavík
Ludwig Harms
skógarhöggsmaður og
bóndi í Gros Grönau
Christine Ramm Harms
húsmóðir í Gros Grönau í Slesvík-Holtsetalandi, Þýs.
Úr frændgarði Kristínar Einarsdóttur
Sigrid Luise Solveig Elisabet Toft
skrifstofustjóri á Egilsstöðum
Hjónin Stödd í 3.700 m hæð á Inka-
stígnum í Perú í október síðastliðnum.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2019
95 ára
Jón R. Haraldsson
90 ára
Lára Gunnarsdóttir
85 ára
Jóhanna Þóroddsdóttir
80 ára
Ármann Pétursson
Ester Ingibjörg
Sigfinnsdóttir
Ólöf Sigurlásdóttir
Svanhildur Vagnsdóttir
75 ára
Ari Sigjón Magnússon
Dagný Gerður
Sigurðardóttir
Sigríður Kristjánsdóttir
70 ára
Garðar Sverrisson
Guðbjörg Hrafnsdóttir
Gunnar Þorvaldsson
Guttormur Rafnkelsson
Hannes Örn Þór
Blandon
Kristín Einarsdóttir
Sigurlína Jónsdóttir
Unnur Sigursveinsdóttir
60 ára
Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
Aðalbjörg Ólafsdóttir
Agnes Böðvarsdóttir
Árni Haraldsson
Björg Friðmarsdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Jóhanna M.
Sigurgeirsdóttir
Jóhannes Áslaugsson
Logi Dýrfjörð
Sigríður Áslaug
Guðmundsdóttir
Símon Ingvar Tómasson
50 ára
Anna Steinarsdóttir
Hafdís Elfa Ingimarsdóttir
Hörður Sævar Erlingsson
Jörundur Sveinn
Matthíasson
Sigurrós Tryggvadóttir
40 ára
Arnar Hrafn Jóhannsson
Arndís Anna Hilmarsdóttir
Ásdís Haraldsdóttir
Daníel Pétur Axelsson
Eva Kamilla Einarsdóttir
Ingólfur Ágúst Hreinsson
Ingvi Hrafn Aðalsteinsson
Jill Marlene Christian
Katla Sigurðardóttir
Katrín Elly Björnsdóttir
Kristján Sigurður Jónsson
Marcin Henryk Garus
Melissa Guðlaug Haire
Patricio Cerqueira Alves
Selma Margrét Arnardóttir
Sigrún Halla Tryggvadóttir
Stefán P. Jones
Þórdís Ósk Kristjánsd.
Sandholt
30 ára
Aleksandra Monika Kudlak
Arnar Ingi Friðriksson
Arne Karl Wehmeier
Aron Freyr Eyjólfsson
Árný Rut Jónsdóttir
Diana Cepurnaja
Haraldur Björnsson
Helgi Hrafn Hallsteinsson
Kristján Ingi Sigurðsson
Krystian Zawadzki
Leire Aguirre Arruabarrena
Marta Alicja Biernacka
Patrycja S. Lewandowska
Ragnhildur Lind Borgarsd.
Rustams Steinbergs
Stefán Ingi Þórisson
Vilborg Pétursdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Kamilla er Reyk-
víkingur, rithöfundur og
bókavörður á Þjóðar-
bókhlöðunni.
Maki: Loki Rúnarsson, f.
1993, sölustjóri hjá Miðl-
un.
Börn: Júlía Kristín, f.
2000, Ninja Björt, f. 2001,
og Karitas Lóa, f. 2010.
Foreldrar: Einar Kárason,
f. 1955, rithöfundur, og
Hildur Baldursdóttir, f.
1957, bókasafnsfræð-
ingur á Kringlusafninu.
Eva Kamilla
Einarsdóttir
40 ára Ingvi er Sandari,
fæddur og uppalinn á
Hellissandi og býr þar.
Hann rær á eigin bát á
sumrin og vinnur hjá Fisk-
markaðnum á veturna.
Maki: Adriana Parol, f.
1980, skólaliði í Grunn-
skóla Snæfellsbæjar.
Sonur: Filip Steinn, f.
2010.
Foreldrar: Aðalsteinn
Ólafsson, f. 1952, og
Birna Sigurðardóttir, f.
1956, bús. á Hellissandi.
Ingvi Hrafn
Aðalsteinsson
30 ára Helgi Hrafn er
Akureyringur, ættaður frá
Raufarhöfn. Hann er
mjólkurfr. hjá Mjólkur-
samlaginu á Akureyri.
Dóttir: Birta Karen, f.
2014.
Systkini: Þorgrímur, f.
1974, og Sólveig, f. 1984.
Foreldrar: Hallsteinn
Guðmundsson, f. 1955,
útgerðarmaður og rekur
Hafblik, og Elínborg Þor-
grímsdótttir, f. 1952, ritari
hjá Náttúrufræðistofnun.
Helgi Hrafn
Hallsteinsson
Áróra Rós Ingadóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í næringarfræði við
matvæla- og næringarfræðideild Há-
skóla Íslands. Ritgerðin ber heitið:
Skimun á næringarástandi og næring-
armeðferð sjúklinga með langvinna
lungnateppu (LLT) (Nutritional risk
screening and nutrition therapy for
patients with chronic obstructive
pulmonary disease (COPD)). Leiðbein-
endur voru dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir,
prófessor við matvæla- og næringar-
fræðideild, og dr. Anne Marie Beck,
dósent við Copenhagen University Col-
lege í Danmörku.
Markmið doktorsverkefnisins var að
auka þekkingu á skimun á næringar-
ástandi og næringarmeðferð sjúklinga
með langvinna lungnateppu (LLT). Rit-
gerðin er byggð á gögnum um sjúk-
linga með LLT sem lögðust inn á
lungnadeild Landspítala á tímabilinu
september 2014 til desember 2016.
Allir þátttakendur voru skimaðir fyrir
hættu á vannæringu (n=492). Líkams-
samsetning var metin með leiðnimæl-
ingu, lungnastarfsemi með önd-
unarmælingu og orku- og
próteinneysla í innlögn með gildis-
metnu skráningarblaði. Sjúklingar með
sterkar líkur á van-
næringu sam-
kvæmt skimun (=4
stig) tóku þátt í
íhlutunarrannsókn.
Þátttakendum var
slembidreift í tvo
hópa, næringar-
drykkjahóp (hefð-
bundin næring-
armeðferð í dag) og millibitahóp sem
fékk orku- og próteinríka millibita (ný
aðferð). Báðir hópar fengu 600 kkal á
dag aukalega við hefðbundið fæði í 12
mánuði. Sjúklingar í lítilli eða meðal-
áhættu á vannæringu (0-3 stig) tóku
þátt í víxlunarrannsókn. Þar voru áhrif
næringardrykkja og millibita, fastandi
eða eftir morgunverð, metin með mæl-
ingum á blóðsykri, fastandi og í kjölfar-
ið reglulega í tvær klukkustundir eftir
neyslu. Niðurstöðurnar benda til þess
að auka mætti fjölbreytileika í næring-
armeðferð vannærðra sjúklinga með
því að nota orku- og próteinríka milli-
bita jafnhliða hefðbundnum næring-
ardrykkjum. Rannsaka þarf betur mis-
munandi áhrif næringardrykkja og
millibita á blóðsykur sjúklinga með LLT,
sem og klíníska þýðingu.
Áróra Rós Ingadóttir
Áróra Rós Ingadóttir er fædd á Selfossi árið 1982. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Kópavogi árið 2004, BS-prófi frá matvæla- og næringar-
fræðideild Háskóla Íslands árið 2012 og MS-prófi frá sömu deild árið 2014. Áróra
er aðjunkt við matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands og næring-
arfræðingur á Næringarstofu Landspítala. Foreldrar hennar eru Dýrleif
Tómasdóttir og Ingi Rafn Hauksson. Áróra er gift Þórði Þrastarsyni. Þau búa í
Mosfellsbæ ásamt börnum sínum, Tristani og Thelmu Rós.
Doktor