Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Page 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019
Það hefur löngum þótt ráðgátahvernig sex mínútna langtlag með óperukafla og óskilj-
anlegum texta, lag sem fylgdi eng-
um formúlum vinsælda gat slegið
svo hressilega í gegn eins og lagið
Bohemian Rhapsody með Queen
gerði þegar það kom út árið 1975.
Einhvern veginn og einhverra hluta
vegna þá bara virkaði það, fólk
hlustaði og er enn að hlusta á þetta
ódauðlega lag sem virðist hafa fjöl-
mörg líf.
Bohemian Rhapsody var gefið út
árið 1975 þrátt fyrir að liðsmenn-
Queen hefðu fengið margar viðvar-
anir um að lagið gæti aldrei slegið í
gegn. Enginn myndi spila svo langt
lag í útvarpi. Þeir hlustuðu ekki á úr-
töluraddir og gáfu lagið út óstytt,
tæpar sex mínútur að lengd. Þvert á
það sem spáð hafði verið náði lagið
efsta sæti vinsældalista í Bretlandi
og vermdi sætið í níu vikur. Í Banda-
ríkjunum náði það í níunda sæti
Billboard-listans en í nokkrum öðr-
um löndum, þ.á m. Ástralíu og Kan-
ada, komst lagið á toppinn líkt og í
Bretlandi.
Eftir andlát Freddie Mercury,
söngvara Queen, árið 1991, var lagið
endurútgefið og náði að nýju á topp-
inn bæði í Bretlandi og á Írlandi og
komst ofarlega á lista víða annars
staðar.
Ári síðar, árið 1992, kom síðan út
gamanmyndin Waynés World sem
notaði lagið sem nokkurs konar ein-
kennislag og enn náði Bohemian
Rhapsody að klífa vinsældastigann.
Að þessu sinni náði það í annað sæti
Billboard-listans í Bandaríkjunum,
enn hærra en þegar það var upp-
haflega gefið út. Segja má að með
Waynés World hafi þriðja vinsælda-
bylgja lagsins komið. Og sú fjórða
gekk yfir á síðasta ári þegar mynd
sem ber heiti lagsins, Bohemian
Rhapsody, kom út. Enn á ný tekur
lagið sér sæti ofarlega á listum yfir
vinsæl lög í mörgum löndum.
Áhætta sem borgaði sig
Engu öðru lagi sem samið var á 20.
öldinni hefur verið streymt eins oft
og Bohemian Rhapsody á veitum á
borð við YouTube og Spotify sam-
kvæmt nýlegum tölum. Lagið virðist
höfða til margra kynslóða.
„Þetta er auð-
vitað stór-
furðulegt lag.
En einhvern
veginn er eitthvað
þarna sem fólk fílar
og Queen er hljóm-
sveit sem hefur eitthvað
sem höfðar til mjög
margra, hún nær að heilla
bæði bolinn og pælarana,“
segir dr. Arnar Eggert Thoroddsen,
aðjúnkt í félags- og fjölmiðlafræði
við Háskóla Íslands og sérfræðingur
um tónlist. Hann segir Queen hafa
tekið mikla áhættu með útgáfu lags-
ins á sínum tíma.
„Annaðhvort verða svona lög al-
gjörlega á jaðrinum eða slá í gegn.
Það er eitthvað í uppbyggingunni á
þessu lagi sem við tengjum við, það
er kannski þetta drama sem byrjar
með „Mama, just killed a man...“ og
svo byggist lagið upp skemmtilega
frá því. Síðan koma þessi furðuleg-
heit um miðbikið og maður sperrir
eyrun og langar að vita hvað gerist
næst. Hvað er að gerast í þessu lagi,
er þetta ópera, er þetta rokk?“
Mörg dæmi eru um að lög hafi
gengið í endurnýjun lífdaga eftir að
hafa verið endurvakin í kvikmynd-
um en þau ná ekki alltaf viðlíka vin-
sældum og Bohemian Rhapsody.
„Það hafa oft komið svona myndir
um tónlistarmenn en tónlistin þeirra
fer ekkert endilega aftur af stað upp
vinsældalistana. En það er mjög
áhugavert að skoða hvernig lög
ferðast um tíma. Kvikmyndir, sjón-
varpsþættir, auglýsingar og jafnvel
tölvuleikir eru oft að vekja upp
klassísk lög. Okkar börn eru oft að
heyra gömul lög gegnum myndbönd
á Youtube eða í tölvuleikjum, þar
öðlast tónlistin nýtt líf,“ segir Arnar.
Endurvaknar vinsældir Bohemian
Rhapsody í kjölfar myndarinnar
með Rami Malek í aðalhlutverki
gætu talist fjórða líf lagsins. Freddie
Mercury var mikill kattaaðdáandi og
aldrei að vita nema lagið hans gæti
átt níu líf eins og kettirnir.
Fjórða bylgja
Bohemian
Rhapsody
Lagið Bohemian Rhapsody með Queen náði að
tylla sér ofarlega á vinsældalista víða um heim
enn á ný á árinu 2018. Þrátt fyrir misjafna dóma
náði lagið geysilegum vinsældum þegar það kom
út árið 1975 og skaust aftur upp listana í tvígang á
tíunda áratugnum. Engu lagi frá 20.öldinni hefur
verið streymt jafnoft á tónlistarveitum.
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
AFP
Rami Malek hefur hlotið mik-
ið lof fyrir túlkun sína á
Freddie Mercury í kvikmynd-
inni Bohemian Rhapsody, sem
fjallar um hljómsveitina
Queen og ekki síst um ævi
Mercury, söngvara og nokkurs
konar leiðtoga sveitarinnar.
Mercury var sá sem samdi
Bohemian Rhapsody, en
hljómsveitin var í þrjár vikur í
stúdíói að taka lagið upp. Texti
lagsins hefur orðið tilefni í
fjörugar umræður gegnum ár-
in en Mercury sagði sjálfur að
fólk ætti að hlusta, hugsa um
textann og svo ákveða sjálft
hvaða þýðingu lagið og text-
inn hefðu. Engin ein túlkun
væri rétt. Lagið sjálft og tilurð
þess er eins og gefur að skilja
fyrirferðarmikill þáttur í
myndinni sem heitir eftir
laginu, enda er lagið ekki
eingöngu talið hafa
markað djúp spor í sögu
hljómsveitarinnar held-
ur einnig tónlist-
arsögunnar í
heild sinni.
Hver túlki
fyrir sig
NOREGUR
VARHAUG 17 ára drengur sem játaði morðið á hinni
13 ára gömlu Sunniva Ødegård í bænum Varhaug í Noregi
er metinn sakhæfur af réttarsálfræðingum. Sunniva fannst
skammt frá heimili sínu í lok júlí á síðasta ári en hún
hafði verið beitt harkalegu ofbeldi. Drengurinn gaf
sig fram og játaði brot sitt við skýrslutöku.
RÚSSLAND
MAGNITOGORSK Tala látinna eftir gas-
sprengingu í tíu hæða fjölbýlishúsi í Magnitogorsk
í Rússlandi á gamlársdag er komin upp í 37, þar
af eru sex börn látin. Í byrjun vikunnar fannst 10
mánaða drengur á lífi en talið er að vaggan sem
hann lá í hafi bjargað honum. Aðeins hafa sex
fundist á lífi og fjögurra er enn saknað.
BANDARÍKIN
Mike Pompeo, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, hefur
áhyggjur af aukinni framleiðslu
kókalaufa í Kólumbíu, sem not-
uð eru til framleiðslu á kókaíni.
Á fundi sínum með forseta
Kólumbíu, Ivan Duque, viðraði
hann þessar áhyggjur sínar og
sammæltust þeir um að grípa
til sameiginlegra aðgerða til að
koma böndum á framleiðsluna
og minnka hana um 50% á
næstu fjórum árum.
NORÐUR-KÓREA
Sendiherra Norður-Kóreu á
Ítalíu, Jo Song-gil, ásamt eigin-
konu sinni, er í felum að því er
BBC greinir frá en jafnframt
hefur sendiherrann sótt um
hæli í vestrænu ríki. Sendiherr-
ann átti að ljúka störfum sem
sendiherra í Róm í nóvember
á síðasta ári en fl úði snemma
í nóvember og hafa yfi rvöld
í Norður-Kóreu ekki haft af
honum spurnir síðan.
Rami Malek
sló í gegn sem
Freddie Mercury.
Freddie Mercury með Queen á tónleikum í París í september 1984. Mynd um líf hans og feril hljómsveitarinnar Queen
sem ber heiti eins vinsældasta lags sveitarinnar, Bohemian Rhapsody, hefur skotið laginu að nýju upp vinsældalista.
Kvikmyndin Waynés World skóp þriðju vinsældabylgju lagsins Bohemian
Rhapsody. Spurning hversu margar bylgjur lagið á inni.