Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Page 17
kannski minni en oft áður. En við erum búin að
fá þvílík viðbrögð við þessari mynd að kannski
er ég að mislesa áhorfendur. Áhorfið og at-
hyglin sem þessir þættir hafa fengið er langt
umfram það sem okkur dreymdi um. Kristján
er svo jákvæður og hvetjandi og kannski gerir
maður ekki nóg af verkum um fólk sem lætur
drauma sína rætast. Þetta kom mér yndislega
á óvart,“ segir hún.
Öðru og mun stærra verkefni hefur Margrét
unnið að í nokkur ár, ásamt Hrafnhildi Gunn-
arsdóttur. Það er heimildamynd um vídeó-
listafólkið Steinu og Woody Vasulka, en Steina
er íslensk og Woody frá Tékklandi.
„Þau eru um áttrætt, stórkostlegt fólk og við
erum að klára u.þ.b. níutíu mínútna mynd fyrir
alþjóðamarkað. Þegar við byrjuðum árið 2014
voru þau að berjast í bökkum því fólk var hætt
að hringja og þau hætt að sýna verkin. Hrafn-
hildur hefur þekkt þau lengi, og við ákváðum
að fara af stað og erlendir vinir mínir, sölu-
aðilar, hristu höfuðið góðlátlega og sögðu,
gangi ykkur vel að selja mynd um vídeólist!
Við ströggluðum áfram og náðum loks að fjár-
magna myndina enda eru þau heimsfræg í
listaheiminum, miklir húmoristar og voru í fé-
lagsskap Andy Warhol, Jimmy Hendrix, Philip
Glass, Nam June Paik og fleiri. Núna eru þau
hins vegar á nýjum stað, fólk er að endur-
uppgötva þau og stór listasöfn víða um heim
eru að berjast um að eignast verk þeirra og að
sýna þau,“ segir Margrét og segir það
skemmtilega tilviljun að það hafi gerst á sama
tíma og myndin var í vinnslu.
Umkringd rokkurum og leikurum
Margrét er um þessar mundir í startholunum
fyrir afar spennandi heimildamynd sem hún
segir sína fyrstu mynd sem á sér í raun enga
tengingu við Ísland.
„Hún fjallar um Carinthiu West, breskan
ljósmyndara sem var leikkona og fyrirsæta.
Við í Sagafilm ákváðum að fara í þessa mynd
þó að ég sæi fyrir mér vandræði, þar sem bestu
vinir ljósmyndarans eru frægustu rokk-
stjörnur og leikarar í heiminum. West er í raun
amatör ljósmyndari. Hún var uppgötvuð sex-
tán ára gömul, þar sem hún stóð á strætó-
stoppistöð í London, af hirðljósmyndara Bítl-
anna, Robert Whitaker, en sá maður deildi
vinnustofu með Eric Clapton. Hún er einka-
barn foreldra sinna og faðir hennar var hers-
höfðingi í breska hernum og listhneigður mjög.
Hún var því alin upp við það að umgangast
frægt fólk. Svo æxlast það þannig að hún kynn-
ist ýmsum úr rokk- og leiklistarheiminum.
Hún leigði t.d. með Helen Mirren og þær eru
vinkonur og Ronnie Wood úr Rolling Stones og
Krissy kona hans voru vinir hennar. Þannig
kynntist hún líka Mick Jagger. Hún var alltaf
með myndavél um hálsinn og var alltaf að taka
myndir af vinum sínum. Þetta eru svona mynd-
ir eins og í gömlu albúmum okkar, vinir á
ferðalagi og úti að djamma,“ segir Margrét.
Nýlega hélt West sýningu á myndum sínum
og sýna þær vini hennar, stórstjörnurnar, í
ýmsum venjulegum og óvenjulegum að-
stæðum.
„Carinthia hefur alltaf farið vel með mynd-
irnar og ekki viljað sýna þær. Þrír af hennar
góðu vinum eru látnir, þeir David Bowie, John
Hurt og Robin Williams, og þá fór hún að
hugsa að nú væri kominn tími til að fara yfir
þetta tímabil og var tilbúin að gera mynd. En
það verður ekki auðvelt því það er ekkert
hlaupið að því að ná viðtölum við þetta fræga
fólk, vini hennar,“ segir hún og bætir við að
West ætli nú að opna safnið sitt upp á gátt og
hjálpa þeim að ná tali af vinum hennar.
Stressuð að hitta Mick Jagger
Margrét og Ragnar Agnarsson leikstjóri
ákváðu að ráðast ekki á garðinn þar sem hann
væri lægstur og byrjuðu á að taka viðtal við
Mick Jagger, áður en farið væri í fjármögnun.
„Mick Jagger samþykkti í vor að koma í við-
tal og við tókum það upp á skrifstofu hans í
London núna í desember. Og þótt ég hafi tekið
viðtöl við alls konar þekkt fólk þá er hann sá
langfrægasti hingað til.“
Hvernig var hann?
„Hann var bara æðislegur. Ég var auðvitað
dálítið stressuð en maður er það alltaf fyrir öll
viðtöl. Hann var búinn að fá spurningar fyrir-
fram og snerust þær um þeirra vináttu en
myndin fjallar að miklu leyti um vináttuna og
svo líf Carinthiu. Hann stóð fyllilega undir
væntingum. Hann var bara miklu betri en ég
átti von á. Ég reyndi að nálgast þetta eins og
hvert annað viðtal enda eru allir merkilegir,
hvort sem það eru togarasjómenn frá Hull eða
Mick Jagger,“ segir hún.
Blaðamaður vill vita meira og biður um smá-
atriði.
„Hann skrúfaði nú sjarmann í botn og sló á
létta strengi. Og hann er dálítið sætur og
sjarmerandi þrátt fyrir að vera 75 ára, en ég
hef nú alltaf verið svolítið veik fyrir eldri körl-
um með góðar sögur,“ segir hún hlæjandi.
Margrét gaf honum að skilnaði nýju ljós-
myndabókina Glacier eftir Ragnar Axelsson
og þakkaði hann fyrir sig. Daginn eftir hélt
hún til fundar við BBC til þess að ræða næstu
verkefni. Næst á dagskrá er að ná tali af
nokkrum vinum Carinthiu West í viðbót.
Kannski verður Helen Mirren næsti við-
mælandi?
Margrét er hógvær og vill ekki lofa upp í
ermina á sér.
„Við tökum þessu auðvitað með okkar stó-
ísku ró. Það er ekkert öruggt í þessum bransa.
Við lifum bara á brúninni með hvert verk og
erum auðvitað ekki að bjarga neinum manns-
lífum með þessu starfi, bara góðum sögum.“
Þessi mynd er tekin í Færeyjum þegar
Margrét og tökulið hennar myndaði
grindhvaladráp fyrir þættina Nautnir
Norðursins. Á myndinni eru Árni
Benediktsson, Arnar Þór Þórisson,
Gísli Örn Garðarsson, Margrét, Hrafn-
hildur Gunnarsdóttir og Leif Sörensen.
Margrét hefur séð margt spennandi í starfi
sínu. Hér er hún vð gosið á Fimmvörðuhálsi.
Morgunblaðið/Ásdís
Nýjasta mynd Margrétar mun fjalla um ljósmyndarann Carinthiu West, sem myndaði fræga vini sína
í gegnum árin. Margrét tók viðtal við Mick Jagger um daginn og segir hann afskaplega sjarmerandi.
Margrét og Benedikt Erlings-
son störfuðu saman að gerð
myndarinnar The Show of the
Shows sem var um sirkus-
listamenn en hún var unnin upp
úr gömlu myndefni. Sú mynd
fór víða um heim.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
6.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17