Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Síða 22
Höfuðstöðvarnar í Dessau. GettyImages/iStockphoto Bauhaus-skólinn, sem sameinaði listgreinar, handverk og iðnað í nýja móderníska heild, fagnar hundrað ára afmæli á þessu ári. Skólinn var aðeins starfandi í rúman áratug en er engu að síður mjög áhrifamikill í hönnunarsögunni. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019 HÖNNUN OG TÍSKA Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700 Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is Peter Keler fékk innblástur frá Kandinsky við hönnun þessarar vöggu. Bauhaus, einhver áhrifamesti lista- og hönnunarskóli sögunnar fagnaraldarafmæli sínu í ár. Það var Walter Gropius sem stofnaði Bauhaus.Hann sagði að þessir nýju tímar þyrftu sitt eigið form og var tilgang- urinn m.a. að sameina list og handverk undir einu þaki og brjóta um leið þekktar hefðir og virðingarröð. Skólinn hóf starfsemi í Weimar en flutti síð- ar til Dessau. Gropius skrifaði í tengslum við Bauhaus-sýninguna 1923 að Bauhaus- stefnan tryði því að vélin væri nútíma miðill hönnunnar og að hún vildi sættast við hana. Listir, handverk og iðnaður komu innan stefnunnar saman í nýrri, módernískri heild. Mies van der Rohe var við stjórnvölinn í skólanum síðustu árin sem skólinn starfaði en honum var lokað árið 1933 þegar margir af hugsuðum stefnunnar fluttu til Bandaríkjanna og þróuðu þar hug- myndafræðina áfram. Á meðfylgjandi myndum eru m.a. nokkrir af þekktustu hönn- unargripum Bauhaus-tímabilsins og aðrir hlutir eða byggingar sem endurspegla þetta þekkta skeið í listasögunni. Grafíska hönnunin á plakati Joost Schmidt fyrir Bauhaus- sýningu árið 1923 endur- speglar margt af því sem skólinn er þekktur fyrir. Wassily-stóllinn, módel B3, er hönnun Marcel Breuer frá árunum 1925-1926. Brno-stóllinn eftir arkitektinn Mies van der Rohe er hannaður 1929- 1939. Báðir stólarnir á þessari síðu eru nú framleiddir af Knoll. Skólinn sem breytti heiminum Einfalt og stílhreint taflsett eftir Josef Hartwig frá 1923-1924 þar sem hönnun taflmannanna endurspeglar hreyfanleika þeirra. Josef Albers hannaði þessi borð í anda málverka sinna. GettyImages/iStockphotoBauhaus-bygging í Berlín.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.