Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2019 MATUR Það er eitthvað afslappað við aðborða borgara með fjölskyld-unni eða í matarboði. Þeir sem hafa ekki prófað grænmetis- borgara ættu að gera það. Útfærsl- urnar eru ótalmargar, svo margar að Nina Olsson gerði heila bók, bara um grænmetisborgara sem kom út hjá Angústúru fyrir jólin. Bókin heitir Góðborgarar og er undirtitillinn ein- stakar uppskriftir að næringarríkum grænmetisborgurum, brauði, sósum og hnossgæti. Sunnudagsblaðið fékk leyfi til að birta nokkrar uppskriftir úr bókinni. Grænmetisborgarar ættu að vera reglulega á borðum, líka hjá kjötæt- um, enda eru þetta jafnan fallegir og ljúffengir réttir. Borgarar, sem oftar en ekki flokkast sem skyndibitafæði, geta vel verið heilsufæði, í réttu út- færslunni. Olsson lýsir á skemmti- legan hátt hvernig grænmetisborg- arinn hafi ekki alltaf verið sú stjörnumáltíð sem hann er nú. Upp- gangur hans er að mörgu leyti eins og sagan af litla, ljóta andarung- anum, sem breyttist í fallegan svan; eitt sinn smáður en nú í hávegum hafður. Grænmetismatur hefur breytt um svip og getur vel verið að minnsta kosti jafn girnilegur og matur með dýraafurðum. Þetta veit Guðrún Sól- ey vel en blaðið fékk líka leyfi til að birta tvær uppskriftir úr Grænkera- krásum hennar, sem kom út hjá Sölku. Hún segir að ef hún mætti bara útbúa eina máltíð að eilífu, væri það borgari. Þeir séu einfaldir en endalaust sé hægt að föndra með þá og leika sér með álegg, sósur og buff. Hún tekur því virkan þátt í grill- íþróttinni, þjóðarsportinu, sem er vel hægt að stunda þó borgararnir séu grænmetis. GettyImages/iStockphoto Girnilegir grænmetis- borgarar Eftir formleg jólaboð, steikur og sætindi er kominn tími á eitthvað annað á diskinn. Græn- metisborgarar eru frábær kostur og fjölbreyttur og líka góð tilbreyting frá hátíðamatnum. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Þessi uppskrift er líka úr Grænkerakrásum Guðrúnar Sóleyjar. 1 portobellosveppur KRYDDLÖGUR 3 msk. ólífuolía 1 hvítlauksrif 1 tsk. balsamikedik 1 tsk. sítrónusafi 2 tsk. sojasósa 1 tsk. paprikukrydd 1 tsk. timjan 1 rauðlaukur 2 msk. síróp hamborgarabrauð vegan majónes srirachasósa vegan rjómaostur Skerið stilkinn af porto- bellosveppnum. Pressið hvítlaukinn og blandið hon- um saman við önnur inni- haldsefni í kryddlegi. Látið marinerast við stofuhita í 30 mínútur. Á meðan er gott að útbúa karamellíseraðan lauk. Steikið saxaðan lauk á miðlungsheitri pönnu ásamt sírópinu þar til laukurinn er orðinn glær og mjúkur. Fjar- lægið portobellosveppinn úr marineringu og látið löginn til hliðar. Grillið sveppinn í 3-4 mínútur á hvorri hlið og penslið með restinni af kryddleginum. Útbúið chilimajó með því að blanda srirachasósu sam- an við majónes og smakka til. Grillið brauð, smyrjið með chilimajó, smyrjið sveppinn með vegan rjóma- osti og látið karamellíser- aðan lauk ofan á. Bætið káli, klettasalati, lauk og tómat við. Portobelloborgari með karamellíseruðum lauk Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir Þessi uppskrift er úr Grænkerakrásum Guð- rúnar Sóleyjar. ein og hálf handfylli spínat ein handfylli brokkolí 1 gulrót 1 tsk. ferskt engifer 1 msk. raspaður sítrónu- börkur 1 chilialdin 1 dl hveiti ½ dós kjúklingabaunir, um 150 g ½ dl hafrar ½ tsk. garam masala 1½ tsk. sítrónusafi 100 g rasp hamborgarabrauð hvítlauksmajó (hrærið press- uðum hvítlauksgeira saman við 1½ dl af vegan majónesi, saltið og piprið) vegan cheddar ostur hvítlaukssteiktir sveppir salat Hitið olíu á pönnu. Saxið allt grænmeti mjög smátt. Blandið öllum innihalds- efnum nema raspi saman í stórri skál með höndunum og kreistið dálítið vel sam- an. Mótið í buff. Veltið buff- unum upp úr raspi og steik- ið við miðlungshita þangað til þau verða gullinbrún á annarri hliðinni, snúið þeim þá við og steikið á hinni hliðinni. Með þessum hætti verða þau stökk að utan og mjúk að innan, það ætti að taka um 10–12 mínútur. Spínat- og brokkolíborgari Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.