Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Side 31
nýja lögmáli. Bloomberg hefur sömu staðfestuna í
stjórnmálum og Trump. Hann var lengst af demó-
krati, en bauð sig fram sem repúblikani í borgar-
stjóraembættið. Þegar hann leitaði eftir endurkjöri,
sem hann fékk, var hann orðinn óháður og nú hefur
hann nýlega gengið í Demókrataflokkinn aftur þar
sem Trump og hann voru löngum flokksbræður.
Bernie Sanders, sem náði ótrúlega góðum árangri í
prófkjöri demókrata síðast og sýndi mikinn styrk og
úthald, hefur sagst vera að íhuga framboð. Það hlýt-
ur að styrkja Bernie að hann verður orðinn 79 ára á
kjördag 2020 og slær þar með Biden og Bloomberg
út að því leyti. Vandi þessara þriggja gæti verið sá
að smástelpa, Elísabet Warren, hefur boðað forseta-
framboð. Það hlýtur þó að há henni verulega að hún
verður ekki nema 71 árs á kjördag í nóvember 2020
svo að hinir geta bent á að lágmarkskrafa sé að
frambjóðendur hafi slitið barnsskónum fyrir kjör-
dag. Þá hefur Warren það í sínu farteski að hafa krí-
að út sérstaka stöðu í háskóla forðum tíð út á þá full-
yrðingu að hún væri af indjánum komin. Hefur hún
ríghaldið í þá fullyrðingu og birti fyrir fáeinum mán-
uðum DNA-rannsókn sem átti að sanna ætternið.
En sérfræðingar bentu á að nær allir Bandaríkja-
menn væru meiri indjánar en Warren samkvæmt
þessari mælingu.
Áður en Warren tilkynnti framboð sitt til forseta
höfðu stuðningsmenn hennar fengið hana til að
viðurkenna að þetta indjánatal væri á einhverjum
misskilningi byggt í þeirri von að fyrnst hefði yfir
það fyrir kosningar. Það gæti þó orðið flóknara en
þeir halda. Trump, sem fagnaði framboði Warren,
kallar hana aldrei annað en Pocahontas, og segist
gera það í virðingarskyni við ættbálkinn.
Misvísandi mælikvarðar
Einhver gæti bent á það að demókrötum hafi þótt í
síðustu kosningum sérlega óviðfelldið að Trump
væri svo ríkur sem hann var og töldu það mjög tor-
tryggilegt. Því gætu repúblikanar nú bent á að
Bloomberg sé talinn vera 10 sinnum ríkari en
Trump. En demókratar og allir fjölmiðlar þeirra
gætu á móti bent á að Bloomberg væri orðinn demó-
krati sem Trump var nýhættur að vera þegar hann
bauð sig fram. Það gilda allt aðrar reglur um demó-
krata en repúblikana bæði um kvennamál, lögbrot
um öryggismál eða skattgreiðslur og þá auðvitað um
auð sem er talinn illa fenginn, eigi repúblikanar í
hlut, en smurður ilmefnum sem hjálpi til að bjarga
heiminum í loftslagsmálum, eigi demókratar í hlut.
Þannig var auður Kennedy-fjölskyldunnar ekki
minni að núvirði en Trumps (sem menn saka
reyndar um að ljúga sinn auð upp) og alltaf var
klappað lengi og innilega fyrir þeim aurum. Sumir
hafa haldið því fram að hluta auðæfa Josephs
Kennedy, sem hafði horn í síðu gyðinga og var
veikur fyrir Hitler, hafi mátt rekja til ólöglegrar
starfsemi á bannárunum og svo pólitískrar fyrir-
greiðslu til hans um arðvænleg vínumboð eftir þau.
En aðrir andmæla tengslum við ólöglega sprútt-
sölu og segja slíkar ásakanir með öllu ósannaðar.
Það hefði vissulega verið frétt ef Ellert „gamli“
hefði á ný fengið miðvarðarstöðu í landsliðinu í
knattspyrnu sem hann gegndi forðum með reisn og
prýði.
En hitt að hann hafi mætt í fáeina daga til að
hækka meðalaldur þingmanna pínulítið innan árs-
ins er önnur saga.
Það gat aldrei gert annað en gott.
Spyrjið Ingimund gamla, eða sendið honum póst.
Póst?
Hvað er það?
Morgunblaðið/Hari
6.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31