Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2019, Qupperneq 37
Paul McCartney höfðu kynnst sáu þeir Buddy Holly koma fram í London og í framhaldinu stúderuðu þeir Buddy Holly ofan í kjölinn; hvernig hann söng, lögin hans og framkomu. Þeir létu ekki aðeins þar við sitja því þegar kom að því að finna nafn á hljómsveit þeirra ákváðu þeir að leita á sömu skor- dýranáðir og Buddy Holly með hljómsveit sína Crickets (krybbur) og nefndu sveit sína Beatles. Seinna sögðu Lennon og McCart- ney að Holly væri þeirra helsti áhrifavaldur í tónlist. Tónlist Buddy Holly var elskuð og stíll hans sló í gegn. Unglingar í Bandaríkjunum fóru að kaupa sér dökk hornspangagleraugu eins og tónlistarmaðurinn gekk með, sem voru vinsæl langt fram yfir lát Buddy Holly og eru enn í dag kennd við hann. Hans eigin gler- augu, sem hann hafði verið með þegar flugvélin hrapaði, fundust ekki fyrr en árið 1980. Eiginkonan stendur enn vörð Buddy Holly hafði nýhafið sólóferil þegar að hinum örlagaríka degi kom. Slitnað hafði upp úr samstarfi The Crickets þar sem Buddy Holly sakaði Normann Petty, upptökustjóra sveitarinnar, um óheilindi, eitthvað sem hljómsveitarmeðlimir urðu síðar sammála Buddy Holly um. Í þá daga var ekki al- gengt að tónlistar- menn legðust í hljómleikaferðir að vetri til þar sem veðrið hafði meiri áhrif á samgöngur, en engu að síður ákvað hann að slást í hóp með öðrum tónlist- armönnum og fara á tónleika- ferðalag enda van- ur því að vera önnum kafinn. Hann var giftur Mariu Elenu Santiago. Santiago fylgdi Holly eftir á alla hans tónleika og sagði síðar í viðtali að hún væri viss um að ef hún hefði getað farið með honum á Vetrardanshátíðina væri Buddy Holly á lífi, hann hefði aldrei stigið fæti í flugvélina í svo vondu veðri. Santiago var þarna barnshafandi en hún missti fóstrið nokkrum dögum eftir að Buddy Holly lést. Maria Helena giftist síðar en hef- ur alla tíð staðið vörð um minn- ingu Holly og sinnt stórum hluta af við- skiptatengd- um hlutum í kringum tón- list Buddy Holly. Hún er þó ekki rétt- hafi að tón- list hans heldur Paul McCart- ney. Eiginkona Buddy Holly, Maria Elena, hefur alla tíð staðið vörð um minn- ingu hans og tónlistarinnar. AFP Á kornakrinum þar sem flugvélin hrapaði, í Clear Lake í Iowa, er minnismerki að finna; gleraugun sem einkenndu Buddy Holly. The Crickets Fallegar vörur fyrir falleg heimili Opið virka daga kl. 10-18 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi 6.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 TÓNLIST Ljóðabók er væntanleg frá Lönu Del Rey en hún hefur unnið að ljóðum í bókina síðasta árið. Tónlist- arkonan sagði aðdáendum sínum frá væntanlegri út- gáfu á Twitter um leið og hún óskaði þeim öllum gleði- legs nýs árs og sagði að hún hefði nú lagt lokahönd á ljóðbókina í síðustu viku og hún kæmi út innan skamms. Ljóðin eru ort undir japönskum bragarhætti, hæku, þar sem braglínur eru þrjár og hefur söngkonan grínast með að það sé auðvelt að gefa út langa ljóðabók með mörgum ljóðum á þennan hátt. Söngkonan hefur verið opin með nýársheitin sín og deilt þeim á Twitter. Hún segist m.a. ætla að lifa lífi sínu árið 2019 „eins og instragram-óþekktarormur“. Með ljóðabók í vinnslu Lana Del Rey er fjölhæf. KVIKMYNDIR Letitia Wright er tilnefnd til verðlauna á BAFTA-verðlaunahátíðinni sem fram fer um miðjan febrúar. Tilnefninguna hlýtur hún í flokknum „Rísandi stjarna“ fyrir hlutverk sitt í Marvel-myndinni Black Panth- er, Svarta pardusnum, sem sló í gegn á síð- asta ári en myndin er ein sú tekjuhæsta sem Disney hefur sent frá sér. Aðrar leikkonur sem tilnefndar eru í þessum flokki eru Jessie Buckley, Cynthia Erivo, Barry Keoghan og Lakeith Stanfield en á Twitter lýsti Wright yfir miklu þakklæti fyrir tilnefninguna og óskaði öðrum tilnefndum til hamingju. Letitia í skýjunum Letitia Wright sló í gegn í Svarta pardusnum. Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.