Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 2
Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Á Íslandi er illa búið að öldruðu fólki, einkum ef það tekur upp á því aðtapa heilsunni. Þetta er því miður staðreynd sem kemur vel fram íþví að vandi sjúkrahúsa hér á landi er að hluta sá að ekki er hægt að útskrifa aldraða því það eru ekki nein rými laus á hjúkrunarheimilum. Þetta hefur margoft fram komið í fréttum, nú síðast í vikunni þegar fjallað var um vanda bráðamóttökunnar. Oft fellur þessi vandi þó í skuggann af stærri umræðu um þjónustu í heil- brigðiskerfinu almennt, eða skort á henni öllu heldur. Vandinn er auðvitað miklu meiri fyrir einstaklingana sjálfa heldur en sjúkrahúsin. Það að þurfa að ílengj- ast á sjúkrahúsi á síðustu metrum æviskeiðsins er raunverulegur og al- varlegur vandi sem þarf að takast á við. Í skýrslu sem birt var á vef Landlæknis á dögunum og kölluð er hlutaúttekt vegna alvarlegrar stöðu á bráðamóttöku Landspítalans kem- ur fram að 53 einstaklingar bíði út- skriftar af Landspítala. Að auki séu 68 á svonefndum biðdeildum, stærstur hluti þess hóps er á Vífils- stöðum. Ef marka má úttektina eru þessir einstaklingar, alls 121, að mestu aldrað fólk með færni- og heilsumat sem ekki er unnt að útskrifa af þeirri ástæðu að það þarf þjónustu sem hvergi er að fá. Það fær hvergi fær varanlegt pláss á hjúkrunarheimili og er því sett á bið. Í einhverjum tilvikum varir þessi bið ævina á enda. En þótt hún geri það ekki getur hún haft alvarlegar afleiðingar. Á það er bent í áðurnefndri hluta- úttekt að vistun aldraðra á bráðasjúkrahúsi eftir að meðferð þar lýkur „skerðir lífsgæði þeirra og getur leitt til frekara færnitaps auk hættu á sýk- ingum“. Þá er bent á að fyrir hvern dag á sjúkrahúsi þurfi aldraður ein- staklingur tvo til þrjá daga í endurhæfingu til að ná fyrri færni. Það er ömurlegt til þess að hugsa að fólk þurfi að enda ævina á spítala, bara af því að það er hvergi hjúkrunarrými á lausu. Jafnvel enn ömurlegra er að hugsa til þess að þetta er vandi sem búið er að greina, hann liggur fyrir og með samstilltu átaki ríkis og sveitarfélaga ætti að vera hægt að leysa hann. Samt eru veikir aldraðir látnir bíða. Veikir aldraðir bíða á sjúkrahúsum og svoköllum biðrýmum, en þjónustu við þennan hóp skortir. Getty Images/iStockphoto Aldrað fólk í eilífri bið Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Veikt aldrað fólk semhvergi fær varanlegtpláss á hjúkrunarheimilier sett á bið sem stundum varir ævina á enda. Victoria Taylor Nei. Mig langar að sjá hvað gerist í Evrópu fyrst. SPURNING DAGSINS Viltu breyta klukk- unni? Gunnlaugur Sölvason Já, endilega. Þá fáum við meiri dagsbirtu. Erla Júlía Jónsdóttir Já. Þannig að hún sé í samræmi við líkamsklukkuna hjá fólki. Baldvin Baldvinsson Nei, ég er bara vanafastur. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Hvers konar hátíð eru Django dagar? Þetta er ný tónlistarhátíð sem haldin verður í Iðnó um næstu helgi. Þar er verið að fagna tónlist Djangos Reinhardts, sem var gítarleikari af ættum Sinti- sígauna. Það er spunabragur yfir þessu en tónlistin er undir áhrifum frá alls konar þjóðlagatónlist og mikil leikgleði, hraði og hrynfesta einkenna stílinn. Var Django Reinhardt tónlistarsnillingur? Já og það sem var svo merkilegt við hann er að hann lenti ungur í brunaslysi sem olli því að hann var bara með þrjá fingur til að grípa um gítarhálsinn. Þess vegna þróaði hann með sér mjög sérstakan spunastíl. Hann þurfti að finna upp leiðir til þess að spila á gítarinn aftur. Þetta hefur haft mjög mótandi áhrif á þennan stíl. Við köllum þetta sígaunadjass eða sígaunamúsík. Hvaða tónlistarmenn spila á hátíðinni? Flytjendur eru Dan Cassidy, Unnur Birna Björnsdóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Gunnar Hilmarsson, Jóhann Guðmunds- son, Greta Salóme og Haukur Gröndal og svo fæ ég að leika með á kontrabassa. Svo fáum tvo ansi hressa gítarleikara að utan. Annar er af þessari sömu ættkvísl Rómafólks og Django. Hann heitir Mo- zes Rosenberg. Hinn heitir Robin Nolan, Englendingur búsettur í Amsterdam. Hugmyndin er að flytja inn svona flott nöfn og fá smá innspýtingu inn í lókalsen- una. Er einhver ástæða fyrir því að hátíðin er haldin í dimmum janúarmánuði? Já, þetta er besti tíminn, það er svo lítið í gangi. Auk kvöldtónleikanna tvennra erum við líka með ókeypis prógramm fyrir fjöl- skyldur og börn klukkan þrjú hinn 19. jan- úar. Fólk er í hálfgerðu sjokki eftir jólin þegar hversdagsleikinn blasir við aftur. Þess vegna er tilvalið að mæta og lífga upp á tilveruna! LEIFUR GUNNARSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Sígauna- músík í Iðnó Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Dagana 18. og 19. janúar verður tón- listarhátíðin Django dagar í Reykjavík haldin í Iðnó. Hún er haldin til heiðurs Django Reinhardt. Leifur Gunnarsson er einn af skipuleggjendum hátíðar- innar. Upplýsingar eru á djangodag- ar.com og miða má fá á tix.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.