Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019
HEILSA
Allt þokast þetta í rétta átt, núna þegarsígur á seinni hlutann í átakinu. Kom-inn niður í um 84 kg og því um tæp 9 kg
farin frá því í haust. Þótt talan sé ekki ýkja há
þá munar ótrúlega um þessi kíló. Það er líka
áhugavert að hugsa til þess að með þessum ár-
angri hefur líkamsþyngdin farið niður um ríf-
lega 10%.
En þegar árangurinn er orðinn þetta mikill,
maður nálgast hið upphaflega markmið óðfluga,
þá gerist nokkuð sem mann órar kannski ekki
fyrir á fyrstu metrunum. Maður fer óhjákvæmi-
lega að slaka á.
Hætt við að maður slaki á
Ég opnaði augun fyrir þessari staðreynd þegar
ég hlustaði á áhugavert viðtal við Ingvar Jóns-
son ICF-markþjálfa á K100 í liðinni viku. Hann
ritaði í fyrra bókina Sigraðu sjálfan þig en þar
er að finna leiðbeiningar til að takast á við
þriggja vikna áskorun sem ætluð er fólki sem
vill breyta út af vananum og stefna á verðug
markmið. Í viðtalinu benti hann á að flestir
væru þeirrar gerðar að þegar einhverjum
árangri væri náð væri tilhneigingin sú að slaka
á. Maður er kannski bara sáttur við að 4 kg séu
fokin út í veður og vind. Það er bara býsna gott
þótt það séu ekki 10 kg.
Ég tengi talsvert við þessa hugmynd og finn
að ég er farinn að vera talsvert betri við sjálfan
mig. Kannski spila jólin inn í og rótleysið sem
fylgir þeim. En þeim mun mikilvægara er að
halda kúrs og hvika ekki frá því að ná settu
marki. Ég þarf endilega að kaupa þessa bók eft-
ir Ingvar. Þar er eflaust eitthvað fleira að finna
sem nýst getur á komandi vikum.
En í þessu sambandi hef ég verið að velta fyr-
ir mér árinu fram undan og hvað taki við þegar
ég er kominn í mark eftir sex mánaða átakið.
Eitt af því sem ég hef leitt hugann að eru frek-
ari tilraunir með hlaupaskóna. Það kemur m.a.
til af því að af gömlum vana fylgist ég alltaf með
hreyfiferðunum sem Bændaferðir bjóða upp á.
Ég hef reyndar aldrei nýtt mér þjónustu fyr-
irtækisins en pakkarnir sem það býður upp á
eru í meira lagi spennandi. Hreyfiferðirnar eru
af ýmsum toga, allt frá maraþonhlaupum í Tók-
íó, London, Berlín og Tallinn, til skíðagönguá-
skorana eins og Vasa-göngunnar eða hjólaferða
um Ítalíu.
Stór og spennandi gulrót
Ef maður er á þeirri leið að bæta heilsuna og
leggur hart að sér með æfingum í viku hverri,
svo ekki sé talað um þegar maður tekur matar-
æðið í gegn, getur verið gott að hafa stóra gul-
rót fyrir framan sig, ekki of nærri í tíma en
heldur ekki of fjarri. Hreyfiferðir, hvort sem
þær eru skipulagðar af ferðaþjónustuaðila eða
þér sjálfum, geta þjónað vel í þessu tilliti.
Þegar ég hafði hlaupið í nokkur ár og hlaupið
mitt fyrsta maraþon hér heima ákvað ég af
rælni að skrá mig til þátttöku í Kaupmanna-
hafnarmaraþoninu árið 2014. Í marga mánuði
reimaði ég á mig hlaupaskóna vitandi að hinn
18. maí yrði hlaupið ræst og ég yrði þar í miðri
þvögunni. Það jók mér kapp og fól í sér sann-
kallaða tilhlökkun. Af reynslunni af því hlaupi
get ég mælt með því við hvern einasta mann að
taka þátt í slíkum viðburði, óháð því hvort um er
að ræða maraþon, hálfmaraþon, skíðagöngu,
hjólreiðar, sund eða annað. Það skemmtilegasta
er að koma í mark, hver sem lokatíminn er, og
finna að maður hefur lagt mikið á sig yfir langt
tímabil og að sennilega hefði árangurinn sem í
hús náðist aldrei orðið að veruleika nema vegna
þess svita og þeirrar þreytu sem maður hafði
lagt á sig fyrir lokamarkmiðið.
Hvert skal stefnt?
En talandi um nýja árið. Kannski er bakið orðið
svo gott að ég geti skráð mig til leiks í einhverju
hlaupinu í haust? Nú þarf ég að skella mér til
sjúkraþjálfara eða læknis og taka stöðuna á því.
Eitt er víst að lyftingarnar undanfarna mánuði,
ekki síst á baki og maga, munu auka líkurnar á
að þetta geti orðið að veruleika. Svo er það að
finna rétta hlaupið, réttu vegalengdina og slá til.
Fjarlægur draumur
eða hvað?
Við markmiðasetningu getur reynst vel að koma sér
upp einni risastórri gulrót. Hún þarf ekki að fela í sér
sykurneyslu og sólarströnd. Það getur verið meira
spennandi að láta hana felast í hápunkti æfingaferlisins
þar sem afrakstur erfiðisins kemur vel í ljós.
Það er einstök upplifun að taka þátt í fjöldahlaupi. Þann sem það gerir einu sinni langar alltaf aftur.
AFP
Stundum kemur maður inn í
nýja viku fullur eldmóðs vegna
verkefnanna framundan. Fátt
sem getur sett strik í reikning-
inn og allir vegir færir. En þá
gerist það sem ekki var reikn-
að með. Flensan er eitt af
þeim fyrirbærum sem sett geta
strik í reikninginn og hún gerði
það svo sannarlega þessa vik-
una hjá mér.
Og áður en kemur að þeim
dögum þegar maður leggst í
bælið er maður búinn að setja
fögur fyrirheit um að þótt lítið
verði úr hreyfingunni muni
maður sko standa sig í matar-
æðinu. Staðreyndin er hins
vegar sú að þegar maður er
lasinn er erfitt að halda sig við
vatn og hollustuna. Maður leit-
ar óhjákvæmilega í óhollari
fæðu, enda oft sem maður
upplifir hana sem einskonar
„þægindi“ í stað þeirra sem
fara forgörðum þegar hiti, kvef
og önnur óáran gengur yfir.
Og þá er ekki annað að gera
en að leyfa sér það – í hófi þó –
með loforði um að þegar heils-
an er aftur komin á rétt ról
muni maður taka sérlega vel á
því. Það hef ég þurft að gera
þessa vikuna en það veldur
ekki hugarangri. Þetta er lang-
hlaup og þegar til kastanna
kom var ekki miklu meiri
óhollusta í þessari viku en
mörgum öðrum. Hitt er svo
annað að vatnsdrykkjan, sem
var eitt af hinum fögru fyrir-
heitum nýja ársins, hjálpar
mikið til þegar maður er las-
inn. Þá getur hjálpað til að eiga
klaka í ísskápnum eða litla
sneið af sítrónu eða límónu.
Það kryddar einhæfan drykk-
inn, er svalandi svo um munar.
FLENSA SETUR STRIK Í REIKNINGINN
Hagi seglum eftir vindi
Getty Images/iStockphoto
Pistill
Stefán Einar
Stefánsson
ses@mbl.is
ÞYNGD SKREFAFJÖLDI MATARÆÐI ÆFINGAR
92,9 kg
84,7 kg
84,1 kg
Upphaf:
Vika 17:
Vika 18:
13.229
16.522
14.111
12.135
4 klst.
2 klst.
HITAEININGAR
Prótein
26,4%
Kolvetni
34,5%
Fita
39,1%
WWW. fridaskart.is Fríða skartgripahönnuður fridajewels
Skólavörðustíg 18
Glæsilegir skartgripir
íslensk hönnun og handverk
Silfurhringur
17.000,-
Silfurhringur
25.000,- 12.500,-
Silfurhringur
29.000,-
Silfurhringur
33.000,-
Silfurhringur
22.000,-
Silfurhringur
15.500,-