Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019 LESBÓK ROKK Söngkonan og bassaleikarinn Suzi Quatro, sem sló eftirminnilega í gegn á áttunda áratugnum með lög- um á borð við If You Can’t Give Me Love og Stumblin’ In, er hvergi af baki dottin og mun senda frá sér glæ- nýja breiðskífu í mars næstkomandi, No Control. Fyrsta smáskífan af plötunnui, No Soul/No Control, er vænt- anleg um miðjan næsta mánuð. „Ég hef aldrei hætt að gefa út efni og er mjög stolt af síðustu þremur plötunum mínum, sem ég lagði mikla vinnu í, en No Control er allt önnur skepna. Ég er meira en til í að rokka inn í árið 2019,“ hefur rokkvefurinn Blabbermouth.net eftir hinni 68 ára Quatro. Ellefu lög verða á nýju plötunni og þar vinnur söngkonan í fyrsta skipti með syni sínum, Rich- ard Tuckey. Þá er tónleikaferð fyrirhuguð síðar á árinu. Suzi Quatro stjórnlaus Suzi Quatro hefur engu gleymt. Wikimedia FÉ Gene Simmons, söngvari og bassaleikari glysmálmbandsins Kiss, upplýsti í nýlegu við- tali við bresku vefsíðuna This is Money að konungsfjölskylda nokkur hefði einu sinni greitt honum margar milljónir sterlings- punda fyrir að koma fram á viðburði á henn- ar vegum. „Ekki er við hæfi að upplýsa hvaða kóngafólk þetta er en það vildi hafa mig á staðnum. Guð einn veit hvers vegna. Ég þurfti ekki einu sinni að telja í lag; bara ávarpa gesti,“ segir Simmons sem er ekki síð- ur þekktur fyrir viðskiptavit sitt en tónlist- arhæfileika og hefur, að því er fram kemur í viðtalinu, þénað hraustlega gegnum árin. Fékk milljónir fyrir að spjalla við fólk Gene Simmons (t.h) ásamt Paul Stanley í Kiss. Reuters Bjarki Bjarnason, rithöfundur og skáld í Mosfellsdal, á heiðurinn af flestum textunum á plötunni eins og á þeirri fyrri en Hjördís Kvaran Ein- arsdóttir á tvo texta, auk þess sem eiginkona Karls, Líney Ólafsdóttir, þreytir frumraun sína í textagerð, á einn texta á plötunni. Vildi halda áfram í tónlist Kalli Tomm stofnaði og lék á tromm- ur með rokksveitinni Gildrunni í yfir þrjátíu ár en segir tónlistina á sóló- plötunum af allt öðrum toga. Þá sé það ný reynsla fyrir hann að semja tónlist einn og óstuddur. „Gildran hætti svolítið óvænt fyrir nokkrum árum og mig langaði að halda áfram að skapa og flytja tónlist. Nið- urstaðan varð sú að gera það á mín- um forsendum, þannig að ég byrjaði að prófa að semja lög og syngja sjálf- ur. Óhætt er að segja að ég hafi stokkið út í djúpu laugina en þetta hefur gengið framar björtustu von- um. Örlagagaldur féll í afar góðan jarðveg, bæði hjá leikum og lærðum, og mér sýnist það sama vera að ger- ast með Oddaflug. Það er ómetanlegt að fá slíkan stuðning; ekki síst þegar maður gefur út sjálfur.“ Formið, geislaplatan, má þó muna sinn fífil fegurri. „Ég finn mikinn mun frá því Örlagagaldur kom út í árslok 2015. Þá fékk ég ekki að heyra hjá nokkrum manni að hann ætti ekki geislaspilara, nú hafa margir sagt þetta við mig. Það eru til dæmis engir geislaspilarar í nýjustu bílunum, þetta er allt að verða stafrænt.“ Honum þykir þessi þróun miður. „Mér hefur alltaf þótt platan sjálf, hvort sem það er vínill eða geisli, snar þáttur í útgáfunni; það er einhver galdur í því fólginn að handfjatla al- búmið. Sjálfur hef ég lagt áherslu á að vanda til verka í þessum efnum, að hafa umslögin aðlaðandi. Til þess hef ég notið krafta sama hönnuðar á báð- um mínum plötum, Péturs Fjalars Baldvinssonar og hefur hönnun hans vakið verðskuldaða athygli. Vínillinn hefur verið að koma aftur á und- anförnum árum, sem er mjög ánægjulegt, ég sá mikið eftir honum þegar hann hvarf á sínum tíma, en geislinn er augljóslega á útleið.“ Karl hyggst fylgja Oddaflugi eftir með útgáfutónleikum á heimavelli, í Hlégarði í Mosfellsbæ. Dagsetning liggur ekki endanlega fyrir en að öll- um líkindum verða tónleikarnir í mars. „Samstarfsmenn mínir á plöt- unni eru mjög uppteknir, þetta er eins og að smala köttum,“ segir hann hlæjandi. „Að því leytinu til er þetta frábrugðið því að vera í hljómsveit. En við finnum tíma á endanum. Það er alveg á hreinu.“ Spurður um framhaldið kveðst Karl ætla að halda ótrauður áfram á sömu braut. „Þessar tvær plötur hafa gengið vel og þær viðtökur hafa að sjálfsögðu hvatt mig til dáða. Ég er á fullu að semja lög og á örugglega eftir að láta meira að mér kveða í framtíð- inni. Það er bara spurning í hvaða formati efnið kemur út.“ Hættur í bæjarpólitíkinni Karl starfar hjá kjúklingafyrirtækinu Matfugli í Mosfellsbæ og segir það fara vel með tónlistinni. Um sé að ræða dagvinnu sem gefi honum tæki- færi til að sinna áhugamálinu á kvöld- in og um helgar. Um átta ára skeið sat hann í bæjarstjórn Mosfellsbæjar fyrir Vinstri-græn en segir þeim kafla í lífi sínu lokið. „Það var mikil lífsreynsla að vera í bæjarpólitíkinni. Sem oddviti Vinstri- grænna tók ég á sínum tíma þátt í að mynda meirihluta með Sjálfstæð- isflokknum. Ekki hugnaðist öllum það og fyrstu tvö til þrjú árin voru vægast sagt erfið; það gustaði um mig. En eitthvað höfum við gert rétt, alla vega er meirihlutinn ennþá starf- andi, einn sá elsti á landinu, ef ekki sá elsti.“ Ingibjörg Hólm Einarsdóttir, Jóhann Helgason, Birna Karls, Eyjólfur Kristjánsson og Guðmundur Jónsson með Kalla Tomm á plötunni. „Það var ofboðslega gaman að vinna með þessu fólki og ég stálhepp- inn að fá það með mér í verkefnið; það var valinn maður í hverju rúmi. Margt af þessu fólki var líka með mér á fyrri plötunni og var allt tilbúið að koma aftur,“ segir Kalli Tomm. ara manna og fékk þá af þeim sökum í lið með mér. Ég hef hvorki samið með Guðmundi né Tryggva áður og það var mjög skemmtileg reynsla, þeir bera ábyrgð á ófáum perlunum gegn- um árin, að ekki sé talað um Jóhann,“ segir Kalli Tomm. Fjöldi annarra hljóðfæraleikara leggja honum lið á Oddaflugi; auk þeirra sem þegar hafa verið nefndir eru það Þórður Högnason, Jón Ólafs- son, Jóhann Ásmundsson, Jakob Frí- mann Magnússon, Kjartan Valde- marsson, Sigurður Flosason, Sigurgeir Sigmundsson, Þráinn Árni Baldvinsson og Ásmundur Jóhanns- son sem einnig stjórnaði upptökum. Þá syngja mæðgurnar Íris Hóm og T ónlistin er svipuð og á fyrstusólóplötunni minni, Örlaga-galdri, en munurinn er sá að það er eilítið meira af rafmagns- hljóðfærum á nýju plötunni,“ segir Karl Tómasson tónlistarmaður, gjarnan kallaður Kalli Tomm, en önn- ur sólóplata hans, Oddaflug, kom út á dögunum. Megnið af lögunum á plöt- unni er eftir Kalla Tomm sjálfan, Guðmundur Jónsson úr Sálinni og Tryggvi Hübner semja sitt lagið hvor í félagi við hann og Jóhann Helgason á tvö glæný lög. Þá er þar að finna eitt gamalt lag í nýjum búningi eftir Guðmund Jónsson sem upprunalega var á sólóplötu hans, Jaml. „Ég hef lengi verið aðdáandi þess- Karl Tómasson er mjög þakklátur fyrir viðtök- urnar sem sólóplötur hans tvær hafa hlotið. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Út í djúpu laugina Eftir 30 ár í Gildrunni hóf Karl Tómasson sólóferil og fyrir skemmstu kom önnur plata hans út, Odda- flug, þar sem margir listamenn leggja honum lið. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is –– Meira fyrir lesendur Þorrinn Þann 18. janúar gefur Morgunblaðið út sérblað tileinkað þorranum PÖNTUN AUGLÝSINGA ER TIL 14. JANÚAR Nánari upplýsingar gefur: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.