Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019 Hari Ég er oft spurð að því hvað fólkeigi eiginlega að setja í rusla-tunnuna núna þegar plastið er orðið óvinurinn! Þeirri spurningu get ég ekki svarað því við henni er ekkert eitt svar. Lífið væri auðvelt ef við gætum haft eitt gilt ríkissvar fyrir alla en sem betur fer er það fjölbreyttara en svo. Staðreyndin er sú að til þess að við getum skapað sjálfbært samfélag þurfum við breytta hugsun og við þurfum að breyta hegðun okkar á okkar for- sendum með þessa hugsun sem verkfæri. Ég þekki ekki alla og get ekki tekið út lífsstíl hvers og eins, hins vegar get ég útskýrt nokkur at- riði sem gætu hjálpað þér við að taka næstu skref. 1. Allt er eitthvað Allt sem við notum, hvort sem það er notað í 30 sekúndur eða 30 ár, er bú- ið til úr auðlindum með auðlindum. Auðlindir eru hráefni, olía, bómull, málmar og önnur efni, öll sótt úr náttúrunni. Til að geta framleitt úr þessum hráefnum þær vörur sem þú vilt nota þarf aðrar vörur, líka úr hráefnum. Vélar, færibönd, umbúð- ir, vatn, eldsneyti og rafmagn þarf til að framleiða allar vörur og koma þeim til þín. 2. Virðing er lykilorð Við höfum byggt upp samfélag þar sem búið er með markvissum hætti að aftengja okkur frá staðreynd 1. Margt sem við kaupum er svo ódýrt að okkur finnst þetta vera „ekkert“ og „ekkert mál“ að skipta út og kaupa nýtt. Við sem einstaklingar getum ekkert að því gert að sam- félagið hafi ekki lagt verð á þær auð- lindir sem eru notaðar og það um- hverfisspor sem skapast af fram- leiðslu. Einmitt eru það oft ódýrustu hlutirnir sem valda mestum skaða þar sem þeir eru framleiddir við litl- ar umhverfis- og öryggiskröfur. Hins vegar getum við borið virðingu fyrir því sem við eigum og ekki síður fyrir eigum annarra. Allt er jú búið til úr sameiginlegum potti okkar af auðlindum og þær eru ekki óþrjót- andi. Hvernig berum við virðingu? Til dæmis getum við farið vel með hluti, sem dæmi endist kaffivélin betur ef við þrífum hana reglulega. Fjölnotapokinn endist lengur ef við förum vel með hann, þrífum hann reglulega og leggjum ekki meira á hann en ætlast var til. 3. Neysla og lífsgæði eru ekki samheiti Umræða um að neysla okkar sé vandamálið er að verða háværari, og það er rétt. En það þýðir ekki að þú þurfir að hætta að kaupa alla skap- aða hluti. Minnkum neyslu með því að draga úr. Það má til dæmis draga úr notkun á þvottaefni og þvotta- dufti, töflur í uppþvottavélar eru margfalt það magn sem þarf til að diskarnir verði hreinir. Eins ættum við að eiga fjölnota poka en við þurf- um ekki að kaupa nýjan í hverri ferð. 4. Vertu þú sjálf(ur) Já, það er kannski skrítið en lykil- atriði í sjálfbærni er að vera maður sjálfur, enda algjörlega ósjálfbært að þykjast vera eitthvað annað en maður er. Hvað þarftu til að geta verið þú? Ef svarið við þessari spurningu er: „Að keyra upp á fjalla- bak“ eða „grilla góða nautasteik“ þá gerir þú það. Við þurfum að endur- skoða marga hluti en við þurfum ekki að byrja á því sem gefur okkur mest. Dragðu úr fataneyslu, matar- sóun, kauptu frekar innlent en inn- flutt ef það eru hlutir sem skipta þig minna máli. Ef þú hins vegar notar bíla bara til að fara frá A til B þá e.t.v. þarftu ekki að vera á stærstu gerð af jeppa. Ef þú elskar góða nautasteik en finnur ekki neinn sér- stakan mun á grænmetisborgara og venjulegum borgara þá má auðveld- lega draga úr neyslu á rauðu kjöti þar án þess að það skerði lífsgæði þín. Hér þarf hver og einn að finna sína leið og þegar við sjáum hið stóra samhengi hlutanna getum við tekið okkar eigin ákvarðanir á okkar for- sendum. Þannig er með „stóra pokamálið“; við ættum öll að vera að nota fjöl- nota poka eftir fremsta megni. Ef við hins vegar berum ekki virðingu fyrir fjölnota pokanum, hendum honum þegar hann verður óhreinn, kaupum eitthvað sem rifnar undan þunganum sem við þurfum að setja í hann, þá er betur heima setið en af stað farið. Þau sem sjá sér ekki fært að hætta að nota plastpoka í ruslið að svo stöddu eru ekki úr leik. Hægt er að draga úr t.d. með því að nota „óhefðbundna“ poka eins og brauð- poka við og við. Við þurfum öll að stíga skref í átt að sjálfbæru sam- félagi, af mörgu er að taka og þar gildir sem annars staðar „enginn getur allt en allir geta eitthvað“. Stóra pokamálið Í átt að sjálfbærni dr. Snjólaug Ólafsdóttir snjolaug@andrymi.is ’Til að við getum skap-að sjálfbært samfélagþurfum við breytta hugsunog við þurfum að breyta hegðun okkar á okkar for- sendum með þessa hugsun sem verkfæri. Rekaviðarhálsmen frá kr. 15.500 Teketill úr postulíni kr. 36.500 Smádúkur úr lífrænni bómull kr. 4.900 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Roðtöskur Fagnaðar– fundir af öllum stærðum og gerðum Bókaðu 8–120 manna fundarými. Nánar á harpa.is/fundir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.