Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Page 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019
Lucia er ekki eina barn Sal-
vatores Riina sem lent hefur
milli tannanna á fólki vegna
viðskiptahugmynda sinna.
Innan við mánuði eftir and-
lát föður þeirra komst systir
hennar, Concetta, í frétt-
irnar þegar hún opnaði vef-
verslunina Totò frændi sem
höndlaði með espresso-
vörur.
Kvaðst hún taka við pönt-
unum fyrirfram til að afla
fjár vegna bágrar stöðu fjöl-
skyldunnar eftir að yf-
irvöld frystu sparifé
hennar. Verslunin
hvarf af sjónarsvið-
inu skömmu eftir
að ítalskir fjöl-
miðlar
fjölluðu
um
málið.
Uppgötvið alvöru ítalsk/sikileyska matargerð ánotalegum og heillandi
stað,“ segir á Snjáldrusíðu veitinga-
húss sem nýlega tók til starfa í
hjarta Parísar, nærri Sigurbog-
anum. Þetta væri svo sem ekki í
frásögur færandi bæri staðurinn
ekki nafnið Corleone og væri í eigu
dóttur hins alræmda mafíuforingja
Salvatore „Totò“ Riina. Corleone er
heimabær Riina-fjölskyldunnar á
Sikiley en nafnið vísar um leið í
frægustu mafíufjölskyldu allra tíma
sem gerð var ódauðleg í skáldsögu
Marios Puzos og kvikmyndum
Francis Fords Coppolas um Guð-
föðurinn.
Til að taka af öll tvímæli um
tenginguna er fullt nafn staðarins
Corleone hjá Lucia Riina en það er
yngsta dóttir mafíuforingjans en
hann lést í fangelsi árið 2017, 87
ára að aldri. „Nýtt líf,“ sagði hún
þegar hún birti fyrst ljósmynd af
staðnum á samfélagsmiðlum sínum.
Með öllu óásættanlegt
Ekki er öllum skemmt yfir uppá-
tækinu. „Þetta er með öllu óásætt-
anlegt,“ sagði Nicolò Nicolosi, bæj-
arstjóri Corleone, við breska blaðið
The Guardian. „Það getur ekki ver-
ið rétt að meðlimir fjölskyldu sem
hefur dregið ímynd bæjarins okkar
í svaðið og myrt tugi íbúa Corleone
og Sikileyinga almennt geti notað
nafn bæjarins í fjárhagsskyni og til
að græða peninga.“
Lucia Riina er 39 ára og hefur
fengist við listmálun. Hún hefur
ekki viljað tjá sig opinberlega um
veitingastaðinn og þegar eftir því
hefur verið leitað biður hún fólk að
„hafa aðgát“ og „virða friðhelgi“.
Blaðamaður ítölsku fréttaveitunnar
Ansa tók upp símann og hringdi í
veitingastaðinn en fékk þau svör
hjá starfsmanni að hvorki Lucia Ri-
ina né eiginmaður hennar, Vincenzo
Bellomo, væru til viðtals. Fullyrti
starfsmaðurinn raunar að staðurinn
væri í eigu tveggja franskra rík-
isborgara.
Bellomo sætti sjálfur rannsókn
um árið eftir að nafn hans, ellegar
alnafna hans, fannst á minnisblaði
mafíunnar, svokölluðu „pizzino“
sem samtökin nota til að koma
skilaboðum og fyrirmælum milli
manna. Ekkert kom út úr þeirri
rannsókn.
Synjað um barnabætur
Hjónin, sem bæði eru frá Corleone,
fluttu þaðan eftir að dóttir þeirra
fæddist árið 2017. Kornið sem fyllti
mælinn mun hafa verið að þeim var
synjað um barnabætur, bæði af
bæjaryfirvöldum í Corleone og
ítalska ríkinu. „Ég mun biðja for-
seta Ítalíu um að afturkalla ríkis-
borgararétt okkar og dóttur okk-
ar,“ skrifaði hún af því tilefni á
Snjáldru, „svo heimurinn geti
glöggvað sig á því hvernig stjórn-
völd og fjölmiðlar á Ítalíu fara með
börnin sín vegna þess að þau eru
ófríð, óhrein og illa innrætt.“
Áður hafði komið fram að Luciu
liði illa í Corleone, þar sem hún
væri „kúguð og útskúfuð“ og að
fjölskyldunni gengi illa að hafa í sig
og á. Fyrir liggur að yfirvöld hafa
gert margar af eigum Riina-
fjölskyldunnar upptækar og í eitt
skipti óskaði tengdasonur Salvato-
res eftir ölmusu á netinu. Bar við
sárri fátækt.
Reikningur frá skattinum
Ekki hefur það heldur kætt fjöl-
skylduna að fá í vikunni reikning
frá skattayfirvöldum á Sikiley fyrir
kostnaði við það að halda gamla
manninum í fangelsi í tæpan aldar-
fjórðung en hann hljóðar upp á 2
milljónir evra, andvirði 270 milljóna
króna. Þeim gjörningi hefur raunar
verið andmælt. „Lögin taka af öll
tvímæli um það að fjölskylda fang-
ans sé ekki ábyrg fyrir kostnaði
við vist hans. Hér hljóta einhver
mistök að hafa átt sér stað,“
sagði lögmaður fjölskyldunnar,
Luca Cianferoni, við fjölmiðla í
vikunni.
Salvatore Riina
gekk ýmist undir
nafninu „Skepnan“
eða „Stjóri stjór-
anna“ og deildi og drottnaði í und-
irheimum Sikileyjar á áttunda og
níunda áratugi síðustu aldar. Hann
sendi ekki aðeins aðra glæpamenn,
sem ógnuðu veldi hans, á fund
feðra sinna heldur ekki síður sak-
sóknara, blaðamenn og dómara sem
stóðu í vegi fyrir honum. Talið er
að Riina hafi borið ábyrgð á dauða
hundraða, karla og kvenna, og
mestan óhug vakti morðið á þrettán
ára gömlum dreng, sem var rænt,
hann kyrktur og leystur upp í sýru.
26-faldur lífstíðardómur
Það var eftir að tveir saksóknarar,
Giovanni Falcone og Paolo Borsell-
ino, urðu sprengjum að bráð árið
1992 að þrengja fór að Riina enda
almenningur á Sikiley löngu búinn
að fá sig fullsaddan af ódæðis-
verkum foringjans og skósveina
hans.
Riina var handtekinn árið 1993
eftir 23 ár á flótta og dæmdur til að
afplána 26 lífstíðardóma. Dómurinn
var óvenjulega strangur í ljósi þess
að Riina þótti ekki sýna vott af iðr-
un fyrir dómi. Salvatore Riina sál-
aðist síðla árs 2017. Banamein hans
var krabbamein.
Riina til
(ó)gagns
Dóttir mafíuforingjans illræmda Salvatore Riina
hefur fengið bágt fyrir að opna veitingastað undir
nafninu Corleone í París en hún hefur átt í stríði
við fæðingarbæ sinn á Sikiley með sama nafni.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Salvatore Riina
Totò frændi
á netinu
Ljósmynd/Af Facebook
Veitingastaðurinn umdeildi í París. Hann mun í senn vera heillandi og notalegur, samkvæmt lýsingu eigenda.
NEPAL
KATHMANDU
Ram Bahadur
Bomjan, betur
þekktur sem
„Búddadrengurinn”
sætir nú rannsókn
eftir að nokkrir af
fylgjendum hans
hurfu sporlaust, að
því er lögregla hef-
ur upplýst. Bomjan
öðlaðist frægð fyrir
rúmum áratug eftir að fylgjendur hans fullyrtu að
hann gæti stundað hugleiðslu án matar, drykkjar og
svefns svo mánuðum skipti í frumskógum landsins.
KANADA
TORONTO 35 ára gömul kona
fannst látin í fatagámi í borginni í
vikunni. Svo virðist sem hún hafi
fest sig þar inni en þetta mun vera
áttunda dauðsfallið af þessu tagi í
landinu frá árinu 2015. Talsmenn
heimilislausra hafa kallað gámana „dauðagildrur” og borgarstjóri Toronto,
John Tory, segir að rannsókn á öryggi og hönnun þeirra standi nú yfi r.
BANDARÍKIN
WASHINGTON Alexandria Ocasio-
Cortez fulltrúadeildarþingkona hefur
sakað pólitíska andstæðinga sína í
Repúblikanafl okknum um að dreifa af
henni falsaðri nektarmynd á netinu.
„Viðbjóðsleg hegðun,” sagði hún á
Twitter. „Ekki að undra að þeir hafi varið
Kavanaugh [nýskipaðan hæstaréttar-
dómara] af slíkri hörku.”
ÍTALÍA
RÓM Matteo Salvini innanríkisráðherra segir að Ítalía og Pólland geti
lagt drög að „evrópsku vori” sem gæti hnekkt hinum ráðandi öxli
innan Evrópusambandsins, Þýskalandi og Frakklandi. Salvini, sem er
leiðtogi hins hægrisinnaða Norðurbandalags, var í heimsókn í Póllandi
í vikunni til skrafs og ráðgerða með þarlendum skoðanabræðrum
sínum og -systrum, en kosið verður til Evrópuþingsins í vor.