Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Qupperneq 12
Heil kynslóð í skjáheimi Þær kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi hafa tæki og tól til leiks og starfs sem á margan hátt bæta og auðvelda lífið en á sama tíma hafa sérfræðingar, læknar og sálfræðingar víða um heim áhyggjur af því að sé farið yfir ákveðin mörk í notkun hljótist skaði af. Sunnudagsblað Morg- unblaðsins mun nú og um næstu helgi fjalla um skjánotkun í ís- lensku samfélagi, ræða við sér- fræðinga og ungt fólk og skoða hvað er að gerast erlendis í rann- sóknum á þessum fræðum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is sem börn og unglingar eru, sér í lagi þar sem nýjustu rannsóknir bendi til að það sé margt að varast og líkamlegt og andlegt tjón geti orð- ið af ofnotkun. „Við erum svolítið í lausu lofti hvernig á að takast á við þessa nýju tækni. Hún er frábær út af fyrir sig, nýtist okkur vel þegar hún er notuð skynsamlega, hóflega, og hún verður að vera stýrð því börn hafa ekki þroska til að taka sjálf ábyrgð á því. Þá stöndum við í rauninni sem samfélag frammi fyrir því risastóra verk- efni að siðvæða netið, til að verja börnin okkar betur fyrir óæskilegum áhrifum. Þannig að um leið og við þurfum að leyfa börnunum að njóta ávaxta þessarar frábæru tækni þurfum við að verja þau hættunum.“ Tímabært að taka spjaldtölvu- væðingu skóla út Meðan tækninni hefur fleygt hraðar fram en hæfni okkar til að umgangast hana segir Björn starfsfólk BUGL hafa mestar áhyggjur af við- kvæmum skjólstæðingahópi sínum. „Það virðist vera að í sterku fjölskyldunum, þar sem er gott utanumhald og báðir foreldrar til staðar, takist betur að stýra þessari notkun og hafa áhrif á hana. Einstæðir foreldrar eða foreldrar sem glíma við einhverja erfiðleika eiga í meiri erfiðleikum með að ramma þessa notkun inn. Mér finnst þó ákveðin vitundar- vakning í gangi, og þakka þar meðal annars fjölmiðlaumræðu sem mér finnst hafa verið í jafnvægi, að fólki virðist það ljóst að þetta er alvöruverkefni sem þarf að vinna.“ Björn gagnrýnir spjaldtölvuvæðingu skóla og segir að nægilega góðar rannsóknir á gagn- semi þess að spjaldtölvuvæða skóla skorti. „Mér finnst kennarar í skólum sem eru spjaldtölvuvæddir vera söðlaðir rosalega stórri ábyrgð. Þeirra menntun miðaðist kannski ekki við þessa kennsluhætti. Vandinn við þessar spjaldtölvur er að það er hægt að gera svo margt annað í þeim en að læra og þetta er stöðug freisting fyrir barnið. Spjald- tölvuvæðing gagnast sterkustu einstakling- unum best og þeim sem hafa best utanumhald en getur komið í bakið á öðrum. Mér finnst fyr- ir löngu tímabært að taka spjaldtölvuvæðingu skólanna út. Við getum ekki horft á þetta sem gagnreynd vísindi að nota þessi tæki til kennslu. Ég hef engar rannsóknir fundið sem sýna að þessi tækni taki gömlu aðferðunum Gæti orðið lýðheilsuvandamál Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL segir vísindasamfélagið ekki hafa tekið við sér og rannsakað til hlítar afleiðingar mikillar skjánotkunar. Góð umræða í samfélaginu sé þó komin á fleygiferð. Þ ungavigtarumræða um ofnotkun ekki síst barna og unglinga á raf- rænum skjátækjum; símum, spjaldtölvum, tölvum og leikja- tölvum, er ekki mjög gömul og þarf ekki að undra – tækninni hefur fleygt óvenju hratt fram síðustu árin og aðlaðandi tæki þrýst sér inn í tilveru barna, hraðar en hægt er að ræða það hverjir kostir þess og gallar eru. Ekki er langt síðan ákveðnar skilgreiningar fóru að sjást á skaðlegum einkennum ofnotk- unar á skjátækjum en til að mynda var það á síðasta ári sem alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, skilgreindi tölvuleikjafíkn (gaming dis- order) sem nýja tegund af geðröskun í elleftu útgáfu stofnunarinnar á alþjóðlegum skil- greiningum sjúkdóma. Þá er talað um rafrænt skjáheilkenni, sem er nýyrði sem lýsir skaðlegum einkennum ofnotkunar á snjalltækjum og er þá hugs- anlegt forstig að því sem síðar getur þróast út í fíkn. Einn þeirra sem stigið hafa fram til að vekja athygli á að samfélagið þurfi að eiga í alvöru- samtali um þessi mál er Björn Hjálmarsson, sérfræðilæknir á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, BUGL. „Það er frumkvöðull vestanhafs, Victoria L. Dunckley, geðlæknir í Los Angeles, sem kom fyrst fram með þetta fyrirbæri; rafrænt skjá- heilkenni eða Electronic Screen Syndrome, sem er þegar börn og unglingar fara yfir þau mörk í skjátækjum sem þau þola þannig að það fer að koma niður á líðan þeirra, svefni og hegðun og getur verið forstig að því sem við getum farið að kalla skjáfíkn ef þetta fær að ganga óáreitt,“ segir Björn. „Þótt rafrænt skjáheilkenni sé ekki formlega viðurkennd greining innan greiningarkerfanna eru þau einkenni sem birtast hjá börnum ef þau fara yfir þolmörk sín í skjátímanum og Victoria Dunckley bendir á í skrifum sínum þó vel þekkt. Vísindasamfélagið hefur bara í raun ekki tekið við sér og rannsakað þetta fyrirbæri og þetta ferli til hlítar. Þegar farið er yfir þessi þol- mörk fer að bera á reiði, pirringi, kvíði getur aukist og barnið staðið sig almennt verr í því að mæta kröfum fullorðna fólksins.“ Björn segir að þar sem reynsla kynslóðanna af áhrifum skjánotkunar sé ekki fyrir hendi sé afar mikilvægt að hlúa að þeim viðkvæma hópi SKJÁNOTKUN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.