Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Blaðsíða 27
nótt ef óhapp verður eða hvaðeina
sem upp kann að koma. Einnig eru
meiri líkur á að hótel bjóði einhvers
konar afþreyingu fyrir börn og þá eru
þau einnig oft öruggari kostur, þar
sem þau verða að uppfylla ákveðna
öryggisstaðla.
Hótel getur einnig verið tryggari
kostur að mörgu leyti, því þau verða
að telja nákvæmlega upp allt sem er
innifalið og þjónustan fer eftir til-
teknum stöðlum. Við ættum því að
vita að hverju við göngum, svona
nokkurn veginn allavega.
Gallinn við hótel er að þau geta
verið dýr, en með aukinni samkeppni
við aðra gistimöguleika undanfarið
hefur verð reyndar farið lækkandi á
mörgum stöðum.
Kynntu þér málin
Það getur borgað sig að nýta heima-
gistingu á borð við Airbnb þegar
ferðast er í stærri hópum því þar er
hægt að leigja heila íbúð eða hús.
Ef þú ert að hugsa um þennan
gistimöguleika margborgar sig að
setja sig vel inn í málin, skoða ná-
kvæmlega alla skilmála og rýna vel í
það sem aðrir hafa skrifað um gest-
gjafann. Umsagnir eru allt í þessum
bransa.
Heimagisting getur líka hentað vel
fyrir einstaklinga, einkum ef ætlunin
er að dvelja um einhvern tíma á sama
stað. Ef fólk er til í deila baðherbergi
og eldhúsi þá getur það verið góð
hugmynd að leigja herbergi í heima-
gistingu, þar sem gestgjafinn er
heimamaður og er í íbúðinni sjálfur
en þú leigir bara herbergi. Þannig er
hægt að kynnast menningu staðarins
og hafa beinan aðgang að heima-
manni sem þekkir umhverfið vel.
Þetta er skemmtilegur kostur fyrir
einstakling eða jafnvel par.
Fyrir bakpokaferðalanga sem hafa
lítið milli handanna eru farfuglaheim-
ili hinn augljósi kostur. Þar er yfirleitt
hægt að kynnast öðrum ferðalöngum
og kynnast fólki frá öllum heims-
hornum sem hefur gaman af því að
ferðast. En ef þú vilt ekki deila her-
bergi er betra að spara aðeins lengur
fyrir ferðinni og bóka hótel.
Bókunarmöguleikar eru fjölmarg-
ir. Algengt er að fara þá leið að bóka
gegnum stórar bókunarsíður, en í
mörgum tilvikum er hægt að fá betra
verð með því að hringja á staðinn.
Þetta er mjög misjafnt eftir löndum,
en um að gera að láta á það reyna. Við
viljum allavega aldrei borga meira en
við þurfum, betra að eiga peninga til
að gera eitthvað skemmtilegt í ferð-
inni. Tvennt er gott að hafa í huga; í
fyrsta lagi þarftu að vita hvað þú vilt
fá út úr gistingunni og í öðru lagi vita
hversu miklu þú vilt eyða í gistingu.
Svo vinnurðu út frá þessu og finnur
eitthvað sem hentar bæði andanum
og buddunni.
Hótel hafa þann kost að við eigum að vita nákvæmlega að hverju við göngum, þjónustan er stöðluð. Stjörnugjöf í bland
við álit gesta hjálpar til við að velja það hótel sem hentar okkar þörfum best.
’Ef þú vilt vera út affyrir þig bókarðu hótel. ’Ef þú vilt kynnast nýjufólki ferðu á farfugla-heimili.
’Ef þú vilt kynnastheimafólki leigirðuherbergi inni á heimili.
Heimagisting er jafnan
einfaldari en hótelgisting
en getur haft aðra kosti.
13.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Ef ætlunin er að spara borgar
sig líklega frekar að gista í
heimagistingu eða jafnvel á far-
fuglaheimili, treysti fólk sér í
það.
Hótel veljum við aðallega
vegna þeirrar þjónustu sem
þeim fylgja, þannig að ef sparn-
aðurinn leiðir til þess að við
séum farin að skoða hótel sem
eru jafnvel þannig að deila þarf
baðherbergi eða slá verulega af
kröfum um ýmsa þjónustu sem
almennt er sjálfsögð á þess kon-
ar gististöðum, þá er vissara að
velja annað.
Ef við ætlum hvort sem er að
deila baðherbergi þá er alveg
eins gott að bóka bara herbergi
sem einhver vel liðinn gestgjafi
á Airbnb leigir út frá sér. Hótel
sem eru of ódýr standa í raun
varla lengur undir því að vera
hótel.
Á hóteli á að vera hægt að fá þjónustu allan sólarhringinn.
Thinkstock
HÓTEL VERÐA AÐ VERA ALVÖRU HÓTEL
Ekki of ódýrt hótel
jakkafatajoga.is
ÁNÆGJA EFLING
AFKÖST