Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.01.2019, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.1. 2019
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp SímansRÚV
Rás 1 92,4 93,5
Stöð 2 sport 2
Stöð 2 sport
Omega
N4
Stöð 2 krakkar
Stöð 2
Hringbraut
Stöð 2 bíó
20.00 Að austan
20.30 Landsbyggðir
21.00 Nágrannar á norð-
urslóðum
21.30 Nágrannar á norð-
urslóðum
22.00 Nágrannar á norð-
urslóðum
22.30 Nágrannar á norð-
urslóðum
23.00 Nágr. á norðursl.
Endurt. allan sólarhr.
13.30 Michael Rood
Michael Rood fer
ótroðnar slóðir þeg-
ar hann skoðar ræt-
ur trúarinnar út frá
hebresku sjónar-
horni.
14.00 Omega
15.00 Joel Osteen
Joel Osteen prédik-
ar boðskap vonar og
uppörvunar.
15.30 Charles Stanl-
ey Biblíufræðsla
með dr. Charles
Stanley hjá In Touch
Ministries.
16.00 In Search of
the Lords Way
16.30 Kall arnarins
17.00 Times Square
Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur
er svarið Þátturinn
fæst við spurningar
lífsins: Hvaðan kom-
um við? Hvað erum
við að gera hér?
Hvert förum við? Er
einhver tilgangur
með þessu lífi?
20.00 Omega
21.00 Tónlist
22.30 Gegnumbrot
Linda Magnúsdóttir
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
00.30 Tónlist
01.30 Global Ans-
wers
05.00 Jesús Kristur
er svarið Þátturinn
fæst við spurningar
lífsins: Hvaðan kom-
um við? Hvað erum
við að gera hér?
Hvert förum við? Er
einhver tilgangur
með þessu lífi?
05.30 Time for Hope
Dr. Freda Crews
spjallar við gesti.
06.00 Catch the Fire
Kennsla og sam-
komur.
07.00 Global Ans-
wers Kennsla með
Jeff og Lonnie Jenk-
ins.
07.30 Með kveðju frá
Kanada
08.30 Gömlu göt-
urnar Kennsla með
Kristni Eysteinssyni
09.00 Tónlist Kristi-
leg tónlist úr ýmsum
áttum.
09.30 Tomorroẃs
World Fréttaskýr-
ingaþáttur sem
fjallar um spádóma
og ýmislegt bibl-
íutengt efni.
10.00 Máttarstundin
Máttarstund Krist-
alskirkjunnar í Kali-
forníu.
11.00 Country Gosp-
el Time
11.30 Tónlist
13.00 Global Ans-
wers
07.00 Barnaefni
17.49 Pingu
17.55 Mamma Mu
18.00 Strumparnir
18.25 Ævintýraferðin
18.37 Kormákur
18.47 Hvellur keppnisbíll
19.00 Frummaðurinn
07.35 West Ham – Arsenal
09.15 Brighton – Liverpool
10.55 Atletico Madrid –
Levante
13.05 PL Match Pack
13.35 Premier League
World 2018/2019
14.05 Everton – Bourne-
mouth
16.20 Tottenham – Man-
chester United
18.30 Valur – ÍBV
20.00 Messan
21.00 Barcelona – Eibar
22.40 Wigan – Aston Villa
00.20 Real Betis – Real Ma-
drid
08.30 Crystal Palace – Wat-
ford
10.10 Leicester – South-
ampton
11.50 Cardiff – Hudd-
ersfield
13.30 Burnley – Fulham
15.10 Athletic Bilbao – Se-
villa
17.25 NFL Gameday 18/19
17.55 New England Pat-
riots – LA Chargers
21.30 New Orleans Saints –
Philadelphia Eagles
17.00 Florence Foster
Jenkins
18.50 Before We Go
20.25 Phil Spector
22.00 Blade Runner 2049
00.40 The Meddler
02.25 All Eyez on Me
07.00 Barnaefni
09.10 Tommi og Jenni
09.35 Latibær
10.00 Ævintýri Tinna
10.25 Lukku-Láki
10.50 Friends
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.40 Nágrannar
13.00 Nágrannar
13.20 Nágrannar
13.45 Mom
14.10 The Sticky Truth Abo-
ut Sugar
15.10 God Friended Me
15.55 Lose Weight for Good
16.30 Jamie’s Quick and
Easy Food
17.00 Ísskápastríð
17.40 60 Minutes
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.55 Sportpakkinn
19.10 The Great British
Bake Off
20.10 Hálendisvaktin
20.45 Springfloden
21.30 Mr. Mercedes
22.25 Death Row Stories
23.10 The Sandhamn Mur-
ders
01.00 True Detective
02.05 True Detective
03.10 Insecure
03.40 S.W.A.T.
04.25 Silent Witness
05.15 Silent Witness
20.00 Lífið er fiskur Lífið er
fiskur fjallar á ástríðufullan
hátt um íslenskt sjávarfang
af öllu tagi í umsjá fiski-
kóngsins Kristjáns Bergs.
20.30 Mannamál
21.00 Heimildarmynd Vel
valdir heimildarþættir.
Endurt. allan sólarhr.
12.00 Everybody Loves
Raymond
12.20 King of Queens
Bandarískir gamanþættir.
12.40 How I Met Your
Mother
13.05 The F-Word USA
13.50 Superstore
14.15 Life Unexpected
15.00 Top Chef
16.00 Malcolm in the
Middle
16.20 Everybody Loves
Raymond
16.45 King of Queens
17.05 How I Met Your
Mother
17.30 90210
18.15 Will & Grace
18.35 Trúnó
19.10 Trúnó
19.45 A.P. Bio
20.10 This Is Us
21.00 Law & Order: Speci-
al Victims Unit Bandarísk
sakamálasería þar sem
fylgst er með sérsveit
lögreglunnar í New York
sem rannsakar kynferð-
isglæpi.
21.50 Trust
22.45 Agents of
S.H.I.E.L.D. Hörkuspenn-
andi þættir úr smiðju
hasarhetjurisans Marvel.
Bandaríska ríkisstjórnin
bregður á það ráð að láta
setja saman sveit óárenni-
legra ofurhetja til að
bregðast við yfirnátt-
úrulegum ógnum á jörð-
inni.
23.30 The Walking Dead
00.15 The Messengers
01.00 From Russia With
Love
02.55 Escape at Danne-
mora
03.45 Blue Bloods
06.55 Morgunbæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Tríó.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Samtal.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar. Fjallað um bókina Hundakæti: Dag-
bækur Ólafs Davíðssonar 1881-1884.
11.00 Guðsþjónusta í Bústaðakirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.40 Veðurfregnir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Málið er.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Vínartónleikar Sinfóníunnar.
Hljóðritun frá Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu sl. fimmtu-
dag.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Ég segi ekki alltaf allt gott.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Orð um bækur.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði. Skoðað er hvernig spurningin
„Skyldi þetta vera aldrei, stundum eða alltaf satt?“ get-
ur breytt aðgangi nemenda að jöfnum og öðrum yrð-
ingum í stærðfræðibókum framhaldsskólans og ung-
lingadeildar grunnskólans. Rætt verður við Ingólf
Gíslason, aðjúnkt í stærðfræðimenntun á mennta-
vísindasviði Háskóla Íslands, og Tinnu Sigurjónsdóttur,
stærðfræðikennara við Framhaldsskólann í Mosfellsbæ.
Þáttagerð: Bjarnheiður Kristinsdóttir. Leiðbeinandi: Ásdís
Emilsdóttir Petersen. (Aftur á laugardag)
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur. Umsjón: Illugi Jökulsson. (Aftur á
þriðjudag)
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
11.00 Silfrið
12.10 Menningin – sam-
antekt
12.35 Handboltalið Íslands
12.50 Makedónía – Barein
(HM í handbolta)
14.35 Íþróttaafrek sög-
unnar (e)
15.00 Íþróttaafrek (e)
15.20 Króatía – Japan (HM
í handbolta)
17.05 Táknmálsfréttir
17.15 HM stofan
17.50 Spánn – Ísland (HM í
handbolta) Bein útsending
frá leik Spánar og Íslands á
HM karla í handbolta.
19.35 HM stofan Farið yfir
leiki dagsins.
20.00 Fréttir Helstu fréttir
dagsins af innlendum og er-
lendum vettvangi. Alla
daga, allt árið um kring.
20.25 Íþróttir
20.30 Veður
20.40 Paradísarheimt
21.15 Ófærð Lögreglumað-
urinn Andri Ólafsson snýr
aftur í annarri þáttaröð
þessara vinsælu íslensku
spennuþátta. Bannað börn-
um.
22.10 Kafbáturinn (Das
Boot) Þýsk leikin þáttaröð í
átta hlutum sem hefst árið
1942 í Frakklandi sem er
hernumið af nasistum.
Stranglega bannað börn-
um.
23.15 Fortíðin (Le passé)
Frönsk kvikmynd um ír-
anskan mann sem snýr aft-
ur til Frakklands til að
ganga frá skilnaði við
franska eiginkonu sína þar
sem hún hefur hafið sam-
band með öðrum manni.
Bannað börnum.
01.25 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
RÚV íþróttir
17.50 Táknmálsfréttir
21.15 Ófærð – með enskum
texta Lögreglumaðurinn
Andri Ólafsson snýr aftur í
annarri þáttaröð þessara
vinsælu íslensku spennu-
þátta. Bannað börnum.
15.50 Seinfeld
17.55 Í eldhúsi Evu
18.25 Lego Master
19.15 Mr Selfridge
20.00 Homeland
20.55 Shetland
21.55 Girls
22.30 American Horror
Story: Cult
23.20 Rome
00.20 The Detour
00.45 Mr Selfridge
01.30 Tónlist
Stöð 3
10 til 11
Þingvellir
Páll Magnússon og Björt
Ólafsdóttir stýra líflegum
þjóðmálaþætti í beinni
útsendingu á K100 alla
sunnudagsmorgna.
11 til 16
100% helgi á K100
Stefán Valmundar rifjar
upp það besta úr dag-
skrá K100 frá liðinni
viku, spilar góða tónlist
og spjallar við hlust-
endur.
16 til 22
100% helgi á K100
Besta tónlistin á sunnu-
degi.
K100
Núna rétt fyrir jól fékk ég þá snilldarhugmynd að fá mérkött en gæludýr hafa ekki verið mörg á mínu heimili. Þóátti ég um tíma andsetnu kanínuna Konna sem hafði
lokkað mig til þess að taka sig heim úr dýrabúðinni. Hann var
nefnilega fallegasta kanína sem ég hafði augum litið og stóru
brúnu kanínuaugun bræddu mitt hjarta. Fyrrverandi var ekkert
sérlega hress þegar hann kom heim frá London og snarbrjáluð
kanína skautaði um parketið eins og belja á svelli og hélt vöku
fyrir okkur allar nætur. Hann nefnilega henti sér á búrið með lát-
um á hverri nóttu þar til lúgan gaf eftir og hann fékk frelsið til að
kúka og pissa um allt hús.
Ég viðurkenni að þetta
voru ákveðin mistök.
En semsagt, nú er
mættur á heimilið
tveggja ára fress, herra
Gullbrandur úr Biskups-
tungum. Hann er mikill
útiköttur og var vanur að
veiða bæði mýs og fugla í
sveitinni og hafði fengið
viðurnefnið Gulli rað-
morðingi. En nafnið mun
ekki festast við þennan
gulbröndótta kött því í
Garðabænum haga kettir
sér ekki svona.
Dagarnir liðu og Gull-
brandur dafnaði vel og virtist kunna ágætlega við sig. Sófarnir
hafa lent í klónum á honum og hann þykist stundum alveg svelt-
ur, en að öðru leyti gengur vel. Þar til hann fór að bögga ná-
grannana. Hann er nefnilega aldeilis að stimpla sig inn í Garða-
bænum. Hann gengur gjarnan á milli húsa og þykist vera
svakalega týndur og rosalega svangur. Hann er þá í mesta lagi
100 metra frá húsinu sínu en lætur eins og lítil dramadrottning.
Á rúmri viku hefur hann gerst svo frægur að lenda þrisvar á
Garðabæjarfésbókarsíðunni. Í fyrsta skipti lá ég undir sæng að
horfa á Ófærð þegar ég tek eftir að einhver taggar mig á þremur
kisumyndum sem einhver hafði póstað á fyrrnefndri síðu. „Er
þessi ekki á þínum vegum?“ stóð þar undir tagginu. Jú, ekki bar á
öðru en Gullbrandur væri þar kominn inn til nágranna, og á
myndinni mátti sjá hann liggja makindalega á eldhúsgólfi með
mat í skál. Ég sendi skilaboð um að þau ættu bara að henda hon-
um út, en nei, þau vildu að ég sækti köttinn. Þannig að ég klæddi
mig upp úr rúminu, æddi út í myrkrið og stimplaði heimilisfangið
inn í google maps. Gekk ég svo heilan hring í hverfinu á inniskón-
um, til þess eins að lenda á húsinu sem er fyrir aftan mig. Hann
var þá ekki lengra í burtu en svo að ég gat séð húsið út um eld-
húsgluggann. Ég bar gulldrenginn minn heim og veitti honum til-
tal; að vera ekki að fara í annarra manna hús og að láta nágrann-
ana vera.
Ekki gekk það betur en svo að nokkrum dögum síðar kom aft-
ur tilkynning á fésbókarsíðuna, í þetta sinn á æpandi rauðum
bakgrunni: Þessi var að mjálma á gluggann og virkar horaður og
svangur.
Í þriðja sinn birtist tilkynning á síðunni: Hér sefur gulbröndótt
kisa í skjóli fyrir veðrinu (það var átta stiga hiti) og er hún svöng
og köld.
Já, fúlsaðu bara við rækjum og rjóma og kvartaðu svo sáran
við nágrannana. Og láttu alla halda að þú sért vanræktur!
Aftur klæddi ég mig upp úr rúminu, æddi af stað og gekk um
hverfið eins og úfin klikkuð kisukona á inniskónum og kallaði:
„Gulli … Gullbrandur … kisikis …“ – allt í mjög hárri kisu-
tóntegund að sjálfsögðu því allir vita að kisur skilja ekki venju-
legt tal!
Þetta kisulíf!
Gullbrandur er orðinn einn frægasti köttur Garðabæjar en hann
hefur lent þrisvar á Garðabæjarfésbókarsíðunni á einni viku.
Klikkuð
kisukona
Allt og ekkert
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
’Hann gengur gjarnaná milli húsa og þykistvera svakalega týndur og rosalega svangur.
Hann er þá í mesta lagi
100 metra frá húsinu
sínu en lætur eins og
lítil dramadrottning.