Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Veður víða um heim 24.1., kl. 18.00 Reykjavík 0 skýjað Hólar í Dýrafirði -7 skýjað Akureyri -4 skýjað Egilsstaðir -3 þoka Vatnsskarðshólar 2 skýjað Nuuk -5 skúrir Þórshöfn 4 léttskýjað Ósló -3 þoka Kaupmannahöfn -1 skýjað Stokkhólmur -7 þoka Helsinki -13 heiðskírt Lúxemborg -3 þoka Brussel 0 þoka Dublin 9 skýjað Glasgow 4 þoka London 3 þoka París 1 þoka Amsterdam 0 þoka Hamborg -3 alskýjað Berlín -4 snjókoma Vín -2 skýjað Moskva -13 snjókoma Algarve 20 léttskýjað Madríd 14 léttskýjað Barcelona 13 heiðskírt Mallorca 12 léttskýjað Róm 8 rigning Aþena 14 léttskýjað Winnipeg -27 léttskýjað Montreal 0 rigning New York 13 rigning Chicago -9 þoka Orlando 19 alskýjað  25. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:30 16:52 ÍSAFJÖRÐUR 10:55 16:36 SIGLUFJÖRÐUR 10:38 16:18 DJÚPIVOGUR 10:04 16:16 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á laugardag Norðvestlæg átt, 5-13 m/s og stöku él með austurströndinni. Mun hægari vindur annars staðar og léttskýjað á S- og V-landi. Frost 3 til 12 stig yfir daginn. Norðaustan 5-13 m/s á morgun víða skýjað með köflum eða bjartviðri, en sums staðar dálítil él. Frost 0 til 5 stig, en sums staðar frostlaust við ströndina. Kólnar annað kvöld. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Á útboðsþingi Samtaka iðnaðarins voru kynntar fjárfestingar á vegum hins opinbera fyrir um 130 milljarða í innviðum á Íslandi í ár. Það er um 50 milljörðum króna meira en í fyrra sem er 60% aukn- ing. Fjárfestingin nemur hundruð- um milljarða á næstu árum. Skiptist hún m.a. í orkuinnviði, hafnarmannvirki, skóla, vegamann- virki og stækkun Leifsstöðvar. Sigurður Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segir hið opinbera verða að nýta það svigrúm sem skapist þegar fjárfesting atvinnu- veganna dregst saman og hægist á gangi hagkerfisins. Hafa beri í huga að mikil uppsöfnuð þörf sé fyrir fjárfest- ingu í innviðum eftir fjársvelti síðustu tíu ár. „Með hliðsjón af því hvar við erum í hagsveiflunni töldum við hjá SI að árið 2018 yrði nýtt til undirbúnings fyrir framkvæmdaárið 2019. Þetta virðist vera að ganga eftir. Það stefnir í gott ár fyrir iðnaðinn,“ segir Sigurður. Spáin sé heldur varfærin. Ætla megi að fjárfestingin á árunum 2020-2022 verði jafnvel umfram þessa áætlun. „Ég myndi ætla að framkvæmdir yrðu jafnvel ívið meiri en þarna er spáð. Það kom meðal annars fram í máli Dags B. Eggertssonar borgar- stjóra. Menn sjá betur styttra fram í tímann,“ segir Sigurður og bendir svo á að Landsvirkjun sé eini aðilinn á út- boðsþinginu sem geri ráð fyrir sam- drætti í umsvifum milli 2018 og 2019. Orka náttúrunnar og Landsnet geri ráð fyrir aukningu. Uppbygging í fluginu Jafnframt sé kröftug uppbygging á Keflavíkurflugvelli áformuð í ár, ásamt því sem framkvæmdir Fram- kvæmdasýslu ríkisins aukist milli ára 2018 og 2019. Þar komi m.a. til nýr meðferðarkjarni Landspítalans og Hús íslenskra fræða. Sigurður segir aðspurður að ekki verði vandamál að finna vinnuafl í öll þessi verkefni. Til dæmis séu nú færri starfandi í byggingariðnaði en árið 2007. Launþegar séu nú um 14 þúsund en hafi verið 16 þúsund þegar mest lét fyrir efnahagshrunið. Sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu áforma að verja hundruðum milljarða til framkvæmda á næstu fjórum árum, 2019-2022. Samstæða Reykjavíkurborgar hyggst fjárfesta fyrir 164 milljarða þessi ár og hin sveitarfélögin 48 milljarða. Það sam- svarar um 4,4 milljörðum á mánuði. Minna fé í vegaframkvæmdir Framkvæmdasýsla ríkisins mun bjóða út verk fyrir 19,7 milljarða í ár. Vegagerðin áætlar að 12,2 milljörð- um verði varið til nýframkvæmda í vegamálum í ár, eða 1,6 milljörðum minna en í fyrra. Þá verður 9,7 millj- örðum varið til viðhalds í ár, eða um 800 milljónum minna en í fyrra (tölur eru á verðlagi 2019). Fram kom í kynn- ingu Isavia að félagið hyggst hefja framkvæmdir við viðhald flugbrauta og akbrautir á Keflavíkurflugvelli í júní og ljúka þeim hluta í september. Þá stendur til að endurnýja akbraut- arljós og setja upp fjórar landgöngu- brýr og byggja jafn mörg þjónustuhús. Mun umfangsmeiri framkvæmdir við völlinn eru svo áformaðar. Fjárfestingar opinberra aðila 2019-2022 63 milljarðar króna eru fyrirhuguð fjárfesting A-hluta Reykjavíkur- borgar árin 2019 til 2022 48 milljarðar króna eru fyrirhuguð fjárfesting sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu utan Reykjavíkur 2019-2022 128 milljarða króna fjárfesting 10 opinberra aðila á árinu 2019 var kynnt á Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins A-hluti Utan A-hluta Skíðasvæði Bláfjöllum og Skálafelli Urriðaholtsskóli, Garðabæ Helgafellsskóli, Mosfellsbæ Skarðshlíðarskóli, Hafnarfirði 1.450 m.kr. 2019 1.835 m.kr. 2020-22 2020-22 3.600 m.kr. 670 m.kr. 2019 Nokkrar fyrirhugaðar framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur Fjárfestingar Reykjavíkurborgar Fyrirhugaðar verklegar framkvæmdir opinberra aðila 2019 Árið 2019 milljónir kr. Skarðshlíðarskóli, Hafnarfirði 1.450 Nýr leikskóli, Seltjarnarnesi 1.000 Gas- og jarðgerðarstöð Sorpu 3.600 Árið 2020-2022 milljónir kr. Kársnesskóli, Kópavogi 2.000 Íþróttamannvirki Kaplakrika, Hfj. 1.430 Fjölnotaíþróttahús, Garðabæ 1.840 Helgafellsskóli, Mosfellsbæ 1.835 Skíðasv. Bláfjöllum og Skálafelli 3.600 20 18 16 12 8 6 4 2 0 Faxaflóa- hafnir Lands- virkjun Orka náttúr- unnar Veitur Landsnet SSH* Framkv. sýsla ríkisins Reykja- víkur- borg Isavia Vega- gerðin 2,7 4,4 4,4 8,7 9,2 16,4 19,7 20,0 20,5 21,9 Milljarðar króna 2019 2020 2021 2022 Milljarðar kr. 29 27 25 2120 16 14 13 *Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Fjárfesting í innviðum eykst um 60% milli ára  Ný áætlun Samtaka iðnaðarins var kynnt á útboðsþingi Sigurður Hannesson Freyr Bjarnason freyr@mbl.is Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eft- ir því að forsætisnefnd Alþingis taki til skoðunar hvort Björn Leví Gunn- arsson og Þórhild- ur Sunna Ævars- dóttir, þingmenn Pírata, hafi gerst brotleg við siða- reglur fyrir al- þingismenn með ummælum sínum opinberlega um endurgreiðslu þingsins á aksturskostnaði til Ásmundar. Í bréfi sem Ásmundur sendi for- sætisnefnd segir hann ummæli þeirra beggja „bæði grófar aðdrótt- anir og fullyrðingar um refsiverða háttsemi mína“. Telur hann nauðsyn- legt að fá úr því skorið hvort ummæl- in samrýmist siðareglum. „Þekkt er í pólitískri baráttu að þingmenn láti miður falleg orð um andstæðinginn falla í umræðu og jafnvel mjög niðrandi. Hér er hins vegar um miklu alvarlegri hluti að ræða þar sem ég er sakaður um hegn- ingarlagabrot. Gengið er svo langt í sumum ummælum að fullyrt er að ég hafi framið slík brot. Tel ég að með þessum ummælum sé vegið alvarlega að æru minni,“ skrifar hann í bréfinu. Ósáttur við leka úr nefndinni Mbl.is hafði spurnir af samskiptum Ásmundar við forsætisnefnd vegna málsins. Þegar haft var samband við þingmanninn og hann spurður út í það sagði hann það mjög miður að er- indið skyldi hafa lekið út úr for- sætisnefnd. Hann kvaðst vona að það hefði engin áhrif á málsmeðferðina en hann sagðist ekki hafa ætlað að ræða málið opinberlega fyrr en niðurstaða lægi fyrir. „Það er mjög alvarlegt að for- sætisnefnd þingsins sé ekki treyst fyrir erindum sem á hennar borð koma því í fyllingu tímans verða þau öll opinber. Ég er mjög sorgmæddur yfir því,“ sagði hann. Nánar er fjallað um málið á mbl.is. Vill láta skoða ummæli Pírata  Hefur sent forsætisnefnd erindi Ásmundur Friðriksson Arnar Þór Ingólfsson athi@mbl.is Grímur Sigurðarson, verjandi Kjart- ans Bergs Jónssonar, fór í gær fram á að skjólstæðingur sinn yrði sýknaður af kröfum ákæruvaldsins í innherja- svikamálinu í Icelandair. Málið var lagt í dóm í gær eftir tveggja daga að- almeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sagði Grímur m.a. að málatilbún- aður ákæruvaldsins gegn skjólstæð- ingi sínum hefði allur verið í skötulíki og óskiljanlegur og að hann hefði íhugað að láta reyna á frávísun máls- ins. Sagði Grímur það vera lágmark að ákæruvaldið sýndi fram á að annar af þeim þremur sem ákærðir væru í málinu, Kristján Georg Jósteinsson, sem sagður er hafa ráðlagt Kjartani Bergi að gera þessi viðskipti, hafi haft aðgang að einhverjum innherjaupp- lýsingum. Það hefði ekki verið gert. Að loknum málflutningi Gríms veitti Finnur Þór Vilhjálmsson sak- sóknari andsvör við málflutningi verj- endanna í málinu. Sagði hann meðal annars þær upplýsingar sem Kjartan Jónsson, þriðji ákærði, bjó yfir upp- fylla öll hugtakaskilyrði innherjaupp- lýsinga, að því leyti að þær væru nægilegar til þess að hafa áhrif á hlutabréfaverð. Að loknum andsvörum saksóknara og svo verjenda var málið lagt í dóm, en málið er hið fyrsta sinnar tegundar hér á landi. Segir málatilbún- aðinn í skötulíki  Málflutningi lokið í innherjamálinu Morgunblaðið/Eggert Innherjar Frá málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.