Morgunblaðið - 25.01.2019, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 25.01.2019, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur samþykkt að veita Landsneti fram- kvæmdaleyfi til að færa Hamranes- línur frá íbúðarhúsum við Skarðshlíð í Vallahverfi. Framkvæmdir geta þá hafist þegar útboðum lýkur. Kostar uppbygging nýrra mastra og lagning lína um 330 milljónir króna, auk kostnaðar við niðurrif gömlu lín- unnar. Landsnet hefur undirbúið lagn- ingu Lyklafellslínu sem liggja á frá nýju tengivirki við Lyklafell nálægt Suðurlandsvegi að tengivirki við ál- verið í Straumsvík. Sveitarfélögin settu línuna inn á skipulag. Til- gangurinn var að skapa möguleika á niðurrifi Hamraneslína 1 og 2 og Ísallína 1 og 2 en þær þrengja orðið að byggð. Millileikur í framkvæmdinni Framkvæmdir áttu að vera hafnar. Undirbúningur stöðvaðist hins vegar þegar úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála ógilti framkvæmdaleyfi Hafnarfjarðar- bæjar á þeirri forsendu að ekki hefði verið hægt að gefa það út á grund- velli umhverfismats sem gert hafði verið. Búið er að byggja íbúðarhús að línunum í Hafnarfirði. Sverrir Jan Norðfjörð, framkvæmdastjóri þró- unar- og tæknisviðs Landsnets, seg- ir að eftir viðræður við bæjaryfirvöld hafi verið ákveðið að leika þann milli- leik að færa línurnar frá hverfinu. Hafnarfjarðarbær gerir ráð fyrir að svæðið í heild, Skarðshlíð og Hamranes, rúmi hátt í 2.000 íbúðir. „Ég fagna því mjög að framkvæmda- leyfin séu nú samþykkt og að við sjáum loks fyrir endann á flutningi Hamraneslínunnar. Við höfum um langt skeið barist fyrir því að koma þessum málum í réttan farveg. Sannarlega hefði verið gott fyrir alla hlutaðeigandi að hefja þessar fram- kvæmdir fyrir nokkuð löngu og höf- um við beðið lengi eftir þessum degi,“ er haft eftir Rósu Guðbjarts- dóttur bæjarstjóra á vef bæjarins. Átta ný möstur Reist verða 8 ný möstur á um rúm- lega 2 km kafla. Línurnar eru tvær og því þurfa þau að vera öflug. Í staðinn verða 5 möstur tekin niður. Áætlað er að hefja fram- kvæmdir við varanlega Lykla- fellslínu síðari hluta árs 2020, samkvæmt kerfisáætlun Landsnets, og ljúka verkinu í byrjun árs 2022. Teikning/Landsnet Skarðshlíð Hús hafa verið byggð að núverandi legu Hamraneslína. Teikningin sýnir nýja legu línanna. Kostar 330 milljónir að færa Hamraneslínur  Rýmt fyrir byggingum í Skarðshlíð til bráðabirgða Uppbygging á nýju hverfi í Skarðshlíð skiptist í þrjá áfanga og hefur öllum lóðum í áfanga 1, sem stendur á flata undir Skarðshlíðinni sjálfri og rýmir fjölbýlishús, verið úthlutað, samkvæmt upplýsingum Hafn- arfjarðarbæjar. Lóðir í áfanga 2 eru nú til úthlutunar og hefur nokkrum hluta þeirra þegar ver- ið úthlutað. Gert er ráð fyrir að opnað verði fyrir úthlutun lóða í síð- asta áfangann á vormán- uðum en þar stendur nú yfir undirbúningur og deiliskipulagsvinna. Strax í framhaldinu mun Hamranesið í heild sinni koma til úthlutunar. Bærinn út- hlutar lóðum SKARÐSHLÍÐ Rósa Guðbjartsdóttir Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er rétt að við gerðum athuga- semd við þessi nöfn,“ segir Sólveig Sif Hreiðarsdóttir, þýðandi og útgef- andi hjá bókaútgáfunni Kveri. Morgunblaðið greindi í gær frá því að Borgarleikhúsið ætlaði að halda sig við nafnið Karítas Mín- herfa á einni sögupersónu í söng- leiknum Matthildi sem frumsýndur verður um miðjan mars. Söngleikur- inn er byggður á frægri bók Roalds Dahls en um nýja þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar er að ræða. Þýð- ing Sólveigar á bókinni Matthildi kom út í nóvember 2017 og hefur notið mikilla vinsælda. Bókin hefur verið prentuð í sérstakri söngleikja- útgáfu í tilefni af væntanlegri frum- sýningu og er gott samstarf milli út- gáfunnar og leikhússins, að sögn Sólveigar. Í þýðingu Sólveigar heitir umrædd persóna Krýsa. Í samtali við Morgunblaðið segir Sólveig að hún hafi komið eintaki af bókinni til Gísla Rúnars þegar upp- lýst var að hann myndi þýða verkið. Það séu því vonbrigði að hann hafi kosið að notast við annað nafn. „Það eru vonbrigði krakkanna vegna enda getur þetta ruglað þá í ríminu. Betra hefði verið ef það væri samfella á milli,“ segir Sólveig sem, kveðst deila þeirra skoðun að ill- menni í barnabókum skuli ekki bera hversdagsleg nöfn. Sólveig kveðst engu að síður spennt fyrir frumsýningu söngleiks- ins. Hún hafi séð hann úti í London og telur að von sé á góðu. „Ég vona að allt gangi vel og krakkarnir átti sig á þessu.“ Matthildur Söngleikur eftir sögu Roalds Dahls verður brátt frumsýndur í Borgarleikhúsinu. Ein persónan mun heita Karítas Mínherfa en ekki Krýsa. Nafnið vonbrigði  Þýðandi gerði athugasemd við nafn- ið Karítas Mínherfa í Borgarleikhúsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.