Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
Félix Tshisekedi sór embættiseið
sem forseti Austur-Kongó í gær.
Mun þetta vera í fyrsta skipti í sögu
landsins sem valdaskipti fara fram
friðsamlega eftir óskipulegar og
umdeildar kosningar. Joseph Ka-
bila, fráfarandi forseti landsins, gaf
Tshisekedi eintak af stjórnarskrá
landsins og borða með þjóðfána
landsins í embættisgjöf.
Tshisekedi þurfti að yfirgefa svið-
ið um stund í miðri embættistöku-
ræðu sinni. Þegar hann kom aftur á
sviðið 12 mínútum seinna sagði
hann: „Frægur forseti okkar lands
sagði á sínum tíma: „Skiljið tilfinn-
ingar mínar.““
Hann vitnaði þar í fyrrverandi
einræðisherra Austur-Kongó, Mo-
butu Sese Seko, sem sagði þessi orð
árið 1990 þegar hann tilkynnti
endalok einsflokksstefnu landsins.
Vonandi alvöru breyting
„Við vonum að þetta verði alvöru
breyting, sérstaklega þar sem hann
hefur náð völdum án blóðsúthell-
ingar,“ segir Saddam Kongolo, sam-
flokksmaður Tshisekedi, í samtali
við AFP-fréttaveituna. Eitt af
fyrstu verkefnum hins nýja forseta
er að skipa forsætisráðherra. Mun
hann þurfa að vanda valið þar sem
stuðningsmenn Kabila hafa enn
mikinn meirihluta á þingi landsins.
Endalok tveggja ára uppnáms
Setningarathöfnin markaði lok
tveggja ára stjórnmálalegs upp-
náms en Kabila neitaði að víkja þótt
stjórnskipunarlegu kjörtímabili
hans hefði verið lokið. Síðustu
tvennar kosningar, árin 2006 og
2011, sem Kabila vann, voru mark-
aðar af blóðugum átökum.
mhj@mbl.is
Sögulegur dagur
í Austur-Kongó
Fyrstu valdaskiptin án ofbeldis
AFP
Valdaskipti Kabila klæðir nýja for-
setann í þjóðfána Austur- Kongó.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Nicolas Maduro, forseti Venesúela,
hefur slitið öllum tengslum við
Bandaríkin eftir að Donald Trump
Bandaríkjaforseti, viðurkenndi Juan
Guaido, þingforseta og leiðtoga
stjórnarandstöðunnar, sem forseta
landsins. Maduro gaf bandarískum
ríkiserindrekum 72 klukkutíma til að
yfirgefa landið en Bandaríkin sögðu
að „fyrrverandi forseti“ landsins
hefði ekki vald til að skipa þeim úr
landi, samkvæmt frétt breska ríkis-
útvarpsins BBC.
Á fjölmennum mótmælafundi í
gær lýsti Guaido því yfir að hann
væri forseti landsins. Bandaríkin
hafa hvatt her Venesúela til að styðja
við bakið á Guaido en hingað til hefur
herinn stutt Maduro.
Maduro sór embættiseið sem for-
seti landsins árið 2013 eftir andlát
Hugo Chavez. Hann hóf sitt annað
kjörtímabil sem forseti í þessum
mánuði eftir kosningar í maí á síðasta
ári. Framkvæmd kosninganna var
harðlega gagnrýnd af stjórnandstöð-
unni og þá voru einnig háværar ásak-
anir um kosningasvindl. Efnahags-
ástand Venesúela er vægast sagt
slæmt. Mikil verðbólga, rafmagns-
leysi og skortur á nauðsynjavörum
hefur leitt til þess að þrjár milljónir
manna hafa yfirgefið landið.
Mótmælin munu halda áfram
Á miðvikudaginn komu þúsundir
saman til að styðja við stjórnarand-
stöðuna í Venesúela. Sagði Guaido á
samkomunni að mótmælin myndu
halda áfram þangað til „Venesúela
yrði frelsuð“. Hann lyfti síðar upp
hægri hönd sinni og sór formlega
embættiseið sem forseti. Hann hét
því að sitt fyrsta embættisverk væri
að koma á kosningum að nýju.
Guaido beitti þar tveimur ákvæðum
úr stjórnarskrá Venesúela sem gerir
forseta þingsins að staðgengil forseta
í fjarveru hans. Röksemdarfærsla
Guaido er að kosningarnar í maí séu
ógildar og þar af leiðandi sé Maduro
ekki forseti landsins. Hjálparsamtök
í Venesúela segja að14 manns hafi
verið skotnir til bana í átökum tengd-
um mótmælunum í vikunni.
Bandaríkin tengd andstöðunni
Donald Trump Bandaríkjaforseti
viðurkenndi Guaido sem staðgengil
forseta einungis örfáum mínútum
eftir að hann titlaði sig sem slíkur.
Fréttastofa BBC telur ómögulegt
annað en að um samráð hafi verið að
ræða milli Bandaríkjanna og
stjórnarandstöðunnar.
Í yfirlýsingu Trumps segir hann
Maduro ekki vera lögmætan forseta
og bætir við að „íbúar Venesúela hafa
talað gegn Maduro og stjórnarfari
hans af hugrekki og krafist frelsis og
réttarríkis“.
Trump sagði við blaðamenn að
hann væri ekki að íhuga hernaðar-
íhlutun að hálfu Bandaríkjanna en
bætti við „allir möguleikar eru á
borðinu“. Hann hvatti önnur ríki til
að fylgja fordæmi sínu og styðja
Guaido.
Alþjóðasamfélagið stígur inn
Sjö þjóðir í Suður-Ameríku hafa
opinberlega viðurkennt Guaido sem
forseta landsins: Brasilía, Kólumbía,
Síle, Perú, Ekvador, Argentína og
Paragvæ.
Emmanuel Macron, forseti Frakk-
lands, styður einnig stjórnandstöð-
una. Í yfirlýsingu í gær sagði hann að
Evrópa styddi við „endurheimt lýð-
ræðisins“ í landinu eftir ólögmætar
kosningar í maí. Jeremy Hunt, utan-
ríkisráðherra Bretlands, lýsti því
einnig yfir í gær að Bretar teldu
Guaido réttmætan forseta Venesúela.
Anders Samuelsen, utanríkisráð-
herra Danmerkur, segir í færslu á
Twitter að ný von hafi kviknað í
Venesúela og að Danir styðji stofn-
anir sem hafi verið kosnar með lög-
legum og lýðræðislegum hætti, ekki
síst löggjafarþingið og þar með Juan
Guaido.
Rússnesk stjórnvöld styðja Mad-
uro og saka Guaido um tilraun til
valdaráns. Hringdi Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, í Maduro í gær til
að lýsa stuðningi við hann. Rússar
hafa stutt við ríkisstjórn Maduros
síðustu ár, meðal annars með lánveit-
ingum og aukinni hernaðarsamvinnu.
Mexíkó, Bólivía og Kúba hafa einn-
ig opinberlega stutt Maduro. Þá tísti
Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrk-
lands, stuðningsyfirlýsingu til Mad-
uro sem sagði: „Bróðir minn Maduro!
Berðu höfuðið hátt, við stöndum með
þér.“
Hvetur til stillingar
Antonio Guterres, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í
íbúa í Venesúela til að sýna stillingu
og ræða saman til að koma í veg fyrir
stjórnmálakrísu í landinu. „Við von-
um að samtal geti átt sér stað og að
hægt sé að forðast stigmögnun átaka
sem gæti leitt til hörmungarástands
fyrir þjóðina í Venesúela og löndin í
kring,“ sagði Guterres á heimsvið-
skiptaráðstefnunni í Davos í Sviss í
gær.
Pattstaða í valdatafli í Venesúela
Embættismönnum Bandaríkjanna skipað að yfirgefa landið innan 72 klukkutíma Rússar lýsa yfir
stuðningi við Nicolas Maduro Emmanuel Macron kallar eftir „endurheimt lýðræðisins“ í landinu
AFP
Þingforseti Juan Guaido, forseti þingsins í Venesúela, lýsti því yfir að hann væri starfandi forseti landsins.
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Lang-
vinsælastur
hollusta í hverjum bita
„Ástandið í Venesúela er algerlega
ólíðandi og við höfum tjáð okkur
um það á vettvangi mannréttinda-
ráðs Sameinuðu þjóðanna. Stjórn-
málaástandið hefur verið í ólestri
um langa hríð og efnahagskerfi
landsins er einfaldlega hrunið,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra um stöðu mála í
Venesúela.
Hann segir óstjórn, meingallaða
hugmyndafræði og ofbeldi núver-
andi forseta og stjórnvalda með
stuðningi frá einstökum ríkjum,
eins og Rússlandi og Kúbu, ein-
kenna ástandið. „Maduro forseti
hefur á undan-
förnum miss-
erum gerst nær
einráður, svipt
þingið völdum og
komið á nýju
ólöglegu stjórn-
lagaþingi sem
stjórnarliðar ein-
ir sitja. Þá eru
dómstólar einnig
hliðhollir Maduro. Ég ræddi mál-
efni Venesúela í ræðu minni í
mannréttindaráðinu á síðasta ári
og því hefur verið fylgt eftir af
fólkinu okkar í Genf.“
Ástandið algerlega ólíðandi
UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍSLANDS
Guðlaugur Þór
Þórðarson