Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
✝ Hörður SævarÓskarsson
fæddist 4. júlí 1932
á Siglufirði. Hann
lést 17. janúar 2019
á Landspítalanum í
Reykjavík.
Foreldrar Harð-
ar voru Óskar Gari-
baldason, formaður
Vöku á Siglufirði, f.
1908, d. 1984, og
Anney Ólfjörð Jóns-
dóttir frá Ólafsfirði, f. 1912, d.
1975.
Systkini Harðar eru Erla, f.
1936, Hlynur Sævar, f. 1942, d.
2017, Hallvarður Sævar, f. 1944,
Hólmgeir Sævar, f. 1945, d. 2016,
og Sigurður Helgi, f. 1950, d.
1961.
Hörður kvæntist 2. ágúst 1955
Dagnýju Jónsdóttur frá Múla í
Álftafirði, f. 20. jan. 1933, d. 17.
júlí 2000. Börn þeirra eru: 1) Óm-
ar Sævar, fagstjóri á Hagstofu Ís-
lands, f. 1955, kvæntur Heiði
Baldursdóttur, d. 1993. Dætur
þeirra eru Brynhildur, f. 1978, og
Þórey Mjallhvít, f. 1980. Eigin-
kona Ómars er Ingibjörg Kol-
beins. Dóttir Þóreyjar er Heiður
Ísafold Þóreyjar- og Finnboga-
dóttir, f. 2011, eiginmaður Þór-
eyjar er Fayaz Khan. 2) Harpa
Sjöfn, sendiráðsstarfsmaður, f.
fósturdóttur, Önnu Margrétar
Bragadóttur.
Hörður lauk námi við Íþrótta-
kennaraskóla Íslands 1952.
Starfaði við sundkennslu frá
þeim tíma sem farandkennari,
sem og í Hafnarfirði og á Sel-
fossi. Forstöðumaður Sundhallar
Selfoss 1960-1983. Hann vann hjá
Rauða krossinum í eitt ár, en hjá
Ungmennafélagi Íslands til
starfsloka 1999, síðast sem skrif-
stofustjóri.
Hörður sat í stjórn Ung-
mennafélags Selfoss í 16 ár og
sem formaður í níu ár. Hann var
félagi í Rótarýklúbbi Selfoss og
forseti hans í eitt ár, í stjórn
Sundsambands Íslands í sex ár
og sem formaður í tvö ár, og í
stjórn Starfsmannafélags
Selfossbæjar í fimm ár og sem
formaður í þrjú ár. Hörður starf-
aði mikið með Leikfélagi Selfoss
og var formaður þess um tíma.
Hann var einn stofnenda Hjóna-
klúbbs Selfoss og var fyrsti for-
maður hans. Frá 2000 tók Hörð-
ur virkan þátt í starfi leikfélags
eldri borgara í Reykjavík, Snúðs
og Snældu, og var formaður þess
í fimm ár alls.
Hörður var sæmdur starfs-
merki UMFÍ, gullmerki Sund-
félags Hafnarfjarðar og Ung-
mennafélags Selfoss, auk
heiðursmerkis Sundsambands Ís-
lands. Hann var kjörinn heiðurs-
félagi Ungmennafélags Selfoss
1986.
Útförin fer fram frá Áskirkju í
Reykjavík í dag, 25. janúar 2019,
klukkan 13.
1956. 3) Anna
Sigurborg, leik-
stjórastjóri, f. 1959,
gift Jóni Gunnari
Grjetarssyni, d.
2007. Börn þeirra
Andri, f. 1984,
Sandra, f. 1989, og
Tinna, f. 1991.
Eiginkona Andra er
Guðríður Gunn-
laugsdóttir, börn
þeirra Viktoría
Draumey, f. 2009, og Stefanía
Lea, f. 2014. Barn Söndru Jón
Skúli Söndruson Róbertsson, f.
2017. 4) Óskar Sigurður, kjötiðn-
aðarmeistari, f. 1961, kvæntur
Arndísi K. Kristleifsdóttur. Börn
þeirra Stefanía Erla, f. 1989, og
Hörður Sævar, f. 1995. Eigin-
maður Stefaníu Erlu er Haukur
Hannesson, börn þeirra Hrafn-
tinna Alba, f. 2014, og Birnir
Theodór, f. 2018. 5) Jón Hugi
Svavar, framkvæmdastjóri, f.
1963, kvæntur Elsu J. Björns-
dóttur (skilin). Börn þeirra Dag-
ný, f. 1988, Björn, f. 1990, og
Sara Ýr, f. 1996.
Hörður kvæntist 30. desember
2005 síðari eiginkonu sinni, Önnu
Margréti Friðbjarnardóttur, f.
15. ágúst 1921, d. 27. sept. 2017.
Anna átti þrjá syni, Atla, Kjartan
og Gísla Ásmundssyni, auk
Elsku hjartans pabbi minn er
látinn, 86 ára að aldri.
Nú ertu farinn, pabbi, farinn á
nýjar slóðir, farinn úr okkar
heimi. Veikindin voru stutt og
komu okkur í opna skjöldu. En
þú stóðst þig svo vel, svo tilbúinn
að fara og lést okkur vita af því.
Það var sárt fyrir okkur sem eftir
lifum, en við skildum, þú varst
orðinn þreyttur og saddur líf-
daga.
Þú áttir gott líf og fórst sáttur,
eiginlega með bros á vör, átaka-
laust. En ég minnist, minnist þín,
alltaf brosandi, kátur, þakklátur
fyrir það sem þú áttir og upplifðir
á degi hverjum. Þú gekkst í gegn-
um nokkur áföll í lífinu, bognaðir
en brotnaðir aldrei, alltaf tilbúinn
að halda áfram, jákvæður og sátt-
ur með lífið og tilveruna.
Ég er svo þakklát fyrir þig
sem pabba. Þú varst alltaf til
staðar, hvattir mann til dáða,
treystir manni og gafst manni
frelsi til að þroskast og verða
sterkur og sjálfstæður einstak-
lingur. Þú varst kátur, duglegur,
góður og hjartahlýr maður með
mikla réttlætiskennd sem þú
sýndir svo vel í gegnum ævistarf
þitt með börnum og ungu fólki.
Þú varst góð fyrirmynd í öllu því
sem þú tókst þér fyrir hendur í
vinnu og félagsstarfi.
Þú og mamma gáfuð mér fal-
lega æsku, fallegt heimili og góð-
ar minningar frá æskuárunum.
Ég man sumrin þar sem við
fórum í tjaldútilegur um landið,
bíllinn pakkaður af börnum, kóte-
lettum, kleinum, harðfiski og flat-
kökum. Ég man að þú lagðist
þvert fyrir framan tjalddyrnar til
verndar fjölskyldunni.
Ég man alla leikina sem farið
var í þegar stórfjölskyldan hittist
á góðum sumardegi, þar varstu
hrókur alls fagnaðar og stýrðir
mannskapnum. Ég man alla bíl-
túrana þar sem farið var í sjáv-
arþorpin og út á bryggju. Ég man
þú sagðir okkur þá frá æskuslóð-
unum, Siglufirði, sjómennskunni
og lífinu á bryggjunni.
Ég man þegar þú fórst með
okkur systkinin í jólabað á að-
fangadagsmorgun í sundlaugina.
Þú kveiktir bara á ljósum í sund-
lauginni sjálfri og við nutum þess
að eiga laugina út af fyrir okkur, í
rökkrinu, í ævintýraljóma
jólanna. Ég man hversu gaman
þér þótti að skreyta húsið með
ljósum á jólum. Ég man þegar þú
skrifaðir á smjörpappír bréf frá
jólasveininum.
Ég man þegar þú fórst með
mig út á sveitavegi og kenndir
mér að keyra. Ég man þegar við
fengum að keyra í sandinum
svarta á Eyrarbakka þar sem við
ræktuðum kartöflur. Ég man
þegar þú leiddir heitt vatn í gos-
brunninn í lóðinni heima á góðum
sumardegi. Ég man hvað þið
mamma nutuð þess að vera sam-
an og vinna í garðinum.
Ég man hvað þú varst bóngóð-
ur, áttir erfitt með að segja nei.
Ég man hvað það var gaman að
fara með þér í vinnu á kvöldin,
þegar þú kenndir krökkunum úr
nærsveitum sund. Ég man
frændfólkið sem kom úr höfuð-
staðnum á sumrin og lærði að
synda hjá Hödda frænda. Ég
man öll systkini ykkar mömmu
sem dvöldu hjá okkur yfir vetur
og kláruðu gagnfræðapróf eða
fóru í iðnnám.
Já, þið mamma studduð marga
og opnuðuð heimili okkar fyrir
mörgum og áttuð marga vini.
Svona væri endalaust hægt að
telja upp það sem ég man.
En elsku pabbi, ég kveð þig
með trega í hjarta en þakklæti
fyrir allt sem þú gafst mér, Jóni
mínum og ekki síst mínum börn-
um og barnabörnum. Þú varst
maður með stórt hjarta.
Anna Sigurborg.
Afi minn, Hörður Sævar
Óskarsson, er látinn. Þessi orð
eru þung, ég á erfitt með að skilja
að þessi maður sem alltaf hefur
staðið við bakið á mér sé nú fall-
inn frá.
Afi Hörður var góður maður,
góður drengur eins og það var nú
kallað í gamla daga. Ég sá hann
aldrei skipta skapi, hann var
brosmildur, skarpur og óendan-
lega góður við barnabörnin sín.
Hann og amma Dagný reyndust
mér afskaplega vel. Ég bjó hjá
þeim einn veturinn þegar ég var
barn, þegar fjölskyldan lék öll á
reiðiskjálfi, búsett í tveimur
heimsálfum. Afi og amma tæmdu
bókaherbergið, keyptu glæný
húsgögn og ég var komin með
mitt fyrsta unglingaherbergi.
Afi var félagslyndur, það þýddi
sjaldan að hringja í heimasímann
hans, best var að hringja í gems-
ann því hann var alltaf eitthvað
að bralla. Þegar hann fór á eftir-
laun hófst lífið fyrir alvöru, hann
fór að starfa með Snúði og
Snældu, leikfélagi eldri borgara.
Skyndilega var afi kominn upp á
svið, á sjónvarpsskjáinn, á hvíta
tjaldið!
Árið 2007 sat ég í kvikmynda-
sal í New York, gestur á nor-
rænni kvikmyndahátíð. Ég hafði
lengi verið búsett erlendis og
naut þess að fá tækifæri að heyra
íslensku. Nema hvað, skyndilega,
birtist afi á skjánum, alls óforvar-
andis.
Þarna var hann, í stuttmynd-
inni Góðir gestir eftir Ísold
Uggadóttur, mynd sem nýlega
hafði verið sýnd á Sundance. Það
er ekki ofsögum sagt að ég hróp-
aði upp yfir mig, fólkið sem sat
fyrir framan mig var ekki par
ánægt með poppkornið sem
skyndilega var kastað yfir þau.
Afi minn var meira kúl en ég held
að ég verði nokkurn tímann.
Svona var afi, alltaf að koma
konu á óvart. Honum tókst einnig
að koma mér á óvart með því að
deyja. Einn daginn tekur hann á
móti mér heima hjá sér í fínu
jakkafötunum með vestinu (bara
svona daglegur klæðnaður, hann
var alltaf svo fínn í tauinu), og
hinn næsta liggur hann á sjúkra-
húsi, alvarlega veikur, og svo
bara farinn.
Ég sakna afa míns afar mikið.
Brynhildur Heiðar- og
Ómarsdóttir.
Fögur rísa fjöll úr sæ,
fangi vefja lítinn bæ
þar sem áður sí og æ
síldin óð og glóði.
Margt er til í minninganna sjóði.
Siglufjörðinn fagran tel
þó feikna oft þar komi él,
óskalandið aldrei sel
eins og óbeislaður glanni.
Margt er til í minninganna ranni.
Eitt er það sem uppúr stóð,
æskuminning ljúf og góð.
Skólasystkin hýr og rjóð,
sumt var þó í algjörlegu banni.
Margt er til í minninganna ranni.
Þó við þættumst fær í flest
fiðursnjórinn gladdi best.
Nöpur gjólan nísti mest
og norðan garrinn harði.
Margt er til í minninganna garði.
Oní fjöru og uppí fjall
fórum við með nestisdall,
dunduðum oft við drullumall
af dugnaði og karpi.
Margt er til í minninganna sarpi.
Æskuárin liðu fljótt,
æviárin hverfa skjótt,
næstum komin niðdimm nótt,
næturvakan góði.
Horfið allt úr minninganna sjóði.
Þessar vísur orti minn elsku-
legi elsti bróðir sem sýnir hug
hans til heimabyggðar okkar.
Hann var stríðinn, umhyggju-
samur og góður stóri bróðir.
Blessuð sé minning hans og
hinna þriggja bræðra minna sem
farnir eru á annað tilverusvið.
Erla.
Nú er vinur minn Hörður S.
Óskarsson horfinn úr þessu jarð-
lífi og vil ég með nokkrum orðum
minnast hans. Ég var búinn að
þekkja hann í rúma hálfa öld.
Fyrstu kynni okkar urðu með
þeim hætti að ég var að kasta
mæðinni eftir 200 m bringusund
á Landsmóti UMFÍ á Laugar-
vatni 1965 þegar hann beygði sig
niður að mér og spurði hálf-
hvassri röddu: Hvar hefur þú
verið að æfa góði? Var ekki nema
von að hann spyrði þegar strákur
norðan af Ströndum var á undan
sundmönnum HSK sem hann var
að þjálfa. Ekki man ég eftir að
okkur færi meira á milli þessa
dýrðardaga á Laugarvatni. En
u.þ.b. 20 árum síðar leitaði ég til
hans þegar við Borgnesingar
unnum að stofnun Sunddeildar
Skallagríms. Fengum við góð ráð
og varnaðarorð sem reyndust
okkur vel.
Í framhaldi af stofnun deildar-
innar tók ég að mér þjálfun hjá
deildinni og hittumst við því oft á
sundmótum. Eftir að ég hætti
sundþjálfun bar fundum okkar
sjaldnar saman. Kynni okkar hóf-
ust raunar ekki að neinu marki
fyrr en hann hóf störf hjá Ung-
mennafélagi Íslands. Þar var
hann réttur maður á réttum stað.
Tók vel á móti fólki og vildi allt
fyrir alla gera. Þá var gaman að
koma á skrifstofu UMFÍ. Hörður
var skemmtilegur félagi. Spaug-
samur og hrekkjóttur og gat ver-
ið hinn mesti grallari. Sagði ég
stundum að hann hlyti að vera
göldróttur fyrst hann væri af
Garibaldaættinni. Hann var
stundum að lenda í óvæntum og
skemmtilegum atvikum. Ætla ég
að segja frá einu slíku sem hann
sagði mér frá. Stjórn UMFÍ og
starfsmenn voru á leið á þing
UDN að Laugum í Sælingsdal.
Áð var í Búðardal og menn fengu
sér í gogginn. Hörður gekk að af-
greiðsluborðinu og sagði við
stúlkuna: ég ætla að fá sneið.
Stúlkan hvarf inn fyrir og eftir
góða stund kom hún með snuð í
hendinni. Hvað er þetta? spyr
Hörður. Nú varstu ekki að biðja
um snuð? segir hún. Nei, ég ætl-
aði að fá jólakökusneið, svaraði
Hörður. Stúlkan ætlaði að skila
snuðinu á sinn stað, en Hörður
keypti það. Sagði síðan söguna á
þinginu við mikla kátínu.
Hörður var góður leikari og
lék mikið með eldri borgurum
síðari hluta ævinnar. Þá var hann
mjög fróður um allt sem varðaði
sundíþróttina. Eftir að við fórum
að slaka á í starfi innan
ungmennafélagshreyfingarinnar
hittumst við sjaldnar. En fundum
okkar bar aftur saman á ný eftir
að ég gerðist stjórnarmaður í
FÁÍA, Félags áhugafólks um
íþróttir aldraðra. En þar hafði
hann verið í stjórn í mörg ár.
Ég og fjölskylda mín viljum
þakka Herði S. Óskarssyni fyrir
góð kynni, vináttu og margskon-
ar aðstoð í starfi mínu innan ung-
mennafélagshreyfingarinnar
Votta ég aðstandendum hans
samúð mína við fráfall hans.
Ingimundur Ingimundarson.
Fyrir um fimmtán mánuðum
lést móðir okkar, Anna Margrét
Friðbjarnardóttir, og nú leggur
maður hennar, ljúfmennið Hörð-
ur S. Óskarsson, í sína ferð til fyr-
irheitna landsins, þar sem þau
bæði verða í náðarfaðmi Drott-
ins. Þau kynntust harðfullorðin
og höfðu bæði átt farsælt líf og
fjölskyldur, en misst maka sína.
Til að stytta sér stundir og
vinna gegn einmanaleika og til-
breytingarleysi tóku bæði þátt í
félagsstarfi aldraðra og þar lágu
leiðir þeirra saman. Bæði voru
þau frá Siglufirði, Hörður kom-
inn af þekktum verkalýðsfor-
ingja, Óskari Garíbaldasyni, og
var hann trúr uppeldi sínu alla tíð
og skipaði sér í stjórnmálum með
þeim, sem vildu verkalýðnum vel.
Okkur þótti á sínum tíma und-
arlegt þegar skyndilega mamma
var farin að hringja sjaldnar til
okkar og sendiferðum fyrir hana
fækkaði til muna og það lá áber-
andi vel á henni. Þetta skýrðist
svo allt þegar hún hringdi og til-
kynnti okkur að hún hefði kynnst
manni, sem hún vildi kynna fyrir
okkur. Frá fyrstu stund líkaði
okkur vel við Hörð og það eru
engar ýkjur að segja að samband
þeirra var einstaklega hamingju-
ríkt og gefandi. Þau undu sér vel
saman og ferðuðust, meðan
heilsa leyfði, og tóku þátt í ýmsu
menningarlífi. Hörður var svo
góður við hana mömmu okkar að
það var alveg unun að fylgjast
með, blíður og lipur við að gleðja
hana og sinna henni. Oft las hann
fyrir hana, en hann hafði fallega
rödd, bæði til söngs og lestrar.
Mamma var að mestu heilsu-
hraust, nema síðasta árið og lést
eftir skamma legu á spítala. Allt-
af mætti Hörður til að sitja hjá
henni á sjúkrahúsinu og hefur þó
vafalaust oft verið slappur
sjálfur. Hann hafði nefnilega
glímt við hjartveiki alllengi og
stóð líf hans tæpt um tíma. Hann
var vikum saman á sjúkrastofn-
unum og eins og hann gerði síðar
mætti mamma hvern einasta dag
til að sitja hjá honum, halda í
höndina á honum og lesa fyrir
hann, segja sögur og fara með
ljóð.
Samband þeirra var einstak-
lega fallegt og var mikið lán fyrir
þau bæði að höndla hamingjuna á
ný eftir að hafa misst ástkæra
maka sína alltof snemma.
Í okkar fjölskyldu ríkir mikið
þakklæti til Harðar fyrir elsku
hans og góðmennsku við mömmu
og umhyggju og gæsku við okkur
í fjölskyldunni, börn og fullorðna.
Nú síðast um jólin kom hann í
jólahangikjöt fjölskyldunnar sem
Kjartan efnir til á jóladag jafnan.
Okkur fannst hann hress í bragði
og bera sig vel. Líklega var hann
veikari, en hann lét uppi.
Við synir Önnu Margrétar og
fóstursystir okkar og nafna
mömmu, Anna Margrét, fjöl-
skyldur okkar og afkomendur
kveðjum heiðursmanninn Hörð
S. Óskarsson með miklu þakklæti
og virðingu. Líf okkar allra varð
ríkara við kynnin af honum og
hamingjan sem mamma og hann
áttu saman var okkur öllum til
ómældrar gleði.
Að lokum er hér ljóð sem
mamma fór gjarnan með þegar
einhver nákominn lést.
Senn er nótt og ljósar lendur
liðins dægur hverfa í skuggann.
Rökkurtjöldin herrans hendur
hafa dregið fyrir gluggann.
(Jón Pétursson)
Kjartan, Anna Margrét, Atli
og fjölskyldur.
Þakklæti er mér efst í huga
þegar ég hugsa til Harðar, eða
langafa Harðar eins og við köll-
uðum hann, eftir að þau tengda-
amma mín, Bíbí, kynntust. Ein-
lægari og hjartahlýrri mann er
erfitt að finna.
Líf þeirra hjóna var einstakt
og til fyrirmyndar fyrir okkur öll
sem stóðum þeim næst. Kærleik-
urinn var áþreifanlegur og virð-
ingin þeirra á milli svo sterk.
Í hvert sinn sem við buðum til
veislu voruð þið ávallt fyrst á
staðinn að fagna með okkur. Þess
mun ég sakna.
Sögurnar sem þú hafðir að
geyma, frá liðinni tíð var unun að
hlusta á. Herði var mikið í mun að
skapa nýjar minningar og lifa líf-
inu til fulls. Baráttuþrek hans
síðustu árin var ótrúlegt. Þrátt
fyrir heilsubrest þá sá hann
ávallt til þess um leið og hann
varð fótafær að hann missti ekki
af mikilvægum fjölskylduvið-
burðum.
Innileg hjartasorg Harðar við
andlát Bíbíar var ein sterkasta
tilfinning sem ég hef upplifað hjá
öðrum. Hún var svo sorgleg en
um leið svo falleg, hún var einlæg
ást. Þú sendir mér bréf, í pósti, að
lokinni jarðarför Bíbíar sem mér
þykir svo vænt um og mun varð-
veita vel.
Með sorg í hjarta kveð ég þig,
minn góði vinur. Ég trúi því að nú
sért þú á góðum stað með góðu
fólki.
Ég þakka þér fyrir allt sem þú
hefur gefið okkur og börnum
okkar, minning þín mun lifa um
ókomna tíð.
Undir háu hamrabelti
höfði drúpir lítil rós.
Þráir lífsins vængja víddir,
vorsins yl og sólarljós.
Ég held ég skynji hug þinn allan,
hjartasláttinn, rósin mín,
er kristallstærir daggardropar
drjúpa milt á blöðin þín.
Æsku minnar leiðir lágu
lengi vel um þennan stað,
krjúpa niður, kyssa blómið,
hversu dýrðlegt fannst mér það.
Finna hjá þér ást og unað,
yndislega rósin mín.
Eitt er það sem aldrei gleymist,
aldrei, það er minning þín.
(Guðmundur G. Halldórsson)
Hrafnhildur Þórisdóttir.
Hörður Sævar
Óskarsson
Allar minningar
á einum stað
MINNINGAR er fallega innbundin bók sem hefur að
geyma æviágrip og allar minningargreinar sem birst
hafa um viðkomandi í Morgunblaðinu eða á mbl.is.
Bókina má panta á forsíðu mbl.is eða á slóðinni
mbl.is/minningar.
Hægt er að kaupa minningabækur með greinum sem birst hafa
frá árinu 2000 til dagsins í dag.