Morgunblaðið - 25.01.2019, Qupperneq 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019
✝ Elsa Guð-mundsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 25. september
1956. Hún andaðist
á líknardeild Land-
spítalans 10. jan-
úar 2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhanna
M. Guðjónsdóttir
(Magga), f. í Vest-
mannaeyjum 6.
september 1923, d. 9. júní 2018,
og Guðmundur Pétursson vél-
stjóri, f. í Hraundal 22. febrúar
1918, d. 16. maí 1960. Systir
Elsu var Sigrún, f. 1947, d.
2003, háskólaprófessor í upp-
eldisfræðum við háskólann í
Þrándheimi. Móðir Elsu giftist
Guðmundi Ingimundarsyni
verslunarmanni 1963. Bróðir
Elsu er Guðjón Ingi, verslunar-
maður, f. 1966.
Maki Elsu er Björgólfur
Thorsteinsson, rekstrarhag-
fræðingur, f. 1956.
Elsa bjó um skeið í New
York og lauk þar háskólagráðu
í hagfræði frá Hunter College.
Síðar bætti hún við meistara-
gráðu frá Erasmus University í
Hollandi. Hún réð sig sem at-
vinnuráðgjafa hjá Atvinnuþró-
unarfélagi Vestfjarða og bjó á
Ísafirði í fjögur ár.
Síðar starfaði hún
sem fjármálastjóri,
einkum hjá hug-
búnaðarfyrirtækj-
um og sem sér-
fræðingur á sviði
fjármála hjá
Reykjavíkurborg.
Elsa tók þátt í
kvennahreyfing-
unni á Íslandi,
stofnun Kvenna-
listans og var í stjórn UNIFEM
í nokkur ár. Hún kenndi salsa í
Kramhúsinu og var
framkvæmdastýra um tíma.
Hún lauk diplómagráðu í
spænsku við Háskóla Íslands
og hélt síðan spænskunámi
áfram við háskólann í Sevilla í
eitt ár.
Fyrir nokkrum árum hóf
Elsa doktorsnám í umhverfis-
þróunarfræði við Háskólann í
Greenwich, Bretlandi. Rann-
sóknir fyrir doktorsverkefni
sitt vann Elsa í Kosta Ríka.
Hún varð að fresta námi fyrir
rúmu ári vegna veikinda og
hafði ekki lokið doktorsritgerð
þegar hún lést.
Útför Elsu fer fram frá
Garðakirkju í dag, 25. janúar
2019, og hefst athöfnin
klukkan 15.
Lífi Elsu systur minnar
verða ekki gerð einföld skil í
fáum línum af einum einstak-
lingi, fyrir það var hún of stór
persóna. Elsa, eins og Sigrún
stóra systir okkar, fór snemma
að heiman út í hinn stóra heim.
Af þeim sökum var hún mér
nokkuð framandi meðan ég var
barn, hún gaf sér þó tíma til að
fylgjast með mér og skrifa mér
uppörvandi bréf þegar ég var
að ströggla í skólanum. Hún
hafði innsæi og hæfileika til að
sjá eiginleika sem aðrir sáu
ekki.
Hún skrifað mér í bréfi þeg-
ar ég var 11 ára að ég gæti
gert hvaðeina sem ég vildi taka
mér fyrir hendur. Elsa var
ævintýrasystir mín. Þegar ég
varð eldri passaði hún upp á að
ég færðist ekki um of á hægri
hlið pólitíkurinnar og las mér
pistilinn þegar ég ákvað að fara
í herskóla í Bandaríkjunum.
Þegar ég lenti í New York tók
hún þó vel á móti mér og lagði
mér línurnar hvernig ég ætti að
greiða þjórfé, 20-25% skyldi
það vera fyrir góða þjónustu,
enda byggðust laun hennar á
þjórfé þegar hún var í námi.
Seinna urðum við systkinin enn
nánari og áttum margar góða
stundir þar sem við ræddum
fjölskylduna, menn og málefni.
Elsa var víðsýn, vel lesin,
fordómalaus og góð fyrirmynd.
Það var ekki fyrr en á seinni
árum sem hún ræddi veikindi
sín við mig og þau áhrif sem
þau höfðu á líf hennar frá 16
ára aldri.
Systir mín var hetja sem
braust til mennta þrátt fyrir
erfiða sambúð með „endómet-
ríósu“. Krabbameinið sem upp-
götvaðist þegar við héldum að
tími endómetríósunnar væri á
enda var bitur endir á lífi henn-
ar.
Ég mun sakna Elsu systur
en á síðustu árum höfum við
séð á eftir Sigrúnu systur, föð-
ur/stjúpa og mömmu. Í gegnum
þann tíma var Elsa klettur og
uppspretta hlýju og kærleika.
Elsa var góður vinur og dóttir,
hún var systir mín.
Guðjón Ingi.
„Vits er þörf þeim er víða
ratar“ segir í Hávamálum, og
nú er mín kæra vinkona Elsa
farin í enn eitt ferðalagið. Við
vissum hvert stefndi, en við-
skilnaðurinn er jafn ótímabær
þrátt fyrir það. Um leið og
söknuðurinn gerir vart við sig
þakka ég gefandi samræður og
óteljandi samverustundir um
árabil.
„Hún Elsa okkar“, þessi fín-
gerða, léttstíga, glæsilega
heimskona, sem bar sig eilíf-
lega eins og dansdrottning,
verður ekki lengur miðpunktur
umræðna í kvöldverðarboðum
eða miðdegisverði vinkvenna á
laugardögum.
Þessi viljasterka, upplýsta,
víðförla og vel lesna kona sem
sífellt vakti athygli okkar hinna
í hópnum sem fékk viðurnefnið
„the feminist mafía“ og höfðum
við flestar kynnst innan
Kvennalistans á níunda ára-
tugnum.
Nú er það undir okkur sjálf-
um komið að setja ástand
heimsmálanna í efnahagslegt
samhengi, koma auga á sjónar-
hornin sem hún lagði okkur til
og gæddu bæði einka- og opin-
bert líf okkar frekari víðsýni og
dýpri skilningi.
Elsa var hámenntaður þró-
unarfræðingur og vann síðustu
árin að rannsóknum og ritun
doktorsritgerðar um umhverf-
ismál, sjálfbærni og hagfræði.
Það er von mín að leiðbeinandi
hennar við Greenwich-háskóla
á Englandi sjái sóma sinn í að
koma ritgerðinni í höfn – eða
einhver á hans vegum.
Rannsóknarvettvangur Elsu
hverfðist um efnahagslegan
ávinning sjálfbærrar ræktunar
í Kosta Ríku, minni annarri
fósturjörð, og á þessum tíma-
mótum þakka ég samveru-
stundir sem við áttum þar í
landi fyrir þremur árum. Fyrst
í „Bláa húsinu“ á Karíbahafs-
ströndinni og síðar við rann-
sóknarmiðstöðina CATIE í
Turrialba-héraði. Hangs í
hengirúmum og samræður
fram eftir kvöldum við undir-
spil engisprettna og óþekktra
frosktegunda hljómar nú aftur
fyrir eyrum mér.
Á þeim tíma undraðist ég
þróttleysi Elsu og orkuþurrð,
en veit nú að meinið sem varð
henni að aldurtila var þá þegar
farið að búa um sig í iðrum
hennar.
Ég mun að eilífu búa að því
sem ég lærði af Elsu og brosi í
kampinn yfir uppátækjum sam-
ferðaáranna.
Ekki hvað síst kunni ég að
meta hvernig hún virti fólk fyr-
ir hvað það var frekar er hvað
það gerði eða afrekaði.
Á þessari stundu er hugur
minn hjá bróður Elsu og fjöl-
skyldu hans og samferðamanni
hennar og sálufélaga, Björgólfi.
Megi tíminn sefa sorgina og
fylla tómarúmið – einn dag í
einu.
Hólmfríður Garðarsdóttir.
Þegar ég var barn bauð Elsa
mér á listasýningu á Kjarvals-
stöðum. Við gengum inn og fór-
um inn í listasal hægra megin í
byggingunni. Inni í salnum
gengum við um og Elsa út-
skýrði fyrir mér mismunandi
hluti tengda listinni og lista-
fólkinu. Það voru fáir inni í
salnum og við ræddum saman
um verkin og fleira. Í dag man
ég lítið eftir listamönnunum og
verkunum sem voru á sýning-
unni. Það sem ég man er þessi
stund okkar Elsu saman. Hún
sýndi mér áhuga og ég hafði
svo innilega gaman af því að
kynnast frænku minni betur og
eyða tíma með henni.
Elsa var dugleg að kynna
mig fyrir heimi listarinnar og í
dag hef ég enn áhuga á lista-
söfnum og listafólki.
Elsa var ævintýrafrænka
sem ferðaðist mikið og var
ótrúlega klár. Hún hefur verið
stór þáttur í því að móta hver
ég er í dag. Hún var og er
fyrirmynd mín.
Ég mun ávallt muna eftir
stundunum okkar saman þar
sem við spjölluðum og nutum
nærveru hvor annarrar. Ég
lærði af henni að ég get gert
hvað sem ég vil sama hvað og
ég á ekki að sætta mig við neitt
minna.
Rakel Hanna, bróðurdóttir.
Það var mikil gæfa að fá að
alast upp í nágrenni við Möggu
og fjölskyldu í Bogahlíðinni.
Guðmundur maður hennar var
barngóður og hjálpsamur.
Hann var gjarnan að stúss-
ast í frímerkjum en þau og
steinasafnið í stofunni vöktu
forvitni barnsins.
Magga var einstaklega góð
kona.
Á unglingsárunum urðum við
Magnús Ari, barnabarn Möggu
og systursonur Elsu, vinir og
ferðafélagar. Um leið skapaðist
tækifæri til að kynnast Elsu
betur. Hún var konan sem
hlustaði á óperur og hafði lifað
lífinu.
Ferðalög hennar opnuðu
augun fyrir stærri veröld.
Þegar við Magnús Ari sner-
um heim úr lestarferð til Evr-
ópu sagði Elsa að nú værum við
orðnir heimsmenn. Hún sagði
það á margræðan hátt, með dá-
lítilli stríðni, sem gerði augna-
blikið minnisstætt.
Það leyndi sér ekki að Elsa
var glæsileg kona. Það var yfir
henni glæsileiki og fágun.
Mikill harmur er kveðinn að
fjölskyldu hennar. Daginn sem
hún lést var eitt ár og einn dag-
ur liðinn frá fráfalli Jóns Stein-
ars Guðmundssonar, sem
kvæntur var Sigrúnu, systur
Elsu. Bæði kvöddu þau alltof
snemma.
Baldur Arnarson.
„Elsa salsa“ – þannig var
þessi álfkynjaða kona fyrst
kynnt fyrir mér. Það glóði á
rauða hárið og brosið var breitt
og geislandi. Og svo var það
hlébarðakápan sem gaf til
kynna að sú sem hana átti væri
ekki bara glæsileg heimskona
heldur líka svolítið bóhem. Elsa
var hláturmild, víðsýn og for-
dómalaus og aldrei man ég eftir
að af vörum hennar hryti
styggðaryrði um menn eða mál-
efni.
Hún bjó til stórkostlegar
veislur með framandi réttum og
áhugaverðum gestum og aldrei
datt botninn úr samræðunum
því Elsa var fjölfróð, elskaði að
rökræða, fræða, dansa, hlæja.
Jafnvel hagfræði (sem ekki var
ofarlega á mínu áhugasviði) gat
hún útskýrt af lifandi eldmóði
þannig að maður taldi sig skilja
og var í lok samræðna jafnvel
kominn á þá skoðun að hag-
fræði væri ótrúlega spennandi.
Ekki síst umhverfisþróunar-
fræðin sem Elsa lagði stund á
síðustu ár og fjallaði um hag-
rænt mikilvægi líffræðilegs
fjölbreytileika jurta og dýra
fyrir mannkynið og heiminn all-
an.
En Elsa var ekki bara góð að
miðla sinni eigin vitneskju og
gera mann forvitinn um það
sem hún var að sýsla við, held-
ur var hún ávallt áhugasöm um
viðfangsefni og skoðanir ann-
arra. Hún var samræðusnilling-
ur, gáfuð og greinandi, en gat
svo snúið öllu efninu upp í grín,
sett músíkina í botn og byrjað
að dansa. Elsa mín salsa. Og
hverjum öðrum hefði dottið í
hug að mana vini sína í róðrar-
keppni á sexæringi, sumar eftir
sumar, og gefast ekki upp fyrr
en gullið var í höfn?
Þegar ég horfi í víðsjá tím-
ans og leita að mynd Elsu í
árafjöldanum síðan við hittumst
fyrst þá er orðið sem kemur
fyrst upp í hugann gleði. Hún
sýndi okkur vinum sínum
gleðina en hélt fyrir sig glím-
unni við sársauka sjúkdómsins
endómetríósu sem hún bar.
Elsa ritaði magnaða grein í
Kvennablaðið þar sem hún lýsir
því hvernig er að lifa með þess-
um króníska og sársaukafulla
sjúkdómi. En hún bar ekki
þrautir sínar á torg, dró sig í
hlé meðan versti sársaukinn
gekk yfir og þegar hún birtist
aftur með sitt geislandi bros
gat engan grunað hvað hún
hafði kvalist.
Á sama hátt bar hún af
æðruleysi sjúkdóminn sem tók
hana frá okkur, hún var meist-
ari í sársauka.
Elsa ritaði aðra grein um
Gyðjurnar í Sevilla, Maríu-
myndirnar sem kaþólikkar
heita á í bænum sínum. Hún
hreifst af því að sjá kvenímynd
á altarinu í kirkjunum í Sevilla
og tók tali konurnar sem þang-
að komu til bæna og ræddi við
þær um Maríutrúna. Maríu-
gyðjurnar eru nefndar eftir ein-
kennandi eiginleikum hverrar
og einnar og bera nöfn eins og
Sólarfrúin, Friðarfrúin, Eng-
lafrúin, Tárafrúin, Hugsvölun-
arfrúin, Vonarfrúin, Þján-
ingafrúin. Allar eru þær heilög
María og tilbeðnar á eigin for-
sendum. Elsa heillaðist af þess-
ari Maríutrú sem var mjög í
takt við femínískar skoðanir
hennar.
Það útskýrir ef til vill hvers
vegna hún kaus að vera í Ása-
trúarsöfnuðinum þar sem eru
gyðjur jafnt og guðir, en er þó
fyrst og fremst lýsandi fyrir
víðsýni hennar í trúmálum sem
öðru.
Með söknuð í hjarta kveð ég
Elsu. Samúðarkveðjur sendi ég
Björgólfi, ástvini hennar í fjór-
tán ár, og einnig Guðjóni bróð-
ur hennar og hans fjölskyldu.
Harpa Björnsdóttir.
Elsa Guðmundsdóttir var
yndisleg kvenvera, fáum lík.
Við kynntumst á námsárum, í
miðju alheimsins, Stóra eplinu,
atorkusöm, áhyggjulaus og lífs-
glöð í hjarta East Village,
ærslafullra heimkynna okkar
þá. Við urðum, mér til happs,
mátar við fyrstu kynni.
Elsa var ljúf, skörp, hrein-
skiptin og glettinn, rökvís og
með ríka réttlætiskennd. Hún
var brött og áræðin, þótti gam-
an að geisa fram og beita gáf-
um sínum og þekkingu. Taka
slaginn í gáskafullri umræðu á
sviðum þjóðfélagsmála, hag-
fræði – og allra mögulegra flók-
inda og mótsagna hinnar mann-
legrar tilveru. Hún var nett á
fæti og létt í lund og með títt
blik í augum. Í aðra röndina
harðákveðin, sjálfsörugg og
sjarmerandi. Ávallt stutt í dill-
andi hástemmdan hlátur, tíst-
andi jákvæðni og snjöll lokaorð
en var jafnframt í eðli sínu sem
viðkvæmt blóm; fíngerð bæði til
lundar og líkama og sérlega til-
finninganæm. Sannkölluð dama
og öndvegiskona. Íslensk í húð
og bylgjandi hár en jafnframt
geislandi heimsborgari er dáði
svo dátt hinn gjörvalla latneska
menningarheim.
Sem slík þeysti hún ótrauð
um grundir veraldar. Eftir veru
í HÍ sótti hún nám á hæstu
stigum á Bretlandi, Hollandi,
Spáni og Kosta Ríka. Sárþjáð
sýndi hún mikinn kjark og
æðruleysi gagnvart skugga
langvarandi lasleika er óvæginn
fylgdi lífshlaupi hennar. Þrátt
fyrir þær hömlur lifði hún í
ljósi lífi sínu ríkulega til fulls,
efldi glöð dáð sína og hugsjónir,
alltaf jafn fróðleiksfús og gef-
andi. Fór með himinskautum
og opnum hug sínar ævintýra-
legu leiðir og stóð föst á sínu.
Vinahópurinn frá árunum í
New York og fleiri góðir, síðar
meir, margir úr samfélagi
fræða og fjölmenningar er
bundust Elsu sterkum vina-
böndum munu ávallt minnast
tilvistar hennar með mikilli
hlýju og kærleik; þeirrar glað-
beittni, göfgi, dugnaði og virð-
ingarríku nærveru sem ætíð
fylgdi lífsferli hennar. Fyrir
hönd þessa hóps votta ég að-
standendum öllum okkar
dýpstu hluttekningu, þá sér-
staklega Erlu, hennar rauð-
hærðu sálarsystur og lífsföru-
nautarins góða, Björgólfs, sem
ávallt var henni stoð og stytta.
Við óskum enn öll elsku Elsu
blessunar á sinni för.
Guðjón Bjarnason.
Hver er hún þessi kona sem
gengur tíguleg niður á tanga?
Við komumst fljótlega að því,
við vorum nágrannar og vinir
upp frá því. Hittumst svo til
daglega árin sem hún Elsa bjó
á Ísafirði. Börnin hændust
strax að henni, hún kunni að
uppfræða með sögum um allt
milli himins og jarðar. Elsa tók
ógleymanlegar ljósmyndir af
ýmsum viðburðum í fjölskyld-
unni. Hún gætti okkar í blíðu
og stríðu, í næmni sinni vissi
hún hver við vorum. Í mötu-
neyti Stjórnsýsluhússins sat
hún við borðið hans Gunnars.
Þar sátu karlar með sterkar
skoðanir sem hún fann sig með,
rökræddi og jafnvel ögraði með
víðáttumikilli þekkingu og
visku. Allri ósvífni svaraði hún
með dillandi hlátri.
Elsa var kjarkmikil og fór
sínar leiðir, hún réð sig vestur
á firði til að stýra atvinnuupp-
byggingu fjórðungsins sem þá
var í djúpri lægð og afraksturs
hennar vinnu gætir enn víða í
fjórðungnum. Það var ekkert
tiltökumál fyrir Elsu að halda
ein, út af fyrir sig, jól í myrkr-
inu í Þernuvík sambandslaus
við umheiminn. Hún fór með
Maríubæn áður en hún lagði í
Kinnina og horfði á snjóflóðið
falla fyrir framan sig. Vinirnir
komu, haldin voru ótal matar-
boð, ljósmyndasýningar og
heimsborgaralegt spjall sem
tengdi mann við umheiminn.
Dans langt fram á nætur, mikil
gleði en það fór heldur ekki
framhjá okkur að ákveðinn
skuggi hvíldi yfir Elsu vegna
veikinda hennar. Þegar hún svo
hitti lífsförunaut sinn Björgólf
lék lífið við hana og þeirra tími
saman var gefandi og góður.
Sorg og söknuður hennar
nánustu er mikill en minning-
arnar sterkar. Í hugum okkar
tilheyrði Elsa þessum bæ og
hélt tryggð við hann til dauða-
dags.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
kveð ég stórbrotinn persónu-
leika og góða manneskju með
söknuði. Björgólfi, Guðjóni
Inga og fjölskyldu votta ég
samúð mína.
Margrét Gunnarsdóttir.
Það er erfitt að hugsa til
þess að Elsa sé farin og að við
munum ekki hittast aftur. Þeg-
ar ég hugsa um stundirnar sem
við áttum saman gegnum árin
þá fyllist hugur minn hlýju því
hún hafði svo margt gott að
gefa.
Elstu minningarnar eru frá
Vestmannaeyjum, þegar hún
kom í heimsókn í Hlíðardalinn
þar sem fjölskyldan okkar hafði
búið um langa tíð. En eftir-
minnilegasta samveran var
heimsókn okkar Jóa með
Andra, elsta syni okkar, til
New York þar sem hún bjó um
árabil. Við vorum á leið til
Flórída en ákváðum að milli-
lenda í New York og heilsa upp
á Elsu frænku sem var þar í
hagfræðinámi.
Hún opnaði bæði hjarta sitt
og húsnæði fyrir okkur, en
sagði að við þyrftum að gæta
að vinkonu hennar Lucy sem
bjó með henni. Við komumst að
því eftir stutt samtal að Lucy
var ekki öll þar sem hún varð
séð, þetta var nefnilega mús.
Þessar fréttir settu að mér ugg,
ekki síst í ljósi þess að engin
hurð var á svefnherberginu
okkar. Við hlóðum því varnar-
múr úr ferðatöskum fyrir hurð-
aropið og sömdum við Elsu um
að setja músagildrur við tösk-
urnar. Við komum með matar-
pakka frá Möggu frænku, móð-
ur Elsu, og það varð að
samkomulagi að kindakæfan
hennar Möggu yrði besta beit-
an fyrir músina. Mér varð ekki
svefnsamt um nóttina, heyrði
alls konar hljóð en samt ekki
smellina þegar gildrurnar festu
þrjár mýs sem höfðu gert sig
heimakomnar í íbúðinni án þess
að greiða leigu fyrir. Elsa varð
hissa á þessum fjölda gesta en
þetta hafði ekki truflað hana
mikið enda vön að umgangast
menn og málleysingja af jafn-
mikilli virðingu.
Hún sýndi okkur borgina og
sigldi með okkur á Hudson-
ánni og við fengum leiðsögn um
helstu kennimerki New York
borgar frá heimamanni. Hún
sagði að við þyrftum ekkert að
óttast, horfa bara í augun á
fólki og þá myndum við sjá að
þetta væri allt gott fólk. Þannig
viðhorf hafði hún til lífsins og
leitaði að tækifærum til að gera
gott og gefa af sér. Þetta var
ógleymanlegur tími og gott
tækifæri til að kynnast þessari
skemmtilegu frænku minni
betur.
Síðasta sjómannadag hitti ég
þau Björgólf við Hafnar-
fjarðarhöfn því mig langaði að
upplifa stemminguna sem ég
var vön frá þessum degi í Vest-
mannaeyjum þegar ég var
barn.
Andri, sem heimsótti hana
með okkur til New York, var að
sýna björgun á þyrlunni fyrir
utan höfnina og svo gekk ég
beint í flasið á Elsu. Það var
svo gaman að rifja upp gamlar
minningar með henni og ekki
grunaði mig að hún væri þá
þegar komin með þennan alvar-
lega sjúkdóm sem sigraði hana
að lokum.
Ég er þakklát fyrir yndisleg-
ar minningar og bið Guð að
blessa minningu Elsu frænku
og að styrkja Björgólf og ætt-
ingja hennar alla.
Inga Hrönn Þorvaldsdóttir.
Í dag er kær vinkona okkar,
Elsa Guðmundsdóttir, kvödd í
Garðakirkju og er hennar sárt
saknað. Minning hennar lifir
svo sannarlega með okkur.
Elsa var einstök, heillandi og
klár, femínisti og jafnaðar-
maður.
Mikil heimskona enda búsett
Elsa
Guðmundsdóttir