Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 37

Morgunblaðið - 25.01.2019, Page 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JANÚAR 2019 News from Nowhere er heiti sýn- ingar sem Þorgerður Ólafsdóttir opnar í Listamönnum galleríi á Skúlagötu 32 í dag, föstudag, klukkan 17. Á sýningunni sýnir Þorgerður ný og eldri verk sem fjalla um stað og staðleysu og það þegar mörkin milli vísinda- skáldskapar og raunveruleika skarast. „Miðja sýning- arinnar snýst í raun um Surts- ey,“ segir Þor- gerður. „Ég hef mikið velt tilurð og sögu eyj- unnar fyrir mér og í Morgunblaði frá því fyrir 55 árum rakst ég á grein um frönsku garpana sem stigu fyrstir þar í land 6. desember árið 1963. Það vakti mjög mikil viðbrögð þegar þeir stungu þar niður franska fán- anum. Surtsey var ekki komin með nafn á þessum tíma, þetta var stað- ur í mótun, en þessir náungar voru sendir af tímaritinu Paris Match, sem greiddi fyrir leiðangurinn, og ætluðu sér að skilgreina staðinn og slá eign sinni á staðinn, þó það hafi verið gert meira í gríni en af al- vöru. Frakkar urðu á undan Ís- lendingum til að nema þetta land. Ég var mikið að hugsa um þetta fyrir um fimm árum, þegar Surts- ey var 50 ára, og hef verið að leita að ljósmyndum og sérstaklega filmu sem var tekin þegar land- gangan átti sér stað. Hún fannst eftir mikla leit á Kvikmyndasafni Íslands en aðeins þriggja sekúndna bútur, hluti af miklu lengri filmu, en negatífan er glötuð.“ Þorgerður segir að þessi saga hafi orðið efniviður sýningarinnar. „Þegar eitthvað svona tekur annað yfir hjá manni þá er mjög gott að koma því frá sér,“ segir hún um sýninguna. „Ég vil minna á þennan atburð.“ Á sýingunni eru ljósmyndir, prent og lágmyndir. Eitt verkið er prent sem sýnir feril Surtseyjar frá því hún varð að eyju og til árs- ins 2130 þegar hún hefur breyst í sker. Þorgerður er með meistara- gráðu í myndlist frá Glasgow School of Art og lauk BA í mynd- list frá LHÍ. Hún hefur meðal ann- ars sýnt verk sín í Harbinger gall- eríi, Listasafni Árnesinga, á Stöðum / Places, í Verksmiðjunni á Hjalteyri og í Listasafni Reykja- víkur. Landnám Frakkar tóku land í Surtsey og settu þar niður franska fánann. Sýningin hverfist um Surtsey  Þorgerður sýnir hjá Listamönnum Þorgerður Ólafsdóttir Konulandslag er heiti gjörnings sem danshöfundurinn Anna Kol- finna Kuran fremur ásamt hópi kvenna í Mengi við Óðinsgötu í kvöld, föstudag, klukkan 21. Verður það nýjasti gjörningurinn og tilraun Önnu Kolfinnu í samnefndu lang- tíma rannsóknarverkefni, þar sem hún, samkvæmt tilkynningu, „skoð- ar, skapar og ber kennsl á hin ýmsu landslög kvenna í samfélaginu. Í verkefninu vinnur hún með hug- myndir um rými og kvenlíkamann, hvar og hvernig hann birtist og hvar hann er ósýnilegur. Hvar eru konur velkomnar og öruggar og hvar eru þær óvelkomnar? Hvar er rými fyrir konur og hvar þurfa þær að gera innrás til þess að vera með? Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á sambönd og tengsl kvenna gegnum kynslóðir og samstöðu.“ Blaðamaður varð fyrir tveimur árum vitni að gjörningi Önnu Kol- finnu í New York, þar sem hún gekk ásamt hópi annarra kvenna hægt og í hnapp um götur neðar- lega á Manhattan og var þar um þátt í mastersverkefni hennar að ræða. Hún segist síðan hafa unnið áfram með það verkefni á ýmsum stöðum og er gjörningurinn í kvöld hluti af því. „Í þessu rannsóknarverkefni mínu er ég að skoða rými og kyn og tengslin þar á milli. Sérstaklega konur í því samhengi og hvar þær upplifa að það sé ekki pláss fyrir þær. Og í sögulegu samhengi hefur oft ekki verið pláss fyrir konur; þó að upp á síðkastið hafi mjög margt breyst held ég að þetta sjáist ennþá, til að mynda í atvinnulífinu. Sýni- leiki kvenna er líka áhugaverður út frá umræðu síðustu daga um mál- verkin í Seðlabankanum – konur hafa lengi verið til sýnis en ekki endilega sýnilegar. Ég geri greinar- mun þar á.“ Anna Kolfinna segir að í gjörn- ingnum í kvöld langi hana til að taka Mengi yfir og fylla rýmið af konum. „Þetta er einföld hugmynd og til að það náist hef ég fengið stóran hóp af ótrúlegum konum til að taka þátt. Ég vona að töfrarnir felist að hluta í því hvað við verðum margar. Mengi er tiltölulega lítið rými svo ég vonast til að þetta verði sterkt.“ Þurfa karlar þá að standa úti og fylgjast með gegnum gluggann? „Nei,“ svarar hún og hlær. „Karlar eru mjög velkomnir sem áhorfendur. Allir eru velkomnir. En við flytjendurnir erum bara konur og reynum að eigna okkur þetta svæði í eina kvöldstund.“ Anna Kolfinna kýs að nota gjörn- inginn sem miðil sinn í umfjöllun um ákveðna kynjapólitík en hún skilgreinir sig sem danshöfund. „Einhverjum finnst ég kannski ekki vera að gera dansverk og það er allt í lagi. Ég er með dans- bakgrunn og lít á þetta sem dans- verk. Ég er að vinna með kóreó- grafíu, er með marga líkama og breyti hreyfingum hópsins inni í Mengi við að fylla inn í rýmið og búa til munstur.“ efi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Konulandslag Danshöfundurinn Anna Kolfinna Kuran æfði gjörninginn í gærkvöldi með hópi kvenna. Hyggst fylla Mengi af konum í gjörningnum  Konulandslag Önnu Kolfinnu Kuran í Mengi í kvöld Stan & Ollie Sannsöguleg mynd um Stan Laurel og Oliver Hardy, eða Steina og Olla, eitt vinsælasta gríntvíeyki kvikmyndasögunnar. Í kvikmynd- inni er sjónum beint að ferli þeirra undir lokin. Leikstjóri er Jon S. Baird og með aðalhlutverk fara Steve Coogan og John C. Reilly. Metacritic: 75/100 Skýrsla 64 Nýjasta myndin um rannsóknarlög- reglumennina Carl Mørk, Assad og Rose hjá Deild Q. Þeir hefja á ný rannsókn á 20 ára gömlu máli og byrja að rekja óljósa slóð. Leik- stjóri er Christoffer Boe og með aðalhlutverk fara Fares Fares og Nikolaj Lie Kaas. Meðaleinkunn danskra miðla er 4 stjörnur af 6. The Mule Nýjasta kvikmynd Clints Eastwood sem leikur í henni garðyrkjufræð- ing í fjárhagskröggum sem grípur til þess ráðs að smygla eiturlyfjum inn fyrir mexíkóskan eiturlyfja- hring. Sagan er byggð á sönnum at- burðum og aðrir helstu leikarar eru Bradley Cooper og Laurence Fish- burne. Metacritic: 58/100 Mary Queen of Scots Kvikmynd um Maríu Stuart Skota- drottningu sem segir af þeirri fyrir- ætlun hennar að steypa frænku sinni, Elísabetu II. Englandsdrottn- ingu, af stóli. Henni tókst það ekki og hlaut hún dauðadóm fyrir. Leik- stjóri er Josie Rourke og með aðal- hlutverk fara Saoirse Ronan og Margot Robbie. Metacritic: 60/100 The Favourite Snemma á 18. öldinni á England í stríði við Frakkland. Hin veik- byggða drottning Anne er við völd en náin vinkona hennar Sarah stjórnar landinu í hennar stað. Þeg- ar ný þjónustustúlka, Abigail, tekur til starfa tekur Sarah hana undir sinn verndarvæng. Leikstjóri er Yorgos Lanthimos og í aðahlut- verkum eru Olivia Colman, Emma Stone og Rachel Weisz. Metacritic: 90/100 Damsel Gamanvestri með Robert Pattinson og Miu Wasikowska í aðalhlut- verkum sem segir af auðugum landnema sem ferðast þvert yfir Bandaríkin til að geta kvænst ást- inni í lífi sínu. Leikstjórar eru Dav- id og Nathan Zellner. Metacritic: 63/100 Gaman og drama Spaugilegir Steve Coogan og John C. Reilly í Steina og Olla. Bíófrumsýningar ICQC 2018-20 Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is BELGINGUR mokka hanskar 6.200 BÁRA leðurhanskar 5.900 ÞYTUR prjónahúfa 9.200 SKJÓL leðurhúfa m/refaskinni 35.800 Velkomin í hlýjuna EIR úlpa m/refaskinni 158.000 ÞOKA ennisband 12.900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.