Morgunblaðið - 30.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - 30.01.2019, Síða 2
„Þetta á sér langa sögu, en hefur versnað,“ segir Alma D. Möller land- læknir. Um þriðjungur starfsmanna Landlæknisembættisins hefur fund- ið fyrir áhrifum myglu í húsnæði gömlu Heilsu- verndarstöðvar- innar við Baróns- stíg þar sem skrifstofa emb- ættisins er til húsa. „Þetta eru orð- in yfir 20 manns sem hafa kvartað og þar af eru sex sem geta ekki unnið í húsinu og eru því komnir annað,“ sagði Alma við mbl.is í gær. Alls starfa um 60 manns hjá embættinu og var byrjað að skoða hvort mygla leyndist í hús- inu áður en Alma tók við embætti vorið 2018. Haft var eftir eiganda hússins í fréttum RÚV að bæði hann og land- læknisembættið hefðu fengið fyrir- tæki til þess að rannsaka húsnæðið og niðurstöður hefðu stangast á. Því hefði verið kallaður til óháður mats- maður sem nú væri að störfum. Spurð hvort einhverjir hlutar hús- Tuttugu hafa kvart- að vegna myglu  Sex starfsmenn landlæknis færðir til Morgunblaðið/Eggert Embætti landlæknis Sex starfs- menn geta ekki unnið í húsinu. Alma Möller næðisins séu ónothæfir sökum myglu segir hún svo ekki vera. Fólk hafi hins vegar verið fært til innan- húss eftir því sem þurft hefði. „Það eru þó svæði sem eru verri en önnur,“ segir Alma og kveður brýnt að málin komist í lag, þar sem þetta hafi töluverð áhrif á starfsemi emb- ættisins. „Eins og gefur að skilja þar sem við höfum þurft að finna starfs- mönnunum sex vinnuaðstöðu í heil- brigðisráðuneytinu í Skógarhlíð.“ Alma er sátt við störf óháða mats- mannsins sem nú skoðar húsið, en telur niðurstöðu ekki að vænta alveg á næstunni. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þrátt fyrir mikil fundahöld í kjara- viðræðum Starfsgreinasambands Ís- lands og Samtaka atvinnulífsins eru viðsemjendurnir að takmörkuðu leyti farnir að takast á um launalið væntanlegra samninga. Nú eru fjór- ar vikur liðnar frá því að kjarasamn- ingar á almenna vinnumarkaðinum losnuðu. Í dag er boðað til sjötta sátta- fundarins í kjaradeilu SA og verka- lýðsfélaganna fjögurra sem vísuðu deilunni til Ríkissáttasemjara. Í gærmorgun hittust samninga- nefndir SA og SGS fyrir hönd aðild- arfélaganna sem ekki hafa vísað kjaradeilunni til sáttameðferðar. Einnig voru haldnir fundir í undir- hópum og nefndum um afmörkuð mál, samkvæmt upplýsingum Björns Snæbjörnssonar, formanns SGS. „Það þokast allt. Það er enginn gassagangur en það er gangur. Við höldum áfram að ræða um hin ýmsu málefni í undirhópum,“ segir Björn. Hann segir frekar rólegt yfir þessu en samt miði viðræðum áfram. Spurður hvort farið sé að ræða að einhverju ráði um launahækkanir segir hann að menn hafi ekki farið mikið í gegnum það en séu þó að skoða ýmis mál, m.a. launatöflur og fjölmargt fleira, og auk þess stytt- ingu vinnuvikunnar. Engin ný útspil stjórnvalda Ekki hafa komið neinar nýjar til- lögur eða útspil frá stjórnvöldum frá því að átakshópur um húsnæðismál skilaði tillögum sínum um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðuna á húsnæðismark- aði í seinustu viku. Tillögurnar eru sagðar mikilvægt innlegg í yfirstandandi kjaraviðræð- um en gagnrýnt er að ekkert sé þar fjallað um hvernig þær verði fjár- magnaðar. Í pistli á vefsíðu Sam- iðnar, sambands iðnfélaga, er tekið undir þetta. Margt gott sé í tillög- unum en það séu mikil vonbrigði að ekki skuli fylgja tillögur að fjár- mögnun svo hægt sé að hrinda þeim strax framkvæmd. Það sé megin- veikleiki tillagnanna. ,,Margar gætu þurft nokkuð lang- an aðdraganda til að komast í fram- kvæmd, t.d. framkvæmdir á ríkislóð- um á Keldum eða uppbygging samgangna. Eitt það sem hefur orðið banabiti margra góðra tillagna um úrbætur í húsnæðismálum er að þeim hefur ekki fylgt fjármagn. Framhjá þessu er skautað býsna létt í tillögugerðinni og er t.d. fjármögn- uninni vísað til ASÍ og SA og er þar væntanlega verið að vísa til að fjár- magnið eigi að koma úr lífeyrissjóð- unum,“ segir í pistli Samiðnar. Aðrar tillögur s.s. um leiguvernd og skipulags- og byggingamál snúi að Alþingi og sveitarfélögum og þar þurfi ekki að koma til samningagerð aðila vinnumarkaðarins. Þokast en „enginn gassagangur“  Fjórar vikur eru frá því að kjarasamningar runnu út  Mikið fundað í undirhópum um afmörkuð mál  Samiðn gagnrýnir veikleika í tillögum átakshóps í húsnæðismálum  Sjötti sáttafundurinn í dag Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Óvissa Yfir 80 samningar meirihluta launafólks á almenna vinnumark- aðinum runnu út um áramót og samningar eru enn ekki í sjónmáli. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að eins og málið liggi fyrir á þessu stigi séu verulegar líkur á því að framkvæmd hönnunar- samkeppni og val tillögu vegna við- byggingar við stjórnarráðshúsið hafi verið ólögmæt. Því hefur samnings- gerð við vinningshafa, Kurt og Pí ehf., verið stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um opinber inn- kaup. Skúli Magnússon, formaður nefnd- arinnar, segir í samtali við Morgun- blaðið að um bráðabirgðaákvörðun sé að ræða, þar sem hún hafi haft lykil- þýðingu fyrir áframhaldandi meðferð málsins. Segir Skúli ekki ljóst hve- nær endanleg niðurstaða nefndarinn- ar í kærumálinu liggi fyrir, en bætir við að það sé í hefðbundnu ferli. Breytingar gerðar á lýsingu Efnt var til hugmyndasamkeppni um viðbyggingu við stjórnarráðshús- ið í apríl síðastliðnum í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins og voru niðurstöður samkeppninnar kynntar 3. desember síðastliðinn. Hlaut til- laga frá arkitektastofunni Kurt og Pí þar 1. verðlaun, en tillaga Andrúms arkitekta ehf. varð í öðru sæti. Andrúm arkitektar ehf. kærðu út- boðið, sem hugmyndasamkeppnin byggðist á, hinn 17. desember og krafðist stofan þess að ákvörðunin um að veita Kurt og Pí 1. verðlaun yrði felld úr gildi og að kærunefnd út- boðsmála léti uppi álit sitt á skaða- bótaskyldu. Í ákvörðun kærunefndar var eink- um horft til svara dómnefndarinnar til þátttakenda í samkeppninni, en fyrri svör dómnefndar bárust 23. maí 2018 og seinni svör 30. ágúst 2018. Segir í ákvörðun kærunefndar að fyrri svör dómnefndarinnar hafi mátt skilja á þá leið að svigrúm til þess að víkja frá húsrýmisáætlun og nettó- stærð viðbyggingarinnar væri tak- markað. Í seinna svarinu hafi hins vegar verið vikið frá þeirri afstöðu og keppendum gefið frelsi til að skera niður og samnýta einstök rými og jafnframt að meta hvernig þeim niðurskurði og/eða samnýtingu yrði best hagað. Telur kærunefndin ljóst að í reynd hafi verið gerðar breytingar á lýs- ingu umræddrar hönnunarsam- keppni eftir fyrri fyrirspurnartímann í maí, og að það hafi verið verulega óljóst hvort og að hvaða marki þátt- takendum væri heimilt að víkja frá húsrýmisáætlun og hvernig slík frá- vik myndu horfa við heildarmati dómnefndar á tillögunum. Hafna kröfum sóknaraðila Varnaraðilar í málinu, Kurt og Pí ehf. annars vegar og Framkvæmda- sýsla ríkisins og forsætisráðuneytið hins vegar skiluðu í gær og í fyrradag viðbótargreinargerðum til kæru- nefndarinnar um afstöðu sína til málsins, en þar er kröfum Andrúms arkítekta ehf. hafnað. Segir meðal annars í greinargerð Framkvæmda- sýslu ríkisins og forsætisráðuneytis- ins að ekki hafi verið sýnt fram á að þeir annmarkar hafi verið til staðar á framkvæmd keppninnar sem hafi takmarkað möguleika kæranda til þess að hljóta 1. sæti. Andrúm arkitektar ehf. vildu ekki tjá sig um ákvörðun kærunefndar að þessu sinni. Viðbygging Kærunefnd útboðsmála hefur stöðvað samningsgerð milli ríkisins og Kurt og Pí um viðbyggingu við Stjórnarráðið, þar sem verulegar líkur eru á því að framkvæmd hönnunarsamkeppninnar hafi verið ólögmæt. Samningsgerð um viðbyggingu stöðvuð  Framkvæmd hönnunarsamkeppni mögulega ólögmæt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.