Morgunblaðið - 30.01.2019, Page 4

Morgunblaðið - 30.01.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is 40 ár á Íslandi Snjóblásarar í öllum stærðum og gerðum Hágæða snjóblásarar frá Stiga ST5266 PB Veður víða um heim 29.1., kl. 18.00 Reykjavík -5 léttskýjað Hólar í Dýrafirði 1 skýjað Akureyri -5 snjókoma Egilsstaðir -5 snjókoma Vatnsskarðshólar -6 heiðskírt Nuuk -10 léttskýjað Þórshöfn 0 snjóél Ósló -10 þoka Kaupmannahöfn 0 skýjað Stokkhólmur -1 snjókoma Helsinki -5 snjókoma Lúxemborg 0 skýjað Brussel 3 heiðskírt Dublin 2 léttskýjað Glasgow 2 skýjað London 4 rigning París 2 snjókoma Amsterdam 2 léttskýjað Hamborg 2 léttskýjað Berlín 2 léttskýjað Vín 1 skýjað Moskva -2 þoka Algarve 16 skýjað Madríd 9 rigning Barcelona 9 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 8 heiðskírt Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -33 léttskýjað Montreal -13 snjókoma New York 0 snjókoma Chicago -16 þoka Orlando 14 þoka  30. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:15 17:08 ÍSAFJÖRÐUR 10:37 16:56 SIGLUFJÖRÐUR 10:21 16:38 DJÚPIVOGUR 9:49 16:33 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Norðan 8-15 m/s og éljagangur, en þurrt og bjart veður S-til á landinu. Frost 2 til 12 stig. Á föstudag Norðanátt og él N-lands, en víða létt- skýjað á S- og V-landi. Herðir frost. Norðan 8-13 og heldur hvassara með A-ströndinni. Él um landið norðanvert, en léttskýjað syðra. Áfram kalt í veðri. Engan sakaði þegar snjóruðnings- tæki úr flota Reykjavíkurborgar fór niður í gegnum ís á Rauðavatni síð- degis í gær. Verið var að ryðja burt snjó svo útbúa mætti skautasvell þegar ísinn á vatninu, sem mælst hafði 15 sentimetra þykkur, gaf sig svo tækið fór niður í vatnið. Stjórn- anda þess tókst þó að komast þurr- um fótum út, drap á vélinni og hringdi síðan eftir aðstoð, sem barst fljótt og vel. Var traktorsgrafa not- uð til þess að bjarga tækinu í land og virtist það lítið skemmt. „Þetta virðist ætla að sleppa nokk- uð vel. Nú förum við bara beint með tækið á verkstæði og reynum að halda tjóninu í lágmarki,“ sagði Ein- ar Guðfinnsson, deildarstjóri rekstr- ar og umhirðu hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Morgunblaðið. Lengi hefur tíðkast í kuldatíð eins og nú ríkir að útbúið sé skautasvell á Rauðavatni og hafa leikir þar verið fólki yndisauki. Aðgerðir í gær köll- uðu hins vegar á að brjóta þurfti svellið upp á stóru svæði svo enginn brunar þar að minnsta kosti næstu daga. sbs@mbl.is Engir skautaleikar á Rauðavatni eftir björgunaraðgerðir í gærdag Ísinn gaf sig og tæk- ið í vatnið Morgunblaðið/Sigurður Bogi Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Rafræn skjalavarsla er skammt á veg komin og varðveislu tölvupósta ábótavant, samkvæmt könnun Þjóð- skjalasafns sem gerð var árið 2017 meðal þeirra sveitarfélaga sem ber skylda til að afhenda skjöl sín til safnsins. Ástand skjalamála er hins vegar yfir meðallagi hjá þeim skrif- stofum sveitarfélaga sem könnunin náði til. Eiríkur G. Guðmundsson þjóð- skjalavörður segir að athugunin hafi komið ágætlega út miðað við þá mælikvarða sem settir hafi verið á hið svonefnda „þroskastig“ skjala- vörslunnar. „Helsti vandinn er hins vegar sá er að ekki hefur verið hugað markvisst að því að varðveita rafræn skjöl með skipulegum hætti,“ segir Eiríkur. Tölvupóstar eru líka skjöl Í könnuninni kom í ljós að af 15 sveitarfélögum sem svöruðu könnun- inni voru sjö, eða 47%, sem sögðust ekki varðveita allan tölvupóst sem varðaði mál í málasafni sínu. Eiríkur segir það ekki heppilegt, þar sem slíkir tölvupóstar, sem innihaldi til dæmis málsgögn eða varpi ljósi á málsmeðferð ættu að geymast eins og önnur skjöl. „Tölvupóstar eru í raun ekkert annað en skjöl, og þá póstar sem varða mál á að varðveita í málinu,“ segir Eiríkur og vísar þar meðal annars til nýlegrar umræðu um varðveislu tölvupósta í fjöl- miðlum um Braggamálið svonefnda. Betra að hafa starfsmann Ein af niðurstöðum skýrslunnar er sú að 40% þeirra sveitarfélaga sem svöruðu könnuninni séu ekki með sérstakan starfsmann sem beri ábyrgð á daglegu skjalahaldi, en mælt er með því að slíkur starfs- maður sé til staðar. „Þar sem starfsmaður er fyrir hendi sem hefur sérstaklega það verkefni að sinna skjalahaldinu er ástandið almennt betra,“ segir Eiríkur. Það hafi almennt séð reynst raunin, sama hvort litið sé til ríkis- stofnana, embætta eða sveitarfélaga. „Það er mjög mikilvægt að einhver beri ábyrgð á því verkefni að taka við gögnum og sjá til þess að þau fari til skráningar á mál og viðfangsefni og haldi utan um það, þannig að alltaf megi finna málsgögn með skjótum hætti þegar þarf að skoða mál eða fjalla um hvernig það var afgreitt,“ segir Eiríkur að lokum. Rafræn skjöl sitja á hakanum  Ástand skjalamála yfir meðallagi hjá sveitarfélögum samkvæmt könnun Þjóð- skjalasafns  Almennt séð betra að sérstakur starfsmaður sinni skjalavörslu Morgunblaðið/Ómar Fyrirmyndargangur Allt flokkað, skráð og á sínum stað í Þjóðskjalasafninu. Rennsli um hitaveituæðar Veitna á höfuðborgarsvæðinu náði nýjum hæðum í gær þegar það fór í 16 þús- und tonn á klukkustund að jafnaði í sólarhring. Það er mesta notkun sem sést hefur, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veitum. Viðbragðsáætlun í rekstri hita- veitunnar var virkjuð í gær vegna kuldakastsins sem nú stendur yfir. Gangi veðurspár eftir næstu daga getur þurft að skerða afhendingu til stórnotenda á heitu vatni en þar á meðal eru sundlaugarnar. Í tilkynningu hvetja Veitur al- menning til að fara sparlega með heita vatnið af þessum sökum. Fólk getur sparað heitt vatn og þar með kyndikostnað sinn með því að gæta að því að gluggar séu ekki opnir og útidyr ekki látnar standa opnar lengur en þörf er á. Þá skipta einnig máli stillingar ofna – að óþarflega heitt vatn renni ekki frá þeim – og að ofnarnir séu ekki byrgðir, til dæmis með gluggatjöldum eða húsgögnum. Fólk spari heita vatnið  Viðbragðsáætlun virkjuð hjá Veitum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.