Morgunblaðið - 30.01.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Jón Bjarnason fyrrverandi ráð-herra nefndi í pistli að „í há-
degisfréttum Bylgjunnar sl. laugar-
dag buldu á lands-
mönnum æsingsfréttir
þess efnis að Gunnar
Bragi Sveinsson al-
þingismaður hefði ver-
ið drukkinn, með
dólgslæti og frammí-
köll á söngleiknum
Ellý í Borgarleikhús-
inu fyrr í mánuðinum.
Þarna voru fjöl-miðlar komnir í
feitt. Ýmsir aðrir fjöl-
miðlar fylgdu og
dreifðu fréttinni.“
Og síðar: „Seinni part sl. laugar-dags eftir að fréttin hafði stað-
ið yfir allan hádaginn, nokkra
klukkutíma, fann ritstjórinn sig knú-
inn til að biðjast afsökunar, fréttin
væri ósönn og rakalaus og afturkall-
aði hana.“
Fram kemur að sonur GunnarsBraga, Róbert Smári, hafi
brugðist við lygafréttunum.
En Jón Bjarnason spyr:„Væri ekki tilefni til þess að
Siðanefnd Blaðamannafélagsins færi
yfir viðlíka fréttaflutning og kannaði
hvernig hann kemst áfram þar sem
bornar eru alvarlegar og ósannar
ávirðingar á einstakling sem þykir
liggja markaðslega vel við höggi?“
Það er hárrétt hjá Jóni að þarnavar um ömurlegan „fréttaflutn-
ing“ fjölmiðils sem hefur smám sam-
an verið að breytast í eins konar
óritstýrða bloggsíðu.
Ekki væri síður æskilegt að fáupplýst með hvaða hætti fjöl-
miðillinn sem í hlut á ætlar að bregð-
ast við slíkum innanhússmeinsemd-
um hjá sér.
Gunnar Bragi
Sveinsson
Er allt leyfilegt?
STAKSTEINAR
Jón
Bjarnason
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Tæpur helmingur, 46%, aðspurðra í
skoðanakönnun sem MMR gerði
fyrir Félagsbústaði í Reykjavík
finnur fyrir fordómum frá öðru
fólki í samfélaginu. Þá telja 16%
þeirra sig finna fyrir þessu viðhorfi
hjá starfsfólki Félagsbústaða og
13% frá vinum og kunningjum.
Hins vegar segjast 49% ekki hafa
fundið fyrir fordómum þessum.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í könnun sem MMR gerði
fyrir Félagsbústaði á viðhorfum
meðal viðskiptavina þeirra. Alls
voru 846 leigjendur Félagsbústaða í
upphaflegu úrtaki og var svarhlut-
fallið 35%.
Um 79% íbúa
Félagsbústaða
eru ánægð með
að leigja hjá fé-
laginu. Um 55%
aðspurðra segj-
ast líta á núver-
andi leiguíbúð
sína hjá fyrir-
tækinu sem
framtíðarhús-
næði, en 45%
segja það vera millibilsástand.
„Það hve margir sem leigja hjá
okkur finna fyrir fordómum, meðal
annars frá okkar starfsfólki, stingur
vissulega í augu,“ sagði Sigrún
Árnadóttir, framkvæmdastjóri
Félagsbústaða, í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Þetta þurfum
við að yfirfara í þjónustustefnu okk-
ar sem nú er í mótun, en mikilvægt
atriði sem kemur fljótt upp í hug-
ann er að tryggja að eignirnar séu
alltaf í góðu ástandi. Þá er mikil-
vægt að eignir okkar séu dreifðar
sem víðast, en alls eiga Félags-
bústaðir 2.500 íbúðir.“
Leigjendur finna fyrir fordómum
Viðhorf könnuð meðal viðskiptavina
Félagsbústaða í Reykjavík
Sigrún
Árnadóttir
„Orðbragð sem
þarna kom fram
var engu skárra
en það sem kom
fram hjá mönn-
um á Klaustri hér
forðum,“ segir
Bergþór Ólason,
þingmaður Mið-
flokksins og for-
maður umhverf-
is- og samgöngu-
nefndar Alþingis, í samtali við mbl.is
um þær móttökur sem hann fékk á
fundi nefndarinnar í gærmorgun.
Talsverðar deilur urðu á fundi um-
hverfis- og samgöngunefndar Al-
þingis vegna óánægju nokkurra
þingmanna með að Bergþór skyldi
skipa embætti formanns nefndar-
innar, en umræddur þingmaður Mið-
flokksins stýrði í gær venju sam-
kvæmt fundi nefndarinnar. Bergþór
segist hafa verið að hluta til undir-
búinn undir viðbrögð við veru hans
þar.
„Það höfðu ýmsir þingmenn í
nefndinni haft uppi orð á fyrri stig-
um, þannig að ég var nú viðbúinn því
að gerðar yrðu athugasemdir og sett
fram bókun eins og þarna var gert,“
segir Bergþór, en þau orð sem ein-
staka þingmenn létu falla á fundinum
komu honum hins vegar í opna
skjöldu. Þá var lögð fram tillaga þess
efnis að kjósa nýjan formann
nefndarinnar, en henni var mætt
með frávísunartillögu sem var sam-
þykkt með sjö atkvæðum gegn
tveimur. „Nefndin vildi að stjórn-
arandstöðuflokkarnir ræddu þetta á
sínum vettvangi því það er undir-
liggjandi samkomulag stjórnar-
andstöðuflokkanna um skiptingu
nefndarsæta,“ útskýrir Bergþór.
Á von á að nefndin starfi
óbreytt út kjörtímabilið
Spurður hvort hann telji að hægt
verði að lægja öldur og að nefndin
geti starfað áfram út kjörtímabilið
kveður Bergþór já við.
„Já, ég tel enga ástæðu til þess að
ætla annað. Samstarfið hefur gengið
mjög vel í nefndinni þetta ár sem ég
hef stýrt henni og það sýndi sig
þarna [í gærmorgun] að samgöngu-
áætlun er afgreidd út úr nefndinni,“
segir hann og heldur áfram:
„Stjórnmálin eru bara þannig að
það eru pólitískir andstæðingar að
takast á og það hafa ábyggilega ýms-
ir á einhverjum tímapunkti hugsað
nefndarformönnum þegjandi þörfina
út af öðrum málum.“
Þá sagði Jón Gunnarsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, „heil-
mikið ósætti“ hafa orðið á fundinum.
Orðbragð lítt betra
Formaður þingnefndar Alþingis
undrast orðaval nefndarmanna
Bergþór
Ólason