Morgunblaðið - 30.01.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.01.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 Meira til skiptanna 30. janúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.21 119.77 119.49 Sterlingspund 157.0 157.76 157.38 Kanadadalur 90.14 90.66 90.4 Dönsk króna 18.218 18.324 18.271 Norsk króna 13.99 14.072 14.031 Sænsk króna 13.157 13.235 13.196 Svissn. franki 120.14 120.82 120.48 Japanskt jen 1.0886 1.095 1.0918 SDR 166.4 167.4 166.9 Evra 136.02 136.78 136.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.0397 Hrávöruverð Gull 1301.0 ($/únsa) Ál 1865.5 ($/tonn) LME Hráolía 61.49 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Bréf norska lág- gjaldaflugfélagsins Norwegian Air Shuttle lækkuðu um 14,6% í kauphöllinni þar í landi í gær. Lækkunin varð í kjölfar þess að fyrirtækið tilkynnti um skuldabréfaútgáfu að fjárhæð 3 millj- arðar norskra króna, jafnvirði ríflega 42 milljarða íslenskra króna. Forsvarsmenn Norwegian réðust í útgáfuna í von um að styrkja bágborinn fjárhag þess. Á síðustu 12 mánuðum hefur hlutabréfaverð fé- lagsins lækkað um nærri 50%. Lækkunin í gær kom í kjölfar meiri lækkana í liðinni viku en þá var tilkynnt um að IAG, móðurfélag British Airways, hefði ákveðið að hverfa frá fyrirætlunum sínum um að taka félagið yfir. Markaðs- virði Norwegian nam jafnvirði 77,2 millj- arða íslenskra króna við lokun markaða í gær. Bréf Norwegian halda áfram að lækka mikið Flug Bjørn Kjos er forstjóri Nor- wegian. STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Tæknibúnaður frá kínverska tækni- risanum Huawei er til umræðu þessa dagana í íslenskri stjórnsýslu, eins og raunin er víða um heim, hvort sem það er í nágrannalöndum eins og Noregi og Danmörku, eða löndum eins og Ástralíu, Bretlandi eða Bandaríkjunum. Ótti manna snýr að því hvort kínversk yfirvöld muni not- færa sér búnaðinn til njósna eða til að trufla fjarskipti, en samkvæmt lögum þar í landi ber fyrirtækjum að leggja ríkinu lið, krefjist það þess í þágu öryggis. Stjórnendur Huawei, sem er stærsti framleiðandi fjar- skiptabúnaðar í heiminum, neita þessu, segja að fyrirtækið sé í eigu starfsmanna þess, lúti ekki stjórn ráðamanna í Kína og hafi aldrei not- að tækni sína til að njósna eða ógna öðrum löndum, eins og rakið var í Morgunblaðinu á dögunum. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir í samtali við Morgunblaðið að stofn- unin eigi í viðræðum við íslensku fjarskiptafélögin um það með hvaða hætti sé rétt að bregðast við um- ræðunni. Noregur frestar 5G Nú fyrr í mánuðinum var sagt frá því í frétt Reuters að Noregur hefði fylgt í fótspor annarra vestrænna ríkja og látið í ljós áhyggjur af Hua- wei. Í fréttinni er ríkisstjórnin sögð íhuga að banna fyrirtækinu að taka þátt í innleiðingu 5G kerfis í Noregi. Í fréttinni kemur einnig fram að Huawei leiki stórt hlutverk í Noregi, og bæði Telenor og Telia, símafyrir- tækin, noti fjarskiptabúnað fyrir- tækisins fyrir 4G fjarskiptanet sín. Enn fremur standi yfir prófanir fyrir 5G kerfi frá fyrirtækinu. Þessu til viðbótar segir í frétt Bloomberg að fjarskiptafélagið Vodafone Group hafi ákveðið að setja innleiðingu á nýjum Huawei búnaði á ís í sínum kjarnakerfum um allan heim, vegna pólitískrar óvissu er snýr að Huawei, eins og það er orðað í fréttinni. „Ég hef engar staðfestar upplýsingar um að þessi birgir eða nokkur annar hafi sett inn í búnað sinn einhverja slíka virkni sem verður til þess að hægt sé að hlera þessi net eða stýra þeim á óeðlilegan hátt,“ segir Hrafnkell. Sýn fylgist með umræðunni Kjartan Briem, framkvæmda- stjóri tækni og innviða hjá Sýn, segir að Vodafone noti Huawei búnað í sínum farsímakerfum. Það sama sé uppi á teningnum hjá Nova. „Við er- um að fylgjast með umræðunni. Í okkar vali á framleiðendum og bún- aði, þá höfum við unnið náið með Vodafone Group, og þeir hafa haft Huawei sem einn lykilbirgja sinna í farsímakerfum. Við höfum ekki tek- ið ákvörðun um frá hvaða framleið- endum við kaupum búnað fyrir fulla innleiðingu 5G tækninnar, en sú tækni er það stærsta framundan á næstu misserum í farsímakerfun- um.“ Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra, segir aðspurður að mál Huawei sé ekki komið á borð stofnunarinnar. „En við fylgjumst með umræðunni eins og aðrir.“ Póst- og fjarskiptastofnun ræðir Huawei við símafélög 100 80 60 40 20 0 2014 2015 2016 2017 2018* Heimild: Huawei/Financial times *Áætlun fyrir 2018Ör vöxtur Huawei Tekjur, milljarðar júan 170+ lönd og landsvæði 180.000 starfs-menn 80.000 starfsmenn í rannsóknar- og þróunardeildum 14 rannsóknar-og þróunarsetur Fjarskiptabúnaður » Margvíslegur búnaður frá Huawei er til sölu hjá íslensku fjarskiptafélögunum. » Internet hlutanna (e. inter- net of things) mun nota 5G tækni og Huawei er þar leið- andi í heiminum. » Málið hefur verið kynnt og tekið til umræðu innan Net- öryggisráðs og fyrirséð er að áfram verði fylgst með málinu og það rætt.  Víða um heim hefur innleiðingu 5G verið frestað  Ótti við njósnir Matarkarfan hækkaði um 0,62% nú í janúar skv. nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Þar kemur fram að vísitala neysluverðs í mánuðin- um hafi lækkað um 0,41% frá fyrri mánuði. Við það lækkar árstaktur verðbólgunnar úr 3,7% í 3,4%. Hækkandi matarverð hafði 0,07% áhrif til hækkunar vísitöl- unnar. Þá hækkaði rafmagn og hiti um 1,33% og hafði það 0,06% áhrif til hækkunar vísitölunnar. Aðrar vörur og þjónusta hækkuðu svo um 0,66% og þrýsti það vísitölunni upp um 0,04 prósentur. Þeir liðir sem höfðu mest áhrif til þeirrar lækkunar sem raun- gerðist á vísitölunni á fyrstu vik- um ársins voru verðlækkun á fatn- aði og skóm. Þar nemur lækkunin 11,1% vegna vetrarútsala. Hafði það áhrif til lækkunar vísitölunnar sem nam 0,4 prósentum. Húsgögn og heimilisbúnaður lækkuðu sömu- leiðis um 4,9% og ýtti það vísitöl- unni niður um 0,19 prósentur. Þá lækkaði verð á bílum um 1,8% og hafði það áhrif til lækkunar sem nam 0,15 prósentum. Verð á flug- fargjöldum lækkaði þá um 4,6% og lækkaði það vísitöluna um 0,07 prósentur. Greiningardeild Arion banka vekur athygli á því að fast- eignaverð hafi lækkað um 0,02% í janúar skv. mælingu Hagstof- unnar. Mest hafi lækkun sérbýlis á höfuðborgarsvæðinu verið eða 0,45% en verð á fjölbýli á sama svæði hafi nánast staðið í stað milli mánaða. Fasteignamarkaður á landsbyggðinni hækkaði hins veg- ar um 0,48% milli mánaða. ses@- mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Verðlag Matarkarfan hækkar milli mánaða og hífir upp verðbólguna. Maturinn hækkar um 0,62% í janúar  Tólf mánaða verðbólga mælist nú 3,4%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.