Morgunblaðið - 30.01.2019, Side 19

Morgunblaðið - 30.01.2019, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 Varúðarráðstöfun Þegar hitastigið flöktir undir frostmarki, eins og títt er á suðvesturhorni landsins, geta myndast allhvöss grýlukerti. Miðborgar- búar ráðast þá sumir hverjir gegn íshrönglinu í öryggisskyni. Kristinn Samfélagið í Vene- súela er komið að hruni eftir áralanga óstjórn og spillingu sósíalista. Efnahagslífið er í rúst. Landsframleiðslan hef- ur dregist saman um nær helming frá 2013. Verðbólga er yfir millj- ón prósent, skortur er á flestum nauðsynjum; mat, neysluvatni, lyfj- um og rafmagni. Einn af hverjum tíu íbúum landsins hefur flúið til annarra landa. Þrátt fyrir rjúkandi rústirnar ætlar Nicolás Maduro, forseti landsins, að halda áfram og mætir andstöðu af hörku. Sósíalistar náðu völdum í Vene- súela þegar Hugo Chavez var kjör- inn forseti árið 1998 með ágætum meirihluta atkvæða. Hann var í upp- hafi vinsæll. Lofaði nýjum og betri tímum. Chavez var byltingarmaður sem barðist fyrir lýðræðislegum sósíalisma 21. aldarinnar. Venesúela býr yfir gríðarlegum olíuauðlindum – þeim mestu í heiminum. Í upphafi nutu Chavez og ríkisstjórn hans þess að olíuverð var hátt og tekj- urnar streymdu inn í landið. Til að koma á sósíalísku skipulagi 21. aldarinnar taldi forsetinn nauð- synlegt að hafa alla þræði í sinni hendi; löggjafann, dómstólana og framkvæmdavaldið að ógleymdum hernum. Í reynd var þrískiptingu ríkisvaldsins hent út í hafsauga. Dómstólar voru hreinsaðir og hæsti- réttur skipaður þeim sem eru stjórnvöldum þóknanlegir og þjóð- þingið gert valdalítið. Komið var á sérstöku stjórnlagaþingi sem af- greiddi nýja stjórnar- skrá sem Chavez var sérlega stoltur af. Lagt var til atlögu við einkafyrirtæki. Þúsundir fyrirtækja voru þjóðnýttar í nafni lýðræðislegs sósíal- isma. Eignarrétturinn var virtur að engu. Þannig var hægt og bítandi grafið undan stoðum efnahagslífsins. Nú er svo komið að efnahagslegt frelsi í Venesúela er minna en í nokkru öðru ríki Suður-Ameríku. Frelsið er minna en á Kúbu og litlu meira en í Norður-Kóreu samkvæmt árlegri úttekt Heritage-stofnunar- innar. Eitt ríkasta land heims Um 1950, þegar flest lönd heims- ins voru að jafna sig eftir hrylling seinni heimsstyrjaldarinnar, var Venesúela meðal ríkustu landanna. Landsframleiðsla á mann var sú fjórða mesta í heiminum. Landið var tvisvar sinnum auðugra en Síle, fjór- um sinnum ríkara en Japan og 12 sinnum auðugra en Kína. Árið 1982 var Venesúela enn auðugasta land Suður-Ameríku, en síðan hefur hall- að undan fæti. Á hverju einasta ári frá 2014 hef- ur efnahagur Venesúela dregist saman og á síðasta ári um liðlega 16%. Og á þessu ári reikna sérfræð- ingar með enn meiri samdrætti. Verðbólga er fyrir löngu komin úr böndunum. Undir lok síðasta árs tvöfaldaðist verðlag á 19 daga fresti. Alþjóðastofnanir áætla að raunverð- bólga sé um og yfir milljón prósent á ári. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að verðbólga geti farið yfir 10 milljónir prósenta á næstu mán- uðum. Í ágúst á liðnu ári ákvað ríkis- stjórn sósíalista að klippa fimm núll aftan af gjaldmiðlinum. Samkvæmt rannsókn þriggja há- skóla í Venesúela berjast 80% heim- ila við daglegt mataróöryggi – árið 2017 léttust landsmenn að meðaltali um 11 kíló. Um 17% barna eru van- nærð. Háskólarnir hafa unnið að lífskjararannsóknum frá 2014 undir heitinu Encovi (Encuesta de Condi- ciones de Vida) og ná til um 6.200 einstaklinga um land allt. Sex af hverjum tíu hafa farið hungraðir að sofa þar sem þeir hafa ekki haft efni á mat. Alvarlegt bakslag hefur orðið í heilbrigðismálum. Staðan hefur ekki verið verri í áratugi. Nú er að nýju barist við malaríu, berkla, mislinga og barnaveiki. Ólíkt nágrannaríkjunum hefur malaríutilfellum fjölgað verulega í Venesúela. Það er af sem áður var þegar landið var í fararbroddi í bar- áttunni við malaríu en árið 1961 tókst að útrýma sjúkdómnum. Ástandið versnar stöðugt þar sem skortur er á lyfjum. Jose Felix Oletta, fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra, hefur spáð því að ástandið eigi enn eftir að versna og segir það orðið svipað því sem það var í upp- hafi 20. aldarinnar. Tekið til fótanna Nicolás Maduro tók við forseta- embættinu árið 2013, eftir að Cha- vez féll frá. Hann hélt embættinu eftir sýndarkosningar á síðasta ári. Í skjóli hæstaréttar og hersins stjórn- ar Maduro landinu með forseta- tilskipunum. Spilling er landlæg á öllum stigum stjórnkerfisins. Frá 2014 hafa yfir 13 þúsund manns verið handtekin í mótmælum gegn stjórnvöldum. Um 7.500 hafa verið leyst úr haldi en eiga enn yfir höfði sér saksókn. Þvert á alþjóðalög hafa 800 óbreyttir borgarar verið dregnir fyrir herdómstól frá 2017. Í liðinni viku féllu 26 manns í mót- mælum og Sameinuðu þjóðirnar vara við því að ástandið verði stjórn- laust. Eins og oft áður hafa óbreyttir borgarar tekið til fótanna til að kom- ast burt úr draumaríki sósíalismans sem einkennist af hungri, lyfja- skorti, atvinnuleysi og vaxandi of- beldi. Á fjórðu milljón íbúa hafa flúið land á síðustu árum. Meirihluti þeirra sem hafa flúið land hafa leitað til Kólumbíu, en einnig hafa margir farið til Ekvador, Perú og Síle. Í könnun sem gerð var í lok árs 2017 sagðist um helmingur íbúa á aldrinum 18 til 29 ára vilja yfirgefa landið og 55% millistéttar- innar áttu sér þann draum að kom- ast í burtu. Enn eitt draumaríkið fallið Juan Guaidó, leiðtogi stjórnarand- stöðunnar, hefur lýst því yfir að hann hafi tekið tímabundið við emb- ætti forseta af Nicolás Maduro. Hann nýtur stuðnings þjóðþingsins. Bandaríkin, fleiri en 12 ríki Suður-Ameríku og Kanada hafa þegar lýst yfir stuðningi við Guaidó. Um helgina lýstu ríkisstjórnir Spán- ar, Þýskalands, Frakklands og Bret- lands því yfir að þau myndu viður- kennda Guaidó sem forseta ef ekki yrði boðað til nýrra forsetakosninga innan átta daga. Boðað hefur verið til allsherjar- verkfalls í Venesúela í dag. Með því ætla Guaidó og fylgismenn hans að auka þrýstinginn á herinn. Stuðn- ingur hersins er forsenda þess að Maduro geti setið áfram í embætti en herinn hefur stutt stjórn sósíal- ista allt frá því að Hugo Chavez komst til valda. Enn eitt draumaríki sósíalismans hefur breyst í martröð – auðlegð hefur orðið að örbirgð alþýðunnar. Margir vinstri menn á Vestur- löndum létu glepjast, ekki síst stjórnmálamenn og menntamenn. Noam Chomsky, Jeremy Corbyn og Jesse Jackson voru í hópi aðdáenda. Í borg kvikmyndanna, Hollywood, var Chavez hafinn upp til skýjanna. Sean Penn, Oliver Stone, Michael Moore og Danny Glover létu blekkj- ast. Nú er þögn þeirra æpandi. Hrun samfélagsins í Venesúela mun að líkindum ekki sannfæra hina heittrúuðu um að sósíalisminn sé vegurinn til glötunar. Að tilraunin í Venesúela hafi mistekist er ekki sósíalismanum að kenna, heldur kom alþjóðlegt samsæri (undir for- ystu Bandaríkjanna) í veg fyrir að draumaríkið fengi að lifa og dafna. Og þess vegna verður enn ein til- raunin gerð. Hvaða land verður fyrir valinu? Eftir Óla Björn Kárason » Á hverju einasta ári frá 2014 hefur efna- hagur Venesúela dreg- ist saman. Verðbólga er komin úr böndunum og verðlag tvöfaldast á 19 daga fresti. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins. Venesúela: Frá auðlegð til örbirgðar Ég átti fyrir skemmstu ánægju- legan fund með fulltrúum fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatns- sýslu sem ræða nú sameiningu sveitar- félaganna. Þar var ég upplýstur um stöðu viðræðna og þá vinnu sem er í gangi við að greina áhrifin ef af sameiningu yrði og þær áskoranir sem takast þyrfti á við í náinni framtíð. Íbúum sveitarfélaganna hefur fækkað á umliðnum árum, hefðbundinn landbúnaður dregist saman og atvinnulíf er fremur ein- hæft í samburði við aðra lands- hluta. Þá þarf að bæta samgöngur innan héraðs, en almennt má segja að staða annarra innviða er góð. Á fundinum var einnig rætt um þau fjölmörgu tækifæri sem eru til staðar í héraðinu og að með samstilltu átaki heimamanna og stjórnvalda væri hægt að snúa þessari þróun við. Uppbygging gagnavers á Blönduósi er nærtæk- asta dæmið um það auk margvís- legrar uppbyggingar sem átt hef- ur sér stað í tengslum við ferðaþjónustu. Styrkur kemur með stærð Það verður að sjálfsögðu íbú- anna sjálfra að ákveða hvort af sameiningu sveitarfélaganna fjög- urra verður eða ekki. Það er sjálf- sagt að sveitarfélögin taki sér góð- an tíma til undirbúnings og kynningar meðal íbúa. Ég hef þá bjargföstu skoðun að almennt hafi stærri sveitarfélög meiri burði til að sinna lögbund- inni þjónustu við íbúana. Þau eru betur í stakk búin til að takast á við hvers konar breytingar í um- hverfi sínu, svo sem á sviði tækni og til að berjast fyrir mikil- vægum hagsmuna- málum sveitarfélags- ins. Mörg sveitarfélög hér á landi eru ansi fámenn og það er um- hugsunarefni. Verk- efnisstjórn um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga, sem skilaði áliti sínu og til- lögum árið 2017, taldi að of mikill tími og fjármunir færu í rekstur sveitarfélaga og of lítið væri aflögu til stefnumótunar og til að móta framtíðarsýn fyrir sveitarfélögin. Núverandi sveitar- stjórnarskipan væri að hluta til haldið við með samstarfi á milli sveitarfélaga og byggðasamlögum. Stefnumótun fyrir sveitar- stjórnarstigið Ég hef nýlega skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna stefnumótandi áætlun um málefni sveitarfélaga, sem meðal annars er ætlað að samræma stefnu- mótun ríkis og sveitarfélaga með heildarhagsmuni sveitarstjórn- arstigsins að leiðarljósi. Stefnu- mótun ríkisins á þessu sviði er ný- mæli og felur í sér gerð langtíma- áætlunar í takt við aðra stefnumótun og áætlanagerð á verksviði samgöngu- og sveitar- stjórnarráðuneytis, þ.e. sam- gönguáætlun, fjarskiptaáætlun og byggðaáætlun og sóknaráætlanir. Vinnan hefst formlega í þessari viku þegar starfshópurinn kemur saman í fyrsta skipti. Meðal þátta sem stefnumótunin mun taka til er stærð og geta sveitarfélaganna til að rísa undir lögbundinni þjónustu og vera öflugur málsvari íbúa sinna. Þá hef ég áður lýst yfir að stórauka þurfi fjárhagslegan stuðning Jöfnunarsjóðs sveitar- félaga við sameiningar. Mikilvægt er að nýsameinuð sveitarfélög hafi gott fjárhagslegt svigrúm til að vinna að nauðsynlegri endur- skipulagningu á stjórnsýslu og þjónustu í samræmi við forsendur sameiningar og hafi svigrúm til að styðja við nýsköpun. Þá er mikil- vægt að svigrúm sé til lækkunar skulda í kjölfar sameiningar, þar sem það á við. Samstaða um framtíðina Ég bind miklar vonir við starfs- hópinn og þá vinnu sem fram- undan er, sem meðal annars felur í sér víðtækt og gott samráð um allt land. Það er mín von og trú að afurðin verði áætlun sem sam- staða er um og stuðli markvisst að eflingu sveitarfélaganna á Íslandi til hagsbóta fyrir íbúa þeirra og landið allt. Þar sem tilefni greinarinnar var ánægjuleg heimsókn sveitar- stjórnarmanna úr Austur- Húnavatnssýslu er að lokum gam- an að segja frá því að formaður starfshópsins er Austur-Húnvetn- ingurinn Valgarður Hilmarsson, fyrrverandi oddviti og sveitar- stjórnarmaður á Blönduósi til langs tíma og nú síðast bæjar- stjóri á Blönduósi. Efling sveitarstjórnarstigsins Eftir Sigurð Inga Jóhannsson Sigurður Ingi Jóhannsson »Ég hef þá bjargföstu skoðun að almennt hafi stærri sveitarfélög meiri burði til að sinna lögbundinni þjónustu við íbúana. Þau eru bet- ur í stakk búin til að tak- ast á við hvers konar breytingar í umhverfi sínu. Höfundur er samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.