Morgunblaðið - 30.01.2019, Side 31

Morgunblaðið - 30.01.2019, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 2019 tvisvar áður verið tilnefnd, 2013 fyrir skáldsöguna Strokubörnin á Skuggaskeri og árið 2014 fyrir ljóðabókina Fuglaþrugl og nafla- krafl þar sem hún myndskreytti texta bróður síns, Þórarins Eldjárn. Spurð hvort viðurkenningin hafi komið henni á óvart bendir Sigrún á að allar tilnefndu bækurnar hafi verið góðar og því ekki á vísan á róa. Spurð hvort Silfurlykillinn sé besta bók hennar til þessar svarar Sigrún: „Ég get ekki dæmt um það. Ég held að þetta sé ágætisbók, en mér hefur fundist margar af fyrri bókum mín- um mjög góðar líka – svo ég sé svo- lítið roggin,“ segir Sigrún, sem sendi frá sér sína fyrstu bók 1980. Sigrún liggur ekki á þeirri skoðun sinni að barnabækur séu langmikil- vægasta bókmenntagreinin. „Því ef krakkanir venjast ekki á að lesa þá er enginn til að lesa hinar bækurnar í framtíðinni. Þannig að mér finnst það mjög mikilvægt starf að búa til bækur fyrir krakka og skemmtilegt þar að auki,“ segir Sigrún og vísar því á bug að hún finni fyrir meiri pressu fyrir vikið. „Ég vil auðvitað bara skrifa góðar bækur, þannig að ég geri alltaf mitt allra besta.“ Fyrsti hluti þríleiks Að sögn Sigrúnar eru nokkur ár síðan hugmyndin að Silfurlyklinum kviknaði. „Ég hef unnið að bókinni meðfram öðru, en sagan hefur orðið sífellt brýnni með tímanum miðað við það sem er að gerast í heiminum í dag,“ segir Sigrún og vísar þar til þróunar loftslagsmála, en Silfur- lykillinn gerist í framtíðinni þegar mannfólkið er búið að eyðileggja heiminn og öll nútímaþægindi og -tækni eru horfin. „Mér fannst það spennandi vinkill að taka burt öll þessi tæki sem við erum vön og þægindi á borð við rafmagn og reyna að sjá fyrir mér hvernig heimur það yrði. Í lok sögunnar kemur í ljós að bækur hafa varð- veist, en þær virka alltaf.“ Sigrún segist sjá fyrir sér að Silfurlykillinn verði fyrsta bókin í nýjum þríleik. „Þegar ég byrjaði á þessu var ég að hugsa um að gera bara þessa einu bók, en núna reikna ég með að á henni verði framhald. Það er ágætt að leyfa heimi verksins og persónunum að lifa svolítið leng- ur,“ segir Sigrún og reiknar með að næsta bók komi út fyrir næstu jól. „Enda má helst ekki líða of langt milli framhaldsbóka fyrir börn,“ segir Sigrún og tekur fram að reyndar sé ekki mikil hætta á því að lesendur vaxi upp úr bókinni þar sem góðar barna- og ungmenna- bækur eigi erindi við alla aldurs- hópa. Auk framhaldsins á Silfurlykl- inum er Sigrún með nokkrar aðrar bækur í vinnslu. „Þeirra á meðal er ný saga um Sigurfljóð sem er lítil of- urstúlka. Auk þess er ýmislegt fleira að gerjast,“ segir Sigrún, sem ekki aðeins skrifar og myndskreytir eigin bækur heldur brýtur þær einnig um. „Með því móti ræð ég öllu sjálf og get, frá upphafi til enda, mótað þennan grip sem bókin er. Af því að svona bók er listaverk í sjálfu sér finnst mér gott að geta séð um það allt.“ Spurð hvort hún telji að verðlaun- in geti hjálpað bókinni erlendis seg- ist Sigrún vona það, enda eigi við- fangsefni hennar erindi út fyrir landsteinana. „Einhvern tímann fyrir löngu kom út á japönsku og esperanto ein bók og svo hefur ein önnur komið út í Ungverjalandi. Að öðru leyti hafa bækur mínar ekki ratað til lesenda erlendis. Ég skil nú ekkert í því,“ segir Sigrún og bendir á að reyndar sé framboðið á barna- og ungmennabókum mikið í ná- grannalöndum okkar. „Það hefur reynst erfiðara að koma íslenskum barnabókum á þennan markað en öðrum bókum með nokkrum und- antekningum þó.“ Innt eftir því hvort hún sé búin að eyrnamerkja verðlaunaféð ein- hverju sérstöku svarar Sigrún því neitandi. „En því verður vel varið. Það að fá svona upphæð veitir manni að minnsta kosti ráðrúm til að sinna sinni vinnu.“ Glæðir vonandi áhuga fólks „Við erum auðvitað bæði stolt og ánægð yfir þessu. Og þakklát fyrir þann heiður sem verkinu er sýndur,“ segir Þóra Ellen Þórhalls- dóttir, sem ásamt Herði Kristins- syni og Jóni Baldri Hlíðberg er höf- undur Flóra Íslands. Blómplöntur og byrkningar. Jón Baldur átti myndirnar í Íslensk spendýr í rit- stjórn Páls Hersteinssonar sem til- nefnd var 2004 og var einnig til- nefndur ásamt Ævari Petersen 1998 fyrir Íslenskir fuglar. „Okkur þótti mjög vænt um til- nefninguna á sínum tíma, því til- nefningar eru ekki síður mikils virði,“ segir Þóra og tekur fram að Flóra Íslands hafi verið í mjög góð- um hópi. „Við vonum það öll þrjú að verðlaunin verði til að glæða áhuga fólks á lífríki Íslands almennt og flórunni og plöntunum sérstaklega. Í ljósi þess að yfirvofandi eru gríðarlegar breytingar á lífríki jarð- ar með hlýnandi loftslagi og allri röskuninni sem því fylgir samtímis því sem maðurinn er að umturna æ stærri svæðum á yfirborði jarðar þannig að fjölbreyttum villtum nátt- úrulegum vistkerfum er skipt út fyrir tiltölulega einhæf manngerð vistkerfi þá er verðmætt að vekja athygli á gildi náttúrulegs lífríkis og líffræðilegri fjölbreytni. Ég held að það gefi fólki, sem á annað borð fer út í gönguferðir, gengur á fjöll eða stundar náttúru- skoðun, mjög mikið að veita plönt- unum athygli, læra að þekkja þær og hafa ánægju af því að skoða þær. Það er viðbótarvídd í upplifuninni af útivist. Þetta er einnig liður í því að vera í takt við náttúruna og hluti af henni.“ Á sér langan aðdraganda Aðspurð segir Þóra ekki alveg einfalt að tímasetja upphafið að vinnslu bókarinnar. „Vinna Harðar við flóruna nær langt aftur fyrir þessa nýju bók, enda eru rúm þrjá- tíu ár síðan hann sendi frá sér ís- lenska plöntuhandbók með undirtit- ilinn blómplöntur og byrkningar,“ segir Þóra og reiknar með að verð- launabók hópsins hafi verið í vinnslu í rúman áratug. Spurð hvernig hópurinn hafi skipt með sér verkum í vinnuferlinu svar- ar Þóra: „Jón Baldur gerir allar myndirnar og að baki þeim liggur gríðarleg vinna. Þetta eru 467 teg- undir sem hann teiknaði, að lang- mestu leyti eftir lifandi eintökum. Hann ferðaðist um allt land í leit að tegundum,“ segir Þóra og bendir á að sumar þeirra vaxa aðeins á örfá- um stöðum á landinu. „Hörður vann að mestu leyti lýs- ingar tegundanna, bæði út frá sinni reynslu og þekkingu, en líka með því að skoða þurrkaðar tegundir í grasasöfnum. Útbreiðslukortin sem fylgja öllum tegundunum eru að miklu leyti verk Harðar,“ segir Þóra og bendir á að Hörður hafi, meðan hann var starfsmaður Náttúru- fræðistofnunar Ísland, haft umsjón með útbreiðslukortum sem ná til allra skráðra fundarstaða allra teg- unda á Íslandi, en elstu skráning- arnar eru frá því fyrir aldamótin 1900 og hafa margir tugir ein- staklinga komið þar að málum. Ánægjuleg samvinna „Hörður er hins vegar sá ein- staklingur sem mest hefur lagt af mörkum, því hann fór skipulega um landið til að fylla út í reitakerfið,“ segir Þóra og tekur fram að Hörður sé einnig höfundur fundarsögu teg- undanna og upplýsinga um gamlar nytjar. „Ég er með vistfræðina, æxl- unarlíffræðina, frjóberana, að hluta til heimsútbreiðsluna, efna- framleiðsluna, sem er mjög fjöl- skrúðug hjá þessum plöntum, og nú- tímanytjar,“ segir Þóra og tekur fram að samvinna þremenninganna hafi verið einstaklega góð. „Þetta var afskaplega ánægjuleg samvinna,“ segir Þóra og bendir á að það sé regla fremur en undan- tekning að tíminn sem vinnsla stórra verka taki sé vanmetinn. „Stundum koma svona bækur út áratug seinna en upphaflega stóð til. Þegar leið á vinnuna hjá okkur tókst að halda tímaáætluninni nokkuð vel,“ segir Þóra og rifjar upp að ávallt hafi verið stefnt að því að Flóra Íslands kæmi út á árinu 2018, sem stóðst. Spurð hvort málaflokkurinn sé nú tæmdur segir Þóra örugglega langt þangað til byrjað verði á öðru sjálf- stæðu riti um flóru Íslands. „Von- andi verður hægt að halda þessu riti við. Ef það verður gefið út aftur held ég að við höfundarnir hefðum áhuga á að uppfæra það, t.d. hvað viðkemur útbreiðslukortunum, flokkunarfræðinni eins og þarf og kannski bæta einhverjum fleiri teg- undum inn sem ná hér útbreiðslu.“ Auk verðlaunaverksins Sextíu kíló af sólskini eftir Hallgrím Helgason sem JPV útgáfa gaf út voru í flokki fagurbókmennta tilnefndar í staf- rófsröð höfunda: Ungfrú Ísland eftir Auði Övu Ólafsdóttur, Bene- dikt bókaútgáfa; Lifandilífslækur eftir Bergsvein Birgisson, Bjartur; Sálumessa eftir Gerði Kristnýju, Mál og menning og Haustaugu eft- ir Hannes Pétursson, Opna. Auk verðlaunaverksins Silfur- lykillinn eftir Sigrúnu Eldjárn sem Mál og menning gaf út voru í flokki barna- og ungmennabóka tilnefndar: Sagan um Skarphéðin Dungal sem setti fram nýjar kenn- ingar um eðli alheimsins eftir Hjörleif Hjartarson og Rán Flyg- enring, Angústúra; Ljónið eftir Hildi Knútsdóttur, JPV útgáfa; Rotturnar eftir Ragnheiði Eyjólfs- dóttur, Vaka-Helgafell og Sölva- saga Daníelssonar eftir Arnar Má Arngrímsson, Sögur útgáfa. Auk verðlaunaverksins Flóra Íslands – Blómplöntur og byrkn- ingar eftir Hörð Kristinsson, Þóru Ellen Þórhallsdóttur og Jón Baldur Hlíðberg sem Vaka-Helgafell gaf út voru í flokki fræðibóka og rita almenns efnis tilnefnd Þjáning- arfrelsið. Óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla eftir Auði Jónsdóttur, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur, Mál og menning; Bókasafn föður míns eftir Ragnar Helga Ólafsson, Bjartur; Kristur. Saga hugmyndar eftir Sverri Jakobsson, Hið ís- lenska bókmenntafélag og Skúli fógeti – faðir Reykjavíkur eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur, JPV útgáfa. Íslensku bókmenntaverðlaunin nema einni milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk og eru kostuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda. Auk þess eru verðlaunahöfum af- hent skrautrituð verðlaunaskjöl og verðlaunagripir, hannaðir af Jóni Snorra Sigurðssyni á gullsmíða- verkstæði Jens; opin bók á granít- stöpli með nafni verðlaunahöf- undar og bókar hans. Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta ár- ið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Árið eftir var tilhögun verð- launanna breytt þannig að til- nefndar bækur skiptust í tvo flokka, fagurbókmenntir annars vegar og fræðibækur og rit al- menns efnis hins vegar. Þannig héldust verðlaunin óbreytt til árs- ins 2013 að við bættist flokkur barna- og ungmennabóka. Alls hafa 68 höfundar hlotið verðlaunin í gegnum tíðina, þar af 21 kona og 47 karlar. Tveir höf- undar hafa hlotið verðlaunin þrisv- ar sinnum, það eru Guðjón Frið- riksson og Andri Snær Magnason. Fjórir höfundar hafa hlotið verð- launin tvisvar, það eru Guðbergur Bergsson, Hörður Ágústsson, Silja Aðalsteinsdóttir og Hallgrímur Helgason. Verðlaunað í þremur flokkum ALLS HAFA 68 HÖFUNDAR VERIÐ VERÐLAUNAÐIR Á 30 ÁRUM BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Elly (Stóra sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s Fös 15/2 kl. 20:00 201. s Sýningum lýkur í mars. Ríkharður III (Stóra sviðið) Fim 31/1 kl. 20:00 10. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s 5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið Allt sem er frábært (Litla sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 Lokas. Sýningum lýkur 1. febrúar. Kvenfólk (Nýja sviðið) Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s Þri 5/2 kl. 20:00 aukas. Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Drepfyndin sagnfræði með söngvum. Núna 2019 (Litla sviðið) Mið 30/1 kl. 20:00 8. s Núna er ekki á morgun, það er NÚNA Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið) Lau 2/2 kl. 20:00 7. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Athugið. Aðeins verða átta sýningar. Ég dey (Nýja sviðið) Fim 31/1 kl. 20:00 7. s Fim 7/2 kl. 20:00 9. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s Fös 15/2 kl. 20:00 10. s Trúir þú á líf fyrir dauðann? Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s Lífið er ekki nógu ávanabindandi Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Kvöld sem breytir lífi þínu. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas. Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas. Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas. Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Einræðisherrann (Stóra Sviðið) Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas. Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin! Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið) Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fyndinn og erótískur gamanleikur Þitt eigið leikrit (Kúlan) Mið 30/1 kl. 14:00 Fors. Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Fim 31/1 kl. 18:00 Frums Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Fös 1/2 kl. 18:00 2.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Það er þitt að ákveða hvað gerist næst! Velkomin heim (Kassinn) Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 31/1 kl. 20:00 Fös 8/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00 Fös 1/2 kl. 19:30 Lau 9/2 kl. 19:30 Fim 21/2 kl. 19:30 Fös 1/2 kl. 22:00 Fim 14/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 19:30 Lau 2/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 22:00 Lau 2/2 kl. 22:00 Fös 15/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 19:30 Fim 7/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00 Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn) Sun 3/2 kl. 20:00 Sun 17/2 kl. 20:00 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.