Morgunblaðið - 30.01.2019, Qupperneq 36
Verkið Metacosmos eftir Önnu Þor-
valdsdóttur verður frumflutt á Ís-
landi annað kvöld af Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands á tónlistarhátíðinni
Myrkir músíkdagar og verður Daní-
el Bjarnason stjórnandi. Verkið var
pantað af Fílharmóníuhljómsveit-
inni í New York og frumflutt af
henni apríl í fyrra. Um síðustu helgi
var það svo flutt af Fílharmóníu-
hljómsveit Berlínar sem þykir ein
besta sinfóníuhljómsveit heims.
Nýtt verk Önnu flutt á
Myrkum músíkdögum
MIÐVIKUDAGUR 30. JANÚAR 30. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Framliðið er á miklu skriði og hefur
ekki tapað leik á nýju ári í Olísdeild
kvenna í handknattleik. Í gær hafði
liðið betur gegn KA/Þór. Fram er Ís-
landsmeistari síðustu tveggja ára
og verður áskorun fyrir önnur lið að
ýta liðinu úr vegi miðað við hvernig
spilamennskan er um þessar mund-
ir. Valur burstaði HK í Kópavoginum
og Haukar sigruðu Stjörnuna. 2-3
Framkonur á miklu
skriði á nýju ári
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Liverpool getur í kvöld náð sjö
stiga forskoti á toppi ensku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu
þegar liðið fær Leicester í heim-
sókn. Meistararnir í Manchester
City eru í 2. sæti en þeir töpuðu í
gær fyrir Newcastle United þrátt
fyrir að komast 1:0
yfir í leiknum. Ís-
lensku landsliðs-
mennirnir Jóhann
Berg Guðmunds-
son, Gylfi Þór
Sigurðsson og
Aron Einar
Gunnarsson
voru allir á
ferðinni
með sínum
liðum. »1
Liverpool getur
náð sjö stiga forskoti
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skákkonurnar Jóhanna Björg Jó-
hannsdóttir og Veronika Steinunn
Magnúsdóttir, sem báðar hafa teflt í
kvennalandsliðinu á ólympíumótum,
standa fyrir skákæfingum fyrir
stúlkur sem vilja bæta sig í íþrótt-
inni. „Við byrjuðum með æfingarnar
í haust og sjáum þegar mikinn
árangur,“ segir Jóhanna.
Æfingarnar eru á vegum Skák-
skóla Íslands í samstarfi við skák-
deild Breiðabliks. Æfingarnar fara
fram á þriðju hæð í stúkunni við
Kópavogsvöll og sitja stúlkurnar að
tafli í einn og hálfan tíma hverju
sinni, frá klukkan 17 til 18.30 á
mánudögum.
Mikill skákáhugi ríkir hérlendis
en Jóhanna segir að þótt mikið hafi
verið gert til þess að örva áhuga
stúlkna og margt sé í boði sé hlutfall
kvenna lágt í skák. „Skák er auðvit-
að einstaklingsíþrótt en stelpur
virðast leita meira í hópíþróttir,“
segir hún. Til þess að koma til móts
við þarfirnar hafi þær Veronika, í
samráði við Skákskólann, ákveðið
að bjóða upp á vikulegar æfingar
fyrir stúlkur. „Hugmyndin er að
stelpur geti verið saman einu sinni í
viku, tengst í gegnum skákina,
myndað hóp og styrkt hver aðra til
þess að halda áfram í íþróttinni.“
Kennararnir eru ekki að finna
upp hjólið og Jóhanna bendir á að
Susan Polgar hafi boðið upp á svona
námskeið í Bandaríkjunum með
góðum árangri. „Sigurlaug S. Frið-
þjófsdóttir hefur verið með sam-
bærilegar æfingar í Taflfélagi
Reykjavíkur í nokkur ár og þær
hafa skilað miklu, bæði í fleiri stelp-
um og aukinni getu. Við erum í raun
aðeins að bæta við það góða starf á
öðrum stað.“
Hópvinna og fyrirmyndir
Susan Polgar kom til Íslands í
tengslum við Reykjavíkurskákmótið
í fyrravor og þá áttu Jóhanna og
Veronika gott spjall við hana um
kennsluna. „Hún sagði okkur að
sértímar fyrir stúlkur hefðu skilað
mestu hjá sér, þar með var tónninn
sleginn og við byrjuðum í haust,“
segir Jóhanna.
Stelpur á aldrinum sjö til tólf ára
hafa mætt á æfingarnar og eru
kennararnir ánægðir með árang-
urinn. „Það eru engin aldurs-
takmörk og styrkleiki skiptir ekki
máli,“ segir Jóhanna. Í því sam-
bandi bendir hún á að byrjendur
geti mætt og byrjað á því að læra
mannganginn, en gróflega megi
skipta stúlkunum í þrjá hópa eftir
getu; byrjendur, þær sem eru
komnar aðeins lengra og þær sem
eru komnar aðeins lengra en það.
Auk skákkennslunnar er lögð
áhersla á félagslega þáttinn. „Við
tökum eftir því að félagsskapurinn
styrkist og finnum ekki fyrir neinu
nema ánægju,“ segir Jóhanna og
leggur áherslu á að framfarirnar
leyni sér ekki. Stúlkunum sé kennt
að vinna saman, til dæmis við lausn
á skákþrautum, og það styrki sam-
stöðuna. „Við þessar eldri stelpur,
sem teflum enn, mynduðum hóp að
frumkvæði Guðfríðar Lilju Grétars-
dóttur þegar við vorum í grunn-
skóla, hittumst líka utan skákar-
innar og gerum enn og það hefur
haldið okkur í skákinni,“ segir Jó-
hanna. „Þetta er hugarfarið sem við
viljum kenna stúlkunum.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skákstelpur Karen, Soffía, Anna, Lóa, Elín, Guðrún og Fanndís á æfingu hjá Jóhönnu og Veroniku í fyrradag.
Vekja skákáhugann
Skákkonur fyrirmyndir kvenkynsbyrjenda í íþróttinni
Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík • 414 84 00 • www.martex.is M A R T E X
Góð þjónusta
byrjar með
flottu útliti
Fatnaður fyrir fagfólk