Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Síða 2
Stefán Sæmundur Jónsson Ég tek snjónum fagnandi. Ég elska að labba í snjó. Hvað hefurðu keppt oft á RIG (Reykjavík International Games)? Ég hef verið með frá upphafi. Ég var að verða tólf ára þegar ég tók fyrst þátt, en ég byrjaði að æfa sund fimm ára gömul. Pabbi minn, Gústaf Adolf Hjaltason, hefur staðið að þessu móti heillengi þannig að ég er alin upp við þetta. Í hvaða greinum keppir þú á RIG? Í 50 og 100 metra baksundi. Hvernig hefurðu upplifað þessi mót? Mér finnst alltaf gott að byrja árið á al- mennilegu og fínu móti. Þetta er góð leið til þess að byrja tímabilið. Það er líka frábært að fá að keppa við góða erlenda sundmenn; það er það sem við þurfum hér á litla land- inu okkar. Svo er alltaf verið að bæta við fleiri greinum þannig að þetta fara að verða lykilleikar á Íslandi. Mér finnst þetta mjög gott mál fyrir íslensku íþróttahreyfinguna. Hefurðu æft stíft fyrir leikana? Nú er ég að æfa 8 til 9 sinnum í viku. Ég er að koma upp úr meiðslum og er núna fyrst farin að geta æft almennilega. Þannig að það verður forvitnilegt að sjá á þessu móti hvar ég er stödd; ég er að koma til baka. Ég er spennt að sjá hvar ég stend eftir þessi meiðsli. Hvað er á döfinni á árinu? Ég keppi á þessu móti og svo fer ég kannski til Frakklands í mars. Svo er Íslandsmeistaramótið í apríl og þar ætla ég að reyna við heimsmeistaralágmarkið en heimsmeistaramótið er haldið í Suður-Kóreu í lok júlí. Viltu segja eitthvað að lokum? Já, ég hvet alla til þess að koma og sjá eins margar íþróttagrein- ar og hægt er. Þetta er mjög sterkt mót og gott tækifæri til þess. Morgunblaðið/Eggert EYGLÓ ÓSK GÚSTAFSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Keppir í tólfta sinn Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Gönguferðir eru margra meina bót. Regluleg hreyfing er góð ogganga er heilbrigð og eðlileg hreyfing sem flestir ráða við. Meira aðsegja hefur verið sýnt fram á með rannsóknum að það að ganga reglulega virðist sannarlega vera gott fyrir líkamsstarfsemina. Það eru því alls engin gervivísindi að slá því fram að gönguferð á dag geti gert heilmikið fyrir heilsuna, bæði andlega og líkamlega. Flestar heilbrigðis- stéttir myndu geta kvittað upp á það að gönguferðir geti virkað sem forvörn gegn ýmsum kvillum og dregið úr líkum á því að fólk þrói með sér til dæmis lífsstílssjúkdóma. Ekki síst þykja gönguferðir og önnur regluleg hreyfing hafa góð áhrif á hjartað og geta dregið úr líkum á hjartasjúkdómum. Það stoðar þó lítið fyrir mann- eskju sem er komin í hjartastopp að fara út að ganga. Gönguferðir eru góðar fyrir hjartað en það þýðir ekki að manneskju í hjartastoppi dugi gönguferð til að fá bót sinna meina. Staðan er þá orðin önnur og alvarlegri og almennar leiðbein- ingar um ágæti gönguferða eiga ein- faldlega ekki við. Rétt eins og gönguferðir getur mantran „þú ert nóg“ verið margra meina bót. Það eru engin gervivís- indi að slá því að fram að það að öðlast sannfæringu fyrir því að við séum nóg eins og við erum geri okkur gott. Það er hollt fyrir okkur að trúa því að við þurfum ekki að vera í eilífum samanburði við aðra. Sú sannfæring getur fært mikla gleði og bætt líðan og þannig verið reglulega heilsubætandi. Sálfræðingar hafa undanfarna daga bent á, að gefnu tilefni, að það sé beinlínis rangt að vísa manneskju í sjálfsvígshættu á einfalda möntru. Þetta er ekki gert af neinum hroka eða leiðindum heldur hafa heilbrigðisstéttir skyldur við fólk sem er veikt og það er þeirra hlutverk að benda á það þegar umræða um málefni á þeirra fræðasviði er á villigötum. Enginn þarf að móðgast. Læknir gæti aldrei látið það afskiptalaust ef einhver reyndi að selja manneskju í hjartastoppi hugmyndina um að fara út á ganga sér til heilsu- bótar. Að sama skapi er fullkomlega eðlilegt að sálfræðingar bendi á að mantran „þú ert nóg“ getur virkað vel til uppbyggingar og forvarna en á ög- urstundu er hún gagnslaus, rétt eins og gönguferð við hjartastoppi. Gönguferðir eru góðar, rétt eins og möntrur. Morgunblaðið/Eggert Um gagnsemi gönguferða Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Gönguferðir eru góðarfyrir hjartað en þaðþýðir ekki að manneskju í hjartastoppi dugi gönguferð til að fá bót sinna meina. Olga Hafberg Nei. Ég vil ekki sjá hann í byggð heldur hafa hann til fjalla. SPURNING DAGSINS Tekurðu snjónum fagnandi? Leon Ingi Stefánsson Nei, ég geri það ekki. Mér finnst hálkan mjög leiðinleg. Silja Reimarsdóttir Já. Það er gaman að leika sér í hon- um. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Hari Reykjavik International Games, (RIG), fer fram í tólfta sinn 24. janúar til 3. febrúar. Keppt er í 15-20 einstak- lingsíþróttagreinum. Reiknað er með hátt í þrjú þúsund keppendum, erlendum og íslenskum. Þar mun Eygló Ósk Gústafsdóttir keppa í sundi á sínum tólftu leikum. Upplýsingar fá finna á rig.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.