Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019 og Árni Haukur, og aðrir aðstandendur. „Ég fer á nokkrum klukkustundum frá því að vera fullfrísk yfir í að vera við dauðans dyr. Það segir sig sjálft að það var mikið áfall fyrir mína nánustu. Og öfugt við mig fengu þau enga fag- lega aðstoð; enga áfallahjálp, þurftu bara að vinna úr þessu sjálf. Það gleymist stundum hversu mikið áfall svona alvarleg veikindi eru fyrir nánustu aðstandendur. Vissulega höfðu þau heimt mig úr helju en á sama tíma gerðu allir sér grein fyrir því að mikil barátta væri fram undan,“ segir Hjördís. Það var ekki fyrr en að Hjördís ræddi við fjölskylduráðgjafa að fjölskyldan fékk aðstoð. „Ég þurfti með öðrum orðum að fara út fyrir kerfið, sem er umhugsunarvert.“ Íþyngir ekki lengur Fjölskyldan náði áttum og Hjördís er henni ákaflega þakklát fyrir dyggan stuðning á erf- iðum tímum. Auk foreldra sinna, systkina og annarra aðstandenda nefnir hún sérstaklega Ragnheiði Sigurðardóttur, bróðurdóttur sína, sem mikið hefur aðstoðað inni á heimilinu. Hjördís hefur einnig nýtt sér fjölskylduráð- gjöf með börnunum sínum og segir það hafa hjálpað mikið. „Þau áttu lengi vel erfitt með að tala um þetta en eiga betra með það í dag. Þetta áfall íþyngir þeim ekki lengur. Saman hefur okkur tekist að vinna úr ýmsum málum og erum á góðum stað í dag.“ Hjördís byrjaði snemma í sjúkraþjálfun á spítalanum og eftir að hafa fengið næði til að jafna sig eftir fótanámið var byrjað að máta á hana gervifætur. Það var stór stund þegar hún tók fyrstu skrefin á nýju fótunum, um þremur mánuðum eftir aðgerðina. „Á því augnabliki steig ég stórt skref, í orðsins fyllstu merkingu, í þá átt að losna við innilokunarkenndina. Í því fólst líka mikið öryggi að geta loksins staðið upp.“ Í fjóra mánuði dvaldist Hjördís á Grensás- deildinni og eftir að hún útskrifaðist þaðan hélt hún áfram í endurhæfingunni á dagdeild. Vöðvarnir vöknuðu einn af öðrum til lífsins – og á ólíklegustu stöðum. „Ég fann til dæmis nokkra vöðva þegar ég fékk að fara á hestbak hjá frænda mínum. Það var mjög góð tilfinn- ing. Það var svo þegar ég fór í fyrsta skipti á skíði eftir að ég missti fæturna að ég endur- heimti vonina og sannfærðist um að ég gæti gert hvað sem er. Ég var svolítið á skíðum áð- ur en ég veiktist og það var mikill sigur að komast aftur í brekkurnar. Ég fór í þessa skíðaferð með fólkinu hjá Össuri, sem fram- leiðir gervifæturna mína, og væri alveg til í að fara aftur,“ segir Hjördís. Hún segir það vinna með sér að hún er mun handsterkari en áður. Bæði þarf hún að hífa sig upp úr rúminu eða sætinu, þar sem hún hefur ekki stuðning frá ökklunum, auk þess sem það er átak út af fyrir sig að taka gervi- fæturna af og setja þá á. Erfitt að geta ekki séð um börnin Hjördís fékk íbúðina í Breiðholtinu, þar sem hún hefur aðstoð góðra nágranna, úthlutaða í byrjun árs 2012 en treysti sér ekki til að flytja þangað með börnin fyrr en í mars sama ár. „Af öllu því erfiða í þessu ferli var það erfiðast, að vera of löskuð til að geta séð um börnin mín. Ég átti mjög erfitt með að sætta mig við það,“ segir Hjördís. Faðir barnanna bjó erlendis á þessum tíma, þannig að þau voru hjá for- eldrum Hjördísar. Föðuramman og -afinn eru bæði látin. Ýmsu þurfti að fórna. „Ég var nýbúin að fá vinnu sem garðyrkjufræðingur hjá Reykjavík- urborg og mátti eiga við gróðurinn í mið- bænum eftir mínu höfði; var loksins komin með draumastarfið en veikindin tóku það af mér eftir aðeins einn og hálfan mánuð. Kannski kemst ég með fingurna í miðbæinn síðar,“ segir hún brosandi. Hjördís stundaði jóga áður en hún veiktist og hvarf aftur til þeirrar iðju eins fljótt og lík- aminn leyfði. „Það var mikill sigur þegar ég fór að geta gert æfingar sem ég sá fram á að geta aldrei gert aftur.“ Sumarið 2013 fór fjölskyldan á vegum Vildarbarna til Flórída þar sem þau syntu með höfrungum og snorkluðu með skötum. „Ég er svo gæfusöm að hafa ferðast svolítið eftir að ég veiktist; fólk hefur verið mjög almennilegt að taka mig með sér. Fyrst fór ég án barnanna en síðan fórum við að fara saman og höfum fengið mikið út úr því. Ég hef ekki ennþá ferðast ein en tel mig líklega til þess.“ Hjördís hefur einnig farið í Klettafjöllin með bróður sínum og mágkonu og núna er hún ný- komin heim úr ferð til Marokkó, þar sem hún steig meðal annars sandölduna á bretti. „Það var rosalega gaman,“ segir hún og brosir við tilhugsunina. „Ég hef verið að fara í eins konar eldriborgaraferðir miðað við það sem áður var, verið svolítið í bómull. Það venst svo sem ágætlega að þurfa að þiggja aðstoð.“ Hún skellir upp úr. Kyrrsett í sófanum Hjördís hefur um margt sætt sig við orðinn hlut; að fæturnir séu farnir, en viðurkennir að það sé ekki alltaf tekið út með sældinni að vera með gervifætur. „Það getur verið maus,“ byrj- ar hún. „Ég þarf til dæmis að fara með fæt- urna í stillingu annað slagið, það fer að koma að því núna, ég finn að þeir passa ekki alveg eins vel og þeir gerðu. Síðastliðið vor náðist að stilla þá svo vel að við lá að ég gæti dansað kó- sakkadans; svo vel pössuðu þeir.“ Hún hlær. Í fyrrasumar lenti Hjördís raunar í því að vöðvinn í fætinum stækkaði og hún gat ekki lengur notað gervifæturna en það getur komið fyrir vegna álags á stúfana. Búa þurfti til nýja fætur og á meðan var hún bara kyrrsett í sóf- anum heima. „Sem betur fer var ég komin svo langt líkamlega og tilfinningalega á þeim tíma að ég lét þetta bakslag ekki á mig fá. Þegar ég fékk hins vegar sár og sýkingu í stúfana árið 2015 fékk ég ofsakvíðakast. Vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við.“ Kvíðinn hefur haft margvíslegar birtingar- myndir gegnum þessa glímu og Hjördís rifjar upp að það hafi tekið sig margar klukkustund- ir að skrá sig á námskeið í listmeðferð. „Ég átti í miklum erfiðleikum með að skrá mig á nám- skeiðið, fékk ekki svar strax og var fegin að þurfa ekki að mæta. Síðan fékk ég jákvætt svar. Það var mjög mikil áskorun fyrir mig að vera búin að skuldbinda mig til að fara, en ég fór sem betur fer. Þetta námskeið bjargaði mér það haustið.“ Málaði tilfinningar sínar Á námskeiðinu fór Hjördís að mála myndir í fyrsta skipti á ævinni og fann sig strax vel í þeirri sköpun. „Listmeðferð snýst um að mála tilfinningar sínar og sumar myndirnar mínar voru ljótar,“ segir Hjördís og sýnir mér eina sem hangir uppi á vegg hjá henni. Þar er að sönnu allmikið um að vera, litadýrð, kaos og átök. Spurð hvort henni þyki ekki óþægilegt að horfa á mynd sem þessa í dag hristir hún höf- uðið. „Þetta var allt nauðsynlegur partur af ferlinu.“ Í þessum skrifuðum orðum er Hjördís að undirbúa sína fyrstu málverkasýningu, auk þess sem hún er komin með vinnustofu. Hún byrjaði líka að prjóna. „Það er sagt gott við ofsakvíða. Til að byrja með var ég í smá vandræðum en eftir að ég áttaði mig á því að ég þyrfti ekki endilega að fara eftir upp- Þegar Hjördís fór á skíði kveðst hún hafa endurheimt vonina. Sárið skoðað eftir aðgerðina. Drep kom í fætur Hjördísar eftir veikindin. Hjördís stígur sandölduna á bretti í eyðimörkinni í Marokkó um síðustu áramót. Hjördís í sjósundi ásamt jógasystrum sínum. ’Á margan hátt er égsterkari í dag en ég varfyrir áfallið. Ég fæ alvegkvíðaköst ennþá en ólíkt því sem áður var stöðvar það mig ekki lengur. Ég held mínu striki.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.