Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Blaðsíða 13
20.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
skriftum fór ég að njóta mín. Ég hef prjónað
ófáa vettlingana.“
Og hún er hvergi hætt að prjóna, komin með
vefstól og prjónavél.
Annað námskeið sem olli straumhvörfum
fyrir Hjördísi var svokallað „movement medic-
ine“-námskeið, það er hreyfing í lækningar-
skyni, sem hún skráði sig á árið 2016. „Það
hjálpaði mér að finna leiðir til að nota fæturna
og virkja vöðvana. Bæði fékk ég liðleika í lík-
amann og gott fólk að dansa við sem nærði mig
heilmikið félagslega, auk þess sem ég gat dreift
huganum. Það er svo mikilvægt á svona veg-
ferð að hugsa ekki stanslaust um ástandið. Allt
hefur þetta hjálpað mér að komast aftur inn í
samfélagið. Ég hef dansað ansi margt af mér.“
Hún brosir.
Markþjálfaði sig
gegnum félagsfælnina
Árið 2017 hóf Hjördís bæði nám í jógakennslu
og markþjálfun. Það var ekki lítið átak. „Öðr-
um þræði var það leið til að takast á við félags-
fælnina; til að byrja með svimaði mig stundum
við það eitt að mæta í skólann. Hvað þá meira.
Til allrar hamingju var mágkona mín, Hulda
Kristín Guðmundsdóttir, samferða mér gegn-
um markþjálfaranámið og ég hafði mikinn
styrk af henni. Meðan á því stendur gerir mað-
ur sér ekki alltaf grein fyrir ástandinu en ég
átta mig vel á því eftir á hvað ég var með fé-
lagsfælni á háu stigi,“ segir Hjördís og bætir
við að með markþjálfun hafi hún kynnst áhrifa-
ríkri aðferðafræði sem hún hefur nýtt sér æ
síðan. Hún lærði ekki bara markþjálfun heldur
nýtur reglulega leiðsagnar markþjálfa síns,
Luciu Lund, með sín verkefni. Þannig hefur
hún náð tökum á kvíðanum og félagsfælninni
með aðferðafræði markþjálfunar. „Lucia hefur
reynst mér frábærlega vel. Það er svo gott
þegar maður er spurður krefjandi spurninga
og setur sér markmið í votta viðurvist. Þá er
gott að eiga góðan markþjálfa að eins og hana.“
Hún segir jógað og markþjálfunina hafa
farið vel saman en hún lauk hvoru tveggja
náminu á liðnu ári. Hjördís er bæði með
grunn- og framhaldspróf í markþjálfun, auk
alþjóðlegrar vottunar, og er ekki í vafa um að
hún komi til með að nýta þá þekkingu til að
takast á við lífið í framtíðinni. Hún hefur
raunar þegar stigið næsta skref en hún er far-
in að fá til sín fólk í markþjálfun sem hún
blandar saman við heilun. „Mín aðferð er að
spegla með spurningum og hjálpa fólki þannig
að vinna úr sínum málum,“ segir Hjördís sem
tók á síðasta ári sæti í stjórn markþjálfa-
félagsins, ICF Iceland, og vinnur þessa dag-
ana að hinum árlega Markþjálfunardegi og
hlakkar til að heyra frá hinum alþjóðlegu
fyrirlesurum um árangur og arðsemi með
aðferðafræði markþjálfunar „Maður getur
alltaf á sig blómum bætt,“ segir hún og brosir.
Móðirin notar að sjálfsögðu þekkingu sína
til að hjálpa börnunum sínum að „næra eldinn
sinn“, eins og hún orðar það. Elst er Ástrós
Helga, átján ára, Ragnheiður Ír er þrettán ára
og yngstur er Mikael Árni, ellefu ára. Hann
hefur verið að læra á píanó og úkúlele og
mamman skellti sér sjálf á námskeið, syni sín-
um til stuðnings. „Meðan við áttum ekki píanó
var nágranni okkar svo almennilegur að leyfa
Mikael Árna að æfa sig hjá sér. Ég hef aldrei
verið í tónlist en núna eigum við eitthvað sam-
an sem gefur okkur báðum mikið.“
Hefur ekki liðið betur
Talið berst að lokum að framtíðinni og Hjördís
kveðst líta hana björtum augum. „Mér hefur
ekki liðið betur frá því að ég veiktist. Ég er alltaf
að taka fleiri og fleiri skref frá þessu áfalli og
einn liður í því er þetta blaðaviðtal. Ég finn hvað
það léttir á mér að segja sögu mína og því oftar
sem ég geri það, þeim mun þéttari verður hún.
Mér gengur betur og betur að skilja kjarnann
frá hisminu. Á margan hátt er ég sterkari í dag
en ég var fyrir áfallið. Ég fæ alveg kvíðaköst
ennþá en ólíkt því sem áður var stöðvar það mig
ekki lengur. Ég held mínu striki. Ég er farin að
gera það sem mig langar sjálfa til að gera – enda
er ég ekki í aðstöðu til að hlaupa fyrir aðra.“
Hún hlær stríðnislega.
„Það hefur verið rosaleg vinna að komast á
þennan stað en algjörlega þess virði. Í grunn-
inn snýst lífið um að vera sáttur við sjálfan sig
og njóta þess sem maður hefur. Ég tapaði
mörgu við veikindin en hef fengið ýmislegt
annað í staðinn. Ég óskaði ekki eftir þessu
ferðalagi en hef loksins náð þeim áfanga að
snúa vörn í sókn og héðan í frá ætla ég bara að
gera mitt besta til að njóta þess að vera til.“
Morgunblaðið/Hari
Hjördís á spítalanum ásamt börn-
um sínum. Þau eru Ragnheiður Ír,
Mikael Árni og Ástrós Helga.
Markþjálfunardagurinn 2019 verður haldinn
á fimmtudaginn á Hilton Reykjavík Nordica
Suðurlandsbraut 2. Hann snýst um mark-
þjálfun til árangurs, áhrifa og arðsemi.
Fyrirlesarar í ár eru þau Nathalie Ducrot,
alþjóðlegur stjórnendamarkþjálfi, og Guy
Woods, áhrifavaldur á samfélagsmiðlum og
alþjóðlegur markþjálfi. Auk þeirra koma
fram Örn Haraldsson, PCC-markþjálfi og
teymisþjálfari hjá Kolibri, Alda Karen Hjal-
talín, fyrirlesari og markaðssérfræðingur,
Olga Björt Þórðardóttir, markþegi og rit-
stjóri Fjarðarpóstsins, og John Snorri Sigur-
jónsson, markþjálfi og fjallagarpur.
Markþjálfunardagurinn 2019
John Snorri
Sigurjónsson,
markþjálfi og
fjallagarpur.