Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Side 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019 E rlendur Þór Magnússon gekk á Öræfajökul þegar hann var tólf ára gamall og renndi sér niður á snjó- bretti. Þetta var árið 1995. Síðan þá hefur mikill snjór fallið í fjöll þar sem hann hefur rennt sér og enn meira vatn runnið til sjávar þar sem hann leitar uppi öldur til að sinna mestu ástríðunni, brimbrettinu. Elli, eins og hann er alltaf kallaður, er alinn upp í Reykjavík, nánar tiltekið í póstnúmeri 104. Þrátt fyrir að vera borgarbarn var hann á fjöllum í öllum fríum. „Mamma og pabbi eru bú- in að vera í björgunarsveit í meira en 40 ár. Þau voru bæði í undanförum, sveitum sem fara fyrst að leita. Þau hafa alltaf verið með útivist á heil- anum,“ segir hann um foreldra sína, Magnús Dan Bárðarson og Lindu Björnsdóttur. „Þetta er allt þeim að kenna,“ grínast hann um útivistarsækni sína. „Við vorum dregin út um allar trissur hverja einustu helgi og í öllum fríum, upp á hálendi, á gönguskíði, gönguferðir og að hjóla. Bara alls konar útivist,“ segir Elli sem finnst hann heppinn með uppeldið. „Við vorum alltaf í tjöldum eða einhverjum fjallaskálum,“ segir Elli sem á tvær systur sem voru líka með í för, eina eldri og eina yngri. Núna eru mun fleiri í útivist en þá var. „Þá voru miklu færri og það var ekki eins algengt að fólk væri með börnin sín með,“ segir hann en margt hefur breyst. „Það sést á stöðum eins og Reykjadal. Þegar ég var lítill var bara enginn þarna,“ segir Elli og rifjar upp tjaldferðir á þessar slóðir. „Líka á hálendinu, þó að það séu enn þá til staðir þar sem eru ekki margir.“ Veturinn er tíminn Elli virðist kunna vel við sig á stöðum þar sem eru ekki margir. Hann er í heimildarmyndinni Under an Arctic Sky, sem er nú komin inn á Netflix. Myndin veitir góða innsýn í brim- brettaheiminn, sem á hug hans allan en hún segir frá erlendum brimbrettaköppum sem fara að leita að öldum á afskekktum slóðum á Íslandi um hávetur í fylgd með Ella og félögum. „Veturinn er aðaltíminn fyrir okkur sem eru að sörfa hérna og líka mest hjá mér að gera. Þá er ég oft í ferðum með atvinnumönnum í sport- inu bæði hér heima og erlendis,“ segir Elli og útskýrir að versta veðrinu og dýpstu lægðunum fylgi stærstu öldurnar. Á sumrin er minna í gangi. „Á veturna koma lægðirnar nánast stans- laust og þá þarf maður bara að sjá hvar þær koma og hvernig vindurinn er og keyra út um allt,“ segir hann en það þýðir ekki annað en að elta öldurnar til að finna bestu aðstæðurnar fyrir brimbrettaiðkunina. Í fyrrnefndri mynd keyrir hópurinn um Vest- firði og Norðurland að eltast við réttar að- stæður. Í þetta skiptið gekk allt upp á endanum þrátt eftir að hafa beðið af sér verstu lægð í ald- arfjórðung. „Við vitum alveg hvað við erum að gera. Ég er alinn upp á fjöllum,“ segir Elli sem segist fylgjast vel með veðri og færð. Það er samt ölduspáin sem hann fylgist með. „Það eru til útlenskar spár en þær eru ekkert voðalega nákvæmar á Íslandi en við höfum Siglingastofnun sem er búin að spá fyrir sjó- menn lengi og hún er góð, það er það sem við notum, þessar íslensku síður,“ segir Elli en nú er hægt að skoða þetta á síðu Vegagerðarinnar. „Maður liggur yfir þessu meira en Face- book!“ Elli segist kíkja á hverjum einasta degi á ölduspá og veðurspá til að sjá hvað er í vænd- um. „Svo breytist þetta oft mikið eins og við vit- um, spár standast ekki eða breytast daginn fyr- ir. Maður var kannski á leiðinni á Austurland en fer í staðinn á Norðurland,“ segir Elli sem ferðast mikið með vini sínum Heiðari Loga, en þeir tveir eru einu Íslendingarnir sem einbeita sér að brimbrettaiðkun einvörðungu. Elli er ljósmyndari að mennt og þau verkefni sem hann tekur að sér tengjast gjarnan íþróttinni. „Þau eru ekki öll beint tengd sörfi en ég hef myndað fyrir útvistarmerki, fatamerki tengd sörfi og þannig,“ segir Elli, sem hefur t.d. myndað fyrir Vans og Samsung en til viðbótar hafa myndir hans verið birtar í mörgum af helstu tímaritunum í íþróttinni. Auglýsing fyrir Pepsi Max Brimbrettaiðnaðurinn er stór. „Það er verið að sörfa í allri Evrópu, Bandaríkjunum og Ástral- íu. Ég las einhvers staðar að þetta væri stærri iðnaður en snjóbretti og skíði til samans,“ segir hann en það að sörfa í köldum sjó hefur vakið vaxandi athygli á síðustu fjórum árum. „Við tókum til dæmis þátt í auglýsingu fyrir Pepsi Max,“ segir hann en þetta var jólaauglýsing fyrir Pepsi Max árið 2017 en í henni eru Elli og Heiðar Logi á brimbrettum með LED-lýsingu. Menningin í kringum brimbretti er mun yngri á Íslandi en annars staðar. „Það er búið að sörfa í Kaliforníu og Ástralíu frá um 1960 og síðan þá hefur þetta bara stækkað. Svo fóru menn að fara út um allan heim að leita að öldu með engu fólki, það er málið,“ segir Elli en hann lærði að sörfa á Íslandi fyrir næstum fimmtán árum og ferðaðist tengt því. „Ég hef verið á Havaí, Kaliforníu, Nýja- Sjálandi, Filippseyjum og bara úti um allt,“ segir hann og útskýrir hversu ólíkt það er að sörfa þar eða hér. „Ef þú ert í Kaliforníu að sörfa eru 100-150 manns að berjast um hverja einustu öldu. Það er bara raunveruleikinn. Þess vegna fór maður til Filippseyja og Havaí og svo kom maður heim og ég fékk ábyggilega fleiri öldur á Íslandi á einum góðum degi hér en á þremur mánuðum úti,“ segir hann og áttaði sig þá á því hversu gott það væri að stunda íþrótt- ina hérlendis. „Í þessum stærstu löndum er búið að finna allar öldurnar; finna alla staðina. Þá fór fókus- inn að færast norðar og gallarnir þróuðust líka.“ Gallarnir orðnir svo góðir Þegar Elli byrjaði var hópur í kringum snjó- brettabúðina Týnda hlekkinn að stunda þetta. „Þá var þetta bara stundað á vorin, sumrin og haustin því gallarnir voru bara ekki nógu góðir. Núna hefur verið svo mikil þróun í þessu að við getum verið úti í sjó í janúar í 5-6 klukkutíma og það er kaldast að klæða sig í og úr. Það er lygi- legt hvað gallarnir eru öflugir,“ segir hann en gallarnir eru úr 6 mm þykku efni. Þannig að það er þessi þróun sem hefur ýtt undir sprengjuna sem hefur orðið í heiminum í brimbrettaiðkun í köldum sjó,“ segir Elli. „Svo fylgir umfjöllun í sörf tímaritunum og öllum miðlunum í kringum íþróttina. Fyrst byrjuðu að koma hingað atvinnumenn á árun- um 2000-2005 og svo fylgir venjulega fólkið á eftir,“ segir hann. Góður vinur hans, Ingólfur Olsen, er með fyrirtækið Arctic Surfers, sem tekur á móti brimbrettafólki og fer með það í ferðir hér- lendis. Þar er Elli líka með skrifstofu. „Hingað koma menn á miðjum aldri sem eru búnir að sörfa í áratugi en eru núna kannski forstjórar í einhverjum fyrirtækjum. Þeir vilja upplifa eitt- hvað nýtt. Það er líka það sem maður er hrædd- ur við því maður hefur það svo gott, getur sörf- að einn eða með einum vini sínum. Í kringum Reykjavík hefur maður séð þetta breytast. Það koma fleiri ferðamenn og líka fleiri Íslendingar að sörfa,“ segir hann en veðrið og aðstæður munu alltaf vera ákveðin sía svo það er ólíklegt að sjórinn í kringum Ísland fyllist af brim- brettafólki. „Þetta er ekki fyrir alla. Það er allt annað að vera bara í stuttbuxum eða að troða sér í 6 mm galla. Sumir fíla þetta og aðrir ekki.“ Þarf maður ekki að vera svolítið harður af sér til að þola kuldann? „Ég veit það ekki, þú hættir bara að hugsa um þetta. Maður pælir ekki í kuldanum, bara horfir á öldurnar og ef það eru geðveikar öldur ertu ekki einu sinni að hugsa um hvað klukkan er eða hvað þú heitir.“ Það er líklegt að marga langi að koma hingað til lands eftir að hafa séð fyrrnefnda heimildar- mynd þar sem hægt er að sjá norðurljósin speglast í sjónum við hlið tignarlegra fjalla. „Það gekk allt upp þarna, allar aðstæður voru til staðar fyrir myndatökuna. Það þarf fullt tungl, það þarf að vera snjór til þess að endur- spegla ljósið til þess að fá meiri birtu. Svo þurfa að vera öldur og svo þarf vindurinn að vera af landi. Þannig að það eru miklar breytur í gangi. Þetta er svona svipað og að vinna í lottói!“ En er ekki magnað að taka myndir þegar allt raðast svona upp? „Ég er alltaf að berjast við þetta því ég sörfa svo mikið sjálfur, þá er erfitt að standa bara á landi og taka myndir,“ segir Elli en það er þá ákveðin fórn fyrir hann að vera á landi. „En þegar maður er í einhverju verkefni að mynda atvinnusörfara fær maður mikið útúr því.“ Elli kynntist fyrst ljósmyndun í grunnskóla, í ljósmyndaáfanga í Langholtsskóla. „Ég held að það hafi kveikt áhugann,“ segir Elli sem hellti sér samt ekki út í þetta strax. Fyrst kom menntaskólinn og snjóbrettaiðkun. „Ég byrjaði á skíðum tveggja, þriggja ára en var á snjóbretti frá því ég var níu ára. Ég próf- aði snjóbretti í Kerlingarfjöllum og lét foreldra mína ekki í friði fyrr en þau keyptu bretti. Það voru 15-20 manns á snjóbrettum á þessum tíma,“ segir hann en sprengingin í íþróttinni kom síðar. „Ég varð alveg heltekinn af þessu. Þegar ég var í menntaskóla stakk ég af eitt ár, fór í Alp- ana,“ segir Elli sem var við nám í Mennta- skólanum við Sund. Eldri félagar hans voru þar við vetrardvöl. „En ég kom heim og kláraði skólann. Ég ferðaðist eftir það í svona átta ár en ég byrjaði að sörfa þegar ég var í kringum átján ára gamall.“ Haust í Nepal og Alpar eftir áramót Lífsstíllinn var því ekki alveg hefðbundinn en í takt við árstíðirnar. Elli vann við flúðasiglingar í Hvítá á sumrin. „Félagar mínir stofnuðu það sem heitir Artic Adventures í dag, reyndar búnir að selja, en það hét þá Arctic Rafting. Ég vann þar og bjó uppi á Drumboddsstöðum í fjóra til fimm mán- uði. Eyddi engum peningum, og svo fór maður Algjörlega í núinu Brimbrettakappinn og ljósmyndarinn Erlendur Þór Magnússon ólst upp við að vera dreginn á fjöll allar helgar og eyða sumarfríum í tjöldum og fjallaskálum á hálendinu við margskonar útivist. Það ætti því ekki að koma á óvart að hann hafi helgað sig fyrst snjóbrettinu og síðar bretti á sjó með viðkomu á kajak í straumhörðum ám Íslands og Nepals. Hann hefur fengið birtar myndir eftir sig í helstu blöðum brimbretta- íþróttarinnar og Marie Claire auk þess að hafa myndað fyrir Samsung og Vans. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Það sem er svo eftirsóknarvert við að sörfa hér er að það er enn þá ævintýri. Fyrir mér er sörfið 50% og 50% er ferðalagið í kringum þetta, félagsskapur- inn og það að leita; stundum keyrirðu í átta tíma og verður fyrir vonbrigðum en þegar það heppnast er það magnað,“ segir Elli m.a. í viðtalinu. ’Maður pælir ekki í kuldanum,bara horfir á öldurnar og efþað eru geðveikar öldur ertu ekkieinu sinni að hugsa um hvað klukkan er eða hvað þú heitir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.