Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2019
H
ugarfar er ekki auðvelt að
mæla. En rétt hugarfar er þó
gulls ígildi eins og dæmin
sanna. Við getum nefnt þau
mörg og harla ólík, stór og
smá.
Bjuggu til eigin kvarða
Íslenska landsliðið lá lágt á kvarða yfir þau lið sem
leituðust við að komast á Evrópumót og heimsmeist-
aramót. Það var ekki hægt að kvarta yfir þeim kvarða
því hann vigtaði frammistöðu með hlutlausum hætti.
Þess utan voru aðrir þættir sem renndu stoðum undir
þá niðurstöðu. Það hversu fámenn þjóð væri og
hvernig skilyrði væru til iðkunar knattspyrnu við þær
aðstæður sem yrðu á mótssvæðunum og þar fram
eftir götum. Jafnvel þegar okkar lið lá hvað lægst á
listanum sem sýndi skráðan árangur hafði það náð
hærra þar en fyrrnefndir þættir gáfu tilefni til. En á
„gullárum“ íslenska liðsins mætti það til leiks í krafti
hugarfars sem dró ekki dám af gömlum kvörðum. Og
baklandið, Ísland allt, var á svipuðu róli, ef ekki enn
meira á skjön við tengingu við þann raunveruleika
sem mátti lesa úr alþjóðlegum skýrslum um knatt-
spyrnu. Og einmitt vegna þess að hugarfarið var á
allt öðru róli en veruleikinn þá var það hann sem tók
að laga sig að hugarfarinu.
Nú skal því ekki haldið fram hér að besta vega-
nestið sé jafnan það að mæta veruleikafirrtur til
leiks. En vanmetakennd, þótt hún sé vel grunduð og
byggð á bestu upplýsingum sem liggja fyrir, er þó
enn verri. Því hún segir „ég get ekkert“, „ég mun fara
sneypuför“ og „því er hvíta uppgjafarflaggið við hún
minn fáni“. Sá fáni hefur aldrei fylkt liði til sigurs.
Mannamunur
Þegar Churchill hóf feril sinn sem forsætisráðherra á
ögurstund í lífi þjóðar sinnar sagðist hann engu geta
lofað henni nema blóði, erfiði, tárum og svita. Ekki
uppörvandi boðskapur það en á þeirri stundu hinn
eini rétti. Chamberlain hafði, rétt eins og fyrirrennari
hans Stanley Baldvin, gert dýrkeypt glappaskot með
því að bregðast ekki við ógnum sem stöfuðu frá Adolf
Hitler, leiðtoga og einvaldi Þjóðverja. Chamberlain
tryggði Bretum „frið um vora daga“ með plaggi sem
Hitler hafði klórað á, ráðinn í að hafa það að engu.
Chamberlain hafði margoft varað þing sitt við því
að „ögra“ Hitler og hefja varnarlegan undirbúning í
tíma. Nú var hann farinn úr brúnni og Churchill vissi
að það var fyrirsjáanleg röð tíðinda í vændum sem
langflest, ef ekki öll, yrðu afspyrnu vond. Og sú varð
raunin og lengi vel voru þau í fullu samræmi við boð-
skap ræðunnar frægu.
En smám saman sáust glætur þótt meginfréttin
væri vond. Þær mátti nýta til langþráðrar uppörv-
unar. Og mesti ræðuskörungur sem þjóðin átti
breytti mörgum þessum ljósdropum í skínandi perlur
sem enn glampar á. Hann lýsti því að innrás væri í
burðarlið handan sundsins og yrði sú raunin mætti
vænta ofureflis liðs. Þá yrði barist á ströndum og
strætum og gæfu strandvarnirnar sig þá yrði barist
um hverja brekku og hvern hól og ef það dygði ekki
til yrði áfram barist á höfunum og frá samveldislönd-
unum utan Bretlands. Uppgjöf væri það eina sem
aldrei kæmi til greina. Því trúðu þau sem sátu
þungbúin við viðtækin sín þar sem loftárásir höfðu
ekki rústað heimilunum og trúðu því að þetta væru
ekki orðin tóm. Þessi karl myndi aldrei gefast upp og
það myndu þau ekki gera heldur. Og þau trúðu því
einnig að aðeins sá og aðeins þau sem aldrei gæfust
upp ættu sigurvon þegar verst horfði.
Bautasteinar bardagans
Það var hrikaleg niðurlæging þegar við blasti að Hit-
ler myndi króa af, drepa eða fangelsa um 300 þúsund
manna lið í Dunkirk. Það hefði dregið kjark úr mönn-
um. En djörf ef ekki fífldjörf björgunartilraun, þar
sem hverri skektu var stefnt yfir sundið til að bjarga
hernum heim, heppnaðist betur en nokkur gat vonað.
Óskiljanlegt hik hinnar harðsnúnu þýsku her-
stjórnar, sem ekki hefur enn verið skýrt til fulls,
skipti sköpum. Þessi aðgerð breytti hinu yfirvofandi
stórtjóni, sem virtist vera óhagganleg staðreynd, í
dásamlegan sigur, þótt óvenjulegur væri. Og enginn
var betri en sá sem sat Downingstræti þá til að nýta
sér þetta ljós í stríðsmyrkrinu til að lyfta þjóð sem
svo lengi hafði beðið góðra frétta.
Þegar fámennur flugher bráðungra manna hafði
gegn öllum líkindum hrundið lofthernaði Þjóðverja,
margföldu ofurefli, var því lýst með ræðu sem söng í
eyrum þjóðarinnar og er ekki laust við að hún geri
það enn.
Og eftir fyrsta raunverulega sigurinn í orrustu við
El Alamein virtist forsætisráðherrann draga úr, en
með ógleymanlegri orðsnilld þjappaði þjóðinni sam-
an. Sigurinn sá var ekki endirinn. Ekki einu sinni
upphafið að þeim endi, en hann gæti hugsanlega verið
endir þess upphafs.
Kjörorðin voru: „Never, never, never quit.“ Þeir
sem horfa gagnrýnum augum á tilburði May for-
sætisráðherra segja að hennar háttur sé að gefast
upp fyrir búrókrötum Brussel hvenær sem hún fái
færi á.
Feilspark foringja
Því miður var framganga Camerons, fyrirrennara
hennar, ekki burðugri. Hann hafði heitið því að semja
við Brussel um betri stöðu Breta innan ESB og það
sem mestu máli skipti var að hann hét því að án slíks
samnings myndi hann sjálfur styðja útgöngu í þjóð-
aratkvæðinu og hvetja aðra Breta til að gera slíkt hið
sama.
Cameron fékk blíðlegar viðtökur hjá ýmsum leið-
togum smáþjóða í ESB. En á þeim er aldrei nokkurt
mark tekið. Þeir sem réðu tryggðu að hann fengi ekk-
ert, því að aðrir óburðugri gætu þá talið það fordæmi,
hættulegt fordæmi.
Cameron sneri aftur og reyndi um hríð að halda því
fram upp í opið geðið á þjóðinni að hann hefði haft
eitthvað upp úr krafsinu og þyrfti því ekki að standa
við stóru orðin og hvetja þjóðina til að samþykkja út-
göngu. En það gerði hún og kannski hefur þessi
framganga sjálfs forsætisráðherrans, sem tapað
hafði trúverðugleika, ráðið úrslitum.
Því að nú blasti við öllum að jafnvel þótt eitt öflug-
asta ríki sambandsins hótaði brottför var það ekki
tekið alvarlega. Og leiðtogi þess brást sjálfur þannig
við að það sýndi að það mat í Berlín og Brussel að
óþarft væri að taka hann og þjóð hans alvarlega væri
rétt!
Lýðræðið á sífellt færri vini í raun
Það er einkar dapurlegt að horfa upp á að sömu þing-
menn sem samþykktu á þingi með miklum yfirburð-
um að stofna til þjóðaratkvæðis um veru eða útgöngu
í ESB, sem yrði algjörlega bindandi, reyna nú fyrir
allra augum að finna leið til að eyðileggja niðurstöð-
una. May forsætisráðherra endurtekur að hún sé enn
að vinna að því að við niðurstöðuna verði staðið enda
May er ekki ein
um að fara út af í
annarri hverri beygju
Reykjavíkurbréf18.01.19