Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2019, Page 35
Ottessi Moshfegh
Þótt heldur hafi dregið úr bók-menntagagnrýni víðast hvarhalda helstu fjölmiðlar upp-
teknum hætti, ræða við rithöfunda,
skrifa fréttir af þeim og birta gagn-
rýni. Í lok árs birta þeir síðan marg-
ir yfirlit yfir það sem þeir telja bæk-
ur ársins. Algengt er að
gagnrýnendum viðkomandi fjölmið-
ils sé falið að velja bækur á slíkan
lista, ýmist sem staka lista eða sam-
eiginlegan lista. Í sumum blöðum er
ekki getið um hverjir velja eða það
er kynnt sem val ritstjórnar, önnur
fá rithöfunda eða fólk úr ýmsum átt-
um til að velja, og einnig eru dæmi
um það að fjölmiðlar fái lesendur
sína í lið með sér til að velja.
Á netinu velja menn einnig bæk-
ur, til að mynda bóksölusíður Ama-
zon og Barnes & Noble, svo dæmi
séu tekin, en einnig er grúi bóka-
blogga og minni vefsetra sem fjalla
um bækur allt árið og birta síðan
lista í árslok, stundum á mjög
þröngu sviði; bestu ástarsögur,
bestu sönnu glæpasöguna, bestu
bækur fyrir athafnaskáld, bestu
bækur fyrir íhaldsmenn, bestu
kristnu bækurnar, bestu bækurnar
fyrir samkynhneigða, bestu vísinda-
skáldsögur, ævintýrabækur eða
glæpasögur, svo dæmi séu tekin.
Áhugasamir lesendur kunna jafnan
vel að meta slíka lista, því þar má
finna vísbendingar um hvaða bókum
sé vert að bæta á lestrarlistann eða
hrúga á náttborðið. Það er og af nógu
að taka því þótt sumar bækur raði sér
á marga listanna þá eru þeir yfirleit
ótrúlega fjölbreyttir enda byggist val-
ið á smekk en ekki vísindarann-
sóknum og svo lesa ekki allir allt. Þeg-
ar litið er yfir lista tímaritanna,
dagblaðanna, vefritanna og vefsetr-
anna New York Times, The Atlantic,
The Guardian, Barnes & Noble, Chi-
cago Review of Books, Washington
Post, Amazon, Chicago Tribune, Jeze-
bel og Evening Standard eru þannig
187 titlar á listanum. Ekki eru nema
23 bækur á fleiri en einum lista, en
þess má reyndar geta að pólska skáld-
konan Olga Tokarczuk á þar tvær
bækur, verðlaunabókina Flights og
Drive Your Plow over the Bones of
the Dead, sem kom út á ensku á árinu.
Bestu bækurnar?
There There, fyrstu skáldsögu
Tommys Orange, og My Year of
Rest and Relaxation eftir Ottessi
Moshfegh mætti kannski kalla
bestu bækurnar, enda voru þær á
fimm listum. Circe eftir Madeline
Miller, Educated eftir Töru Westo-
ver, Firefly eftir Henry Porter og
ævisaga Fredericks Douglass eftir
David W. Blight eru á fjórum list-
um. The Female Persuasion eftir
Meg Wolitzer, The Great Alone eft-
ir Kristin Hannah, The Great
Believers eftir Rebeccu Makkai og
The Largesse of the Sea Maiden
eftir Denis Johnson eru á þremur
listum.
Á tveimur listum eru The Incendi-
aries eftir R.O. Kwon, The Perfect
Nanny eftir Leilu Slimani, sem kom
út á íslensku undir nafninu Barna-
gæla fyrir tveimur árum, The Wom-
an in the Window eftir A.J. Finn,
sem kom út í fyrra hér á landi og
heitir Konan í glugganum, Wash-
ington Black eftir Esi Edugyan,
Your Duck Is My Duck eftir Deb-
oruh Eisenberg, Assymetry eftir
Lisu Halliday, Beside the Syrian
Sea eftir James Wolff, Children of
Blood and Bone eftir Tomi Adeyemi,
Crudo eftir Oliviu Laing, How to
Change Your Mind eftir Michael
Pollan, Milkman eftir Önnu Burns,
Sabrina eftir Nick Drnaso, Normal
People eftir Sally Rooney og The
Overstory eftir Richard Powers.
Norskar og danskar
Í lokin má svo nefna að Politiken til-
nefndi þessar sjö bækur til bók-
menntaverðlauna blaðsins: Dagene
er data eftir Lone Hørslev, de eftir
Helle Helle, Jens eftir Jens Smærup
Sørensen, Solar eftir Theis Ørntoft,
Den inderste fare eftir Birgithe
Kosovic, Træmuseet eftir Christian
Yde Frostholm og Ravnenes hvisk-
en eftir Malene Sølvsten.
Meðal bestu bóka sem komu út í
Noregi á árinu að mati gagnrýnenda
Verdens Gang eru Byens spor 2.
Maj eftir Lars Saabye Christensen,
Bjørnen eftir Gard Sveen, Hariton
Pushwagner eftir Petter Mejlænd-
er, Klør eftir Idu Frisch, Kinder-
whore eftir Mariu Kjos Foss, sem
tveir völdu, Kastanjemannen eftir
Søren Sveistrup, Alle dagers ende
eftir Jenny Erpenbeck, Vegetarian-
eren eftir Han Kang, Ut av ensom-
heten eftir Benedict Wells, Leksi-
kon om lys og mørke eftir Simon
Stranger, Hvitekrist eftir Tore
Skeie, Hvem sa hva? eftir Helene
Uri, Rød mann. Sort mann eftir Kim
Leine, Med øksene dei haustar inn
eftir Sigmund Løvåsen, Venn med
alle eftir Gunnar Wærness, Kinder-
whore eftir Mariu Kjos Fonn, De
polyglotte elskerne eftir Linu Wollf,
Når landet mørknar eftir Tore
Kvæven og Krigerens fred eftir
Lasse Gallefoss.
Erlendar bækur ársins
Undir lok hvers árs keppast fjölmiðlar við að birta lista yfir það besta og
markverðasta sem bar á góma eða kom út. Slíkir listar eru happafengur
þeim sem lesa bækur, en undirstrika um leið að ekki verður deilt um smekk.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Madeline MillerTommy Orange
20.1. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
BÓKSALA 9.-15. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 Á eigin skinniSölvi Tryggvason
2 Að vetrarlagiIsabel Allende
3
Almanak Háskóla Ísl. 2019
Þorsteinn Sæmundsson/
Gunnlaugur Björnsson
4 HeltekinFlynn Berry
5 Taktu til í lífi þínuMarie Kondo
6 Afbrot og íslenskt samfélagHelgi Gunnlaugsson
7
Rauður maður/Svartur
maður
Kim Leine
8 BrúðanYrsa Sigurðardóttir
9 Dagbók Kidda klaufa 10Jeff Kinney
10 Ungfrú ÍslandAuður Ava Ólafdóttir
1
Becoming Michelle
Obama
Michelle Obama
2
21 Lessons for the 21st
Century
Yuval Noah Harari
3
Fork, the Witch, and the
Worm
Christopher Paolini
4 SapiensYuval Noah Harari
5 Leverage in DeathJ.D. Robb
6 Thai Food Made EasyTom Kime
7 SilmarillionJ.R.R. Tolkien
8 Calm the F**k DownSarah Knight
9
The Crimes of Grindel-
wald - Fantastic Beasts
J.K. Rowling
10 Homo deusYuval Noah Harari
Íslenskar bækur
Erlendar bækur
Ég var að lesa Ungfrú Ísland eftir
Auði Övu og varð fyrir smá von-
brigðum með hana, fannst persón-
urnar of grunnar.
Hún missti mig líka
alveg undir lokin, en
ég er annars mikill
aðdáandi hennar.
Svo er ég byrjuð á
Ástin Texas eftir
Guðrúnu Evu Mín-
ervudóttur og er hugfangin af
henni afmælissystur
minni. Hún er
skemmtileg og falleg
og svo íhugul. Mér
finnst Guðrún Eva
hafa þroskast mikið í
sínum texta.
Svo hef ég verið
að lesa mikið af fyrstu ljóðabók-
unum hans Gyrðis Elíassonar, er að
raða í bókahillur hjá
mér bókunum hans
pabba míns, Geir-
laugs Magnússonar
og ákvað að nota
tækifærið og byrja á
byrjuninni. Sumar
þeirra eru svaka-
lega myrkar en rosalega áhrifarík-
ar. Ég er líka aðeins byrjuð á nýju
bókinni hans, Sorgarmarsinum.
ÉG ER AÐ LESA
Móheiður
Hlíf Geir-
laugsdóttir
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir
er skáld og heimspekilegur
leiðsögumaður.
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Langar þig í
ný gleraugu
Það fyrsta sem Marilyn Monroe leikkona tók eftir þegar hún
hitti Arthur Miller rithöfund, voru gleraugun!
Velkomin til okkar