Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 1

Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 1
Morgunblaðið/Eggert Fossvogsskóli Viðgerðir hefjast. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fossvogsskóla verður lokað eftir kennslu á miðvikudag vegna raka- og loftgæðavandamála. Kennt verður í skólanum í dag og fram á miðvikudag. Kennsla á að hefjast að nýju annars staðar á mánudag. Finna þarf pláss fyrir 352 nem- endur skólans þær tólf vikur sem eftir eru af skólaárinu. Nemendum í 4. bekk verður áfram kennt í laus- um kennslustofum á skólalóðinni. Útvega þarf húsnæði fyrir 1.-3. bekk og 5.-7. bekk. Reynt verður að finna hentugt kennsluhúsnæði sem næst Fossvoginum. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, sagði að velt hefði verið upp ýmsum mögu- leikum varðandi húsnæði til loka skólaársins. „Við reynum að koma þessu þannig fyrir að sem stærstur nemendahópur geti verið saman á hverjum stað,“ sagði Helgi. „Varð- andi þarfir yngstu barnanna þarf að vera aðstaða til útiveru og ann- ars slíks. Eðlilega viljum við að hefðbundið skólastarf nemenda raskist sem minnst. Einnig að vel sé búið að starfsfólki og að samstarf þess geti haldið áfram.“ »6 Finna þarf kennsluhúsnæði í vikunni  Fossvogsskóla verður lokað vegna myglu frá miðvikudegi og út skólaárið M Á N U D A G U R 1 1. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  59. tölublað  107. árgangur  MEISTARI Í KATA FIMM ÁR Í RÖÐ HEFUR MIKIÐ GILDI FYRIR SAMFÉLAGIÐ INNFLUTNINGI Á HRÁU KJÖTI VERÐI FRESTAÐ ÖFLUGT FÉLAGSSTARF 12 FUNDUR Á KANARÍ 10KARATE ÍÞRÓTTIR  Allir þeir 157 sem voru um borð í Boeing 737-800 flugvél á leið til Naíróbí fórust er vélin hrapaði skömmu eftir flugtak í gær. Í vél- inni voru 149 farþegar auk átta manna áhafnar. Farþegarnir voru frá 32 löndum, flestir frá Kenía og Kanada. Flugvélin, sem var í eigu Ethiopi- an Airlines, stærsta flugfélags Afr- íku, tók á loft frá Addis Ababa, höf- uðborg Eþíópíu, en náði einungis 60 km frá borginni. Framkvæmda- stjóri flugfélagsins, Tewolde Gebre Mariam, sagði við AFP fréttaveit- una í gær að flugmaður vélarinnar hefði óskað eftir því að snúa vélinni við skömmu eftir flugtak. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem Boeing 737-800 flugvél hrapar skömmu eftir flugtak. Flugvél Lion Air af sömu gerð hrapaði í Jakarta í október í fyrra og létust allir þeir 189 sem voru um borð. »15 AFP Af slysstað Bandaríkin og Eþíópía munu fara saman með rannsókn á flugslysinu. Eitt mannskæðasta flugslys síðari ára  Guðrún og Jón hafa verið algeng- ustu nöfnin hér á landi í meira en 300 ár og rekja má skyndilega aukningu í vinsældum nafnsins Emma fyrir um 20 árum til sjón- varpsþáttarins Friends. „Kalla- og kellinganöfn“ eru á undanhaldi og eftir því sem fólk er eldra er lík- legra að það hafi fengið nafn afa síns eða ömmu. Þetta er á meðal þess sem athug- anir dr. Guðrúnar Kvaran, prófess- ors emeritus við Háskóla Íslands, á íslenskum nafnaforða hafa sýnt og kynnti hún niðurstöður sínar á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands um helgina. »10 Friends hafði áhrif á nafngiftir á Íslandi Á milli 2.500 og 2.600 íbúar á höfuðborgarsvæð- inu og um 500 íbúar á Austurlandi fengu bólu- setningu gegn mislingum um helgina. Meðal þeirra var Dagur Rafn Andrason 15 mánaða sem þáði bólusetningu á heilsugæslu- stöðinni Sólvangi í Hafnarfirði í gær. »4 Morgunblaðið/Hari Bólusett fyrir austan og sunnan um helgina Snorri Másson snorrim@mbl.is Samtök atvinnulífsins munu í dag eða á morgun kæra tilteknar verk- fallsaðgerðir Eflingar fyrir Fé- lagsdómi. Umræddar aðgerðir voru samþykktar í atkvæðagreiðslu fé- lagsmanna Eflingar um helgina og í þeim felst meðal annars að þeir leggja ekki niður störf að fullu, heldur sinna eingöngu hluta venju- bundinna starfa sinna. „Þetta geng- ur gegn skilningi margra á vinnu- löggjöfinni,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins. Í tilfelli hópbifreiðastjóra er til dæmis boðað að þeir haldi áfram akstri, en hætti að kanna farmiða farþega. Halldór segir þetta ótækt, þar sem ekki verði skilið á milli aksturs og þess að hleypa farþeg- um inn í bifreiðina. Hann segir þannig tiltekin verkefni starfs- manna órjúfanlegan hluta starfsins. Einnig er boðað að hópbifreiða- stjórar hætti að dæla eldsneyti á bifreiðar. Halldór segir að það geti skapað almannahættu, ef bifreið skyldi stöðvast. Hann segir að fyrirhugaðar að- gerðir gangi gegn eðli verkfalla. „Með þessu er Efling að marka skörp og illverjandi skil í þróun verkfallsréttar og beitingar hans. Það virðist vera sérstakt keppikefli Eflingar að láta reyna á mörk lög- legra verkfalla og eðlilegt því að leita úrskurðar Félagsdóms,“ segir Halldór. SA kærir aðgerðir Eflingar  Efling boðar vinnutruflanir  SA segir látið reyna á mörk löglegra verkfalla MAðgerðir Eflingar… »2  Loðnuleit grænlenska uppsjávar- veiðiskipsins Polar Amaroq hafði ekki skilað neinum árangri síðdegis í gær. Skipið var þá statt út af Breiðafirði eftir að hafa siglt nær hringinn í kring- um landið í leit að loðnu. „Útkoman er eitt stórt núll,“ sagði Þorsteinn Sigurðsson, sviðs- stjóri hjá Hafrannsóknastofnun. Hann sagði að það væru vonbrigði, en ekki alveg óvænt. Ekki varð vart við vesturgöngu. »8 Loðnuleit ekki skil- að neinum árangri Loðna Vonir minnka um loðnuveiði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.