Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019
Til fulltrúaráðs launamanna
Birtu lífeyrissjóðs
Kjörfundur 2019
Kjörfundur fulltrúa launamanna í Birtu lífeyrissjóði,
vegna stjórnarkjörs í lífeyrissjóðnum verður haldinn
á Reykjavík Hotel Natura 28. mars nk. kl. 17.
Ársfundur Birtu lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtu-
daginn 11. apríl kl. 17 á Grand Hóteli Reykjavík.
Dagskrá er samkvæmt samþykktum sjóðsins.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Aðgerðir Eflingar samþykktar
Aðgerðir hefjast 18. mars Vinna lögð niður að hluta og í heild Vinna stöðvuð alveg 1. maí
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Félagsmenn Eflingar samþykktu
margvíslegar verkfallsaðgerðir í sjö
atkvæðagreiðslum sem lauk um
helgina. Starfsfólk á hótelum, hjá
rútufyrirtækjum og hjá Almenn-
ingsvögnum Kynnisferða leggur nið-
ur störf í sólarhring kl. 00.01 föstu-
daginn 22. mars. 1. maí hefst
ótímabundið allsherjarverkfall.
18. mars hefjast fyrstu örverkföll-
in svonefndu, eða vinnutruflanir,
sem fela í sér að verkfallsfólk mætir
til vinnu en sleppir því að vinna til-
tekin störf. Þessar aðgerðir munu
stigmagnast og leiða á endanum til
þess að fólk á tilteknum vinnustöð-
um vinnur aðeins hluta af því starfi
sem það vinnur að öllu jöfnu.
Samtals voru greidd 1263 atkvæði
í þessum sjö atkvæðagreiðslum. Af
þeim samþykktu 1127 verkfallsboð-
anir, 103 greiddu atkvæði gegn boð-
unum og 33 tóku ekki afstöðu. Kjör-
sókn meðal félagsmanna nam um
35% og náði í öllum tilfellum þeim
20% lágmarksþröskuldi sem settur
hafði verið. Mest var kjörsóknin
meðal starfsfólks Almenningsvagna
Kynnisferða sem eru verktakar hjá
Strætó BS. Þeir keyra um 50 stræt-
isvagna og þjónusta tíu leiðir Strætó.
Meðal hótelstarfsfólks og hjá rútu-
fyrirtækjum almennt, var kjörsókn-
in um 30-35%.
Strax 18. mars og til ótilgreinds
tíma munu bílstjórar Almennings-
vagna Kynnisferða hætta að annast
eftirlit með greiðslu fargjalds, óháð
greiðslumáta. Þá áskilja sömu bíl-
stjórar sér rétt frá og með sama
tíma, til þess að hliðra til reglu-
bundnum störfum sínum til að þeim
sé unnt að dreifa kynningarefni um
verkfallsaðgerðir. 1. apríl hefjast
umfangsmeiri verkfallsaðgerðir hjá
þeim, þá verður öll vinna lögð niður
dag hvern á milli klukkan 7 og 9 á
morgnana og aftur á milli 16 og 18
síðdegis.
Engin klósettþrif
Ítarlega skipulagðar aðgerðir eru
einnig yfirvofandi í hópbifreiðaakstri
almennt, það er meðal annarra fé-
lagsmanna Eflingar en þeirra sem
starfa hjá Kynnisferðum. Frá og
með 18. mars hætta þeir hópbifreiða-
stjórar að vinna önnur störf en „til-
greind eru í starfslýsingu“. 23. mars
hætta þeir að skoða farmiða farþega
og 30. mars hætta þeir að mæta í
vinnuna fyrir hádegi. Þessar aðgerð-
ir vara flestar í 2-3 daga en verða
endurteknar, ýmist allar í einu eða
hluti þeirra, þar til í lok apríl. Hót-
elstarfsfólk hættir þá að vinna til-
tekin störf. Frá 18. mars og út apríl
hætta hótelstarfsmenn að vinna þau
störf „sem eru ekki tiltekin í starfs-
lýsingu“. Frá 23. mars og út apríl
verða engin klósett þrifin af þessu
starfsfólki og ekki heldur sameigin-
leg rými á hótelum. Frá 30. mars og
út apríl verða engin herbergi þrifin
sem gestir eru enn innritaðir í og
engin morgunverðarþjónusta veitt.
26. apríl hættir öll þvottaþjónusta.
Þátttaka starfsfólks Almennings-
vagna Kynnisferða í atkvæðagreiðsl-
unni var um 70% og stuðningur við
verkfallstillögurnar þar af nánast
einróma, 95-100%. Minnstan hljóm-
grunn hlutu tillögur um verkföll hjá
öðrum rútufyrirtækjum, hjá um 80%
þeirra sem kusu.
Sólarhringsverkföll
» 22. mars: 1 dagur.
» 28.-29. mars: 2 dagar.
» 3.-5. apríl: 3 dagar.
» 9.-11. apríl: 3 dagar.
» 15.-17. apríl: 3 dagar.
» 23.-25. apríl: 3 dagar.
» 1. maí hefst allsherjarverk-
fall þangað til samningar nást
Lögreglan í Dublin reisti vegatálma
í borginni á laugardag, þar sem síð-
ast sást til Jóns Þrastar Jónssonar,
og tók ökumenn leigubíla tali í von
um að fá frekari vísbendingar um
afdrif Jóns. Ekkert hefur spurst til
hans síðan 9. febrúar.
Davíð Karl Wiium, bróðir Jóns
Þrastar, segir að lögreglan hafi
sýnt ökumönnum mynd af Jóni og
spurt hvort þeir hafi séð til hans
eða komist í kynni við hann. Í dag
mun hann funda með lögreglunni
þar sem farið verður yfir gang
mála, um hvað kom út úr aðgerð-
inni á laugardag og hvernig gangi
að vinna úr þeim ábendingum sem
hafa borist.
„Við höldum áfram að vera sýni-
leg og leita. Vonandi fáum við ein-
hverjar fréttir,“ segir Davíð.
Jóns hefur verið saknað í rúman
mánuð, en síðast sást til hans í
Whitehall-hverfinu klukkan rétt
rúmlega ellefu fyrir hádegi. Jón
hugðist taka þátt í pókermóti í Du-
blin. veronika@mbl.is
Vegatálmar í Dublin
Jóns Þrastar er enn leitað Lögregla ræddi við bílstjóra
Ljósmynd/Hanna Björk Þrastardóttir
Dublin Lögregla setti upp vegatálma í grennd við þær slóðir þar sem Jón
Þröstur sást síðast. Ekkert hefur spurst til hans síðan 9. febrúar.
Í dag funda samninganefndir Lands-
sambands íslenskra verslunarmanna
og Samtaka atvinnulífsins hjá rík-
issáttasemjara. Gert er ráð fyrir
fundi fram eftir degi. Ekki fengust
upplýsingar um efni fundarins, enda
eru viðsemjendur bundnir trúnaði
um það sem fer fram á sáttafundum.
Samflot iðnaðarmanna og SA
funduðu alla helgina undir stjórn
Bryndísar Hlöðversdóttur ríkis-
sáttasemjara. Í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi sagði hún að
verið væri að ræða heildarsamhengi
og að ekki yrðu tekin út fyrir sviga
einstök atriði í samningaviðræð-
unum. Á föstudaginn sagði í pistli á
heimasíðu Samiðnar að vonir stæðu
til að umræðu um vinnutímastytt-
ingu lyki um helgina. Hvort þær
væntingar stóðust fékkst ekki stað-
fest.
Á morgun funda samninganefndir
Starfsgreinasambandsins með SA.
Samninganefnd SGS samþykkti á
föstudaginn að halda viðræðum
áfram. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins mun samflot iðnaðar-
manna ganga til fundar með SA hjá
sáttasemjara á miðvikudaginn.
snorrim@mbl.is
LÍV hjá
sáttasemj-
ara í dag
Ekkert gefið upp
um einstök atriði
Mikil svifryksmengun mældist á höfuðborg-
arsvæðinu í gær og fóru hæstu gildi yfir 80
μg/m³ sem teljast slæm loftgæði samkvæmt loft-
gæðavef Umhverfisstofnunar. Svifrykið hefur
vart farið framhjá vegfarendum sem fengu sér
göngutúr í Grafarholti í gær, en í borginni var
bjart og stillt veður. Í dag á hins vegar að hvessa
allvíða en verður þó hvassast sunnantil á land-
inu.
Svifrykið var alltumlykjandi í Grafarholti
Morgunblaðið/Hari