Morgunblaðið - 09.03.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019
Aðalfundur
landsamtakanna Spítalinn okkar verður haldinn
þriðjudaginn 12. mars 2019 kl. 16.00
á Icelandair Hótel Natura Víkingasal 7.
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Henrik Eriksen framkvæmdastjóri
nýbygginga við Ríkisspítalann í Kaupmannahöfn. Hann flytur
erindi um byggingaverkefnið, áskoranir, lærdóm sem draga
má af framkvæmdunum.
Stjórnin.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fossvogsskóla verður lokað eftir að
skóladegi lýkur miðvikudaginn 13.
mars vegna raka- og loftgæðavanda-
mála. Skólastarf verður í skólanum í
dag og fram á miðvikudag. Skipu-
lagsdagar skólans verða á fimmtu-
dag og föstudag og fellur kennsla
niður. Hún á að hefjast að nýju ann-
ars staðar mánudaginn 18. mars.
Þetta var ákveðið á fundi fulltrúa
skóla- og frístundasviðs, umhverfis-
og skipulagssviðs, heilbrigðiseftirlits
og skrifstofu eigna- og atvinnuþró-
unar Reykjavíkurborgar í Ráðhús-
inu síðdegis í gær. Eftir það fór
Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og
frístundasviðs, á fund með skólaráði
Fossvogsskóla. Þar var mikil eining
um aðgerðirnar sem boðaðar voru í
gær, að sögn Helga. Hann mun hitta
skólaráðið aftur nú síðdegis.
Varúðarráðstöfun að loka
Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri
Fossvogsskóla, upplýsti foreldra
nemenda í skólanum um stöðuna
með tölvupósti í gær. Þar kemur
fram að skólanum verði lokað svo
hægt sé að hefja sem fyrst nauðsyn-
legan undirbúning flutnings og við-
gerðar á skólahúsnæðinu. „Um er að
ræða varúðarráðstöfun á meðan
endurbætur fara fram svo hægt sé
að opna Fossvogsskóla að nýju að
loknu sumarleyfi,“ sagði m.a. í pósti
skólastjórans.
Finna þarf pláss fyrir 352 nem-
endur skólans þær tólf vikur sem
eftir eru af skólaárinu. Nemendum í
4. bekk verður áfram kennt í lausum
kennslustofum á lóðinni. Útvega
þarf húsnæði fyrir 1.-3. bekk og 5.-7.
bekk. Stefnt er að því að finna hús-
næði sem næst Fossvoginum.
Vonast er til að foreldrar bregðist
jákvætt við og að allir hjálpist að við
að láta þetta ganga upp. Upplýs-
ingafundur með foreldrum verður í
fyrri hluta næstu viku.
Ýmsir kostir til skoðunar
Helgi Grímsson sagði að velt hafi
verið upp ýmsum möguleikum varð-
andi kennsluhúsnæði til loka skóla-
ársins. Þar má nefna t.d. íþróttahús-
næði, frístundahúsnæði o.fl.
„Við reynum að koma þessu þann-
ig fyrir að sem stærstur nemenda-
hópur geti verið saman á hverjum
stað,“ sagði Helgi. „Varðandi þarfir
yngstu barnanna þarf að vera að-
staða til útiveru og annars slíks. Við
erum ekki komin með neitt fast í
hendi. Eðlilega viljum við að hefð-
bundið skólastarf nemenda raskist
sem minnst. Einnig að vel sé búið að
starfsfólki og að samstarf þess geti
haldið áfram.“ Helgi nefndi í þessu
sambandi nemendur sem þurfa
stuðning í námi. Sem minnstar
breytingar mega verða á því. Hann
sagði að nokkrir húsnæðiskostir
væru í nágrenni Fossvogsskóla en
mjög misgóðir. Niðurstaða þarf að
liggja fyrir í þessari viku.
Leggja á mikla vinnu í að finna
húsnæði í dag. Helgi sagði að þessu
fylgdi eitthvað rask fyrir alla, en
fara þyrfti í nauðsynlegar fram-
kvæmdir við að gera húsnæði skól-
ans eins gott og frekast getur orðið.
Mikið af skólahúsgögnunum er
ekki með tauáklæði. Þau mun vera
hægt að þrífa og nota annars staðar.
Leitað verður ráða hjá sérfræðing-
um um önnur húsgögn, bækur og
annan búnað skólans.
Vitað er að einhverjir foreldrar
ætla ekki senda börn sín í Fossvogs-
skóla í þessari viku. Helgi sagði að
hefðu börn fundið fyrir óþægindum
væri fullur skilningur á því. Unnið
væri að því að koma kennslunni í
gott húsnæði eins fljótt og auðið
yrði.
Fossvogsskóla lokað á miðvikudag
Finna þarf hentugt húsnæði í þessari viku Kennsla hefst aftur á nýjum stöðum 18. mars 4. bekk
kennt áfram í lausum kennslustofum Miðað er við að sem stærstur hópur nemenda geti verið saman
Morgunblaðið/Eggert
Fossvogsskóli Raka- og loftgæðavandamál eru í skólanum. Sumir nemar og starfsmenn hafa fundið til óþæginda.
Fossvogsskóli
» Fossvogsskóli er hverfisskóli
fyrir 6-12 ára börn í Blesugróf-
ar- og Fossvogshverfi. Skóla-
árið 2018-2019 eru 352 nem-
endur og um 50 starfsmenn í
skólanum.
» Skólinn tók til starfa árið
1971 og var áhersla lögð á opna
kennsluhætti í skólanum þar
sem hefðbundið bekkjakerfi
var brotið upp.
„Ég er mjög ánægð með að skóla-
yfirvöld hafi tekið þessa ákvörðun og
mér er létt,“ sagði Magnea Árna-
dóttir, móðir nemanda í Fossvogs-
skóla sem veiktist vegna myglu í
skólahúsinu. Hún ætlar ekki að
senda son sinn í
skólann í þessari
viku. „Ég tel hús-
næðið vera óheil-
næmt og mun
ekki senda hann
þangað fyrr en
búið er að laga
skólabygg-
inguna.“
Magnea gagn-
rýndi niðurstöðu
Mannvits sem
gerði úttekt á skólahúsnæðinu og
knúði á um að loftgæði í Fossvogs-
skóla yrðu skoðuð betur. Hún hafði
sjálf veikst vegna myglu í húsnæði
og þekkti einkennin og áhrifin.
Magnea sá misræmi í niðurstöðum
Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ)
og Mannvits varðandi sýnin úr skól-
anum. „Ég var mjög ósátt við niður-
stöðu Mannvits og skýrslu þeirra.
Ég vissi af leka í skólanum en Mann-
vit sagði að það væri ekki leki,“ sagði
Magnea.
Tekin voru sex sýni
Mannvit gerði úttekt að beiðni
Reykjavíkurborgar og tók fimm
ryksýni og eitt efnissýni í Fossvogs-
skóla. Þau voru send til NÍ og nið-
urstöður túlkaðar í minnisblaði.
Í öllum sýnunum fundust
sveppagró sem oft finnast í útilofti.
Ekkert sýnanna þótti sýna örugg
merki um rakaskemmdir, en aðeins
eitt var laust við merki um örverur.
Vitnað var í niðurstöður NÍ sem
sögðu: „Þar sem megnið af gróum í
ryksýnum er ættað úr útilofti er
mun líklegra að byggingin sé laus
við rakaskemmdir og myglu.“ Það
var túlkað sem að mengun í ryksýn-
um hefði komið frá gömlum raka-
skemmdum. Fleiri niðurstöður þóttu
styðja þá skýringu. Ekki var hægt
að fullyrða að engar rakaskemmdir
væru í húsnæðinu „en líklega eru
þær a.m.k. ekki miklar, séu þær ein-
hverjar“.
Í niðurstöðum skýrslu NÍ um
rannsókn á sýnum úr Fossvogsskóla
fyrir Mannvit segir m.a. að verði
rakaskemmdir í húsnæði sé oft
heppilegra að taka sýni af bygging-
arefninu sem varð fyrir raka-
skemmdinni, þar sem sveppavöxtur
geti verið staðbundinn á því. Sumar
sveppategundir geti framleitt
sveppaeiturefni sem berast út í loftið
með ögnum úr líkama sveppsins, án
þess að gró þeirra verði loftborin.
Efni sem berast með þessum ör-
smáu ögnum geti valdið einstak-
lingum sem búa eða starfa innilok-
aðir í sama rými heilsutjórni.
„Þessar agnir falla svo úr loftinu og
safnast upp ásamt öðrum ögnum í
ryki. Þær eru það litlar og óreglu-
legar að sérstakar aðferðir þarf til
að safna þeim og dugar smásjár-
skoðun eins og hér er notuð ekki til
að greina þær.“
Ánægð með lokunina
Móðir nemanda í Fossvogsskóla gagnrýndi niðurstöðu
verkfræðistofu Sveppaeiturefni geta borist með ögnum
Morgunblaðið/Eggert
Viðgerðir Skólahúsið á að vera komið aftur í lag í byrjun næsta skólaárs.
Magnea
Árnadóttir
Minnisblað Verkís um bráðabirgða-
viðgerðir á Fossvogsskóla fylgdi
tölvupósti sem skólastjóri Foss-
vogsskóla sendi aðstandendum
nemenda á fimmtudagin var.
Þar segir m.a. að miðað við um-
fang skemmda sé „umfangsmikilla
viðgerða og endurnýjunar þörf í
skólanum“. Varðandi bráðabirgða-
lausnir þurfi sérstaklega að horfa á
helstu orsakir skemmda í rýmunum
þar sem nemendur og starfsmenn
séu. Framkvæmdir þessar séu að-
eins fallnar til þess að gera rýmin
betri með tilliti til íveru en ekki er
hægt að ráðast í fullnaðarfram-
kvæmdir á meðan nemendur og
starfsmenn eru í skólanum. Verkís
kvaðst mundu fylgjast reglulega
með ástandinu í skólanum það sem
eftir er af skólaárinu. „Allt ónotað
húsnæði verður innsiglað og lokað
af á viðurkenndan hátt.“
Verkís segir að vandamálunum
megi skipta í fernt. Þau eru lélegt
rakavarnarlag í þaki (að hluta) sem
minnkar loftgæði í íverurýmum.
Gömul loftræstikerfi að hluta. Bæta
þarf úr reglubundnum þrifum og
skemmdir vegna langvarandi leka.
Fram kemur í nánari skýringum að
lekar hafi fundist víða í bygging-
unum.
Í lokaorðum segir m.a.: „Það er
ljóst að umfangsmikilla fram-
kvæmda er þörf og þær eru við það
að hefjast. Reykjavíkurborg og
Verkís munu vinna þetta starf með
stjórnendum skólans sem upplýsa
foreldra eins og kostur er.“
„Umfangsmikilla viðgerða og endurnýjunar
þörf“ í Fossvogsskóla, segir verkfræðistofa