Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.03.2019, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2019 Sameinar það besta í rafsuðu Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Á síðustu sex mánuðum hafa um 1000 börn látið lífið á Madagaskar af völdum mislinga. Þetta kemur fram hjá fréttaveitu AFP. Að sögn Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) komu upp 79.000 tilfelli af mislingum á Madagaskar frá sept- ember á síðasta ári til febrúar. Að sögn heilbrigðisstofnunar landsins eru nú 511 sjúklingar með mislinga, sjúkdóm sem bólusetningar höfðu eitt sinn haldið í skefjum. Rúmlega 100 þeirra eru á spítala. Bólusetning bjargaði barninu Á AFP er rætt við Soa Robertina, 32 ára móður, sem gekk 25 kíló- metra með dóttur sína Frangeline í fanginu til að láta bólusetja hana. Hollande Robisoa, yfirlyflæknir á Annivorano-nord heilsugæslustöð- inni í norðurhluta Madagaskar, seg- ir í samtali við AFP að hefði móðirin ekki lagt af stað í gönguna og látið bólusetja stelpuna hefði hún líkleg- ast látist í mislingafaraldrinum. „Hún [Frangeline] komst í snertingu við flókna tegund af mislingum og hún hefði látist hefði hún ekki komið hingað,“ segir Rabisoa. „Frangeline er virkilega vannærð og ekki bólu- sett gegn mislingum,“ bætti hún við. Frangeline er tveggja ára gömul. Mikill næringarskortur og lágt hlutfall bólusettra eru helstu ástæð- urnar fyrir því hversu mannskæður mislingafaraldurinn í Madagaskar hefur verið. Sjúkdómurinn hefur herjað sérstaklega á börn yngri en fimm ára en 47% þeirra eru van- nærð. Þúsund börn látast í misl- ingafaraldri AFP Lífsbjörg Heilbrigðisstarfsmaður bólusetur barn í Madagaskar. Múlla Muhamed Omar, leiðtogi tal- íbana frá upphafi hreyfingarinnar, bjó í göngufjarlægð frá herstöð bandaríska hersins í Afganistan ár- um saman. Þetta kemur fram í bók- inni Searching for an Enemy eftir hollenska blaðamanninn Bette Dam. Bókin kom út í síðasta mánuði en Dam hefur skrifað um stríðið í Afganistan frá árinu 2006. Múlla Omar var eftirlýstur árum saman af bandaríska hernum. Eftir árás- ina á tvíburaturnana í New York- borg lofuðu yfirvöld 10 milljónum dollara í verðlaun fyrir upplýsingar um dvalarstað Omars. Leituðu í húsi Omars Í bókinni kemur fram að banda- rískir hermenn leituðu meira að segja í húsinu sem Omar dvaldi í en fundu ekki leyniherbergið hans. Bandarísk yfirvöld héldu því ítrek- að fram að Omar væri, eins og Osama bin Laden, í Pakistan. Í rannsóknarvinnu fyrir bókina tók Dam viðtöl við embættismenn í Afganistan sem og eftirlifandi með- limi talíbanahreyfingarinnar, þar á meðal mann sem segist hafa að- stoðað Omar allt til dauðadags, Jabbari Omari, sem gerðist líf- vörður Omars árið 2011. Lengi var talið að hann einn gæti búið yfir upplýsingum um síðustu ár Omars. Hann var handtekinn af yfirvöldum í Afganistan í fyrra og fékk Dam að setjast niður með honum í Kabúl. Samkvæmt þeim upplýsingum bjó Omar í fjögur ár í borginni Qalat í göngufjarlægð frá aðalherstöð Bandaríkjamanna. Konur Omars fluttu til Pakistan og neitaði hann að fá syni sína í heimsókn, að sögn Omaris. Leiðtogi talíbana bjó við hlið hersins  Bandaríkjamenn leituðu árum saman Reuters Stríð Hér má sjá rústir á heimili Omars sem herinn sprengdi 2001. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Flugvél af gerðinni Boeing 737 hrap- aði sex mínútum eftir flugtak í Eþíóp- íu í gær. Allir 149 farþegar vélarinnar ásamt átta manna áhöfn létu lífið í slysinu. Flugvélin tók á loft í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu, og var á leið til Naíróbí. Vélin hafði einungis flogið 60 kílómetra frá flugvellinum þegar hún hrapaði nálægt þorpinu Tulu Fara. Samkvæmt vegabréfsupplýsingum voru farþegar vélarinnar frá 32 mis- munandi löndum. Flugið var á vegum Ethiopian Airlines, stærsta flugfélags Afríku. Flugfélagið, sem er í eigu eþí- ópíska ríkisins, staðfesti í gær að eng- inn hefði komist lífs af. Að sögn frétta- manns fréttaveitunnar AFP myndaðist stór gígur í jörðinni þar sem flugvélin hrapaði, eigur farþega og brot úr vélinni lágu á víð og dreif á slysstað. Flestir frá Keníu Að sögn flugfélagsins voru flestir farþegar vélarinnar frá Keníu, alls 32. Næstfjölmennasti farþegahópurinn var frá Kanada, alls 18. Níu Eþíópíu- búar voru í vélinni. Átta farþegar voru frá Ítalíu, átta frá Bandaríkjunum og átta frá Kína. Þá voru sjö Bretar, sjö Frakkar, fimm Egyptar, fjórir Hol- lendingar og fimm Indverjar um borð. Fjórir farþeganna voru með vegabréf skráð hjá Sameinuðu þjóðunum (SÞ) en árleg samkoma umhverfisverndar- verkefnis SÞ fer nú fram í Naíróbí. Lögreglu- og hermenn voru kallaðir til að aðstoða á slysstað ásamt rann- sóknarnefnd samgönguslysa í Eþíóp- íu. Bandaríkin og Eþíópía vinna sam- an að rannsókn slyssins. Moussa Faki Mahamat, fram- kvæmdastjóri Afríkusambandsins, sagðist vera í áfalli eftir að hann heyrði af flugslysinu. Skrifstofa for- seta Eþíópíu, Abiys Ahmeds, vottaði þeim sem höfðu misst ástvini í slysinu samúð sína á samskiptaforritinu Twitter. Flugvélaframleiðandinn Bo- eing sendi einnig frá sér tilkynningu eftir slysið og vottaði aðstandendum samúð. Bauðst Boeing einnig til að aðstoða Ethiopian Airlines eftir slys- ið. Flugvél Lion Air af sömu gerð, Bo- eing 737-800MAX, hrapaði í október í fyrra, 13 mínútum eftir flugtak frá Jakarta. Allir 189 sem voru um borð létust. Síðasta flugslys Ethiopian Airlines var einnig þegar farþegaflug- vél af gerðinni Boeing 737-800 sprakk í loft upp stuttu eftir flugtak árið 2010. 83 farþegar og sjö manna áhöfn létust. Þrjár Boeing 737-800-vélar eru í notkun hjá Icelandair og á félagið von á fleiri slíkum. Jens Þórðarson, fram- kvæmdastjóri rekstrarsviðs Iceland- air, sagði við mbl.is í gær að flugfélag- ið fylgdist grannt með framvindu rannsóknar á tildrögum flugslyssins í Eþíópíu. Flugmaðurinn vildi snúa við Tewolde GebreMariam, fram- kvæmdastjóri flugfélagsins, sagði að vélin hefði flogið morgunflug sama dag frá Jóhannesarborg í Suður-Afr- íku. Vélin var í þrjá klukkutíma í Add- is Ababa áður en lagt var af stað til Naíróbi. Engar athugasemdir voru gerðar við aðbúnað eða neitt slíkt fyr- ir flugtak. Spurður hvort flugmaður vélarinnar hefði sent frá sér neyðar- kall sagði GebreMariam að flugmað- urinn hefði tekið fram að hann ætti í einhverjum erfiðleikum. Hann óskaði jafnframt eftir því að fá að snúa vél- inni við og fékk leyfi til þess. 157 manns fórust í flugslysi  Farþegavél af gerðinni Boeing 737 hrapaði í Eþíópíu stuttu eftir flugtak  Eitt af mannskæðustu flugslysum síðustu ára  Farþegar vélarinnar frá 32 löndum AFP Gígur myndaðist Maður á slysstaðnum skoðar brak úr flugvélinni. Farþega-, einka- og herflugvélar Flugslys í heiminum sl. 10 ár Innanlandsflug 12 látnir Kólumbía 9. mars 2019 Addis Ababa til Naíróbí 157 látnir Eþíópía 10. mars 2019 Heimild: AFP/Khartis*Flugvélin fannst ekki Fjöldi látinna eða týndra Boeing 737 flugslys 300 100 50 20 1 Flugvél Malaysia Airlines*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.